Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1992, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1992, Page 16
16 LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1992. Veiðimenn - veiðimenn Tilboð óskast í veiðirétt í Skraumu, Hörðudals- hreppi. Tilboð sendist til Guðmundar Jónssonar, Ketilsstöðum, 371 Búðardal, fyrir 1. maí nk. Upplýs- ingar í síma 93-41394. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. HUtSA ÍBÚDIR Á SPÁNI INTERNATIONAL Ath. næsta skoðunarferð 9. apríl nk. Aðeins 4 sæti laus. íbúðir - raðhús - einbýlishús af öllum stærðum á verði frá ísl. kr. 1,5 millj. LEITIÐ UPPLÝSINGA BMSA ÁBYRGIR AÐILAR í ÁRATUGI UMBOÐIÐ Á ÍSLANDI, SÍMI 91 -44365- FAX 91 -46375 Tilboð óskast í neðanskráðar bifreiðar sem hafa skemmst í umferðaróhöppum: Nissan Sunny 1991 Toyota Corolla 1300 1988 Toyota Carina II 1986 Toyota Carina II 1986 Toyota Corolla GT 1985 Toyota Corolla 1300 1985 Skoda130 GL 1987 Skoda120 L 1985 Nissan Cherry 1983 MMCColt 1984 MMC L200 pickup 1981 Fiat Uno45 1984 Range Rover 1976 Ford Taunus 1971 Suzuki Alto 1982 Fiat Uno 1984 Yamaha XT 350 bifhjól 1991 Bifreiðarnar verða til sýnis mánudaginn 6. apríl 1992 í Skipholti 35 (kjallara) frá kl. 9-15. Tilboðum óskast skilað fyrir kl. 16 sama dag til bifreiðadeildar Tryggingar hf„ Laugavegi 178, Reykjavík, sími 621110. VERNDŒON VA TRYGGING HF LAUGAVEG1178 SIMI 621110 . CLIP ER NYTT OG SÉRSTAKT BINDI FRÁ LIBRESSE LITLIR VÆNGIR BRJÓTAST UM BUXNABRÚNINA OG VARNA LEKA ÞVi VERÐUR BINDIÐ SEM EÐLILEGUR HLUTI AF BUXUNUM Hendsala Kaupsel hl., Laugavegi 25. sími 27770 Matgæðingur vilcuiinar_: Lambalifur í sparifötunum - með sveppum, lauk og ofnbökuðum beikonkartöflum Þaö er Þröstur Reynisson, mat- reiðslumeistari á Akranesi, sem er matgæðingur vikunnar að þessu sinni. Þröstur hefur rekið Hollt og gott, alhliða veisluþjónustu, um nokkurra ára skeið og einnig veit- ingastaðinn Langasand síðastliðna tvo mánuði. Hann útskrifaðist úr Hótel- og veitingaskólanum og frá veitingahúsinu Stillholti á Akra, nesi 1984. Matreiðslumenn eru ekki tíðir gestir í þessum þætti. Þröstur segist ekki gera mikið í eldhúsinu heima en hann geri þó af og til eitt- hvað gott fyrir fjölskylduna, eins og lifur í sparifótum. Sá réttur er í miklu uppáhaldi hjá allri fjöl- skyldunni og oft eldaður „enda hollur og góður matur. Ég hef líka gaman af að bjóða gestum heim og bera eitthvað gott á borð handa þeim.“ Það sem þarf (fyrir fjóra) 2 lifrar 10 sneiddir sveppir saxaður laukur 2 dl rjómi 1-2 tsk. kjötkraftur 1 msk. brandy (má sleppa) 4 msk. olía (til steikingar) kryddhveiti (blandað salti og pipar) Þröstur Reynisson. DV-mynd Árni í beikonkartöflumar Soðnar kartöflur skornar í sneiðar 1 bréf fínt skörið beikon saxaðar paprikur (gul, rauð og græn) 2 dl rjómi 1 bolh rifinn ostur Þannigerfariðað Gott er að byrja á kartöflunum af því að það tekur lengri tíma að matreiða þær. Raðiö sneiddum kartöflunum í smurt eldfast fat. Sjóðið saman rjóma, beikon, paprikur og kjötkraft og hellið yfir kartöflurnar. Stráiö ostinum yfir og bakið í ofni við 180 gráður þar til rétturinn er fallega brúnaður. Látið kartöflurnar bíða í ofninum þar til lifrin er tilbúin. Lifrin er himnudregin, skorin í þunnar sneiðar, velt upp úr hveit- inu og steikt á mjög heitri pönnu í um 30 sekúndur á hvorri hlið. Hún er bragðbest ef hún er aðeins bleik í miðjunni. Færið lifrina á disk og haldið volgri. Bætið olíu á pönnuna og léttsteik- ið laukinn og sveppina. Hellið síðan rjómanum, kraftinum og brandy- inu á pönnúna. Þegar sósan sýður er hún tilbúin. Bragðbætið að smekk með salti, pipar og soyja- sósu. Hellið