Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1992, Side 6
6
FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1992.
Viðskipti
DV
Einar Sigurðsson, blaðafuUtrúi Flugleiða:
Ut í hött að Flugleiðir
haf i komið Veröld í þrot
- við breytum ekki mjög ströngum vinnureglum Bank Settlement Plan í Stokkhólmi
Þessi farþegi Veraldar var í sólskinsskapi i gaermorgun á leið út til Kanari-
eyja. Skreytt húfan á sínum stað og farseðlar i hendi. DV-mynd GVA
Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, segir að það sé alrangt hjá
Svavari Egilssyni að Flugleiöir hafi
gert kröfu um að Veröld yrði gerð
gjaldþrota ef Flugleiðir hlypu undir
bagga og tryggðu að Veraldarfarþeg-
ar, sem búnir væru að greiða Veröld
fyrirhugaða Kanaríeyjaferð sína,
kæmust út til Kanaríeyja og fengju
ferð sína uppfyllta.
„Þegar Flugleiöir ákváðu að
hlaupa undir bagga var það vegna
þess að Veröld var þegar búin að
ákveða að leita eftir gjaldþrotaskipt-
um. Flugleiðir komu inn í dæmið
þegar ljóst var að þama vora farþeg-
ar að lenda í vandræðum. Okkar
sjónarmið var að firra farþegana
vandræðum, ekki ferðaskrifstofuna
Veröld."
Tap farþega Veraldar hefði
bitnað á allri ferðaþjónustu
Einar segir að það hefði komið sér
afar illa fyrir íslenska ferðaþjónustu
í heild ef farþegar, sem búnir væru
að greiða fyrir ferðir og hótel, yrðu
fyrir fjárhagslegu tjóni og fengju
ferðir sínar ekki uppfylltar.
„Það er hagur Flugleiða, til lengri
tíma htið, að ferðamarkaðurinn sé
rekinn af öryggi og fólk þurfi ekki
aö óttast vandræði vegna ferðaskrif-
stofa Sem lenda í erfiðleikum. Það réð
mestu um að Flugleiðir komu inn í
dæmi Veraldar á Kanaríeyjum. Flug-
leiðir eru þaö stór aðili á markaðn-
um. Fyrirtækið metur það svo að
skaðist markaðurinn í heild sinni
skaðist það. Það er hins vegar aug-
ljóst reikningsdæmi að við tökum á
okkur skaða, til skamms tíma htið,
með því að koma þarna inn.“
Einar gagnrýnir harðlega orð
Svavars Eghssonar varðandi við-
skipti Veraldar og fyrirtækisins
Bank Settlement Plan í Stokkhólmi
og að Flugleiðir hafi sett stóhnn fyrir
dymar og séð til þess að Veröld fengi
ekki lengur að hafa farmiðasölu út á
krít.
BSP er mjög ströng
alþjóðleg greiðslumiðlun
„Bank Settlement Plan er alþjóðleg
greiðslumiðlun flugfélaga og ferða-
skrifstofa, ekki bara Flugleiða. Ver-
öld hafði á sínum tíma heimild til að
selja í gegnum þetta kerfi farmiða
með tíu flugfélögum. Um mánaða-
mótin nóvember-desember gat Ver-
öld ekki staðið í skilum við BSP á
réttum tíma í fyrra skiptið. Þá tók
hluti af þessum flugfélögum þessa
heimild af Veröld strax. Eftir voru
Flugleiðir og örfá önnur félög.“
BSP veitir rautt spjald
klikki menn í annað sinn
Að sögn Einars hefur BSP þá fóstu
vinnureglu að geti ferðaskrifstofa
ekki staðið í skilum tvisvar sinnum
er hún sett í fjárhagslega endurskoð-
un og getur á meðan ekki selt far-
miða út í reikning. Hins vegar getur
viðkomandi ferðaskrifstofa selt
farmiða áfram en gegn staðgreiðslu.
Hann segir ennfremur að þegar Ver-
'öld stóð ekki í skilum í fyrra skiptið
hafi hún fengið bréf frá BSP um að
í næsta skipti færi Veröld sjálfkrafa
út úr greiðslumiðluninni, samkvæmt
reglum félagsins. Það væri einfalt
mál.
„í dæmi Veraldar var það því BSP
sem tók ákvörðunina eftir að Veröld
hafði greitt of seint. BSP hefur mjög
strangar vinnureglur. Þetta eru
þeirra vinnureglur en ekki Flugleiða.
Flugleiðir geta þess vegna ekki breytt
þeirra reglum. Enda krefja flugfélög-
in BSP um greiðslur en ekki viðkom-
andi ferðaskrifstofur.
Ef Flugleiðir væru að róa að því
að einstök félög fengju greiðslufrest
væri kerfi BSP hruniö um sjálft sig.
