Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1992, Side 2
2
FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1992.
Fréttir
Skipulagsnefnd ríkisins telur fatlaða þurfa leyfi fyrir sambýli:
Vona að lausn deilunnar
verði þjóðinni til sæmdar
segir framkvæmdastjóri Svæðisstjómar fatlaðra í Reykjavík
„Viö trúum því ekki að fatlaðir
þurfi í framtíðinni að spyrja ná-
granna sína um leyfi til að fá að búa
í venjulegum íbúðarhverfum. Þvert
á móti tel ég að þorri fólks á íslandi
bjóði fatlaða velkomna í nágrenni við
sig. Nú setjum við allt okkar traust
á lagabreytingu þannig að oröið
heimili komi í staðinn fyrir stofnun
í lögum um málefni fatlaðra. Við
skulum vona og trúa að þetta deilu-
mál leysist fótluðum í hag og þjóð-
inni til sæmdar," segir Ásta Eggerts-
dóttir, framkvæmdastjóri Svæðis-
stjómar um málefni fatlaðra í
Reykjavík.
Skipulagsnefnd ríkisins hefur sent
umhverfisráðherra þá umsögn um
sambýli fatlaðra aö Þverárseh 28 í
Reykjavík að tilskihð leyfi þurfi frá
byggingamefnd Reykjavíkur. Með
tilvísun í lög um málefni fatlaðra
skilgreinir nefndin heimiU fatlaðra
sem stofnun sem samþykkja þurfi
sérstaklega af byggingamefnd inn í
íbúðarhverfi.
í sambýUnu að ÞverárseU búa
fimm fatlaðir einstakiingar með geð-
ræn vandamál. Þegar það tók til
starfa í haust mótm.æltu nokkrir
nágrannar til byggingamefndar sem
aftur lagðist gegn sambýlinu. Því
vfidi Svæðisstjóm um málefni fatl-
aöra ekki una og áfrýjaði máUnu tíl
umhverfisráðherra sem mun taka
afstööu á næstunni til málsins á
grundvelU umsagna frá skipulags-
nefnd ríkisins og byggingamefnd
Reykjavíkur.
AUs era starfrækt átta sambýU fyr-
ir fatlaða í Reykjavík. Að sögn Ástu
munu deUumar um sambýUð í Þver-
árseU á engan hátt snerta hin sam-
býUn. Hins vegar torveldi þær að tvö
ný sambýli verði tekin í notkun en
heimUd fyrir þeim fékkst samþykkt
í nýafgreiddum fjárlögum.
„Fyrir okkur sem lifum og hrær-
umst í málefnum fatlaðra er túlkim
byggingamefndar og skipulags-
nefndar ósanngjörn. Þá finnst okkur
öfugsnúið og undarlegt að borgaryf-
irvöld skuU túlka lög það þröngt að
það hamU því að ný sambýU geti tek-
ið tU starfa. Þeir sjá orðið stofnun í
lögunum og hengja sig í það en í raun
er enginn ágreiningur um skUning á
orðinu. Samkvæmt lögum um mál-
efni fatlaðra þýðir orðið sambýU ein-
faldlega að ríkið taki að sér að greiöa
laun þeirra sem vinna við að leið-
beina þeim íotluðu."
Að sögn Ástu era á þessu stigi
málsins engar hugmyndir uppi um
að flyfja sambýUð úr ÞverárseU. Beð-
ið sé eftir annars vegar úrskurði
umhverfisráðherra og hins vegar
lagabreytingu sem félagsmálaráð-
herra hafi þegar beitt sér fyrir.
Ásta leggur á það áherslu að íbúar
Þverársels séu upp til hópa indælis-
fólk sem bjóði góðan daginn eins og
góðum nágrönnum sæmir. Inn á
milU séu hins vegar einstakUngar
sem séu óöryggir og hræddir við geð-
veika. „Því miður hafa sjónarmið
þeirra fengið að ráða,“ segir hún.