sósunni í eldfast fat og raðið lifrunum fallega í sósuna. Þetta er borið fram með hrísgrjón- um, salati og nýbökuðu brauði. Þröstur skorar á vin sinn, Viðar Magnússon verslunarmann, að vera mafgæðing næstu viku. „Hann þarf að fara að dusta rykið af matreiðslubókunum fyrir stóraf- mæhð sem framundan er,“ segir Þröstur. -hlh Hinhliðin_____________________________________________________________________ Leiðinlegast að standa í biðröð - segir Jón Kr. Gíslason, þjálfari ÍBKí körfubolta Uppáhaldsleikari: John Cleese. Uppáhaldsleikkona: Pass. Uppáhaldssöngvari: Basia, tékk- nesk söngkona sem sungið hefur með Matt Bianco. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Eng- inn. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Homer Simpson. Uppáhaldssjónvarpsefni: NBA- körfuboltinn og Simpson-fjölskyld- an. Ertu hlynntur eða andvígur veru varnarliðsins hér á landi? Andvíg- ur. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Ég hlusta mest á Bylgjuna og FM. Uppáhaldsútvarpsmaður: „Lalli segir“ eða Lárus Halldórsson. Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Stöð 2. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Lárus Halldórsson. Uppáhaldsskemmtistaður: Hann er í Köben og heitir Det elektriske hjorne eða rafmagnshomið. Uppáhaldsfélag í íþróttum: ÍBK. Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtíðinni? í nánustu framtíð stefni ég að því að verða íslands- meistari í körfubolta. Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég vann og hef hugsað mér að viima í næsta sumarfríi. Ég er ungur og hraustur og þarf ekki svo mikið sumarfrí. Þó langar mig að komast aöeins til útlanda. -hlh Jón Kr. Gíslason, þjálfari og leik- maður körfuknattleiksliðs ÍBK, verður svo sannarlega í eldlínunni næstu daga en ÍBK og Valur kljást þá um Islandsbikarinn í körfu- bolta. Um röð leikja er að ræða, heima og heiman til skiptis. Það lið sem verður fyrra til að vinna þrjá leiki verður íslandsmeistari. „Úr- slitaleikirnir gegn Val leggjast mjög vel í mig. Valmsenn eru á toppnum á réttum tíma og því verða þetta hörkuleikir." Jón hefur leikið körfubolta með Keflvíkingum frá 1978. Hann gerð- ist þjálfari í lok leiktímablisins 1989 en þá urðu Keflvíkingar meistarar. Hann hvarf til Kaupmannahafnar í eitt ár en tók aftur til við að þjálfa og leika með liðinu við heimkom- una. Auk þess að vera á kafi í körfubolta kennir Jón krökkum í Holtaskóla í Keflavík. Jón sýnir nú á sér hina hliðina Fullt nafn: Jón Kristinn Gíslason. Fæðingardagur og ár: 14. október 1962. Maki: Auður Sigurðardóttir. Börn Engin. Bifreið: Subaru árgerð 1988. Starf: Kennari og körfuboltaþjálf- ari. Laun: í lagi. Áhugamól: Körfubolti og utan- landsferðir. Hvað hefur þú fengið margar réttar tölur í lottóinu? Þrjár. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Að fara til útlanda. Ég hef Jón Kr. Gíslason. ferðast töluvert um Evrópu og Bandaríkin en langar líka á fjar- lægari slóðir. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Að standa í biðröð. Uppáhaldsmatur: Pastaréttir og kínverskir réttir. Uppáhaldsdrykkur: ískalt Coca Cola. Hvaða íþróttamaður finnst þér standa fremstur í dag? Michael Jordan hjá Chicago Bulls. Uppáhaldstímarit: Bandaríska körfuboltablaðið Hoop. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð fyrir utan maka? Whitney Houston. Ertu hlynntur eða andvígur ríkis- stjórninni? Andvígur, vegna niður- skurðarins í mennta- og heilbrigð- ismálum. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Pat Riley, þjálfara körfu- boltaliðs New York Knicks.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.