Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1992, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1992, Síða 13
LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1992. 13 Vísnaþáttur Engum kalt undir meyjarvanga Af ástæðum, sem hér verða ekki tilgreindar, fór vísnastjóri að reyna að gera sér grein fyrir því hvenær hann hefði fyrst tekið að sér að setja saman vísnaþátt í blað. Útkoman varð sú að fyrsti þátturinn minn hafi birst í vikublaði sem þá var gef- ið út af róttækum mönnum í Reykja- vík og hét Verkalýðsblaðið. Það var undanfari Þjóðviljans sem allt fram á þetta ár kom út sem dagblaö. Ekki urðu þættir mínir þá margir og nafn mitt ekki við þá bundið. Artalið var 1934, liðin 58 ár. Síðan hef ég tekið saman slíka þætti í fleiri blöð og tímarit en ég nú kann tölu á, útgefin í höfuðborginni og á Akureyri. Hef ég þá tengt þá höfundarnafni mínu eða ritað undir Jón Gunnar Jónsson og tekið fyrir þóknun. Gunnarsnafn- inu bætt við til aðgreiningar frá öðr- um Jónum Jónssonum. En móðir mín sagði mér að komið hefði til orða að ég yrði látinn heita Jón Gunnar og átti það að minna á afa minn og ömmu sem hétu Jón og Guðrún. Það voru móðurforeldrar mínir. En for- eldrar fóður míns hétu Indriði og Guðrún. Afarnir voru báðir látnir en ömmurnar á lífi. Síðasti drengurinn í barnaflokknum bar þegar Indriða- nafnið og það varð að ráði að bíða með Gunnarsnafnið. En það kom síð- ar, enn voru mörg börn ófædd í húsi foreldra minna. Og nú er víst nóg komið af fróðleik um ritmennsku mína og einkamál. Eftirfarandi vísur birti ég í Útvarpstíðindum en þar var ég ritstjóri á stríðsárunum 1940-45 og ennfremur 1952. Ég fékk þær sendar í bréfi. Höfundur lét sín ekki getið. Mig grunaði að hann væri bú- settur við Breiðafjörð en karlinn, sem um var ort og var látinn svara, getur hafa verið frá öðrum stað. Gaman væri nú að fá frekari upplýs- ingar ef til væru. Gamaltbréf Maður er nefndur Erlendur og kaupfélagsstjórinn hans hét Sigfús. Líklega er nú hvorugur þeirra ofar foldu ef þeir hafa þá verið annað en skáldskapur þess sem sendi mér bréfið. Best gæti ég trúað því að sami maður hefði ort allar vísumar. Fyrst hefur kaupfélagsstjórinn orðið: Erlendur minn, auðnukarl, ansa ég beiðni þinni, þó kreppa bæði og krónufall kreisti að úttektinni. Þó um Naustið næði svalt, - er norðanstormar ganga, engum verða ætti kalt undir meyjarvanga. Ættir þú fyrir utan töf, af ungmey hafa kynni. Hitinn er á við hálfa gjöf. Haltu þig bara inni. Erlendur svaraði bréfinu svona: Fékk ég bréf þitt, Fúsi minn, sem fjallaði um kreppu og gengið. Hitt er verra, að húsviðinn hef ég engan fengið. Heilræðin ég þakka þér, þau skal hafa í minni. Góður varstu að gefa mér gagnið af reynslu þinni. Kalt er hér á kambi ról klæðafáum manni, nema hann hafi húsaskjól og hita í sínum ranni. Um því spyr ég, ef að má, og þú vilt mig fræða: Kanntu líka listina þá að lifa án húss og klæða. Þegar snúum hinsta haust heim úr jarðlífsveri öll við setjum upp í naust ósjófæra kneri. Á einu merkist munurinn á mönnum, herrum þjónum: Hveijir betur baggann sinn bera þá frá sjónum. Kjörin lífsins landi á lát þig ekki hryggja. Við munum kannski kofa þá, karl minn, saman byggja. Einn fyrir mig, ef efni er til, annan þér til handa. En til beggja eins ég vil að öllu leyti vanda. Efnið ræði ég ekki í bráð, úr sem smíða megi. En illa tálgað hárbreitt háð hæfa tel ég eigi. Óglöggt lengra eygi ég út í framtíðina. Svo ei fleira segi ég, þótt sitthvað kunni að gruna. Síðan kveð þig, Sigfús minn, samt með rýrðu trausti. Ævinlega er ég þinn, Erlendur í Nausti. Þegar ég er að róta í dóti mínu rekst ég stundum á gamlar vísur sem ég hef ritað á bækur mínar. Hér er ein: Þó að milli mín og þín mörg sig hlykki gata góður hugur, Marta mín, myndi ennþá rata. Konan, sem hér er nefnd, er ná- frænka mín, nú orðin gömul. Henni átti ég og á margt að þakka. Jón úr Vör i undraport - undraport - undraport - undraport - undraport - undraport - undraport - undraport undraport c 3 a i MARKAÐSTORG GRENSÁSVEGI 14, VIÐ HLIÐINA Á PIZZAHÚSINU Opiö laugardaga kl. 11-18 og sunnudaga kl. 12-18. Vefnaðarvara, 150 kr. metrinn. Þú velur 10 notaðar flíkur, kr. 200. Kexpakkinn 30 kr. Kartöflur 60 kr. Harðfiskur. Áteknar videospólur, 350 kr. stykkið, ef þú kaupir 3 saman. og margt, margt, margt fleira Andri Lindberg töfra- maður mætir kl. 15 iaugardag og sunnu- dag með stórfenglegt svifatriði á töfrateppi sem Margrét litla situr á (ný töfrabrögð). ' íi i - •’te - .jí FORNBÓKAMARKAÐUR 800 TITLAR SJALDGÆFAR BÆKUR utainK''dor Kaffi og kökur Krýsuvíkursamtökin með stórkostlegan flóamarkað Aðeins opið um helgar Pláss kr. 1.900 fyrir notaðar vörur, 2.900 fyrir nýjar vörur - * vsk. ekki innifalinn. Ókeypis fyrir krakka með leikföng. PRÚTT - PRÚTT - PRÚTT ÞESSU MA ENGINN MISSA AF Pantanir á söluplássi teknar eftir kl. 18 i síma 651426 og um helgar í sima 669502 undraport - undraport - undraport - undraport - undraport - undraport - undraport - undraport - undraport 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.