Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1992, Qupperneq 6
6
LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1992.
Útlönd
Strætó í Köben
gengurfyrir
repjufræjaolíu
Fimm strætísvagnar í Kaup-
mannahöfn hætta að ganga fyrir
disilolíu síðar í þessum mánuði
og þess i stað verður dælt á þá
repjufræjaoliu, en repja er ein-
hvers konar rófuafbrigði, Með
þessu er ætlunin að draga úr los-
un koldíoxíðs út í andrúmsloftið.
Tilraimin er gerð í samvinnu
dönsku bændasamtakanna,
strætísvagna Kaupmannahafnar
og dönsku tæknistofnunarinnar
og stendur hún í sex mánuði.
Ekki þarf að gera neinar breyt-
ingar á vélum strætisvagnanna
fyrir hið nýja eldneytí og munu
tilraunavagnamir aka á sömu
áætlunarleiðum og dísiljálkamir.
Repjuframleiðslan í Danmörku
gefur af sér 300 milljónir lítra af
olíu en samgöngutæki í landinu
nota 2,2 milljarða lítra af dísilolíu
á ári hvetju.
Sjö kflóaf her-
óínitekinvið
Stokkhólm
Lögregla í Sviþjóö lagði hald á
sjö kíló af heróíni í Solna í út-
jaöri Stokkhólms í vikunni. Þetta
er mesti heróínfundur í landinu
til þessa og er andvírði efnisins
rúmar 150 milljónir íslenskra
króna.
Lögregla fann heróínið i bifreið
sem í voru tveir menn á þrítugs-
aldri. Þeir hafa báöir verðið færð-
ir í gæsluvarðhald.
Lögreglan vill ekkert tjá sig um
málið. Saksóknari segir að grun-
ur leiki á aö mennimir séu hluti
af stærri hópi smyglara og búast
megi við fleiri handtökum.
Óperusýningu
Pavarotti
sjónvarpað
útágötu
Parísaróperan hefur ákveöið að
sjónvarpa sýningu á Grímuballi
Verdis með Luciano Pavarotti í
aöalhlutverkinu á risaskjá utan á
óperuhúsinu við Bastillutorg
næstkomandi mánudagskvöld.
Svo mikil var ásóknin i miða á
sýningar þær sem Pavarottí tek-
ur þáttí að þúsundir áhugasamra
fóru bóuleíðir til búðar.
Óperan var frumsýnd á þriðju-
dagskvöld en þaö skyggði á fagn-
aðarlætin aö mótmælendur sem
ekki höfðu fengið miða voru með
háreysti utandyra.
Torginu verður lokað fyrir allrí
umferö á meðan á sýningu stend-
ur á mánudagskvöld.
Brundtland
stuðningi við
EBídag
Gro Harlem Brundtland, for-
sætisráðherra Noregs, mun loks
lýsa þvi yfir opinberlega í dag aö
hún sé fylgjandi inngöngu Noregs
í Evrópubandalagiö. Þaö mun
hún gera á fundi Verkamanna-
flokksdeildarinnar í Ullevang á
HörðalandL
Stöðugt fleiri Norömenn telja
að Noregur muni ganga i Evrópu-
bandalagið. Samkvæmt nýrri
skoðanakönnun eru 78 prósent
kjósenda þeirrar skoöunar. Ann-
aö hljóð kemur í strokkinn þegar
spurt er um stuðning viö aöild.
Þá skiptast menn I þrjá jafnstóra
hópa, fylgismenn aöildar, and-
stæðingaogþásem enn hafa ekki
myndað sér skoðun á máhnu.
TT, NTB og Reuter
DV
Undlrbúningi fyrir ráðstefnuna í Rio lýkur um helgina:
Árangur vettur á
Bandaríkjastjórn
„Við höfum náð lengra en við
bjuggumst við á flestum sviðum.
Spennan snýst nú fyrst og fremst um
viðbrögð bandarískra stjórnvalda
við síðustu tillögu þróunarlandanna
um fjárveitingar til umhverfismála.
Það getur breytt öllu, bæði til betri
og verri vegar,“ sagði Björnar Ut-
heim sendiherra, formaður norsku
sendinefndarinnar á undirbúnings-
fundinum í New York fyrir umhverf-
isráðstefnu Sameinuðu þjóðanna
sem halda á í Rio de Janeiro í júní.
Þróunarlöndin lögðu á fimmtudag
fram nýja tillögu um hvemig skuli
fjármagna umhverfisvemd og bygg-
ist hún að miklu leyti á tillögu Norð-
urlandanna. Hún felur meðal annars
í sér aukna þróunaraðstoð, auk þess
sem fjármagnsstofnanir leggi fram
meira fé. Tillagan kemur einnig til
móts við Bandaríkin i einstökum at-
riðum.
Bandaríkjastjórn hefur hingað tíl
harðneitaö að skuldbinda sig til að
leggja meira fram til umhverfismála
en spurningin er hvort hún leggi
fram loforð um lausn á vandanum á
elleftu stundu.
Sendinefndir frá rúmlega 150 lönd-
um hafa að undanförnu reynt að
koma sér saman um þau skjöl sem
samþykkja á á ráðstefnunni í Rio.
