Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1991, Blaðsíða 30
42
5I.'1ÖT,'I0 .í>f. HtUAd’UHIVQIM
MIÐVIKUDAGUR- 30- OKTÓBER 1991.
13 V
Ijóðhengd
uppá
Kjarvalsstöðum
MiEið hefur verið rætt um að
íslensk samtímaljóðlist ujóti ekki
þeirrar athygli sem henni ber,
ljóðabækur seljist illa og áhugi
fólks á ljóðinu fari ört dvínandi.
Samt kemur ár eftir ár fjöldi
ljóðabóka á markaðinn sem flest-
ar seljast mjög lítið. í vetur verð-
ur gerð nýstárleg tilraun til að
koma Ijóðum á framfæri á annan
hátt en í bókum. Nokkrum skáld-
um verður boðið að velja frum-
samin ljóð sem verða stækkuð
margfalt og hengd upp til sýnis á
Kjarvalsstöðum, þannig að gestir
geti gengið frá einu ljóði til ann-
ars og lesið þau. Hver ljóðasýning
stendur í hálfan mánuð. Jón úr
Vör er fyrsta skáldið sem sýnir
ijóð sín á ljóðasýningunni, en
liann er einkum þekktur fyrir
Ijóðabókina Þorpiö sem kom út
1948 og olli straumhvörfum í ís-
lenskri ljóðagerð. Ljóðasýning
Jóns verður opnuð á laugardag-
inn kemur.
Leikhúsþyrstir
íslendingar
fylltu
leikhússali
Fjögur atvinnuleikhús eru nú
starfandi í landinu og sýna þau í
sex sölum. Mikið hefur verið um
frumsýningar á nýjum leikritum
að undanförnu svo úr miklu er
að moða fyrir áhugasama leik-
húsgesti og þeir létu síg ekki
vanta á laugardagskvöldið en
uppselt var í öllum leikhúsunum
og komust færri að en vildu. Þá
var einnig uppseit í íslensku
óperuna en hún sýnir Töfraflaut-
una. Þetta kvöld sýndi Leikfélag
Reykjavíkur Dúfnaveisluna á
stóra sviöinu og Þéttingu á Litla
sviðinu. Þjóðleikhúsið frumsýndi
á stóra sviðinu Himneskt er að
lifa og sýndi um daginn barna-
leikritið Búkollu og á Litla svið-
inu var Kæra Jelena, en þess má
geta að uppselt er á þá sýningu
mánuð fram 1 tímann. Leikfélag
Akureyrar sýndi Stálblóm og Al-
þýðuleikhúsið sýndi Undirleik
við morð i Hlaðvarpanum.
Voruöll saklaus
íGeir-
finnsmálinu?
Fyrir jólin kemur út söguleg
skáldsaga, Áminntur um sann-
sögli eftir Þorstein Antonsson,
sem fjallar um Guðmundar- og
Geirfinnsmálið. Eins og kunnugt
er lauk þessu umfangsmesta
sakamáli á íslandi með því aö
fimm ungmenni voru dæmd af
hæstarétti árið 1980 fyrir þátt-
töku í morðunum en Mkin hafa
aldrei fundist. í skáldsögu sinni
kryfur Þorsteinn máliö ofan í
kjöhnn og telur að ungmennin
hafi jafnvel verið dæmd fyrir
morð sem þau aldrei frömdu.
Nýljóð
KristinsReyrs
Sem fyrr segir verða gefnar út
margar ljóðabækur á næstunni
og er ein þeirra, Glaðbeittar lin-
ur, eftir Kristin Reyr, en hann
sendi sína fyrstu ljóðabók frá sér
1942. Fjölbreytnií ljóðagerðhefur
einkennt Kristin frá fyrstu tíð og
er svo einnig nú í Glaðbeittum
línum sem hefur að geyma 48 fjóð
sem ekki hafa birst í fyrri bókum
Kristins en Glaðbeittar hnur er
tólfta ljóðabókin sem kemur út
eftir skáldið.
Menrdng
Aðalhlutverkin Ask og Emblu leika Gottskálk Dagur Sigurðarson og Maria Bonnevie.
Hvíti vikingurinn:
Heimsfrumsýning að
Hraf ni fjarstöddum
Þriðja víkingakvikmynd Hrafns
Gunnlaugssonar og sú langviða-
mesta verður frumsýnd á fóstudag-
inn í Háskólabíói og er um heims-
frumsýningu að ræða. Verður mynd-
in frumsýnd að Hrafni fjarstöddum.
Hvíti víkingurinn er að sjálfsögðu
ekki alíslensk en við teljum okkur
eiga mest í henni og er hún því dýr-
asta íslenska kvikmyndin sem gerð
hefur verið, kostaði 420 milljónir
króna.
Stutt er síðan endanlegum frágangi
lauk og er sýning myndarinnar á eft-
ir áætlun en frumsýning var fyrst
áætluð í september. Ástæða seinkun-
arinnar er sú að þegar Hrafn skilaði
myndinni eins og hann vildi hafa
Hrafn Gunnlaugsson leikstjóri við upptökur á Hvita víkingnum.