Þetta er greiðslumiölunarkerfi sem
byggist á föstum gjalddögum og að
það sé staðið við þá.“
Þess vegna er kerfi
BSP mjög strangt
Einar segir að kerfi BSP sé strangt
Yfirlýsing Jóns G. Zoéga lögmanns vegna gjaldþrots Veraldar:
Rangt hjá Svavari
Jón G. Zoöga, lögmaður Veraldar
í viðræðunum við Flugleiðir í fyrra-
dag og Bank Settlement Plan um síð-
ustu helgi, segir að orð Svavars Eg-
hssonar, eiganda Veraldar, í DV í
gær séu röng.
„Flugleiöir vhdu ekki koma nálægt
þessu dæmi í upphafi en vegna þrá-
kelkni og beiðni minnar og endur-
skoðanda Veraldar, Sveins Jónsson-
ar, urðu Flugleiðir við því að aðstoða
Veraldarfarþega á Kanaríeyjum án
nokkurrar skyldu. Það er því fárán-
legt að segja að Flugleiðir hafi sett
Veröld í gjaldþrot. Félagið var sjálft
orðið gjaldþrota."
Jón G. Zoöga var einnig í viðræðum
fyrir Veröld gagnvart greiðslumiðl-
uninni Bank Settlement Plan í Stokk-
hólmi. „Það var munnlegt samkomu-
lag við BSP um að farmiðasalan yrði
hugsanlega ekki afturkölluð ef við-
skiptabanki Veraldar kæmi með yfir-
lýsingu. Það fékkst hins vegcir ekki
af hálfu viðskiptabankans og kemur
Flugleiðum ekkert við. Þetta
greiðslumiðlunarfyrirtæki er með
gífurlega strangar reglur um
greiðslu á réttum tíma.“
-JGH
Jóhannes Gunnarsson, formaöur Neytendasamtakanna:
Hótelið hótaði skuldaf angelsi
- herðaveröurtryggingarferðaskrifstofa
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, segir að sam-
gönguráðuneytið verði að herða
tryggingar og reglur um ferðaskrif-
stofur í kjölfar Veraldarmálsins.
„Þaö hringdi í mig einn farþegi
Veraldar frá Kanaríeyjum í gær-
morgun og las upp fyrir mig bréf sem
fararstjórar Veraldar sendu farþeg-
unum sem voru að yfirgefa hótehn á
leiö heim. í bréfinu sagði aö Veröld
væri orðin gjaldþrota og því miður
yrði fólk að greiða hóteldvöl eða
skrifa undir skuldaviðurkenningu,
eha væri hætta á því að lögreglan á
Kanaríeyjum heföi afskipti af mál-
inu.“
Jóhannes segist hafa hvatt farþeg-
ann, sem hringdi, að koma því áleið-
is að farþegar greiddu ekki hótel-
kostnað þar sem þeir væru búnir að
greiða hann og væru með kvittun þar
um frá Veröld. Þar sem hótelin hefðu
samþykkt kvittanir í upphafi mætti
líta svo á þau væru búin að sam-
þykkja gistinguna án bakreikninga.
„Þetta mál Veraldar sýnir að
hækka þarf tryggingarfé ferðaskrif-
stofa en það er aðeins 6 milljónir
króna. Jafnframt þarf tryggingarféð
að tryggja meira en heimkomu far-
þega, hka þann hótelkostnað sem
farþegum er gert að tvígreiöa verði
ferðaskrifstofa gjaldþrota eins og í
þessu tilviki."
-JGH
vegna þess að flugfélögin framselji í
gegnum þetta kerfi rétt ferðaskrif-
stofanna til að gefa út farmiða sem
flugfélögin heita að standa við, sama
hvort þau fá greitt frá ferðaskrifstof-
unum eða ekki. Fyrir vikið verði að
vera aðhald í kerfinu.
„Aðhaldið er þetta. Ferðaskrifstof-
ur fá stranga aðvörun í fyrra skiptið
greiði þau ekki á gjalddaga. í annað
sinn eru þær teknar í staðgreiðslu-
viöskipti en geta áfram selt farmiða.
Það hefur gerst að ferðaskrifstofur
hafa selt farmiða tímabundið gegn
staðgreiðslu án þess að vera tengdar
BSP. Ef ferðaskrifstofan sannfærir
síðan BSP um að aUt sé í lagi fjár-
hagslega fer hún aftur inn í greiðslu-
miðlunarkerfið," segir Einar.
-JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
INNLAN överðtryggð
Sparisjóðsbækur óbundnar Sparireikningar 3ja mánaða uppsögn 6 mánaða uppsögn Tékkareikningar, almennir Sértékkareikningar 2.25- 3 2.25- 4 3.25- 5 1 2.25- 3 Landsbanki Sparisjóðirnir Sparisjóðirnir Allir Landsbanki
ViSrrÖLUBUNDNIR REIKNINGAR
6 mánaða uppsögn 1 5-24 mánaða Orlofsreikningar Gengisbundnir reikningar í SDR Gengisbundnir reikningar í ECU 3 7-7,75 5,5 6,25-8 9-9,25 Allir Sparisjóðirnir Allir Landsbanki Búnaðarbanki
ÓBUNDNIR SÉRKJARAREIKNINGAR Vísitölubundin kjör, óhreyfðir. óverðtryggð kjör, hreyfðir 3,25 3,5 5,0-6,5 Búnb., Landsb. islandsbanki
SÉRSTAKAR VERÐBÆTUR Vísitölubundnir reikningar Gengisbundir reikningar (innantfmabíls) 2,25-4 ' 2,25-4 Landsb., Islb. Landsb., Islb.