-kaa
Karl þakkar Stefáni Ágústi fyrir að finna hjólið, Stefán er til hægri á myndinni.
DV-mynd S
Stolna hjóliö fundið:
Kom í leitirnar um leið og DV kom út
HjóUð hans Karls Sigurðssonar
blaðburðardrengs, sem DV greindi í
gær frá að hefði verið stoUð, kom í
leitimar um leið og blaöið kom út.
Það var árvökuU eUefu ára dreng-
ur, Stefán Ágúst Sigurðsson, sem
hafði séð hjóUð á gangstíg við Seilu-
granda. Um leið og DV barst heim
til hans sá hann fréttina um stolna
hjóUð og fór hann þá og sótti hjóUð
heim til sín.
Stefán fékk heimasíma Karls hjá
DV og sá síðarnefndi var að vonum
ánægöur þegar hann sótti hjólið sitt.
„Þetta er alveg æöislegt, það er gott
að hann lét vita,“ sagði Karl sem er
tólf ára.
Karl hafði verið í heimsókn hjá
vini sínum á Fálkagötu á þriðjudags-
kvöld, eftir að hafa verið að rukka
fyrir DV, þegar hjólinu hans var stol-
ið. Um var að ræða fjallahjól sem
Karl hafði safnað lengi fyrir.
Stefán Ágúst fær auövitað fundar-
laun að því er faðir Karls, Sigurður
Karlsson, tjáði DV.
-IBS
Njarövlk:
Býðst til að byggja hús undir réttargeðdeild
Verktaki í Njarðvík, HUmar Haf-
steinsson, gekk á fund Sighvats
Björgvinssonar heUbrigðisráðherra í
fyrradag og bauöst tíl aö byggja hús
undir réttargeðdeUd í Njarðvík.
Hann býðst jafnframt til að lána rík-
inu fyrir húsinu í 2 ár.
„Það er rétt að verktakinn kom til
mín og ræddi þetta mál. Hann sagð-
ist tílbúinn að byggja húsið en öU
tílskiUn leyfi fyrir slíka starfsemi
vantar,“ sagði Sighvatur Björgvins-
son heUbrigðisráðherra í samtaU við
DV.
Hann benti á að íbúar í Ölfusi, sem
búa í þriggja kílómetra fjarðlægð frá
Sogni, væra að mótmæla staðsetn-
ingu geðdeUdarinnar þar. Hvað
myndi þá heUt bæjarfélag gera ef
setja ætti slíka starfsemi niður meðal
þeirra? Hann sagði hins vegar gott
að vita af því að velvUji væri fyrir
því að byggja réttargeðdeUd í Njarð-
vík en aðdragandi og undirbúningur
slíks væri svo langur að hann hefði
ekki trú á því að af þessu yrði. Réttar-
geðdeUdin myndi rísa að Sogni eins
og ákveðið hefði verið.
MáUð var rætt á bæjarráösfundi í
Njarðvík. Að sögn Kristjáns Pálsson-
ar bæjarstjóra var ekki tekin afstaða
tíl málsins en því vísað tíl bæjar-
stjórnarfundar sem haldinn verður
á þriðjudag í næstu viku.
-S.dór
Eiður Guðnason um sambýli fatlaðra í Þverárseli:
Snúið mál sem tekur
tíma að af greiða
„Þetta er snúið mál og verður
skoðað mjög vandlega í ráðuneytinu.
Á því era margar hliðar sem þarf að
kanna og því munu Uða minnst tvær
til þrjár vikur þar tíl að verður af-
greitt," sagði Eiður Guðnason um-
hverfisráðherra þegar DV innti hann
áUts á umsögn skipulagsnefndar rík-
isins um sambýlið fyrir fatlaða í
ÞverárseU.
