Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1992, Side 26
34
FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1992.
Fólkífréttum
Guðmundur Benediktsson
Guðmundur Benediktsson, fyrrv.
ráðuneytisstjóri forsætisráðuneyt-
isins og ríkisráðsritari, til heimiiis
að Reynisstað við Skildinganes, lét
af störfum um áramót. Þá var hann
á nýársdag sæmdur stjömu stór-
riddara fálkaorðunnar fyrir störf í
þágu hins opinbera.
Starfsferill
Guðmundur fæddist á Húsavík
13.8.1924. Hannlauk stúdentsprófi
frá MA1945, embættisprófi í lögum
frá HÍ1951 og er héraðsdómslög-
maðurfrál952.
Guðmundur var fulltrúi á mála-
flutningsskrifstofu Eggerts Claess-
en og Gústafs A. Sveinssonar
1951-58, framkvæmdastjóri Meist-
arasambands byggingamanna 1959
pg 1960, fulltrúi hjá Verslunarráði
íslands 1961, fulltrúi í dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu í ársbyijun
1962, deildarstjóri í forsætisráðu-
neytinu 1964 og ráðuneytisstjóri í
forsætisráðuneytinu og ríkisráös-
ritarifrál970.
Guðmundur var formaður Stúd-
entafélags HÍ1948-49, formaður
Stúdentafélags Reykjavíkur
1954-55, endurskoðandi Verslunar-
sparisjóðsins frá stofnun 1956-60 og
Verslunarbanka íslands 1960-62, sat
í nefnd til að annast undirbúning
vígslu Skálholtskirkju 1963, átti sæti
í Nordiska organisationskommittén
frá stofnun 1967 og þar til hún lauk
störfum, sat í Nordiska Minist-
errádets stallfóretráderkommitté
frá stofnun 1971-85, ritari stjórnar-
skrámefndar 1972-78 og nýrrar
stjómarskrámefndar frá 1978.
Hann situr í stjómamefnd Lista-
safns Einars Jónssonar, sat í nefnd
til að endurskoða reglur varðandi
íslenska fánann og nefnd til að gera
tillögur um ráðstöfun skrifstofu-
húsa og gestahúsa ríkisstjómarinn-
ar.
Fjölskylda
Guðmundur kvæntist 16.8.1950
Kristínu Önnu Eggertsdóttur Claes-
sen, f. 1.10.1926, húsmóður og hjúkr-
unarritara. Hún er dóttir Jean Eg-
gerts Claessen hrl., bankastjóra,
framkvæmdastjóra VSÍ og stjómar-
formanns Eimskipcifélagsins, og
konu hans, Soffiu Jónsdóttur Claes-
sen, hússtjómarkennara og hús-
móður.
Böm Guðmundar og Kristínar eru
Ragnheiður Margrét Guðmunds-
dóttir, f. 17.10.1953, BA í íslenskum
fræðum, kennari og húsmóðir í
Reykjavík, gift Birni Ragnari Ragn-
arssyni, tannlækni og lektor, og eiga
þau tvær dætur; Soffia Ingibjörg
Guðmundsdóttir, f. 21.3.1955, skrif-
stofumaður og húsmóðir í Reykja-
vík, gift Þorsteini Einarssyni, lög-
fræðingi og starfsmannastjóra hjá
Kópavogshæ, og eiga þau fjögur
böm; Solveig Lára Guðmundsdóttir,
f. 13.11.1956, sóknarprestur á Sel-
tjarnamesi, gift Hermanni Svein-
bjömssyni, líffræðingi og doktor í
hagfræði, og eiga þau þrjú börn;
Eggert Benedikt Guðmundsson, f.
30.11.1963, rafmagnsverkfræðingur
í Reykjavík, og á hann einn son en
sambýhskona Eggerts Benedikts er
Jónína LýðSdóttir hjúkrunarfræði-
nemi.
Systkini Guðmundar: Ragnheiöur
Hrefna, f. 10.11.1907, d. 26.11.1941,
kennari; Sólveig Kristbjörg, f. 24.12.
1912, fyrrv. forstöðukona Kvenna-
skólans á Blönduósi; Ásbjörn, f. 28.7.
