Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1992, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1992.
9
Utlönd
Bandarisku forsetahjónin, þau George og Barbara Bush, veifa til mannfjöldans áður en þau héldu heim á leið
frá Tokyo eftir tólf daga ferð um Asíu. ' Símamynd Reuter
Bush ánægður með loforð Japana:
Tvöf alda kaup á
bflavarahlutum
- kaupsýslumenn ekki jafn vissir um árangurinn
George Bush Bandaríkjaforseti
sagði fréttamönnum, sem ferðast
með honum heim eftir tólf daga ferð
um Asíulönd, að samþykki Japana
fyrir því að tvöfalda innflutning sinn
á bandarískum bílavarahlutum
mundi skapa 200 þúsund störf í
Bandaríkjunum en það væri aðeins
fyrsta skreflð.
„Ég hef ekki ástæðu til að ætla
annað en að við höfum náð miklum
árangri," sagði hann við fréttamenn
skömmu áður en flugvél hans lenti
á Andrews herstöðinni skammt frá
Washington.
„Það mun taka fólk nokkum tíma
að átta sig á því sem mun gerast. En
ég lít á þetta sem byijun. Okkur varð
vel ágengt og við fundum fylgja þessu
eftir,“ sagði hann.
Áður en hann fór frá Tokyo í gær
sagði Bush að í viðræðunum við
Miazawa, forsætisráðherra Japans,
hefðu þeir komist að samkomulagi
um ákveðnar aðgerðir til að leiðrétta
viðskiptamáta Japana sem hefur
lengi farið fyrir brjóstið á Banda-
ríkjamönnum.
Nokkrir bandarískir kaupsýslu-
menn sem voru í fylgd með forsetan-
um virtust ekki eins ánægðir með
árangur tilrauna hans til að blása
nýju lífi bandarískt efnahagslíf.
Japanskir bílaframleiðendur gáfu
mest eftir þegar þeir féllust á að auka
kaup sín á bandarískum bílavara-
hlutum úr 9 milljörðum dollara í
fyrra í 19 milljarða árið 1994. Þá ætla
Japanir að auðvelda bandarískum
framleiðendum tölvubúnaðar, glers
og pappírsvöru að selja framleiðslu
sína á Japansmarkaði.
Bílaframleiðendur eru ekki sam-
mála Bush um árangur ferðarinnar
og margir sérfræðingar í Washing-
ton telja för hans hafa verið mis-
heppnaða og áfall fyrir tilraunir
manna til að koma á umbótum í
heimsviðskiptum.
Heima fyrir ríkir mikil óánægja
með framgöngu Bush í efnahagsmál-
um þjóðarinnar og hafa vinsældir
hans aldrei verið minni en einmitt
nú. Samkvæmt nýrri skoöanakönn-
un eru aðeins 48 prósent kjósenda
ánægð með störf forsetans.
Reuter
Óvissa 1 Alsír vegna kosninganna í næstu viku
Alskingar í Frakklandi
sýna mikinn áhuga
Um fimmtíu þúsund Alsíringar,
sem búa í Frakklandi, munu greiða
atkvæði í annarri umferð kosning-
anna í heimalandi sínu í næstu viku
eða fimm sinnum fleiri en tóku þátt
í fyrri umferðinni að sögn alsírskra
stjómarérindreka.
Leiðtogar stjómarandstöðunnar í
París sögðu að mikil eftirspurn væri
eftir untankjörfundarseðlum í 15
ræðismannsskrifstofum Alsírs í
Frakklandi. Aðeins tíu þúsund af 800
þúsund Alsíringum í Frakklandi
tóku þátt í fyrri umferðinni í desemb-
er vegna flókinna kosningareglna
sem varð til þess að flokkur íslams-
trúarmanna vann yfirburðasigur.
Talið er ólíklegt að meiri þátttaka
Alsíringa erlendis muni nægja til að
koma í veg fyrir sigur íslamstrúar-
manna.
Mikil óvissa ríkir nú í Alsír og
uppi em miklar vangaveltur um að
herinn æth að koma í veg fyrir að
íslamstrúarmenn nái meirihluta á
þingi landsins eftir kosningarnar 16.
janúar. í fyrri umferðinni fengu þeir
188 sæti af 226 sem kosið var um.
Leiðtogar hersins hafa aldrei farið
leynt með andúð sína á strangtrúar-
mönnunum sem hafa heitið því að
gera Alsír að íslömsku ríki innan
eins ár. Herforingjamir hafa svarið
þess eið að verja lýðræöið og stjóm-
arskrá landsins og þeir óttast að
flokkur íslamstrúarmanna muni
eyðileggja kerfið sem kemur þeim til
valda.
Vestrænir heimildarmenn segjast
hins vegar ekki hafa séð nein merki
þess að herinn ætli að skerast í leik-
inn, eins og íslamstrúarmenn héldu
fram á miðvikudag.
Reuter
Framboðsfrestur
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða-
greiðslu um kjör stjórnar, trúnaðarmannaráðs og
endurskoðenda í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur
fyrir árið 1992.
Framboðslistum skal skila á skrifstofu félagsins, Húsi
verslunarinnar, Kringlunni 7, eigi síðar en kl. 12.00
á hádegi mánudaginn 13. janúar 1992.
Kjörstjórnin
REYKJAVÍK
Svæðisstjórn málefna fatlaðra í Reykjavík leitar eftir
kaupum á hentugu húsnæði fyrir sambýli fatlaðra.
Um er að ræða tvær íbúðir í einbýlishúsi, samtals
um 300 m2 að stærð að meðtalinni bílgeymslu.
Tilboð, er greini staðsetningu, stærð, byggingarár
og -efni, herbergjafjölda, brunabóta- og fasteigna-
mat, afhendingartíma og söluverð, sendist eignadeild
fjármálaráðuneytisins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyr-
ir 18. janúar 1992.
Fjármálaráðuneytið, 8. janúar 1992.
Auglýsing
um viðtalstíma iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra í Hafnarfirði 15. janúar 1992
Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, verð-
ur með viðtalstíma miðvikudaginn 15. þ.m. á bæjar-
skrifstofunum í Hafnarfirði frá kl. 10.00-12.00.
Þeir sem áhuga hafa á að panta viðtalstíma við ráð-
herrann geta látið skrá sig á bæjarskrifstofunum í
Hafnarfirði í síma 53444.
Iðnaðarráðuneytið
Viðskiptaráðuneytið
8. janúar 1992
Innifalið: Allt stál í bygginguna, grind, klæðn-
ing, festingar og ítarlegar leiöbeiningar um
uppsetningu.
Verö mjög hagstætt.
Kafið samband strax í síma 91-26984.
um tilboð og upplýsingar.
MARKAÐSÞJÓNUSTAN
SKiPHOLTI 19 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 91-26984