Aðeins eitt líf
Nýlega hefur verið komið á fót
starfsemi sem heitir Forvarnar-
starf gegn sjálfsvígum ungmenna,
en ógnvænleg aukning hefur orðið
á sjálfsvígum ungs fólks á undan-
fórnum árum. Til styrktar þessari
starfsemi hefur verið stofnað til
minningartónleika annað kvöld
sem kallast Aöeins eitt líf og eru
þeir haldnir til minningar um Sig-
urjón Axelsson og Jón Finn Kjart-
ansson, tvo unga nemendur við
Menntaskólann við Sund sem dóu
síðastliðiö sumar. Það eru vinir
þeirra og skólafélagar sem stofna
til tónleika þessara og auk þess að
styrkja fyrrnefnda starfsemi vilja
aðstandendur tónleikanna koma af
stað umræðu um sjálfsvíg ung-
menna í von um að koma megi í
veg fyrir slíka sorgaratburði og
vonast þðlr til að tekið verði á þess-
um málum bæði í skólum og úti í
þjóðfélaginu.
Tónleikamir veröa í Menntaskól-
anum við Sund og koma meðal
annars fram íslenskir tónar,
Formaika, Strípshow og Babalú.
Þess má geta að mikið af því efni,
sem flutt verður á tónleikunum, er
eftir Sigurjón Axelsson.
-HK
hana var hún of löng eða rúmir tveir
og hálfur klukkutími.
Kvikmyndahús á Norðurlöndum
kvörtuðu yflr lengdinni og farið var
að stytta myndina og eftir því sem
DV hefur fregnað var Hrafn Gunn-
laugsson ekki í Noregi meðan á stytt-
ingunni stóð. Lokaútgáfa myndar-
innar, sem hér verður frumsýnd, er
um það bil 130 mínútna löng. Viku
síðar verður Hvíti víkingurinn frum-
sýndur víða í Noregi og síðar annars
staðar á Norðurlöndum.
Þau atriði sem klippt eru úr Hvíta
víkingnum eru þó ekki glötuó heldur
verða til staðar í sjónvarpsseríu í
íjórum hlutum sem ætlunin er að
sýna seinna, samtals um fimm
klukkutímar.
Hrafn Gunnlaugsson er leikstjóri
myndarinnar og höfundur sögu og
leiktexta og eins og áður ságöi verður
hann ekki viðstaddur frumsýning-
una hér á landi. Hann er nú á Filipps-
eyjum þar sem hann nýtur hvíldar
eftir mikla törn. Hvort sú meðferð
sem Hvíti víkingurinn fékk þegar
hún var stytt er ein ástæðan fyrir
fríinu veit Hrafn sjálfsagt einn.
Valinn maður
við hvert verk
Hvíti víkingurinn er stærsta sam-
verkefni Norðurlandanna til þessa
og hefur ekkert verið sparað til að
gera kvikmyndina sem glæsilegast
úr garði. Myndin er leikin á íslensku
og var einn aðalleikaranna í mynd-
inni, Helgi Skúlason, fenginn til að
þjálfa erlendu leikarana í framburði.
Aðalhlutverkin eru tvö, Askur og
Embla, og eru þau leikin af Gottskálk
Degi Sigurðarsyni og norsku stúlk-
unni Maria Bonnevie. Aðrir leikarar
í stórum hlutverkum eru Egill Ólafs-
son, Tomas Norström, Helgi Skúla-
son og Jón Tryggvason.
Margir þekktir tæknimenn unnu
með Hrafni við gerð myndarinnar,
má þar nefna leikmyndahönnuðinn
Ensio Suominen sem hefur hlotið
alþjóðaverðlaun fyrir verk sín.
Klippari myndarinnar er Sylvia
Ingemarsson sem unnið hefur með
Ingmar Bergman, meðal annars
klippti hún Fanny og Alexander.
Kvikmyndatökumaðurinn Tony
Forsberg, búningahönnuðurinn Karl
Júlíusson og tónskáldið Hans-Erik
Phihp hafa allir unnið mikið með
Hrafni áður.
Undirbúningur og taka Hvíta vík-
ingsins hefur nú staðið í þrjú ár.
Fullunnið handrit lá fyrir 1989 og
samþykktu þaö leikhstarstjórar allra
sjónvarpsstöðva á Noröurlöndum,
en það voru þeir sem völdu Hrafn til
að leikstýra og sóttu sameiginlega
um íjárveitingu til verksins til Nor-
ræna sjónvarpssjóðsins og jafnframt
ákváðu stöðvarnar fimm að leggja
fram hver sinn hlut innan Nordvisi-
on. Heildarkostnaður við kvikmynd-
ina er eins og áður sagði 420 milljón-
ir og er myndin að hluta til ijármagn-
að af einkafyrirtækjum og sjón-
varpsstöðum utan Norðurlandanna.
Gerist víða á
Norðurlöndum
Hvíti víkingurinn segir frá ungu fólki
á tímum mikilla þjóðfélagsbreytinga.
Hin ævaforna ásatrú feðranna er á
undanhaldi og ný trúarbrögð aö
ryðja sér til rúms, hinn hvíti siður.
Leikurinn hefst í Noregi á dögum
Ólafs konungs Tryggvasonar og
berst síðan til íslands og víða um
Noröurlönd. Hvíti víkingurinn er
ekki sagnfræðilegt verk eða tilraun
til heimildasmíði heldur skáldverk
um einstakhnga og örlög þeirra í
ölduróti tímans. í bakgrunni gerast
atburðirnir sem breyttu framvindu
sögunnar.
Þótt Hrafn Gunnlaugsson verði
ekki viðstaddur heimsfrumsýningu
myridarinnar þá verða allir aðrir
helstu aðstandendur og leikarar við-
staddir. Erlendis frá koma norska
leikkonan Maria Bonnevie og Thom-
as Nörström ásamt aðalframleið-
anda myndarinnar Dag Alveberg og
Petter Borgli framkvæmdastjóra.
-HK