1914, d. 6.1.1935; Jóhann Gunnar, f.
9.1.1916, tannlæknir á Akureyri;
Ólafur, f. 31.7.1917, fyrrv. forstjóri
á Akureyri; Sigurður, f. 15.10.1919,
nú látinn, forstjóri Osta- og smjör-
sölunnar.
Foreldrar Guðmundar: Benedikt
Bjömsson, f. 8.2.1879, d. 28.7.1941,
skólastjóri á Húsavík, og kona hans,
MargrétÁsmundsdóttir, f. 15.3.1881,
d. 3.10.1969, húsmóðir.
Ætt
Benedikt var sonur Bjöms, b. á
Bangastöðum í Kelduhverfi, bróður
Sveins Víkings, föður Benedikts al-
þingisforseta, föður Péturs alþingis-
manns og Bjama forsætisráðherra,
föður Bjöms alþingismanns. Björn
var sonur Magnúsar, b. á Víkinga-
vatni, bróður Guðmundar, afa Jóns
Trausta. Magnús var sonur Gott-
skálks, b. á Fjöllum og ættföður
Gottskálksættarinnar, Pálssonar.
Móðir Björns var Ólöf, systir Þórar-
ins á Víkingavatni, afa Björns
Kristjánssonar kaupfélagsstjóra og
Þórarins Björnssonar skólameist-
ara. Ólöf var dóttir Björns, b. á Vík-
ingavatni, bróður Þórarins, afa Jóns
Sveinssonar (Nonna) og langafa
Áma Óla, sagnfræðings og blaða-
manns. Björn var sonur Þórarins,
b. á Víkingavatni, Pálssonar, bróður
Guöbrands, langafa Helgu, ömmu
Thors Vilhjálmssonar.
Móöir Benedikts skólastjóra var
Solveig Sigurðardóttir, b. á Krauna-
stöðum, Jónssonar.
Guðmundur Benediktsson.
Systir Margrétar var Bjarnína,
móðir Árna Björnssonar tónskálds.
Margrét var dóttir Ásmundar Jóns-
sonar, b. á Auðbjargarstööum í
Kelduhverfi, bróður Sigurðar í
Sigluvík, langafa Geirs Haarde
þingflokksformanns. Móðir Ás-
mundar var Ása Jónsdóttir, b. í
Ytri-Tungu á Tjörnesi, Semingsson-
ar, bróður Marsibilar, móður Bólu-
Hjálmars.
Móðir Margrétar var Kristbjörg
Arngrímsdóttir, b. í Fellsseli í Kinn,
Bjarnasonar, bróður Kristínar,
móður Magnúsar Kristjánssonar
ráðherra. Arngrímur var einnig
bróðir Margrétar, móður Tómasar
Johnsen, ráðherra í Kanada, og
bróðir Einars, langafa Valtýs Pét-
urssonar listmálara.
Afmæli
Erlendur Guðlaugur Eysteinsson
Erlendur Guðlaugur Eysteinsson,
bóndi að Stóm-Giljá í Torfulækjar-
hreppi, A-Húnavatnssýslu, er sex-
tugurídag.
Starfsferill
Erlendur fæddist að Beinakeldu í
Torfulækjarhreppi. Hann gekk í
bamaskóla fióra vetur og var einn
vetur í yngri deild Hólaskóla.
Erlendur vann á búi foreldra
sinna á Beinakeldu, var vinnumað-
ur hjá föðurbræðmm sínum, Sig-
urði og Jóhannesi á Stóru-Giljá,
1955-57 en flutti þá aftur að Beina-
keldu þar sem hann hóf búskap á
hálfri jörðinni. Erlendur og Helga,
kona hans, bjuggu þar til 1972 er þau
keyptu jörðina Stóru-Giljá en þar
hafa þau búið síðan.
Erlendur er oddviti Torfulækjar-
hrepps, situr í sóknarnefnd Þing-
eyrasóknar og stjórn Veiðifélags
Vatnsdalsár. Hann hefur verið Li-
onsmaður frá 1980 og gegnt starfi
svæðis- og umdæmisstjóra en er nú
fi ölumdæmisstj óri.
