Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1991, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1991, Blaðsíða 36
FR ETTAS K O TI <€■! Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- leyndar er gætt. Við tökum við frétta- skotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022 MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 1991. Reykjavíkuriimferðm: Fimm hlutu meiðsl í fjó um slysum Fjögur umferðaróhöpp urðu í um- ferðinni í Reykjavík í gær sem höfðu meiðsl í för með sér. Fimm voru flutt- ir á slysadeild. Ökumaður reiðhjóls slasaðist klukkan 14.30 við Sæbraut eftir að hafa orðið fyrir bíl. Meiðsl hans voru þó ekki alvarleg. Tveir bílar skullu saman á mótum Bíldshöfða og Höfða- bakka um svipað leyti. Ökumaður annars bílsins var fluttur á slysa- deild. Um klukkan 20.16 missti öku- maður bifhjóls stjórn á ökutæki sínu á Suðurlandsbraut á móts við Skeið- arvog. Farþegi á hjólinu var fluttur Rneð sjúkrabíl á slysadeild en öku- maðurinn slapp með minniháttar meiðsl. í gærkvöldi valt síðan bíll sftir árekstur við annan á gatnamót- um Miklubrautar og Kringlumýrar- brautar. Ökumaður bílsins sem valt var fluttur á slysadeíld í sjúkrabíl. -ÓTT Freyja á Suðureyri: Hluthafi vill nýta f orkaups- rétt sinn Baldur Jónsson, framkvæmda- stjóri Freyju á Suðureyri hefur skrif- lega tjáð Byggðastofnun að hann ætli sér að nýta forkaupsrétt sinn á hlutabréfum stofnunarinnar. Hlutur hans í fyrirtækinu er um 1 prósent. Það mun væntanlega koma í ljós síð- ar í dag hvort honum tekst aö afla nægjanlegra fjármuna til kaupanna. Til að geta nýtt forkaupsrétt sinn verður Baldur að ganga inn í kauptil- boð sem Norðurtanginn og Frosti hafa sett fram. Það hljóðar upp á ^ 12,5 milljónir fyrir hlutafé Byggða- átofnunar í Freyju og að 50 milljónir verði settar inn í fyrirtækið á næstu mánuðum. -kaa Iðjaboðarverkfall Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: LOKI Þú skalt ekki byggja hús þittásandi! 4 ungmenm jet' uðu aðild að stóru amfetamínmáli Rannsóknardeild lögreglunnar á ísafirði hefur upplýst talsvert um- fangsmikið fikniefnamál sem teng- ist innflutningi og dreifingu á 200 grömmum af amfetamíni. Par um tvítugt, sem er búsett á Suðureyri, hefur verið í gæsluvarðhaldi á ísafirði vegna málsins frá 19. októb- er. Það hefur játað að hafa verið upphafsmenn innflutningsins. 18 ára stúlka frá Akranesi hefur hins vegar gengist við að hafa verið fengin til að flytja efnin til landsins í maí. Parið lagði á ráðin í vor um að kaupa amfetamín í Hollandi og flytja inn til landsins. Til að fjár- magna fíkniefnin og ferðirnar stofnaði önnur stúlknanna þrjú ávísanahefti í jafnmörgum bönk- um á skömmum tíma. Síðan var ávísað tæpri Mlfri milljón króna af innstæðulausum reikningunum i því skyni að fá sem mest af pen- ingum til ferðarinnar. Parið fór við svo búið til Amsterdam og keypti 125 grömm af amfetamíni en hitti stúlkuna á eftir í Gautaborg. Ákveðið var að stúlkan flytti efnin inn til landsins í smokkum í líkama sínum. Þegar þarna var komið sögu var hins vegar ákveðið að kaupa meira af fíkniefnum í Hollandi. Þar kom fiórði aðilinn til sögunnar. Hann var fenginn til að lána fé fyr- ir ferð frá Svíþjóð og aftur til Amst- erdam til kaupa á meira af fíkniefn- um. Þar voru 75 grömm af amfet- amíni keypt í viðbót. Parið flaug við svo búið til íslands frá Kaup- mannahöfn en stúlkan kom nokkru síðar frá Gautaborg með 200 grömm af amfetamíni falin í líkama sínum. Hún átti að fá þókn- un fyrir innflutninginn. Þegar ísafjarðarlögreglan gerði húsleit hjá parinu á Suðureyri 13. október fundust áhöld til Hkniefna- neyslu þar. í framhaldi af húsleit- inni hófst rannsókn á málinu sem nú er á lokastigi. Allir ofangreindir aðilar hafa gengist við brotum