Undirbúningsfundinum á að ljúka
nú um helgina.
Alþjóðleg umhverfisverndarsam-
tök hafa gefið þátttökulöndunum
einkunnir fyrir frammistöðu þeirra
á fundinum í New York og þar fá
Norðurlönd hæstu einkunn. Ríki EB
og þróunarlöndin þykja almennt
hafa staðiö sig illa en Bandaríkin fá
þó verstu útreiöina. Þau fá fallein-
kunn á öllum sviðum og eru sökuð
um að hafa komið í veg fyrir að nokk-
uð miðaði áleiðis. NTB
Færeyjarog
Grænland með
ípjósnaflugi
Samningur sá sem 25 þjóðir
Ameríku og Evrópu gerðu með
sér um „opna iofthelgi" í síðustu
viku gerir ráð fyrir að erlend ríki
megi fara i njósnaflug yfir Fær-
eyjar og Grænland sem hluta af
dönsku umráðasvæöi.
Njósnaflugvélarnar mega
fljúga 5600 kílómetra vegalengd
yflr Grænlandi en 250 kílómetra
yfir Færeyjum. Þá verða þær að
leggja upp frá sama flugvelli og
njósnaflugvélar Dana yfir önnur
lönd. Ferðalagið yfir Atlantshafið
er ekki talið með.
Erlendu njósnaílugvélarnar
verða með danska eftirhtsmenn
um borð og þær fá leyfi tíl að taka
eldsneyti á flugvöllunura í
Syðra-Straumfirði á Grænlandi
og í Vágum í Færeyjum.
Ritzau
Fatlaðir íbúar i Moskvu efndu til mótmæla fyrir utan aðsetur ríkisstjórnarinn-
ar í gær og kröfðust betri þjónustu af hálfu hins opinbera. Á sama tíma
var Jeltsín forseti að búa sig undir mikilvægan þingfund í næstu viku með
þvi stokka upp í liði aðstoðarmanna sinna. Simamynd Reuter
Vopnahlé rof ið í Moldóvu
Átök hrutust út milli hersveita
Moldóvu og rússneskumælandi að-
skilnaðarsinna í gær þrátt fyrir
vopnahlé sem er í gildi milli deiluað-
ila.
Rúdolf Kasjevarov, bæjarstjóri í
Bender, sagði að tveir bílar með
moldóvskum hersveitum hefðu gert
handsprengjuárás á ráðhúsiö í þorp-
inu Gyska en þar eru íbúar rússn-
eskumælandi.
Vamarsveitir íbúanna hófu skot-
hríð og eyðilögðu bílana með þeim
afleiðingum að fimm árásarmann-
anna létu lífið, að sögn Kasjevarovs.
Fréttum af árásinni bar ekki sam-
an. Itar-Tass-fréttastofan sagði að
árásarmennirnir hefðu hent hand-
sprengjum inn í ráðhúsið og kveikt
í því. Talsmaður innanríkisráðu-
neytis Moldóvu sagði aftur á móti að
fjórir lögregluþjónar og einn óbreytt-
ur borgari hefðu látið lífið í fyrirsát
í þorpinu.
Átökin í gær geta orðið til að spilla
fyrir friðarviðræðum sem fyrirhug-
aðar eru á mánudag, með þátttöku
Rússlands, Úkraínu, Rúmeníu og
MoldÓVU. Reuter
Mafían hræðir kjósendur
Mafían á Suður-Ítalíu hefur hafið
hræðsluherferð vegna þingkosning-
anna í landinu á morgun og á mánu-
dag. Bófar sprengdu skrifstofu
Kristilegra demókrata á Sikiley að-
faranótt fóstudags, settu allt á annan
endann í annarri og kveiktu í húsum
tveggja stjómmálamanna.
Kristilegir demókratar á Sikiley
sögðu að þetta væri greinilega gert í
því skyni að halda kjósendum heima
á kjördag en flokksmenn mundu ekki
láta undan.
Þá sögðu vinstri demókratar, sem
hafa fyrrverandi kommúnista innan
sinna vébanda, að tvær skrifstofur
flokksins í Napólí hefðu verið eyði-
lagðar og lýstu yfir áhyggjum sínum
vegna kosningasvika.
Lögregla skýrði frá því á fimmtu-
dag að upp hefði komist um áform
mafíunnar um stórkostíegt kosn-
ingasvindl í Kalabríu í tá Ítalíu þegar
ráðist var til atlögu gegn hundruðum
bófa. Mikið magn falsaðra kjörseðla
fannstáheimilumþeirra. Reuter
Pemngamarkadur
INNLÁNSVEXTIR (%> hæst
INNLÁM ÓVERÐTRYGGÐ
Sparisjóðsbækur óbundnar 1-1,25 Landsb., Sparisj.
Sparireikningar
3ja mánaða uppsögn 1,25-3 Sparisjóðirnir
6 mánaða uppsögn 2,25—4 Sparisjóðirnir
Tékkareikningar, almennir 0,5 Allir
Sértékkareikningar 1-2 Landsbanki
VISrrÖLUBUNDNIR REIKNINGAR
6 mánaða uppsögn 2,75-3 Landsbanki
1 5-24 mánaða 6,75-7,25 Sparisjóðirnir
Orlofsreikningar 5-5,5 Allir nema Islb.
