Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1991, Blaðsíða 18
18
íþróttir
Valur (37)106
KR (42)110
Gangur leiksins: 6-10, 10-16,
14-20, 19-26, 23-26, 25-26, 28-31,
(37-42). 39-52, 47-64, 47-67, 59-76,
72-90, 85-100, 103-108, 106-110.
Stig Vals: Magnús Matthíasson
34, Ragnar Jónsson 25, Franc Boo-
ker 22, Tómas Holton 10, Símon
Ólafsson 8, Svali Björgvinsson 3,
Ari Gunnarsson 3, Hannes Har-
aidsson 2.
Stig KR: John Baer 26, Axel
Nikulásson 22, Lárus Ámason 17,
Guðni Guðnason 15, Hermann
Hauksson 14, Matthias Einarsson
7, Óskar Kristjánsson 5, Páll Kol-
beinsson 4.
Dómarar: Kristján Möller og
Kristinn Óskarsson, sæmilegir.
Áhorfendur: Ura 200.
UMFT (48)82
IBK (48) 101
Gangur leiksins: 13-8, 13-13,
19-18, 36-35, 46-40, (48-48). 50-60,
52-66, 56-74, 69-75, 79-95, 82-101.
Stig Tindastóls: Ivan Jonas 33,
Valur Ingimundarson 22, Einar
Einarsson 13, Kristinn Baldvins-
son 6, Hinrik Gunnarsson 3, Ing-
var Ormarsson 2, Bjarki Baldvins-
son 2, Haraldur Leifsson 1.
Stig ÍBK: Jonathan Bow 38,
Nökkvi Már Jónsson 22, Sigurður
Ingimundarson 21, Jón Kr. Gísla-
son 5, Albert Óskarsson 6, Kristinn
Friðriksson 5, Hjörtur Harðarson
3.
Fráköst: Tindastóll 29. ÍBK 43.
Dómarar: Kristinn Albertsson og
Leifur Garðarsson, ágætir.
Áhorfendur: 430.
A-riðill:
KR....... 6 5 1 600-517 10
Njarðvík. 5 4 1 432-393 8
Tindastóll... 5 2 3 450-452 4
Snæfell.. 5 1 4 353-446 2
Skallagr. 5 0 5 374-456 0
B-riðiIl:
Keflavík. 5 5 0 510-392 10
Grindavík... 5 4 1 402-378 8
Haukar... 5 3 2 451-473 6
Valur.... 6 2 4 536-553 4
Þór...... 5 0 5 393-447 0
Hörður
kyrríFH
Hörður Magnússon, marka-
kóngur úr FH, mun leika áfram
með Hafnarfjarðarliðinu á næsta
keppnistímabih. Eins ogkunnugt
er var Hörður í viðræðum við
spánska 2. deildar félagið Merida
og þá voru sögusagnir aö hann
væri á leið tfl annarra félaga á
Íslandí.
„Ég neita því ekki að það hefur
verið raétt við mig frá öörum fé-
lögum en ég hef tekið þá ákvörð-
un að leika áfram með FH. Ég hef
þá trú að FH geti orðið eitt af
toppliðunum á næsta ári og aö,
þvíersteíht,“sagðiHörðurísam- ’
tali viö DV.
-GH
HMísnóker:
Sigur
ogtap
Brynjar Valdimarsson tapaði
fyrir Leung frá Hong Kong, 2-4,
í 3. umferö heimsmeistaramóts
áhugamanna í snóker sem nú
stendur yfir í Tælandi. Leikurinn
var mjög jafn og spennandi.
Brynjar hafði áöur slgraði and-
stæðinga sina í fyrstu tveimur
umferðunum.
Eðvarð Matthíasson vann sinn
fyrsta sigur á mótinu þegar hann
vann Austurríkismanninn Burda
mjög örugglega, 4-0. -GH
MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 1991.
Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu
Papiní
leikbanni
- þegar ísland mætir Frakklandi
Jean-Pierre Papin, mesti markaskorari Frakka, verður ekki með franska
iandsiiðinu þegar það mætir því íslenska í Evrópukeppni landsliöa í knatt-
spyrnu í París 20. nóvember.
Papin fékk sitt annað gula spjald í keppninni þegar Frakkar unnu Spán-
veija í Sevilla þann 12. október og verður því í leikbanni gegn íslandi.
