Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1991, Qupperneq 24
8S
32-.
.1061 IjtJl M fllJÖMUT8Ö'3
------FÖSTUÐAGUR-2fr. JÚLÍ 1991,-
Smáauglýsingar Afmæli
Toyota Camry XL, árg. ’87, til sölu.
ekiinn 59 þúsund km. ath. skipti
skuldabréf. Bílasalan Bílar. Skeifunni
7. sími 91-673434. Vantar bíla á skrá
og á staðinn.
MMC L-300 minibus 4x4, árg. '88, til
sölu. 5 gíra. rafmagn í rúðunt. út-
varp segulband. Verð 1.300.000. skipti
á ódvrari. Uppl. í síma 91-656553.
Glæsilegur Chrysler Le Baron, árg. 79,
rafmagn í öllu. cruisecpntrol. T-topp-
ur. vél 360 cc. skoðaður '92. Uppl. í
síma 96-27448. 96-27688 og 96-27847.
Toyota Camry GLI 2000 ’87 til sölu.
ekinn 37 þús. km, kom á götuna '88,
álfelgur. Uppl. í síma 92-13275.
Ýmislegt
Landsmót jeppamanna.
Torfærukeppni verður haldin laugar-
daginn 3. ágúst kl. 14, á fjölskylduhó-
tíðinni Vík í Mýrdal. Keppnin gefur
stig til bikarmeistara Jeppaklúbbs
Reykjavíkur. Keppt verður í sérút-
búnum flokki og götubílaflokki.
Skráning er í símum 97-56727, Rík-
harður, 92-15050, Jens. Skráningu lýk-
ur laugardaginrí 27.7. kl. 18.
Landsmótsnefnd torfæruklúbbanna.
Kvartmíluklúbburinn heldur sandspyrnu
við Óseyrarbrú í Ölfusi þann 28.7.
Skráning fer fram á keppnisdag.
Keppendur séu mættir fyrir kl. 11.
Allar uppl. í síma 628854 og 13508.
Kvartmíluklúbburinn.
RAUTT UOS
RAUTT UÓS/
Ami Ingimundarson
Árni Ingimundarson, klæðskeri og
húsasmiður, Skarðsbraut 19, Akra-
nesi, er áttræður í dag.
Starfsferill
Árni fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann vann ýmis störf er
hann var ungur, meðal annars sem
sendisveinn í klæðskerabúð Guð-
mundar B. Vikars á Laugaveginum.
Um haustið 1926 fór hann að læra
klæðskeraiðn hjá Vigfúsi Guð-
brandssyni klæðskera og lauk því
námi 1930.
Hann flutti til Akraness árið 1933
og setti upp klæðskeraverkstæði og
rak það til 1955. Það sama ár hóf
hann nám í húsasmíði hjá Halldóri
Backman og lauk því 1959. Eftir það
vann hann við húsasmíðar.
Árni var í Sósíalistafélagi Akra-
ness og er nú í Alþýðubandalaginu.
Hann var formaður Taflfélags
Akraness um tíma og starfaði hann
í Bridgefélagi Akraness. Hann var
þrjátíu ár í Karlakórnum Svanir á
Akranesi. Árni var í stjórn Spari-
sjóðs Akraness um það leyti er
Landsbankinn tók við af honum.
Fjölskylda
Árni kvæntist 1.10.1937 Lilju Ingi-
marsdóttur, f. 10.5.1919, húsmóður.
Foreldrar hennar voru Ingimar Kr.
Magnússon, húsasmíðameistari á
Akranesi, og Bóthildur Jónsdóttir.
Börn Árna og Lilju eru: Auðbjörg
Diana, f. 4.11.1941, maki Jón Her-
mannsson, kennari í Kópavogi; Ingi-
mundur, f. 27.8.1945, maki Jónína
Þórarinsdóttir fóstra; Ingvi Jens, f.
13.10.1948, vegatæknifræðingur,
maki Ása H. Halldórsdóttir; Ingimar
Arndal, f. 2.2.1957, sölumaður hjá
Skrifstofuvélum, maki Halldóra
Einarsdóttir; Rakel, f. 12.8.1961,
nemi í mannfræði í Háskóla íslands,
maki Bjarni Vestmann, stjórnmála-
fræðingur og fréttamaður sjón-
varps.