sín- um. Rannsóknardeildir lögregl- unnar á ísafirði og Akranesi Mfa unnið aö því í samvinnu við RLR og fíknefttadeild lögreglunnar í Reykjavik að upplýsa málið. -ÓTT Stjórn og trúnaðarmannaráð verkalýösfélagsins Iðju á Akureyri ákváðu á fundi í gærkvöldi að boða til verkfalls hjá Mjólkursamlagi KEA, finnist ekki lausn á deilu sem verið hefur uppi við fyrirtækið. Deilan snýst um það að Iðja vill fá starfsnámskeið fyrir 30 Iðju-félags sem þar starfa en, en hefur ekki feng- 1 ■'•'ið. Boða þarf verkfallið með viku fy r- irvara en það hefur ekki verið dag- sett enn sem komið er. Veðriöámorgun: Skýjaðen þurrt vestanlands Á morgun verður austan- eða norðaustanátt. Strekkingsvindur verður við suöaustur- og suður- ströndina en hægari í öðrum landshlutum. Sums staðar dálítil rigning austanlands og einkum suðaustanlands en annars þoku- loft eða súld við suðaustur-, aust- ur- og norðurströndina. Skýjað með köflum og þurrt vestanlands. Hiti verður á bilinu 5-8 stig að deginum en víða næturfrost í inn- sveitum. Reynir að selja nýja húsið á Kirkjusandi Hið nýja og glæsilega skrifstofuhús Sambands íslenskra samvinnufélaga að Kirkjusandi í Reykjavík er til sölu. Þar er um að ræöa þær þrjár hæöir af fímm og turninn sem Sambandið á og höfuðstöðvar þess eru í. Meðal- stærð hverrar hæðar er 1340 fermetr- ar. Lífeyrissjóður Sambandsins á þriðju hæðina og íslenskar sjávaraf- urðir þá fjórðu. Sigurður Markússon, stjórnar- formaður Sambandsins, sagði að Sambandið notaði ekki allt húsnæðið sem það á, þess vegna væri verið að selja það. „Þannig að ef þú veist um kaup- anda máttu vísa honum á okkur,“ sagði Sigurður. - Hvað kostar þá eignin? „Það vil ég nú ekki ræða um en ætli við séum ekki að tala um ein- hverja upphæð undir Perlu- eða ráð- húsverði," sagði Sigurður Markús- son. Hann sagði enn óráðið hvert Sam- bandið myndi flytja höfuðstöðvar sínar. -S.dór Mannslátið í Njarðvík: Ekki grunaður lengurogsleppt 26 ára Reykvíkingur sem úrskurð- aður var í gæsluvarðhald til 8. nóv- ember á mánudagskvöld vegna láts skipsfélaga síns í Njarðvík á sunnu- dag hefur verið sleppt úr haldi. Að sögn Sigurbjörns Víðis Eggerts- sonar hjá Rannsóknarlögreglu ríkis- ins hggur maðurinn ekki lengur und- ir grun um að hafa átt aðild að verkn- aði sem leiddi félaga hans til dauða. Niðurstaða réttarlæknis hefur leitt í ljós að maðurinn em lést á heimili sínu í Njarðvík á sunnudag hefði ekki látist af ytri áverkum sem voru litlir. Sigurbjörn Víðir sagði við DV í morgun að dánarorskök liggi hins vegar ekki fyrir og frekari rannsókn læknis þurfi að fara fram í því sam- bandi. Rannsókn málsins mun halda áfram en enginn liggur undir grun lengur. -ÓTT 40leitaídag Aðkoman i vistarverur um borð í Nakka, skútu Bergþórs Hávarðssonar, er óglæsileg. Allt á rúi og stúi og ber þess merki að hafa verið meira og minna á kafi í sjó undanfarnar vikur. Þak yfirbyggingar skútunnar er sprungið eftir endilöngu og laust að hluta frá dekkinu. Þar reyndi Bergþór að troða í með fóðri úr dýnu en sú viðgerð hélt illa. Einnig er hurðin brotin þannig að skjól var lítið fyrir sjó og vindi. En við þessar aóstæður varð Bergþór að búa í tæpan mánuð. Helst að hann fyndi þurrt afdrep fremst í skútunni. DV-mynd Ómar Sjómaðurinn, sem fannst látinn eftir að Mími RE 3 hvolfdi í Horna- ljarðarósi, hét Bjarni Jóhannsson, 29 ára, og var búsettur í Garði. Hann lét eftir sig unnustu og 2 mánaða barn. 40 manns frá Höfn og Keflavík munu leita áfram að félaga hans í dag. Hann heitir Þórður Örn Karls- son, 32 ára, búsettur í Keflavík. Þórð- ur Örn er kvæntur og 2 barna faðir. -ÓTT 0RUGGIR-ALV0RU PLVl PiNINGASKAPAR VARI - ORYGGISVORUR ^ ® 91-29399 ívy Allan sólarhringinn Öryggisþjónusta VARI síSan 1 9Ó9 5 I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.