Spánverjar sektaðir
Spánverjar voru í gær sektaðir um þijár milljónir króna vegna óláta
meðal áhorfenda sem urðu á leiknum við Frakka. Áhorfendur köstuöu
ýmsu lauslegu inn á völlinn, óhressir með fyrsta tap Spánveija í landsleik
i Sevilla í 68 ár.
Bordeauxí
öðrusæti
Bordeaux saxaði örlítið á forskot Strassborg í frönsku 2. deildinni um
helgina. Afar hörð keppni stendur á milli þessara liða í riðlinum en for-
skot Strassborg er nú aöeins eitt stig. Bordeaux vann mikilvægan útisig-
ur á Rodez, 1-3, og skoraði Arnór Guðjohnsen ekki fyrir Bordeaux í leikn-
um. Hann er ennþá markahæsti leikmaður Hðsins, hefur skorað sex
mörk á tímabilinu.
„Ég náði ekki að skora að þessu sinni. Þetta var erfiður leikur enda
Rodez sterkir á heimaveUi en liðið er í fjórða sæti í riðHnum. Ég er samt
ekki frá því að þetta hefur verið einn af okkar betri leikjum á tímabil-
inu. Það er stígandi í leik okkar og ég er bjartsýnn á framhaldiö," sagði
Arnór Guöjohnsen við DV. Þess má geta að í fyrri viku var Arnór á skot-
skónum þegar hann gerði tvö af mörkum Bordeaux í 3-0 sigri á heimavelH.
Strassborg er í efsta sæti í riðUnum með 26 stig en Bordeaux kemur í
humátt á eftir með 25 stig. Tveimur leikjum er ólokið í fyrri umferð.
-JKS
MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 1991.
Mjög ánægður
með strákana
- sagði Birgir Guðbjömsson, þjálfari KR, eftir sigur á Val, 106-110
KR-ingar höfðu ótrúlega yfirburði
gegn Valsmönnum í úrvalsdeildinni
í körfuknattleik í gærkvöldi. Loka-
tölur gefa engan veginn rétta mynd
af gangi leiksins. Valsmenn hristu
af sér sleniö á lokamínútunum en
það var of seint í rassinn gripið.
KR-ingar lék lengstum mjög góðan
körfubolta, leikur Hðsins er mjög
agaður og í gærkvöldi lék liðið stund-
um á als oddi.
KR-ingar léku vel eins og áður
sagði en það sama verður ekki sagt
um Valsmenn. Þaö er alveg með ólík-
indum hvað kemur lítið út úr liðinu.
Bjartsýni gætti hjá mörgum fyrir
tímabilið enda engin furða. Margir
höfðu á orði að liðið hefði á að skipa
einu sterkasta byrjunarliðipu en
væntingar sem gerðar voru til Uðsins
hafa runnið út í sandinn. Valsmenn
hafa á að skipa fjórum leikmönnum
yfir tvo metra, mjög sterkan erlend-
an leikmann en þrátt fyrir þetta nær
Hðið engan veginn saman hver svo
sem ástæðan fyrir því er.
Sovéski þjálfarinn hjá Val á ef til
einhveija sök á hvernig í pottinn er
brotinn hjá liöinu þessa dagana.
Skiptingar hans á köflum eru ekki
markvissar og eins var varnartaktík-
in sem hann beitti á köflum i gær-
kvöldi ekki til að bæta úr skák. Um
tíma beittu Valsmenn pressuvörn
sem KR-ingar kunnu svar við strax
í byrjun.
Franc Booker nær sér engan veg-
inn á strik enda fær hann litla hjálp
frá samherjum. í gærkvöldi var nán-
ast aldrei blokkerað fyrir hann og
varð af þeim sökum að gera hlutina
upp á eigin spýtur. Á hinn bóginn
er skotnýting hans mjög bág en það
er af sem áður var en í fyrra þegar
hann lék með ÍR-ingum var hittnin
hans sterkasta hliö.
KR-ingar eiga að skipa mjög sterku
liði og er valinn maður í hverri stöðu.
Ef KR-ingar halda áfram á sömu
braut leikur enginn vafi á því að lið-
ið berst um íslandsmeistaratitilinn.
KR-ingar eru mjög heppnir að hafa
John Baer innborðs hjá sér. Hann
er sterkur alhliða leikmaöur og fellur
vel inn í leik liösins. Það segir sína
um styrkleika KR-liðsins að Axel
Nikulásson kom ekki inn á fyrr en í
síðari hálfleik og skoraði á þriðja tug
stiga. Páll Kolbeinsson lék heldur
ekki mikið en samt var vesturbæjar-
Uðið aldrei í vandræöum. Þetta lýsir
mikilH breidd sem óneitanlega kem-
ur fram í leik liðsins.
