Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1992, Page 32
F R ET
A S
T I
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá i síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst, óháð dagblað
FOSTUDAGUR 10. JANUAR 1992.
Nýjasti neyðarbíll Slökkviliðs
Reykjavíkur lenti í hörðum árekstri
við jeppa á mótum Réttarholtsvegar
og Bústaðavegar síödegis í gær.
Þrír voru fluttir á slysadeild, þar af
tveir úr sjúkrabílnum sem var á leið
að Skógargerði þar sem kviknað
hafði í. Bílarnir eru báðir mikið
skemmdir. DV-mynd S
GATT:
Neytendasam-
tökin styðja
samningsdrögin
Neytendasamtökin lýsa.yflr stuön-
ingi viö þau samningsdrög sem nú
liggja fyrir í GATT-viðraeöunum.
Þetta kemur fram í ályktun sem sam-
þykkt var á sameiginlegum stjórnar-
fundi Neytendasamtakanna og Neyt-
endafélags höfuðborgarsvæöisins í
gær.
í ályktuninni benda samtökin á að
samningsdrögin fjalli ekki eingöngu
um landbúnað heldur einnig meðal
annars um tollaívilnanir á mikilvæg-
um útflutningsvörum okkar. Auk
þess benda samtökin á að ef drögin
verði að veruleika verði meginhluti
innfluttra búvara á sama verði og
innlendar vörur vegna tolla. Þegar
tollar lækki verði útflutningslöndun-
um samtímis gert að lækka útflutn-
ingsstyrki.
Neytendasamtökin álykta að ef
GATT-drögin verði að raunveruleika
muni sú samkeppni sem íslensk bú-
vöruframleiðsla fær knýja á aukna
hagræðinguílandbúnaði. -IBS
Strandasýsla:
Týndu hestarnir
sexfundnir
Hestamir sex, sem hurfu úr girð-
ingu fyrir ofan bæinn Broddanes í
Strandasýslu á nýársnótt, fundust í
fyrradag efst í Kleifum suður af
Bruna.
Að sögn bóndans í Broddanesi,
Jóns Stefánssonar, höfðu hestamir
þvælst um 20 til 30 kflómetra og voru
þeir á norðurleið er menn á vélsleð-
um fundu þá.
Talið var að hestamir hefðu
hræðst flugelda og þess vegna farið
úr girðingunni. Þeir voru vel haldnir
er þeir fundust og vora óþekkir aö
faraheim,aöþvíer Jónsagði. -IBS
LOKI
Hvaðverðurþá um
jólakökuskammtinn?
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra:
" ' l l al
varlegar afkomu
horf ur Alusuisse
annu
Sögusagnir era um að eigendur
álversins í Straumsvík hafi aövar-
að íslensk yfirvöld um aö til lokun-
ar, eða mjög mikfls samdráttar,
geti komið hjá álverinu í Straums-
vík vegna erfíðleika í rekstri. Þeir
rekstrarerfiðleikar eru tilkomnir
vegna hins lága álverðs á heims-
markaði. Álverð á heimsmarkaði
mun aldrei, frá því Iframleiðsla
hófst, hafa verið lægra en um þess-
ar mundir og hefur haldiö áfram
að lækka undanfarna daga. Vitaö
er að Alusuisse hefur verið að loka
álverksmiðjum úti í heimi og rætt
um lokun fleiri verksraiöja,
„Þaö er ekki rétt að mér hafi ver-
ið tilkynnt með beinum hætti um
aö lokun álversins í Straumsvík sé
yíirvofandi. Mér hefur aftur á móti
veriö tilkynnt um að horfur um
afkomu álframleiðsiunnar hjá
Alusuisse séu mjög alvarlegar og
afkoman erfið. Afkoma ísals er
einnig mjög erfið enda þótt álverið
í Straumsvík sé skást sett af álver-
unum í eigu Alusiússe," sagði Jón
Sigurðsson iðnaðarráðherra í sam-
tali við DV.
Jón sagði að nú væru afar erfiðir
tímar hjá álframleiðendum á Vest-
urlöndum vegna hins ódýra áls
sem streymir á markaðinn frá A-
Evrópulöndunum. Hann sagði
menn binda vonir við að þetta fari
að breytast á næstu misserum en
enginn vaíi væri á að tíminn fram-
undan yrði afar eríiður fyrir ál-
framleiðendur.
