Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1992, Side 36
48
LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1992.
Helgarpopp
Primal Scream var sú hljómsveit
sem mest var hampað á Bretlandi á
síðasta ári. Hljómsveitin sendi frá sér
plötuna Screamadelica sem hampað
var sem meistaraverki og ekki að
ástæðulausu. Á plötunni tefla Bobby
Gillespie og félagar djarft. Primal
Scream tínir blóm á fegurstu stöðum
Umsjón
Snorri Már Skúlason
í rósagarði rokksins og útkoman er
fjölbreytt og skemmtileg plata, Scre-
amadelica.
Lítil afköst
en góóar afurðir
Primal Scream var stofnuð í
Glasgow árið 1984. Það leiö þó rúmt
ár þar til hljómsveitin sendi frá sér
sína fyrstu afurð á plasti. Á þessum
tíma var Jesus and Mary Chain að
slá í gegn og Bobby Gillespie var
upptekinn á hljómleikaferðalagi með
hljómsveitinni og á meðan mátti
hans eigin sveit sitja á hakanum.
Fyrsta smáskífa Primal Scream, All
Fall Down, vakti töluverða athygli
en það var ekki fyrr en með popps-
mellinum Crystal Crescent 1986 að
sveitin komst á kortið. Enn máttu
aðdáendur hijómsveitarinnar bíða í
ár eftir fyrstu breiðskífunni en hún
kom á markað 1987 og kallaðist Sonic
Flower Groove. Tveimur árum síðar
fylgdi breiðskífan Primal Scream í
kjölfarið en hvorug þessara platna
náði að slá almennilega í gegn þó
gagnrýnendur efuðust ekki um gæði
hlj ómsveitarinnar.
Það var svo á síðasta ári að hljóm-
sveitin sendi frá sér Screamadelica
sem breskir gagnrýnendur töluðu
um sem einu alvöru plötu ársins
1991. Undanfari hennar var smáskíf-
an Loaded sem var nokkurs konar
óður til skemmtanafíkla og sprautu-
þræla.'Lagið náöi strax miklum vin-
sældum á House-klúbbum í Bret-
landi og fór í 16. sæti breska smá-
Skoska sveitin Primal Scream.
skífulistans, einu sæti ofar en Sykur-
molarnir með Hit í janúar en 16.
sætið var langbesti árangur Primal
Scream á vinsældalista.
Smáskífur
sem bragð er að
Hljómsveitin hélt upp á árangur
lagsins með trylltu samkvæmishaldi
í tvo mánuöi áður en haldið var í
hljóðver. Þar var Screamadelica
hljóðrituð á aðeins sex vikum. í maí
sendi Primal Scream frá sér annað
smáskífulag af plötunni og var þar á
ferðinni dreymin sónata í „scream'1-
dúr. Lagið, sem heitir Higher than
the Sun, var í þeim anda sem Bobby
Gillespie er þekktur fyrir en í þetta
skiptið hitti hann gagnrýnendur og
aðdáendur hljómsveitarinnar í
hjartastað. Hvorugir héldu vatni og
j)ó lagið færi ekki jafn hátt á Usta og
Loaded þá voru umsagnir pressunar
hástemmdari en áður. Þær voru á
þann veg að ekki var fyrir venjuleg-
an mann að skilja og það veit á gott
þegar breskir gangrýnendur eru
annars vegar. Þegar hstar Melody
Maker og New Musical Express voru
skoðaðir í árslok kom í ljós aö fyrr-
nefnda blaðið valdi lagið það þriöja
besta sem útgefið var á árinu en
NME setti það í efsta sætið.
Fjölbreyttplata
en heilsteypt
Screamadelica er undarleg plata
þar sem kryddað er með undarleg-
ustu bætiefnum en hrærigrauturinn
reynist vel. Housetónlist, diskó,
elektrónísk tónlist, nýbylgju- og
hipparokk, öllu þessu eru gerð skil á
plötunni. Einhver sagði Primal Scre-
am spila sama lagiö 10 sinnum á plöt-
unni en alltaf í nýrri útsetningu
þannig aö erfitt væri að greina sömu
laglínuna. Þetta eru ýkjur en segir
meira en mörg orð um fjölbreytnina.
