Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1991, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1991, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÖBER 1991. 41 Afmæli Ingibjörg Skarphéöinsdóttir gjaldkeri, Giljalandi 31, Reykjavík, ersextugídag. Starfsferill Ingibjörg er fædd í Reykjavík og ólst þar upp til 14 ára aldurs. Hún bjó á Akureyri í nokkur ár og lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Akureyrar 1948. Ingibjörg fluttist aftur tíl Reykjavíkur og starfaöi þá í 5 ár við skrifstofustörf hjá SÍS. Ingibjörg hefur starfað sem gjald- keri hjá Ölgerð Egils Skallagríms- sonar sl. 18 ár. Hún stundaði nám við Öldpngadeild Fjölbrautaskólans í Breiðholti og lauk þaðan stúdents- prófi 1987. Fjölskylda Ingibjörg giftist 30.10.1960 Inga Sigurjóni Guðmundssyni, f. 15.1. 1933, verktaka. Foreldrar hans voru Guðmundur Sigurðsson, f. 2.8.1896, d. 6.8.1987, og Helga Jónsdóttir, f. 9.8.1897, d. 18.5.1983, en þau bjuggu í Hlíð í Grafningi. Börn Ingibjargar og Inga: Haukur Skarphéðinn, f. 10.7.1960, verkfræð- ingur í Svíþjóð, maki Gunnhildur Friðgeirsdóttir hárgreiðslumeistari, Haukur átti áður einn son, Pál Inga; Guðmundur Birgir, f. 16.1.1962, tölvunarfræðingur hjá Flugleiðum, maki Ingunn Ólafsdóttir, nemi í HÍ, þau eiga tvo syni; Ásgeir Þór, f. 8.5. 1965, bakari í Kaupmannahöfn, maki Margrét Þórðardóttir, nemi í fatahönnun, þau eiga eina dóttur; LindaBjörk, f. 26.5.1967, nemi í HÍ, maki Ólafur Björn Björnsson nemi. Ingibjörg átti áður dóttir, Jóhönnu Jóhannsdóttur, f. 6.7.1951, húsmóð- ur í Bolungarvík, maki Guðmundur Óh Kristinsson húsasmiður, þau eigafjögurbörn. Ingibjörg á einn albróður, einn hálfbróður og eina fóstursystur: Al- bróðir hennar er Sverrir Steinar, f. 7.8.1935, rafeindavirki hjá Pósti og síma, maki Hólmfríöur Þórhalls- dóttir. Hálfbróðir, sammæðra, er Jón Halldór Noröfjörð, f. 9.6.1947, framkvæmdastjóri í Sandgerði, maki Ólafía Kristín Guðjónsdóttir. Fóstursystir Ingibjargar er Heiðdís Norðfjörð, f. 21.12.1940, læknaritari á Akureyri, maki Gunnar Jóhanns- son bifvélavirkjameistari. Foreldrar Ingibjargar: Skarphéð- inn Jónsson, f. 16.2.1907, d. 18.2. 1990, bifreiðastjóri, og Jóhanna Ingvarsdóttir Norðfjörð, f. 10.6.1911, kjólameistari. • Ingibjörg Skarphéðinsdóttir. Jón Bergsson Til ham- Jón Bergsson verkfræðingur, Smárahvammi 4, Hafnarfirði, er sextugurídag. Starfsferill Jón er fæddur í Hafnarfirði og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1951, fyrrihlutaprófi í verkfræði frá Háskóla íslands 1955 og prófi í bygg- ingaverkfræði frá TH í Karlsruhe í Þýskalandi 1958. Jón starfaði sem verkfræðingur hjá íslenskum aðalverktökum sf. 1958-59, bæjarverkfræðingur í Hafnarfirði 1959-61 og 1962-64, verk- fræðingur hjá Verki hf. 1961-62 og hefur rekið eigin verkfræðistofu í Reykjavík og síðar Hafnarfirði frá 1964. Hann stofnaði ásamt öðrum Ok hf. og var tæknilegur ráðunaut- ur þess 1965-72. Jón var kennari við TÍ1968-72 og lektor á sama stað frá 1972-85 en hefur starfaö á verk- fræðistofu Varnarliðsins á Keflavík- urflugvellifrál985. Jón átti sæti í skipulagsnefnd rík- isins frá 1978, var bæjarfulltrúi í Hafnarfirði 1978-82 og var formaður Brunamálastofnunar ríkisins 1979. Fjölskylda Jón kvæntist 12.1.1957 Þórdísi S. Sveinsdóttur, f. 25.5.1931, húsmóð- ur. Foreldrar hennar: Sveinn Sig- urðsson, ritstjóri í Reykjavík, og Steinunn Arndís Jóhannsdóttir. Börn Jóns og Þórdísar: Ingibjörg, f. 26.4.1959, félagsfræðingur, maki dr. Guðmundur Rúnar Árnason, þau eiga