Björn og Lilja eiga tólf barnabörn
ogfjögur barnabarnabörn.
Árni er elstur tólf systkina. Þau
sem enn eru á lífi eru: Erlingur,
búsettur í Reykjavík, maki Guðrún
Sigfúsdóttir; Óli Haukur, klæðskeri,
búsettur í Kópavogi, maki Valgerð-
ur Jóhannsdóttir; Sigurgeir, verk-
stjóri, búsettur í Reykjavík; Þórunn
Þorkelsdóttir, tannlæknir og hús-
móðir, maki Tómas Helgason lækn-
ir og prófessor; Aubjörg Pétursdótt-
ir, búsett í Kópavogi, maki Ögmund-
ur Frímanssson, símamaður.
Hálfsystur Árna eru: Halldóra Sig-
ríður, búsett í Hafnarfirði, maki
Páll Einarsson; Magðalena, búsett í
Reykjavík, maki Hermann G. Jóns-
son lögfræðingur; Auðbjörg, búsett
í Reykjavík, maki Guðmundur
Björnsson útgerðarmaður.
Foreldrar Arna voru Ingimundur
Ögmundsson, f. 16.4.1881, d. 28.5.
1968, sjómaður, og AuðbjörgÁrna-
dóttir, f. 22.10.1889, d. 26.6.1926,
Arni Ingimundarson.
húsmóðir. Ingimundur flutti árið
1900 til Reykjavíkur og stundaði þar
sjómennsku en 1930 flytur hann til
ísafjarðar og bjó þar með seinni
konu sinni, Jóhönnu Jónsdóttur.
Árni verður að heiman á afmælis-
daginn.
Ólafur Ólafsson
Ólafur Ólafsson járnsmiður, Mið-
vangi 65, Hafnarfirði, verður sjötug-
urámánudaginn.
Starfsferill
Ólafur fæddist að Kötluhóli í
Leiru. Áður en Ólafur fæddist lést
faðir hans og var Ólafur því fyrstu
tólf árin alin upp hjá afa sínum og
ömmu, Eyjólfi Guðlaugssyni og
LiljuFriðriksdóttur. Nokkrum
árum síðar giftist móðir Ólafs Hin-
riki Sveinssyni frá Miðseli í Reykja-
vík. Þau bjuggu um árabil í Flatey
og fór Ólafur þangað tólf ára til
móður sinnar og stj úpa þar sem
hann varífjögurár.
Auk tveggja vetra í barnaskóla var
Ólafur einn vetur í Flensborg en
varð þá að hætta námi vegna veik-
inda. Hann flutti til Keflavíkur og
stundaði þar sjómennsku í þrjú ár.
Þá flutti hann til Hafnarfjarðar 1940
og hefur búið þar síðan.
Ólafur hóf nám í járnsmíði 1942
og lauk þar sveinsprófi 1946. Hann
starfaði í Vélsmiðju Hafnarfjarðar
til 1956 en stofnaði þá eigið fynrtæki
sem hann rak til 1973. Þá hóf Ólafur
störf í Straumsvík og hefur starfað
þarsíðan.
Ólafur hefur verið áhugamaður
um stangaveiði en hann var formað-
ur Stangaveiðifélags Hafnarfjarðar
í þrjú ár.
Fjölskylda
Ólafur kvæntist 19.7.1949 Dag-
björtu Guðjónsdóttur, f. 9.7.1920,
húsmóður, en hún er dóttir Guðjóns
Magnússonar, skósmiðs í Hafnar-
firði, og konu hans, Guðrúnar Ein-
arsdóttur húsmóður.
Börn Ólafs og Dagbjartar eru
Hrefna, f. 5.5.1943, húsmóðir í Hafn-
arfirði; Gísli, f. 13.11.1947, kerfis-
fræðingur hjá Flugleiðum; Lilja, f.
7.9.1950, húsmóðir í Kópavogi; Guö-
jón, f. 23.9.1955, menntaskólakenn-
ari á ísafirði; María Gréta, f. 27.12.
1956, húsmóðir á Sauðárkróki.
