Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1992, Side 11
FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1992.
11
Sviðsljós
Tom Cruise í
Hólminum?
Kristján Sigurðssan, DV, Stykkishólini:
Einn þekktasti tvífari leikarans
Tom Cruise dvaldist hér í Hólmin-
um yfir jólin og áramótin.
Sá heitir Antony Stowell og er 23
ára gamall en hann er giftur ís-
lenskri stúiku, Jónu Lovísu Jóns-
dóttur, sem á móður og stjúpföður
í Stykkishólmi.
Antony sagði það hafa verið til-
viljun að hann hafi dottið inn í starf
tvífarans en áður starfaði hann
m.a. á Spáni þar sem þau Jóna
kynntust þegar fjölskylda hennar
var þar á ferð fyrir sjö árum.
Antony, sem aðallega leikur í
auglýsingum, er t.d. að fara tii Sviss
í upptöku þann 5. janúar.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
hann kemur til íslands, en reyndar
í fyrsta sinn sem hann er hér yfir
jól og áramót. Hann sagðist vera
mjög ánægður með dvölina og var
hrifinn af jólahaidi hér á landi.
Hann tiltók sérstaklega íslenska
matinn í því sambandi, s.s. eins og
hangikjöt sem hann er mjög hrifinn
af.
Þó var hann ekki hrifinn af sköt-
unni og sagði að nóg heföi verið
fyrir sig að finna lykt af henni til
þess að forða sér.
Antony Stowell var í góðu yfirlæti í Stykkishólmi yfir jólin. F.v., Sólrún Inga Ólafsdóttir, hálfsystir Jónu, Giss-
ur Tryggvason, stjúpi, Kristín Björnsdóttir, móðir, Jóna og Antony. DV-mynd Kristján
Fullt var út úr dyrum í messu hjá séra Tómasi Guðmundssyni, presti í
Hveragerði, á aðfangadagskvöld. Myndin tekin í upphafi messunnar og
stöðugt bættust fleiri við í anddyrinu. DV-myndir Sigrún
Þær báru fram gómsæta rétti í veislu Gísla Sigurbjornssonar.
Hveragerði:
Hátíð ljóss og friðar
-———:—“T7T:--- aldraðra á Hótel Örk og Gísli Sigur- og á hann og hans fólk miklar þakk-
agiun Lovisa, pv, Hverager :_ björnsson, fyrrum forstjóri Grundar ir skildar fyrir það. Hann býður einn-
Það var mikið um hátíðahöld og og Áss, bauð fólki víðs vegar aö af ig ýmsum til vikudvalar á sumrin.
fögnuði í Hveragerði um jól og nýjár landinu í vikudvöl um jól og áramót Kirkjusókn var mjög góð um hátíð-
- sannarlega hátíð ljóss og friðar. sér til hvíldar og hressingar. Það arnar, troðfullt út úr dyrum þegar
Kvenfélagið stóð fyrir jólafagnaði hefur Gísli gert mörg undanfarin ár messur voru.
Meðal gesta hjá Gisla Sigurbjörnssyni voru Einar Gíslason, fyrrum forstöðumaður Hvitasunnusafnaðarins, og
kona hans, Sigurlína Jóhannesdóttir.
RENAULT 19 GTS - DV bíll janúarmánaðar
Verður til sýnis og reynsluaksturs um helgina: ,
Föstudaginn 10. janúar kl. 09.00 - 18.00 BllfllinibOðÍO hf
Laugardaginn 11. janúar kl. 13.00- 17 .00 Krókhálsi 1,110 Reykjavík, Sími 686633
Gull fyrir textagerð
Kristján Hreinsson tónlistarmaður
fékk nýlega afhenta gullplötu fyrir
texta sína á hljómplötunum Minn-
ingar og Bamajól.
Kristján átti langflesta textana á
plötunum en þær hafa nú báðar selst
í 4-5 þúsund eintökum.
Það var Pétur Kristjánsson hjá
Steinum hf. sem afhenti Kristjáni
gullplötuna í beinni útsendingu í Níu
fjögur á Rás 2.
Þess má til gamans geta að þeir
Pétur og Kristján komust að því við
afhendinguna að þeir eiga afmæli
sama dag, þann 7. janúar, og þann
dag var sonur Kristjáns skírður Pét-
ur og er hann því alnafni Péturs
Kristjánssonar.
Pétur Kristjánsson (t.v.) frá Steinum
hf. afhenti Kristjáni Hreinssyni gull-
plötu fyrir textagerð í beinni útsend-
ingu á Rás 2 í vikunni. DV-mynd S
RENAULT 19 GTS