einn son, Jón Steinar, f. 27.10.1983; Sigurður, f. 25.1.1963, jaröfræðingur og kennari á Sauðár- króki; Tryggyi, f. 20.6.1967, nemi í Tækniskóla íslands. Jón á tvo bræður. Þeir eru: Örn, f. 13.6.1936, skipasmiður, maki Svala Jónsdóttir, þau eiga fimm börn; Ólafur Bjarni, f. 18.10.1938, bifreiðastjóri, maki Ragna G. Þórs- dóttir, þau eiga fjögur börn. Foreldrar Jóns: Bergur Bjarna- Jón Bergsson. son, f. 21.6.1894, d. 9.9.1989, bifreiða- stjóri, og Ingibjörg Jónsdóttir, f. 14.10.1901, en þau voru lengt búsett á Holtsgötu 11 í Hafnarfirði. Jón tekur á móti gestum á afmæl- isdaginn í Skútunni, Dalshrauni 15, Hafnarfirði, kl. 17-20. Friðrik Ben Þorbjömsson Friðrik Ben Þorbjörnsson, renni- smiður og vélstjóri, Sunnubraut 10, Kefíavik, er sextugur í dag. Fjölskylda Friðrik er fæddur í Höfnum og ólst þar upp. Hann lærði rennismíði í Dráttarbraut Keflavíkur 1950-54 og hefur verið vélstjóri á bátum frá Keflavík allar götur frá því hann lauk iðnnámi. Meðal báta sem Friö- rik hefur verið á er Örn KE13 en þarvarhanníl4 ár. Kona Friðriks er Elsa Einarsdótt- ir, f. 23.12.1933, húsmóðir. Foreldrar hennar: Einar Einarsson, látinn, og Dagbjört Sigvaldadóttir. Þau bjuggu á Strandgötu 13 á Ólafsfirði en Dag- björt dvelur nú á Hornbrekku þar í bæ. Bþrn Friðriks og Elsu: Þorbjörn Einar, f. 29.3.1954, látinn; Guö- mundur Fr., f. 5.5.1958, sjómaður, hann á tvo syni, Lárus Friörik, f. 29.12.1975, og Þorbjörn Einar, f. 5.1. 1989; Hafdís Ben, f. 22.9.1963, mat- reiðslukona, hún á tvær dætur, Dagbjörtu Ben, f. 30.9.1983, og Bryndísi Ben, f. 19.11.1988. Friðrik átti dóttur áður, Magneu, en hún er búsett í Bandaríkjunum. Foreldrar Friðriks: Þorbjörn Benediktsson, f. 1902, látinn, vél- stjóri, og Magnea Friöriksdóttir, f. 1907, en þau bjuggu lengst af í Höfn- um. Friðrik Ben Þorbjörnsson. Friðrik verður að heiman á af- mælisdaginn. 80 ára 50ára Sigurður Samúelsson, Háuhlíð 10, Reykjavik. Anna SigurbjörgTómasdóttir, Selási 9, Egilsstöðum. Helgi Ingólfsson, Brekkubraut 7, Akranesi. 75 ára Hann verður að heirnan. Sigmundur Agnarsson, Jóhann Hannesson, Laugamesvegi 13, Reykjavík. Hann tekur á móti gestum á heim- ih sínu á afmælisdaginn kl. 17-19. Hrannarbyggð 10, Ólafsfirði. Sigurbjörg Simonardóttir, Miðvangi 16, Hafharfirði. Kristján Thorlacius, Kleifarvegi 8, Reykjavík. RagnarEHsson, 70 ára Flatey 1, Mýrahreppi. Bergljót Stefánsdóttir, Ketilsstöðum, Hlíðarhreppi. Guðmunda Jónasdóttir, Höfðagötu21, Stykkishólmi. Árni Sigursteinsson, 40 ára Glaðheimum 4, Reykjavik. Júlia Hannam, Digranesvegi 72, Kópavogi. 60 ára Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, Einholti, Mýrahreppi. Sæmundur Stefánsson, Heiðarhrauni38, Grindavik. Helga L. Guðmundsdóttir, Brekkugerði 5, Reykjavfk. Kristján A. Guðmundsson, Grænahjalla 19, Kópavogi. Ásgeir Jónsson, Kóngsbakka 12, Reykjavík, Helle Waldorf, Flugvehi, húsi 669, Njarðvík. Kári Páll Friðriksson, Dalseli8, Reykjavík. Gunnar Ólason, Gautlandi 15, Reykjavik. Theódóra Tómasson, Suðurgötu 75, Reykjavík. Þráinn Þórhallsson, Klapparási 3, Reykjavík. Sviðsljós Melanie sést hér í hópi gyðinga i myndinni Close to Eden Allir með skegg nema Melanie Leikkonan Melanie Griffith lét sér Melanie leikur þar lögreglukonu ekki vaxa skegg við tökur myndar- sem laumast inn í hverfi gyðinga til innar Close to Eden en hún var líka þess að leysa morðgátu. næstum því sú eina sem var skegg- Myndin, sem gerist á Manhattan, laus í myndinni. verður frumsýnd á næstunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.