BUNDNIR SKIPTIKJARAREIKNINGAR
Vísitölubundin kjör óverðtryggð kjör 6.25- 7 7.25- 9 Búnaðarbanki Sparisjóðir
INNLENDIR GJALDEYRISREIKNINGAR Bandaríkjadalir Sterlingspund Þýsk mörk Danskar krónur 2.75- 3,25 8.75- 9,3 7.75- 8,3 7,75-8,3 Islandsbanki Sparisjóöirnir Sparisjóðirnir Sparisjóðirnir
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
otlAn óvehðtryggð
Almennir víxlar (forvextir) Viðskiptavíxlar (forvextir)1 Almenn skuldabréf Viðskiptaskuldabréf1 Hlaupareikningar(yfirdráttur) 14,5-1 5,5 kaupgengi 15,25-16,5 kaupgengi 17,75-18,5 Búnaðarbanki Búnaðarbanki Allir Islb., Búnb.
útlán verðtryggð
Almenn skuldabréf 9,75-10,25 Búnaðarbanki
afurðalAn
Islenskar krónur 14,75-16,5 Búnaðarbanki
SDR 8,5-9,25 Landsbanki
Bandaríkjadalir 6,25-7 Landsbanki
Sterlingspund 1 2,6-13 Sparisjóðirnir
Þýsk mörk 11,5-11,75 Allir nema Islb.
Míttnseðlslán y 4,9
Lifavrissióöslán 5-9
Dráttarvextir 25,0
MEÐALVEXTIR
Almenn skuldabréf desember
Verötryggð lán september
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala janúar
Lánskjaravísitala desember
Byggingavísitala desember
Byggingavísitala desember
Framfærsluvísitala desember
Húsaleiguvísitala
VERÐBRÉFASJÓÐIR
17,9
10,0
31 96 stig
31 98 stig
599stig
187,4 stig
1 59,8 stig
1,1% lækkun 1. janúar
HLUTABRÉF
Gengl bréfa verðbréfasjóöa Sölu- og kaupgengi aö lokinni jöfnun:
KAUP SALA
Einingabréf 1 6,047 HÆST LÆGST
Einingabréf 2 3,216 Sjóvá-Almennar hf. - 5,65 L
Einingabréf 3 3,974 Ármannsfell hf. - 2,40 V
Skammtímabréf 2,015 Eimskip 5,05 K 5,80 V,S
Kjarabréf 5,693 Flugleiðir 1,85 K 2,05 K
Markbréf 3,055 Hampiðjan 1,50 K 1,84 K,S
Tekjubréf 2,115 Haraldur Böðvarsson 2,00 K 3,10 K
Skyndibréf 1,765 Hlutabréfasjóður VlB 1,04 V 1,10 V
Sjóðsbréf 1 2,902 Hlutabréfasjóðurinn - 1,73 V
Sjóðsbréf 2 1,932 islandsbanki hf. *- 1,73 F
Sjóösbréf 3 2,006 Eignfél. Alþýöub. 1,25 K 1,70 K
Sjóðsbréf 4 1,724 Eignfél. Iðnaðarb. 1,85 K 2,22 K
Sjóðsbréf 5 1,202 Eignfél. Verslb. 1,15 K 1,48 K
Vaxtarbréf 2,0449 Grandi hf. 2,10 K 2,70 S
Valbréf 1,9167 Olíufélagið hf. 4,50 K 5,00 V
Islandsbréf 1,273 Olís 2,10 L 2,18 F
Fjóröungsbréf 1,136 Skeljungur hf. 4,80 K 5,40 K
Þingbréf 1,269 Skagstrendingur hf. 4,60 F 4,90
Öndvegisbréf 1,252 Sæplast 6,80 K 7,20 K
Sýslubréf 1,294 Tollvörugeymslan hf. 1,09 F 1,13 L
Reiðubréf 1,230 Útgerðarfélag Ak. 4,50 K 4,80 L
Launabréf 1,012 Fjárfestingarfélagið 1,18 F 1,35 F
Heimsbréf 1,085 Almenni hlutabréfasj. 1,10 F 1,1 5 F,S
Auðlindarbréf 1,04 K1.09 K,S
Islenski hlutabréfasj. 1,15 L 1,20 L
Sildarvinnslan, Neskaup. 3,10 L 3,50 L
’ Við kaup á viðskiptavlxlum og viðskiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila,
er miðað við sérstakt kaupgengi.
K = Kaupþing, V = Vl B, L = Landsbréf, F = Fjárfestingarfélagiö, S = Verðbréfav. Sam-
vinnubanka
Nánari upplýsingar um peningamarkaðinn birtast I DVá fimmtudögum.