Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1992, Síða 26
26
LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1992.
Fréttaritari DV meðal Hollywoodstjamanna:
Smyglaði sér í sam-
kvæmi fræga fólksins
Þau fjögur fengu aö fara inn í samkvæmi fræga fólksins eftir óskarsverðlaunaafhendinguna aöfaranótt þriöjudagsins. Friðrik Þór Friöriksson,
Hera Sigurðardóttir, Sigurjón Sighvatsson og Ari Kristinsson.
Hemmi Gunn, sem var aö taka upp þátt sinn í Los Angeies, varð aö
láta sér nægja aö vera utan viö veisluna.
Þeir sem hafa séð Lömbin þagna hljóta að sjá Hannibal Lecter fyrir
sér en þaö er enginn annar en Anthony Hopkins sem hér kemur ásamt
eiginkonu sinni nánast í fangið á Hlédísi.
Jodie Foster, besta leikkona ársins, meö óskar sjálfan í höndunum.
DV-myndir Hlédís Sveinsdóttir/Roger Croci
Oskarsverðlaunahafinn Jack Palance án slifsis og frekar þreytulegur
aö sjá.
Hjartaknúsarinn Tom Cruise ásamt eiginkonu sinni, Nichole Kidman,
og fjölda lifvarða.
Hver vildi ekki komast i návigi við þessar þrjár stjörnur i Hollywood,
Whoopi Goldberg í miðiö ásamt óskarsverðlaunahafanum Mercedes
Ruehl og leikstjóranum Spike Lee.
„Þeir blaðamenn sem ætluðu sér
að komast inn í samkvæmið eða
vera viðstaddir óskarsverðlaunaaf-
hendinguna þurftu að útvega sér
miða í desember sl. þannig aö við
áttum enga möguleika á að komast
þar inn,“ sagði Hlédís Sveinsdóttir,
nemandi í arkitektúr í Los Angeles,
sem gerðist fréttaritari DV meðan á
óskarsverðlaunaslagnum stóð.
Hlédísi tókst það sem öðrum var
ómögulegt, að smygla sér inn þar
sem heimsfrægir Hollywoodleikar-
ar voru að ganga inn í tjald þar sem
skemmtun fór fram í eftir að af-
hendingunni lauk. Þar var boðið
upp á veitingar og stiginn dans
langt fram á nótt. Einu íslending-
amir sem þar komust inn voru
Friðrik Friðriksson, sem fékk fjóra
boðsmiða, eiginkona hans, Hera
Sigurðardóttir, Siguijón Sighvats-
son og Ari Kristinsson.
Aðrir íslendingar sem flugu yfir
til Los Angeles þurftu að láta sér
nægja að sitja í heimahúsi og fylgj-
ast með úrslitunum í sjónvarpi. Hlé-
dís sat ásamt ellefu öðrum íslend-
ingum og horfði á sjónvarpið í
heimahúsi skammt frá þeim stað
sem athöfnin fór fram. Ákveðið
hafði verið að hún hitti Friðrik Þór
fyrir utan eftir verðlaunaafhend-
inguna. Þar var einnig staddur Her-
mann Gunnarsson ásamt tökuliði
sem var að vinna þátt sinn Á tali.
„Þegar ég hafði tafað við Friðrik
sá ég hvar leikaramir voru að fara
yfir í tjaldið þar sem dansleikurinn
var og allt fullt af vörðum þar í
kring. Þama var runnabeð sem ég
og kærasti minn, Roger Croci, litum
til með þá von að við gætum smygl-
að okkur þar í gegn. Ailt í einu kom
leikkonan Whoopi Goldberg og var
strax gripin í viðtal við sjónvarps-
stöð. Augu öryggisvarðanna vom á
henni það augnablik sem við Roger
smeygðum okkur inn á svæðið,
bæði með myndavélar. Þetta gerðist
mjög snöggt og áður en við vissum
vorum viö innan um alla helstu
Hollywoodleikarana sem tóku því
afar vel að við væmm að mynda,“
útskýrir Hlédís.
Hún sagði að einn vörðurinn
hefði gengið til þeirra og sagt þeim
að láta minna á sér bera. Annað
var það ekki. „Það voru mjög fáir
að taka myndir, eiginlega bara við
tvö og sjónvarpsfólk. Leikkaramir
tóku okkur mjög vel og sumir
stilltu sér upp fyrir okkur. Þetta
var rosalega garnan," sagði Hlédís
ennfremur.
Þau Hlédís og Roger tóku þrjár
filmur þá stuttu stund sem þau
dvöldu framan við tjaldið. Enginn
tók því illa að þau væm þar aö
mynda. „Tveir mjög þekktir grín-
arar í bandaríska sjónvarpinu
stilltu sér upp, grettu sig og göntuð-
ust við okkur nokkra stund. Annar
leikari, sem ég man ekki nafnið á,
ræddi við okkur og grínaðist einn-
ig. Þeir allra frægustu töluðu hins
vegar ekki við okkur.“
Hlédís hafði samband við þekkt-
an bandarískan ljósmyndara til að
fá vinnslu á filmunum og hann
varð orðlaus er hann sá myndimar
sem hún hafði náð. Sjálfur var
þessi ljósmyndari á veitingahúsi
sem heitir Spago, en þangað fóm
einnig margir þekktir leikarar eftir
afhendinguna, og tók myndir. Þær
myndir sem hann náði seldi hann
til New York fyrir stórar fjárfúlg-
ur, að sögn Hlédísar.
„Mér fannst þetta kvöld ævintýri
líkast og raunar ótrúleg tilviljun
að við skyldum komast svona ná-
lægt þessu fræga fólki. Þetta var
ógleymanleg stund," sagði Hlédís
Sveinsdóttir. Hún kunni þó ekki
við aö biöja fræga fólkið um eigin-
handaráritanir enda kannski nóg
að komast í návígi við það. Sjálf-
sagt em margir sem hefðu viljað
vera í hennar sporum þessa stuttu
stund. Hluta myndanna, sem þau
Hlédís og Roger náöu, geta lesend-
ur DV virt fyrir sér hér á síðunni.
-ELA