Fjölskylda
Eriendur kvæntist 1.8.1958 Helgu
Búadóttur, f. 16.5.1938, húsmóður
og kennara við Húnavallaskóla.
Foreldrar hennar: Búi Guðmunds-
son, bóndi á Myrkárbakka í Hörg-
árdal í Eyjaíjarðarsýslu, og Árdís
Ármannsdóttir.
Börn Erlends og Helgu: Árdís
Guðríður, f. 23.3.1958, skrifstofu-
maður í Reykjavík, hún á þrjár
dætur; Ástríður, f. 26.10.1959, bóndi
í Hvammi í Vatnsdal í A-Hún., maki
Hólmgeir Pálsson bóndi, þau eiga
eitt bam en Ástríður átti tvö börn
áður; Eysteinn Búi, f. 23.6.1962, sjó-
maður á Þingeyri, hann á þrjú börn;
Sigurður, f. 6.1.1966, bóndi Stóru-
Giljá, maki Þóra Sverrisdóttir, þau
eigaeinadóttur.
Systir Erlends er Ingibjörg, f. 18.7.
1927, b. og saumakona að Beina-
keldu, maki Jóhann Eiríkur Jóns-
son fijótæknir, þau eiga þrjá syni.
Foreldrar Erlends voru Eystéinn
Erlendsson bóndi og Guðríður Guð-
laugsdóttir húsmóðir en þau bj uggu
að Beinakeldu í Torfulækjarhreppi
í A-Húnavatnssýslu.
Ágúst Einarsson
Agúst Einarsson prófessor, Barða-
strönd29, Seltjamamesi, verður
fertugurámorgun.
Starfsferill
Ágúst fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann lauk stúdentsprófi
frá MR1970, prófi í hagfræði frá
háskólanum í Hámborg 1975, stund-
aði framhaldsnám í Hamborg og
Kiel og lauk doktorsprófi í hagfræði
frá Hamborgarháskóla 1978.
Ágúst var framkvæmdastj óri
Hraðfrystistöðvarinnar í Reykjavík
hf. og tengdra fyrirtækja 1977-89.
Hann var skipaður prófessor við
viðskipta- og hagfræðideild HÍ í árs-
byijunl990.
Ágúst var alþingismaður Suður-
lands fyrir Alþýðuflokkinn 1978-79
og 1980, í flokksstjóm ogfram-
kvæmdastjóm Alþýðufiokksins
1978-32.
Ágúst hefur verið í stjórn Síldar-
og fiskiinjölsverksmiðjunnar hf. frá
1977 sem heitir nú Faxamjöl hf.
Hann hefur verið stjómarformaður
Faxamarkaðarins í Reykjavík frá
1987 og í stjóm Granda hf. frá 1990.
Fjölskylda
Ágúst kvæntist 11.1.1972 Kol-
brúnu Sigurbjörgu Ingólfsdóttur, f.
10.31943, meinatækni. Foreldrar
hennar em Ingólfur Ólafsson, versl-
unarmaður í Reykjavík, og kona
hans, Hulda Guðlaugsdóttir.
Böm Ágústs og Kolbrúnar em
| Einar, f. 11.11.1972; Ingólfur, f. 16.3.
I 1974; Ágúst Ólafur, f. 10.3.1977.
Systkini Ágústs em Guðríður
hjúkrunarfræðingur, gift Guðfinni
Sigurfinnssyni lækni; Elísabet
meinatæknir, gift Þorsteini Helga-
syni prófessor; Sigurður, lögfræð-
ingur og framkvæmdastjóri Hrað-
frystistöðvar Vestmannaeyja,
kvæntur Guðbjörgu Matthíasdóttur
kennara; Svava kennari, gift Jóni
Skaptasyni, kennara og þýðanda;
Ólöf lífefnafræðingur; Helga meina-
tæknir, giftDavíö Egilsonjarðverk-
fræðingi; Sólveigmálvísindamaður,
gift Haraldi Hrafnssyni húsasmíða-
meistara; Auður íslenskufræðing-
ur, sambýhsmaður Árni Erlingsson
verslunarmaður; EUn nemi, gift
Þóri Hrafnssyni félagsvísinda-
manni.
Foreldrar Ágústs vom Einar Sig-
urðsson, útgerðarmaður í Vest-
mannaeyjum, og kona hans, Svava
Ágústsdóttir.