„Á heildina litið var ég mjög
ánægður með strákana í þessum leik.
Það var óvíst hvort Axel og Páll
myndu leika þennan leik vegna
meiðsla en þeir báðir skiluöu sínu
vel þrátt fyrir það. Guðni og Matthías
héldu Booker alveg niðri og varnar-
leikurinn var lengst af sterkur þó að
Valsmenn væru komnir fullnærri
okkur undir lokin. Það er stígandi í
leik okkar og ég er bjartsýnn á fram-
haldið,“ sagði Birgir Guðbjörnsson,
þjálfari KR-inga, í samtali við DV
eftir leikinn.
Magnús Matthíasson stóö upp úr í
Valsliðinu í þessum leik og einnig
komst Ragnar Jónsson vel frá sínu
og þá var Símon Ólafsson sterkur í
vörninni.
John Baer var góður í KR-liðinu
og Lárus Árnason var drjúgur í
þriggja stiga skotum sem og í varnar-
leiknum eins og ávallt. Axel Nikulás-
son sýndi hvers hann er megnugur
og þjappaði liðinu vel saman.
. -JKS
- Amór enn markahæstur
Arnór Guójohnsen.
Keflvíkingar með
fullt hús stiga
- sigruðu Tindastól, 82-101, á Króknum
Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauöárkróki:
Eftir jafnan fyrri hálfleik á Sauðár-
króki í gærkvöldi tóku Keflvíkingar
heldur betur við sér í síðari hálfleik
og sigruðu Tindastól nokkuð örugg-
lega í úrvalsdeildinni í körfuknatt-
leik. Lokatölur leiksins urðu 82-101.
Tindastóll haföi frumkvæðið í fyrri
hálfleik en Keflvíkingar jöfnuðu
undir lok hálfleiksins. Suðumesja-
menn náðu góðu forskoti í síðari
hálfleik en heimamenn minnkuðu
muninn niður í sex stig en Keflvík-
ingar skoruðu þá átta stig í röð og
gerðu endanlega út um leikinn.
„Við höfum meiri breidd og það
gerði gæfumuninn. Það er gott að
vinna sigur hér á Króknuni, enda
erfitt að leika hér. Við stefndum að
því að vera með fullt hús stiga fyrir
fríið sem gert veröur á mótinu og það
gekk eftir,“ sagði Jón Kr. Gíslason
eftir leikinn í gærkvöldi.
„Það vantaði herslumuninn þegar
forskot Keflvikinga var aðeins sex
stig. Við vorum braðir í sókninni og
hittnin var slök og því fór sem fór,“
sagði Valur Ingimundarson eftir
leikinn.
Ivan Jonas var bestur hjá heima-
mönnum og Valur Ingimundarson
átti spretti. Hjá ÍBK var Jonathan
Bow yfirburðamaður, skoraði fimm
þriggja stiga körfur og Sigurður Ingi-
mundarson var sterkur.
Man.City - QPR 0-0
Middlesbrough - Barnsley 1-0
Oldham-Derby 2-1
Peterborough - Newcastle 1-0
Sheff.Utd - West Ham 0-2
Knattspyrnuúrslit 1 gær:
Liverpool í basli
í gærkvöldi var leikið í þriðju
umferð ensku deildabikarkeppninn-
ar í knattspymu. Óvæntustu úrsHtin
urðu í viðureign Liverpool og Port
Vale sem leikur í 2. deild. Liðin skildu
jöfn, 2-2, og verða að eigast við aftur
á heimavelli Port Vale. Ian Rush og
Steve McManaman skoruðu mörk
Liverpool. Tveir mikhr markaskor-
arar vom á skotskónum í gær. Lee
Chapman skoraði 2 af mörkum Leeds
og Gary Lineker skoraði eitt af mörk-
um Tottenham. Liðin, sem töpuðu
leikjum sínum, eru úr leik. UrsHt
leikja urðu þannig:
Birmingham - C.Palace...1-1
Grimsby - Tottenham...0-3
Huddersfield - Swindon.1-4
Leeds - Tranmere....3-1
Liverpool - Port Vale., .2-2
12. deild á Englandi tapaði Watford
á heimavelli fyrir Millwall, 0-2. í
skosku úrvalsdeildinni sigraði
Dundee Utd. lið Rangers, 3-2.