„En ég endurtek það að mér hefúr
ekki borist nein bein ábending um
að Alusuisse hyggist loka verk-
smiðjunni í Straumsvík," sagði Jón
Sigurðsson.
Hann tók hins vegar fram að hin-
ar tíðu deflur mflii starfsmanna og
stjómendna í Straumsvík væra
ekki til að hæta ástandið eins og
nú árar í álframleiðslunni.
-S.dór
Veörið á morgun:
Frostlaust
við
ströndina
Á morgun verður fremur hæg,
austlæg átt. Dálítil rigning eða
súld með köflum við suður- og
suðausturströndina, snjóél verða
á annesjum norðaustanlands en
annars úrkomulaust að káfla.
Hiti verður 0-3 stig um sunnan-
vert landið og sums staðar við
ströndina norðanlands en vægt
frost inn til landsins norðan
fjalla.
Hollustuvemd ríkisins:
72 farþegar Veraldar, sem verið höfðu úti á Kanaríeyjum um jólin, komu fagnandi heim með Flugleiðum í gær-
kvöldi frá Kanaríeyjum ásamt farþegum Flugleiða. Veraldarfarþegarnir fengu að vita það í gærmorgun að Veröld
væri orðin gjaldþrota. í gær var gengið frá hótelmálum þeirra 120 farþega Veraldar sem fóru út 2. janúar án
viðbótarkostnaðar farþeganna. - Sjá nánar á bls. 6 DV-mynd Ægir Már
Hafnarekki
i
fiskinýöls-
verksmiðju
Mengunarvarnadeild Hollustu-
verndar ríkisins hefur sent umhverf-
isráðuneytinu umsögn vegna um-
sóknar Faxamjöls um að starfrækja
fiskimjölsverksmiðju í Örfirisey.
Samkvæmt heimfldum DV hafnar
Hollustuvernd ekki verksmiðjunni
en setur aftur á móti ströng skilyrði
fyrir starfseminni.
Eiður Guðnason umhverfisráð-
herra sagði í samtali við DV í gær
að hann og starfsmenn hans í ráðu-
neytinu væru nú að setja sig inn í
skýrslu Hollustuverndar. Enn hefði
því engin ákvörðun verið tekin um
starfsleyfi. Að sögn Magnúsar Jó-
hannessonar, aðstoðarmanns um-
hvérfisráðherra, mun afgreiðslu
málsins verða hraðað í ráðuneytinu.
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson,
framkvæmdastjóri Faxamjöls, segist
bjartsýnn á að starfsemin verði
heimiluð. Hann segir að í verksmiðj
unni verði mengunarvarnabúnaður
sem uppfyllt geti ströngustu kröfur.
Einar Örn Stefánsson, formaður
íbúasamtaka Vesturbæjar, segir um-
hverfisráðherra hljóta að taka tillit
til undirskrifta um þrjú þúsund íbúa
þar sem verksmiðjunni er mótmælt.
Alls eru um 4.700 einstaklingar, 16
ára og eldri, búsettir í vesturbæ og
miðbæ en hætt er við að fiskimjöls-
lyktinberistþaryfir. -kaa
Loðnan:
Hefurveriðkropp
„Það hefur verið reytingur en eng-
inn krafur. Þetta hefur verið hálfgert
kropp enda veðrið verið hálfleiðin-
legt að undaníornu,“ segir Ómar Ól-
afsson, stýrimaður á Albert GK, en
hann landaði 600 tonnum af loðnu á
Reyðarfirði í nótt.
„Veðrið hefur verið hálfleiðinlegt
og mikill straumur en það er þó-
nokkuð að sjá af loðnu.“
Flestir loðnubátanna voru í landi í
nótt en í morgun voru 10 bátar komn-
ir á miðin eða á leið þangað en þau
eru nú 50 til 60 mílur út af Austfjörð-
um. -J.Mar
Jón Baldvin á leið
til Litháens
Jón Baldvin Hannibalsson utanrík-
isráðherra heldur í dag til Litháens
í boði Landsbergis forseta. Tilefnið
eru hátíðarhöld þar sem minnst
verður átakadags í sjálfstæðisbar-
áttu Litháens fyrir ári þegar vopnað-
ir hermenn Kremlverja gerðu tilraun
til að ná undir sig sjónvarps- og út-
varpssendingum í Vilnu, höfuðborg
Litháens. -kaa
NSK\i
kúlulegur
Vtouisen
SuAuriandsbraut 10. S. 686499.
ÞREFALDUR 1. vinningur