Bobby Gillespie og Primal Scream
steypa saman nútíð, fortíö og framtíö
og hlæja að öllu saman. Leikgleðin
er allsráðandi og platan flokkast
undir það að vera vel danshæfur
samkvæmisgripur með þenkjandi
yfirbragði. Bítlarnir, The Stooges,
Love, Happy Mondays og Dee Lite
detta inn í lög en eru horfin jafnharö-
an. Primal Scream leiðir þessa og
fleiri öðlinga í dansinn og útkoman
er Rokk með stóru erri.
Perlur íslenskrar tónlistar á disk
- Steinar endurútgefa hátt í 50 íslenska titla á geisladiskum
Þann 17. júní árið 1975 hófst nýr
kafli í sögu íslenskrar dægurtón-
hstar. Þá hóf hljómplötufyrirtækið
Steinar starfsemi með útgáfa á ein-
hverri umtöluðustu hljómplötu á
íslandi, Stuðmannaplötunni Sum-
ar á Sýrlandi. Fyrirtækið minnist
17 ára afmæhs síns á þessu ári með
útgáfu 35-45 íslenskra titla og er
þar um að ræða efni sem hefur
verið ófáanlegt svo árum skiptir.
Hér er um að ræöa tónhst sem gef-
in var út á sínum tíma á merkjum
SG, Fálkans og Steina. Að sögn
Jónatans Garðarssonar er leitast
við að hafa gerð umslags og texta-
blaðs eins upprunalegt og kostur
er, en í sumum tilfehum er aukið
við upplýsingar. Það sama gildir
með tónlistina, þó sums staðar hafi
þurft að skerpa hljóm með endur-
hljóöblöndun enda útgáfan miðuð
við geisladiska og þar eru kröfur
aðrar en á vinylnum.
Útgáfan, sem kallast Homsteinar
íslenskrar tónhstar, hófst sl.
fimmtudag og komu þijár plötur
út þann dag. Fram th 17. júní verða
endurútgefnir 17 titlar en talan 17
verður eins konar þema þessarar
útgáfu.
Endurnýjuð kynni
af gömlum vinum
Á fimmtudaginn komu á markað
plöturnar Sturla, margrómað
meistaraverk Spilverks þjóðanna,
Hinn íslenski Þursaflokkur og
safnplatan Aldrei ég gleymi sem
inniheldur 17 ballöður frá síðustu
17 árum.
Þann 9. apríl verða gefnar út tvær
plötur. Annars vegar Fyrir sunnan
Fríkirkjuna með Heimi og Jónasi
og hins vegar fyrst plata Savanna
tríósins frá 1964, en hún heitir
Folksongs from Iceland.
í lok apríl koma svo á markað
tvær ólíkar plötur, Á þjóðlegum
nótum með Ríó tríói og ímynd með
Egó.
Útgáfan heldur áfram seinni
hlutann í maí með tveimur plötum
sem hafa verið ófáanlegar um ára-
bil. Þar eru á ferðinni Eitt sumar á
landinu bláa með Þremur á pahi
og 40 vinsælustu lög síöari ára með
Silfurkórnum. Kaffibrúsakarlarnir
öðlast endurnýjun lífdaga í byrjun
júni og Mávasteh Grýlanna kemur
á markað 11. júní.
Þessari fyrri endurútgáfulotu
Steina lýkur svo á þjóðhátíðardag-
inn en þá verður fyrsta plata Stuð-
manna, Sumar á Sýrlandi, útgefin
á geisladiski með 17 síðna texta- og
upplýsingabók. Auk hennar verður
fyrsta plata Trúbrots gefin út á
sama tíma en á þeim diski verður
eitt lag sem ekki hefur verið gefið
út fyrr. Lagið heitir Breyttu bara
sjálfum þér og sýnir Karl heitinn
Sighvatsson í miklum ham á orgel-
inu.
í haust heldur þessi endurútgáfu-
törn Steina áfram og þá verða allt
að 30 titlar settir á markað.