Roma sigraði Napoli, 1-0, í fyrri
leik liðanna í 3. umferð ítölsku bikar-
keppninnar í gær. Ruggiero Rizzitelli
skoraði sigurmarkið úr víti sex mín-
útum fyrir leikslok.
Barcelona varð meistari meistar-
anna á Spáni í gær þegar liðið geröi
1-1 jafntefli gegn Atletico Madrid.
Þetta var síðari leikur Uöanna og
Börsungar unnu samanlagt 2-1.
-GH
Víkingar leika gegn Avidesa á Spáni á sunnudag:
Víkingar verða
snemma á fótum
- leikurinn flautaður á klukkan 11.30
ítalskir dómarar munu dæma fyrri
leik spænska liðsins Alzira Avidesa
og Víkings í 2. umferð Evrópukeppni
félagsliða í handknattleik. Leikur lij)-
anna verður í Valencia á sunnudag-
inn kemur en fyrri leikurinn verður
viku síðar í Reykjavík og mun fyrsta
dómarapar Norðmanna dæma þann
leik.
Leikurinn í Valencia á sunnudag-
inn hefst á nokkuð óvenjulegum leik-
tíma en flautað verður til leiks
klukkan 11.30 um morguninn. Vík-
ingar halda utan á fóstudaginn.
Heimaleikurinn iiklega
í nýja húsinu
Víkingar leika að öllum Ukindum
Evrópuleikinn gegn Alzira Avidesa í
sínu nýja og glæsilega íþróttahúsi í
Stjörnugróf 10. nóvember. íþrótta-
húsið verður formlega tekið i notkun
7. nóvember þegar Víkingar leika
gegn Fram á íslandsmótinu.
íþróttahús Víkings tekur með góðu
móti um 1300 áhorfendur en að sögn
kunnugra er hægt að koma fyrir
hátt í 1700 áhorfendum, þar af 1200 í
sæti. -JKS
Hermann Hauksson, KR, hefur betur gegn Valsmanninum Hannesi Haraldssyni.
DV/mynd GS
Bikarkeppni HSÍ:
Þrír ójaf nir leikir
Þrír leikir fóru fram í 1. umferð bikar-
keppni HSÍ í handknattleik í meistara-
flokki karla í gærkvöldi.
ÍR-b tapaði fyrir íslandsmeisturum
Vals, 19-34, eftir að staðan hafði verið
12-14 í Íeikhléi. Markahaéstir í Uði ÍR
voru Hlynur Jóhannsson og Finnbogi
Sigurbjörnsson með 5 mörk hvor og
Ragnar Ólafsson skoraði 4. Hjá Val var
Valdimar Grimsson markahæstur meö
8 mörk, Finnur Jóhannsson 5 og Brynjar
Harðarson 4.
Á Akureyri sigraði Þór liö Völsungs,
24-14. Staðan í leikhléi var 13-8. Rúnar
Sigtryggsson skoraöi 10 mörk og Jóhann
Samúelsson 4 fyrir Þór. Vilhjálmur Sig-
mundsson skoraði 6 mörk fyrir Völsung
og Haraldur Haraldsson 5.
Þá vann Breiöablik öruggan sigur á
lögregluliðinu Leiftra, 11-26. -GH/GK
Valur mætir ísraelsku meisturunum Hapoel á sunnudaginn:
Valsmenn vita lítið
- um andstæðinga sína og fá engar upplýsingar
16-Hða úrsHtum keppninnar í Laug-
ardalshöll kl. 17 á sunnudag.
„Við höfum reynt mikið til að fá
upptökur af leik þeirra viö Red Boys
frá Lúxemborg í 1. umferð. Fyrst var
okkur sagt að leikurinn hefði verið
tekinn upp, en aö lokum fáum við
aðeins þriggja mínútna upptöku fyrir
helgina," sagði Bjarni Ákason,- for-
maður handknattleiksdeildar Vals.
Valsmenn báðu forráðamenn
Hapoel um að tilgreina hvaða stöðu
hver leikmaöur liðsins spilaði en
fengu þau svör að markverðirnir
væru þeir einu sem spiluðu fastar
stöður, hinir skiptust á!
Þrír Sovétmenn
Með Hapoel leika þrír Sovétmenn,
sem nú eru orðnir ísraelskir ríkis-
borgarar, og einn Tékki, sem er örv-
hent skytta. Þessir fjórir leikmenn
komu allir til liðs við félagið fyrir
þetta tímabil en Hapoel hefur unniö
bæði deild og bikar í ísrael síðustu
tvö ár, og virðist hafa styrkst tals-
vert. Enda hefur liðið unnið fjóra
fyrstu leiki sína í ísraelsku 1. deild-
inni í haust.