Hálfsystkini Ólafs: Guðrún Hin-
riksdóttir, nú látin, og Margrét Hin-
riksdóttir, búsett í Reykjavík.
Foreldrar Ólafs: Ólafur Eyjólfs-
son, f. 24.2.1885, d. 9.2.1921, sjómað-
ur, og Laufey Bæringsdóttir, f. 14.7.
OlafurOlafsson.
1896, d. 14.2.1979, húsmóðir.
Ólafur tekur á móti gestum í
Haukahúsi í Hafnarfirði milli
klukkan 16.00 og 20.00 á morgun,
laugardaginn27.7.
Menning
Að drepa fyrir handrit
Þegar kanadíski útgefandinn, George Harris, fellur
fyrir járnbrautarlest og lætur lífið er það í fyrstu talið
sjálfsmorö. Judith Hayes er ein þeirra sem neitar að
trúa því að Georg hafi svipt sig lífi. Hún starfar sem
blaðakona og hafði nýlokið við að taka viötal við Ge-
org þar sem hann virtist fullur af lífsþrótti og fátt sem
benti til þunglyndis. Skemmst er frá því að segja að
hún ásamt Mörthu vinkonu sinni, sem starfar við
bókaútgáfu, fer aö grafast fyrir um málið og þegar
íleiri, sem það varðar, falla skyndilega í valinn verður
þeim stöllum ljóst að ekki er allt með felldu.
Þetta er í stuttu máli söguþráðurinn í Úrvalsbókinni
Falin markmið sem nýlega er komin út í þýðingu
Ragnars Haukssonar og kostar eins og fyrri daginn
790 krónur út úr búð eða sjoppu eða öðrum þeim stöð-
um sem bækur þessar fást á.
Hér er á ferðinni reyfari sem fer hefðbundnar og
nokkuð troðnar slóðir að flestu leyti nema því að sögu-
hetjurnar, sem leysa málin, höggva á hnútinn og finna
hundinn þar sem hann liggur grafinn, eru konur.
Áminnstar konur eru snöfurmannlegri og ráðabetri
en almennt gerist og gengur um þær konur sem ég
þekki en nokkuð trúverðugar persónur engu að síður.
Framvinda sögunnar er nokkuð hröö og reynt að gera
hana fremur æsilega en það er eins og höfundur hafi
ekki alveg lag á því að skrifa verulega góöan reyfara.
Svo vill til að höfundurinn er kvenkyns og kann að
vera aö mínir fordómar (oink, oink) spilli hughrifun-
um þar sem ég hef efasemdir um að konur skrifi veru-
lega góðar bókmenntir af þessu tagi sem fram til þessa
hafa verið skrifaðar af harðsoðnum körlum fyrir harð-
soðna karla um enn harðsoðnari karla. En kannski
tapar sagan einhverjum fíngerðum blæbrigðum í þýð-
ingunni. Um það skal ekki dæmt þvi ég hef ekki lesiö
bókina á frummálinu.
Yfirbragð bókarinnar er með líkum hætti og hefur
verið á þessum bókaílokki eða í samræmi við verðið
sem haldið er niðri með því að fara ódýrustu hugsan-
legar leiðir við vinnsluna. Fyrir vikið eru nokkrir
gallar í frágangi sem gætu sært formskyn viðkvæmra
Bókmenntir
Páll Asgeirsson
smekkmanna en hindra engan í því sem er aöalmálið.
Að lesá bókina sér til afþreyingar.
Falin markmiö - Hidden Agenda
Höfundur: Anna Porter
Þýðandi: Ragnar Hauksson
Útgefandi: Frjáls fjölmiðlun
Þorsteinn Kr.
Guðmundsson
Þorsteinn Kr. Guðmundsson, mat-
sveinn hjá ísal, verður sextugur á
morgun, laugardaginn 27. júlí. Þor-
steinn og kona hans, Anna María
Paulsen, taka á móti gestum að
heimili sínu að Lækjartúni 11, Mos-
fellsbæ, á afmælisdaginn eftir
klukkan 18.00.
GesturGíslason
Gestur Gíslason, Vogatungu 45,
Kópavogi, er áttatíu og fimm ára í
dag. Hann dvelur um þessar mundir
í Skjólbraut la, Kópavogi.