Ætt
Einar var sonur Sigurðar, for-
manns á Heiði í Vestmannaeyjum,
Sigurfinnssonar, b. í Ystabæli undir
EyjafjöUum, Runólfssonar, skálds á
Skaganesi í Mýrdal, Sigurðssonar,
prests á ÓlafsvöUum, bróður Sæ-
mundar, föður Tómasar Fjölnis-
manns. Sigurður var sonur Ög-
mundar, prests á Krossi, Högnason-
ar prestaföður Sigurðssonar. Móðir
Sigurðar var Salvör Sigurðardóttir,
systir Jóns, afa Jóns forseta. Móðir
Einars var Guðríður Jónsdóttir, b.
í Káragerði í Landeyjum, Einars-
sonar, b. í Káragerði, Jónssonar.
Móðir Einars var Guðrún, systir
Sveins, langafa Ólafs, föður Georgs
verðlagsstjóra. Guðrún var dóttir
ísleifs, b. í Ytri-Skógum, Jónssonar,
Ágúst Einarsson.
lögréttumanns í Selkoti, ísleifsson-
ar, ættföður Selkotsættarinnar.
Svava er dóttir Ágústs, verka-
manns í Reykjavík, Guðmundsson-
ar, fuUtrúa bæjarfógeta og kaup-
manns í Reykjavik, Guðmundsson-
ar, b. að Gröf í Ytri-Hrepp, Guð-
mundssonar, b. í Efstadal, Guð-
mundssonar „prestlausa“, prests í
Reykjadal, Guðmundssonar, afa
Jóns Guðmundssonar ritstjóra.
Móðir Ágústs var Ástríður Sigurð-
ardóttir, vaktara í Rvík, Sigurðsson-
ar og konu hans, Kristínar Guð-
mundsdóttur, b. á Kalastöðum,
Teitssonar, vefara í Reykjavík,
Sveinssonar, langafa Þorvalds, afa
Vigdísar Finnbogadóttur forseta.
Móðir Kristínar var Ástríður Ólafs-
dóttir, systir Þorvarðar, langafa Sig-
ríðar, móður Friðriks Ólafssonar
stórmeistara.
Ágúst tekur á móti gestum á af-
mæUsdaginn í félagsheimiUnu á
Seltjamarnesi klukkan 17.00-19.00.
Sigurrós Jónsdóttir,
Meðalholti 2, Reykjavík.
Grimur Gíslason,
Garðabyggð 8, Blönduósi.
Hanneraöheiman.
Sigurbjörn Sigurbjartsson,
Dalhúsum 97, Reykjavík.
Stein Ingólf Henriksen,
Dverghamri 39, Vestmannaeyjum.
Garðar Pálsson,
Hríseyjargötu 5, AkureyrL
EUn María Hansdóttir,
Norðurvegi 17, Hrísey.
SigurðurBjörgvinsson,
Stóru-Borg, A-EyjaíjaUahreppi.
Grétar Sigurður Arnason,
Bláhömrum 2, Reykjavík.
Dagrún Jónsdóttir,
Strönd 1, Vafiahreppi.
Guðmundur Hjartarson,
Garðaflöt5, Garðabæ.
Ármann Þorgrímsson,
Grænumýri 20, Akureyri.
Tryggvi Bjarnason,
Lambastöðum, Hraungerðis-
Jón Kristinssön,
Fífuhvammi 15, Kópavogi.
Guðmundur Ámundasön,
Akurgeröi 16, Reykjavík.
Jón Vignir Sigurmundsson,
Gyðufelli 4, Reykjavík.
Antonía Sveinsdóttir,
Skólagarði 4, Húsavík.
HjörturKristjánsson,
Greniteigi 41, Keflavík.
Iðunn Baldursdóttir,
Skarðshlíö 15f, Alíureyri.
Helgi Hjálmarsson,
Búhamri 60, Vestmannaeyjum.
Elías Rúnar Sveinsson,
Þórufelii 16, Reykjavík.
Sigrún Ólöf Einarsdóttir,
Bergvík, KjalarneshreppL
Hrafnakletti 2, Borgarnesi.