Sovétmennirnir þrír eru orðnir
landsliðsmenn í ísrael en einn þeirra,
markvörðurinn Vuleisho, spilaði á
sínum tíma með sovéska unglinga-
landsliðinu og kom hingað til lands
með sovéska liðinu Kunsevo fyrir
áratug eða svo.
„Eftir pappírunum er þetta lið sem
við eigum að vinna en þá er miðað
við styrkleika landsliöa íslands og
ísraels. En þetta er félagslið og það
er ómögulegt að segja til um styrk-
leika þess,“ sagði Þorbjörn Jensson,
þjálfari Vals.
Hapoel komst í 8 Uða úrslit í fyrra
en tapaði þar fyrir tyrkneska liðinu
ETI, því sama og sló út FH-inga.
ísraelska liðið er væntanlegt til
landsins á íostudaginn og aö sögn
Bjarna er allur aðdragandi að komu
þess óvenjulegur. „Vanalega er búiö
að skipuleggja dagskrána með góð-
um fyrirvara, ákveða hvenær er æft
og hvað er gert - en ísraelsmennirn-
ir hafa bara sagt að þeir ræöi það
ekki fyrirfram, frá því verði að ganga
þegar þeir koma tfi landsins," sagði
formaðurinn. -VS
Valsmönnum hefur gengið illa að
afla sér upplýsinga um mótherja sína
í Evrópukeppni meistaraliða í hand-
knattleik, Hapoel Rishon Lezion frá
ísrael, en liöin leika fyrri leik sinn í
Þannig skoruðu liðin stigin:
Pf
KR
VALUR
Undir körfu
3ja stiga skot ^ Hraðaupphlaup
Vítaskot <1 Annað
Sport-
stúfar
Stórleikur í hand-
boita í Keflavík
Ægir Már Karason, DV, Suðumesjum:
HKN, nýja Suðumesjaliðið
sem hefur unnið alla leiki
sína til þessa í 2. deild karla
í handknattleik, mætir 1.
deildar liði Víkings í 1. umferð bikar-
keppninnar'v kvöld og fer leikurinn
fram i íþróttahúsinu í Keflavík og hefst
klukkan 20. MikH stemmning er fyrir
leiknum á Suðurnesjum og Hannes
Leifsson, þjáH'ari og leikmaður HKN,
sagði í samtali við DV aö það yrði gam-
an fyrir sína leikmenn að taka á móti
öðm af tveimur bestu liöum landsins.
„Þetta er stórviöburður hér á Suður-
nesjum og ég trúi ekki öðru en fólk
fjölmenni og styðji við bakið á okkur.
Það verður á brattann að sækja fyrir
okkur en við reynum að stríða Víking-
um og veita þeim eins mikla mót-
spyrnu og við getum,“ sagöi Hannes
Leifsson.
Bikarvörn ÍBV
hefst gegn Gróttu
Sjö aðrir bikarleikir fara fram í kvöid
og í tveimur þeirra mætast lið úr 1.
deild. Stjarnan og Selfoss mætast í
Garðabæ og þar má búast við hörku-
leik og í Eyjum hefia bikarmeistarar
ÍBV titilvörnina gegn Gróttu. Þessir
leikir hefiast klukkan 20 og á sama
tíma spila ÍH og HK í Strandgötuhús-
inu í Hafnarfirði og B-Hð Vals mætir
Ármanni að HHðarenda. Klukkan 18.15
leika ÍH-b og Afturelding í Strandgötu-
húsinu og klukkan 21.15 leika þar
FH-b og Ögri.
KA féll í 2. deild
í unglingasíðu DV í gær var mishermt
að KR hefði falHð ásamt Haukum í 2.
deild á íslandsmóti 3. flokks karla í
handknattleik. Það rétta er að KA féll
en ekki KR.
Jafnréttismót
í badminton
verður haldið í húsum TBR
2. og 3. nóvember. Keppni
hefst klukkan 14 á laugar-
dag og verður haldið áfram
klukkan 10 á sunnudag. Keppt er í ein-
liða-, tvíUða- og tvenndarleik í meist-
araflokki, A-flokki og B-flökki og keppa
konur og karlar í sömu flokkum. Kon-
urnar ráða í hvaða flokk þær skrá sig.
Þátttökutilkynningar skuiu berast
TBR fyrir klukkan 18 á fimmtudag.