Skipulagsnefnd komst að þeirri
niðurstöðu í fyrradag að svæðis-
stjórn fatlaðra í Reykjavík þyrfti
samþykki bygginganefndar Reykja-
víkur fyrir sambýlinu. Um sé að
ræða stofnun í lagalegum skUningi
sem samþykkja þurfi inn í skipulögð
íbúðarhverfi.
Félagsmálaráðherra hefur lagt
fram frumvarp á Alþingi um breyt-
ingu á lögum um málefni fatlaðra.
Felur framvarpið í sér að sambýU
fatlaðra verði nefnd heimiU en ekki
stofnanir eins og þau era nú nefnd í
lögunum. Verði þessi breyting að lög-
um þarf ekki samþykki bygginga-
nefnda til að koma á fót sambýlum
fyrir fatlaða í íbúðarhverfum.
Að sögn Eiðs hefur þessi hugsan-
lega lagabreyting engin áhrif á úr-
skurð ráðuneytisins varðandi sam-
býlið í ÞverárseU. Það mál verði al-
farið unniö samkvæmt gUdandi lög-
um og reglum.
Að sögn Jóhönnu Sigurðardóttur
félagsmálaráðherra er henni með
öUu óskUjanlegt hvernig skipulags-
nefnd gat komist að þeirri niðurstöðu
að sambýli fatlaðra væri stofnun.
Það stangist þvert á skilning Alþing-
is á lögunum. Hún segist ekki treysta
sér tíl að spá fyrir um hver úrskurð-
ur umhverfisráðherra veröur. MáUð
sé hins vegar mjög alvarlegt því um
sé að ræða hreint mennréttindamál.
Sá úrskurður sem verður feUdur geti
haft afgerandi áhrif á heimiU fatlaðra
íframtiðinni. -kaa
Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri um starfsemi að Sogni:
Möguleikiá
að opna réttar-
geðdeild í maí
- mannaráðningar þegar bygginganefnd afgreiðir teikningar
„Ég geri ráð fyrir að möguleiki sé
á að opna réttargeðdeildina í lok
maí. Viö getum hins vegar ekki byij-
að framkvæmdir fyrr en bygginga-
nefnd Ölfushrepps hefur afgreitt
teikningarnar að fyrirhuguðum
breytingiun á innréttingxmum,"
sagði Páll Sigurðsson, ráðuneytis-
stjóri í heUbrigðisráðuneytinu, í
samtaU við DV.
Eins og fram hefur komið í DV
hefur umhverfisráðuneytið feUt úr
gjldi synjun bygginganefndar Ölfus-
hrepps um að réttargeðdeUd verði
komið á fót í húsnæði sem leigt er
af SÁÁ að Sogni í ÖUusi. MáUð hefur
legið niðri síðustu mánuði vegna
synjunarinnar en nú er væntanlega
skriður kominn aftur á máUð.
„Arkitektinn er búinn aö senda
teikningamar til bygginganefndar og
við vonumst til að hún muni taka
þær til athugunar. Það á ekki að
þurfa að taka langan tíma. Bygginga-
nefndin fékk málið í sumar og hún
hefur í raun fjallað um það áður.
Varðandi mannahald getum við ekki
byrjað á ráöningum fyrr en búið er
að ganga fullkomlega frá máUnu í
nefndinni og byijað verður á breyt-
ingum á húsnæðinu," sagði PáU.
Hann sagðist telja að breytingar á
húsnæðinu að Sogni tækju 3-4 mán-
uði. Á meðan á breytingunum stend-
ur mun væntanlegt starfsfólk verða
sent til Svíþjóðar í starfsþjálfun.
Reiknað er með að Uðlega 20 manns
verði ráðnir. „Þar eigum við góðan
Hauk í homi, sem er Bogi Melsted
yfirlæknir, hann myndi taka eitt-
hvaö af starfsfólki og útvega hinu
staði. Það bregst ekki,“ sagði PáU.
PáU sagðist ekki hafa fengið nein við-
brögð við úrskurði umhverfisráðu-
neytisins frá Ölfusi í vikunni..
-ÓTT