Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1992, Qupperneq 23
FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1992.
31
dv Sími 27022
Erum meö
tískufatnaö
fyrir veröandi
mæöur frá
stæróinni 34.
Tískuverslunin
Stelpur
HverfísKötu 105, Reykjavik (Jf 16688
Útsala, útsala. Mikið úrval af tækifær-
isfatnaði frá stærðunum 34. Tísku-
verslunin Stórar stelpur, Hverfisgötu
105, Rvík, sími 91-16688.
Gjöfin sem kemur þægilega á óvart.
Stórkostlegt úrval af stökum
titrurum, settum, kremum, olíum
o.m.fl. f/dömur og herra. Einnig
nærfatn. á dömur og herra. Sjón er
sögu ríkari. Opið frá 10-18, mán-
föstud., 10-14 laugard.
Erum á Grundarstíg 2 (Spítalastígs-
megin), sími 91-14448.
Elasta glófarnir. Burstun og nudd
gerir húðina fallega. Heildsala, smá-
sala. Sendum í póstkröfu. Heilsuvöru-
verslunin Græna línan, Laugavegi 46,
sími 91-622820.
■ Bílai til sölu
Toyota double cab., árg. '91, til sölu,
upphækkaður, 33" dekk, 10" álfelgur,
ekinn 16 þús. km. Upplýsingar í síma
91-73913 eftir kl. 18.
Rútur til sölu. Benz ’85 D, ekinn 198
þús., 14 sæta, Ford Econoline ’91 D,
ekinn 23 þús., 14 sæta, Benz ’87 D,
ekinn 210 þús., 21 sæta. Allt góðir bíl-
ar. Uppl. í síma 95-36660.
■ Sport
Ódýrir skíðapakkar, vönduð skíði,
skór, bindingar og stafir. Verð frá:
• svig barna kr. 12.719, staðgr. 12.080.-
• Svig ungl. kr. 17.230, staðgr. 16.390.-
• Svig full. kr. 18.916, stgr. 17.970.-
• Gangaungl. kr. 12.100, stgr. 11.820.-
• Ganga full. kr. 12.660, stgr. 12.040.-
Alhliða skíðaþjónusta, gerum við,
slípum, skerpum og berum á skíði.
Verslunin Markið, Armúla 40, símar
35320, 688860.
RAUTT UÓS
fecfitn,
RAUTT UÓS!
yUMFERCW,
ffijómplötur
Hilmar Karlsson
TIL ALLRA BRÚÐHJÓNA SEM GANGA í ÞAÐ HEILAGA
FRÁ 12.10 TIL 31.12 1991
K.K.-Lucky One:
Góður
blús-
maður
Eftir að Kristján Kristjánsson kom heim eftir langa dvöl í útlöndum
hefur hann verið duglegur að troða upp á ölkrám bæjarins með gítarinn
sinn, sungið og leikið blús af slíkri innlifun að ætla mætti að honum
væri blúsinn meðfæddur. Oftast hefur verið með honum hinn skemmti-
legi bassaleikari Þorleifur Guðjónsson og hafa þeir félagar vakið mikla
athygli fyrir lifandi og skemmtilegan flutning hvar sem þeir birtast. .
Aðalsmerki Kristjáns hingaö til hefur verið flutningur á hrárri blústónl-
ist og birtast þar einkenni þess manns sem hefur þurft að hafa fyrir því
að koma tónhst sinni á framfæri, meðal annars með því aö spila á götu-
hornum og vera farandsöngvari.
Á Lucky One kemur Kristján fram sem mun fjölhæfari tónhstarmaður
og koma þá berlega kostir í ljós sem maöur hafði fyrirfram ekki búist
við hjá honum.
Sjálfsagt er Lucky One sú plata af öllum þeim sem komu út fyrir jólin
sem mest kom á óvart. Blús- og djassplötur hafa ekki átt upp á pallborö-
ið hjá hinum almenna plötukaupanda hér á landi, en nú brá svo við að
Lucky One var meðal mest seldu platna og diska. Staðreynd sem kemur
enn meira á óvart þegar haft er í huga að öll lögin eru sungin á ensku.
Ástæðan er einfaldlega sú að tónlistin er góð. Lucky One er samt alls
ekki hreinræktuð blúsplata, heldur koma fram áhrif frá hillbilly og rokki
eins og það var leikið á sjötta áratugnum.
Kristján hefur samið öll lögin á Lucky One fyrir utan gamla slagarann
I Got The Woman sem hann lætur fylgja með. Lög Kristjáns eru misgóð,
en allur flutningur er aftur á móti mjög góður og sá góði flutningur ger-
ir einstaka miðlungslög betri en ella.
Eyþór Gunnarsson er sá sem stjórnaði upptöku plötunnar og er öll
hans vinna til fyrirmyndar. Þrjú lög eru tekin upp í Svíþjóð, tvö þeirra,
Waiting For My Woman og Rainbow, skera sig nokkuð frá heildinni,
meðal annars vegna þess að notuð eru banjó í þeim. Ekki er ég alveg
sáttur við þessi tvö lög, en sjálfsagt ræður tónlistarsmekkur hvers og
eins hvort honum Uka lögin í því formi sem þau eru. Önnur frumsamin
lög skapa mun meiri heild og er erfitt að gera upp á mUU þeirra en ef eitt
lag skai taka fram yfir annað þá tel ég Crying eitt faUegasta og best flutta
lag sem kom út hér á landi á síðasta ári. Kristján og systir hans, Ellen
Kristjánsdóttir, flytja þennan hugljúfa óð af mikilh snUld og innlifun.
Kristján er mun betri söngvari en ég hafði gert mér í hugarlund. Rödd
hans getur verið hrá eða blíð eftir því hvaö við á og kannski er þaö ein-
mitt þessi einstaka rödd hans sem gerir lögin á Lucy One eins Ufandi og
raun ber vitni.
Kristján Kristjánsson (K.K.), blúsmaður með meiru.
3 MÁNAÐA ÓKEYPIS ÁSKRIFT
DV
BRÚÐAR
• •• r*
gjofin
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR í SÍMA
27022