Reuter úr leik
Stefan Reuter, þýski lands-
Hðsmaðurinn sem leikur
með ítalska knattspyrnulið-
inu Juventus, verður fiarri
góðu gamni næstu vikurnar. Reuter
meiddist á hné á æfingu á laugardag-
inn og gekkst í gær undir aðgerð af
þeim sökum.
ítalir hafa áhyggjur
af markaleysinu
Luciano Nizzola, forseti ítölsku deilda-
keppninnar í knattspyrnu, stakk upp
á þyí í gær aö ítalir fylgdu fordæmi
Englendinga og gæfu þrjú stig fyrir
sigur í stað tveggja. „Við veröum að
athuga alla möguleika til að finna svar
við þessu,“ sagði Nizzola eftir að ein-
ungis 8 mörk voru skoruð í 9 leikjum
ítölsku 1. deildarinnar á sunnudaginn.
Þjálfarar Juventus og Torino segja að
það sé engin furða að fá mörk séu skor-
uð, liðin spiH betri varnarleik en sókn-
arleik og geri þar færri og færri mis-
tök. Aðeins 1,9 mark hefur verið skor-
að að meðaltali í leik í ítölsku knatt-
spyrnunni á þessu keppnistímabiH.
31
íþróttir
Valsarinn
Rambó
„í kvöld lék-
um við með
hjartanu,"
sagði Valdi-
mar Gríms-
son, fyrirliði
Valsmanna,
við DV eftir að
hafa skorað 14
mörk í stór-
sigri á Fram í 1. deildinni í hand-
knattleik á dögunum. Þessi um--
mæli Valdimars þykja minna á
fleyg orð frægrar kvikmyndaper-
sónu og nú er hann ekki kallaður
annað en Rambó í herbúðum Hlíð-
arendaliösins!
Þórsarar
loks heppnir?
Þórsarar á
Akureyri hafa
verið með fá-
dæmum
óheppnir með
þá bandarísku
körfuknatt-
leiksmenn
sem þeir hafa
fengiö til sín
undanfarin ár. Á hverju hausti
hafa þeir fengið „meiriháttar snill-
ing“ en vanalega endar allt með
ósköpum. Sá sem kom í fyrra fór
í jólafrí og sást aldrei eftir það og
á dögunum var Michael Ingram
rekinn eftir að hafa leikið einn
heilan leik og verið rekinn út af
fyrir að „sýna putta“ snemma í
þeim næsta. Nú er kominn einn til
viðbótar og er honum lýst sem
stórkostlegum leikmanni, saman-
ber ummæli Páls Kolbeinssonar
KR-ings í DV á mánudaginn. Svo
er bara aö vona að hann endist
lengur en þinir.
Leynifundur
hjáfrænkunni
Þó knatt-
spyrnan sé
kömin í vetr-
arfrí er nóg að
gerast á bak
við tjöldin hjá
leikmönnum
og forráða-
mönnum fé-
laganna. Fé-
lög eru aö ræða við leikmenn um
að hafa félagaskipti, leikmenn eru
að gefa til kynna að þeir séu tilbún-
ir til að skipta ef rétt kjör bjóðast
og þar fram eftir götunum. DV
hefur frétt af viðræðum félags og
leikmanns sem áttu að fara mjög
leynt - svo leynt að ekki spyrðist
út. Ekki þótti þorandi að funda í
félagsheimilinu eöa heima hjá öör-
um hvorum aðilanum - svo niöur-
staðan varð sú að viðræðurnar
fóru fram heima hjá frænku
stjórnarmanns félagsins. Þangaö
laumuðust forráðamennirnir og
leikmaðurinn svo lítið bæri á og
ræddu sín mál!
Ódýraraað
fáJúgóslava
íslenskir
knattspyrnu-
menn eru
farnir að fara
fram á háar
upphæðir fyr-
ir að skipta
um félag, og
þar er ekki
lengur verið
að tala um hundruð þúsunda ef
þokkalegur 1. deildar leikmaður á
í hlut. Nú er svo komið að félögin
eru frekar farin að líta út fyrir
landsteinana. „Við erum hættir að
ræða við þessa greifa, nú ætlum
við að einbeita okkur að Júgóslav-
íu. Það er orðið ódýrara aö fá leik-
mann þaðan en að fá íslenskan
leikmann," sagði stjórnarmaður
knattspymufélags við undirritað-
an á dögunum. Lái honum hver
sem viU!
Umsjón: Víðir Sigurðsson