Gengisbundnir reikningar í SDR 6-8 Landsbanki
Gengisbundnir reikningar í ECU 8,5-9 Landsb.Jslb.
ÓBUNDNIR SÉRKJARAREIKNINGAR
Vísitölubundin kjör, óhreyfðir. 3-3,25 Landsb., Búnb.
óverðtryggð kjör, hreyfðir 4,5-4,75 Landsb.,Búnb.
SÉRSTAKAR VERÐBÆTUR (innan tfmabíls)
Vísitölubundnir reikningar 1,75-3 Landsb.
Gengisbundir reikningar 1,75-3 Landsb.
BUNDNIR SKIPTIKJARAREIKNINGAR
Vísitölubundin kjör 6-6,5 Búnaðarbanki
óverðtryggð kjör 6-6,5 Búnaðarbanki
INNLENDIR GJALDEYRISREIKNINGAR
Bandaríkjadalir 2,75-3,0 Allir nema Búnb.
Sterlingspund 8,25-8,7 Sparisjóðirnir
Þýsk mörk 7,5-8,2 Sparisjóðirnir
Ðanskar krónur 8,0-8,4 Sparisjóðirnir
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
ÚTlAN ÓVERÐTRYGGÐ
Almennir víxlar (forvextir) 12,25-1 3,75 Búnaðarbanki
Viðskiptavíxlar (forvextir)1 kaupgengi
Almenn skuldabréf B-flokkur 13-14,25 Búnaðarbanki
Viðskiptaskuldabréf1 kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdráttur) 15-1 5,75 Islb.
ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ
Almenn skuldabréf B-flokkur 9,75-9,9 Búnb.,Sparisj.
afurðalAn
islenskar krónur 12,5-14,25 Islb.
SDR 8,25-8,75 Landsbanki
Bandaríkjadalir 6,0-6,75 Sparisjóðir
Sterlingspund 11,9-12,75 Sparisjóðir
Þýsk mörk 11,25-11,5 Búnðarbanki
Húsnæðislán 4.9
Ufeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 21.0
MEÐALVEXTIR
Almenn skuldabréf apríl 13,8
Verðtryggð lán mars 9,8
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala apríl 3200 stig
Lánskjaravísitala mars 31 98 stig
Byggingavísitala mars 598 stig
Byggingavísitala mars 187,1 stig
Framfærsluvísitala mars 160,6 stig
Húsaleiguvísitala apríl =janúar
VERÐ8RÉFASJÖOIR
Sölugengi bréfa veröbréfasjóöa
Einingabréf 1
Einingabréf 2
Einingabréf 3
Skammtímabróf
Kjarabréf
Markbréf
Tekjubréf
Skyndibréf
Sjóösbréf 1
Sjóðsbréf 2
Sjóðsbréf 3
Sjóðsbréf 4
Sjóðsbréf 5
Vaxtarbréf
Valbréf
Islandsbréf
Fjórðungsbréf
Þingbréf
öndvegisbréf
Sýslubréf
Reiöubréf
Launabréf
Heimsbréf
HLUTABRÉF
Sölu- og kaupgengi að lokinni jöfnun:
6,169 Sjóvá-Almennar hf. KAUP 5,05 SALA 5,65
3,278 Ármannsfell hf. 1,90 2.15
4,052 Eimskip 4,77 5,14
2,052 Flugleiöir 1,90 2,10
5,796 Hampiðjan 1,30 1,63
3,117 Haraldur Böðvarsson 2,85 3,10
2,154 Hlutabréfasjóður VlB 1,04 1,10
1,791 Hlutabréfasjóðurinn 1,60 1,68
2,955 Islandsbanki hf. 1,61 1,74
1,935 Eignfél. Alþýðub. 1,58 1,71
2,040 Eignfél. Iðnaðarb. 2,12 2,29
1,740 Eignfél. Verslb. 1,41 1,53
1,226 Grandi hf. 2,60 2,80
2,0814 Olíufélagið hf. 4,40 4,90
1,9508 Olís 1,78 2,00
1,298 Skeljungur hf. 4,80 5,45
1,136 Skagstrendingur hf. 4,65 5,05
1,294 Sæplast 3,24 3,44
1,276 Tollvörugeymslan hf. 1,04 1,09
1,319 Útgerðarfélag Ak. 4,25 4,60
1,251 Fjárfestingarfélagið 1,18 1,35
1,012 Almenni hlutabréfasj. 1,10 1,15
1,135 Auölindarbréf 1,04 1,09
islenski hlutabréfasj. 1,15 1,20
Síldarvinnslan, Neskaup. 3,10 3,50
1 Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila,
er miðað við sérstakt kaupgengi.
K= Kaupþing, V = VlB, L= Landsbréf, F= Fjárfestingarfélagið, S = Verðbréfav. Sam-
vinnubanka
Nánari upplýsingar um peningamarkaðinn birtast i DV á fimmtudögum.
!