Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1992, Síða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1992, Síða 60
o« -NJS F R ÉTT S K O T I Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- leyndar er gætt. Við tökum við frétta- skotum allan sólarhringinn. Ritstjóm - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími Frjálst,óháö dagblað LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1992. Faldi svikin með Ijósritum var hins vegar sýknaður af sakargiftum um brot í opinberu starfi Fymun innkaupastjóri Orkubús Vestíjarða á ísafirði hefur verið fúndinn sekur um rúmlega einnar milijónar króna fjárdrátt í starfi sínu árið 1988. Héraðsdómur Vest- fjarða dæmdi manninn i 5 mánaða skilorðsbundið fangelsi. Innkaupastjórinn hafði yfirum- sjón meö öllum innkaupum og birgðahaldi á lager Orkubúsins. I nóvember 1988 óskaði orkubús- stjóri eftir að endurskoðandi gerði athugun á bókhaldi varðandi inn- kaup á lagervöru til fyrirtækisins. Grunur hafði vaknað um íjárdrátt með fólsuðum gögnum - ýmist gjaldeyriskaupanótum eða vöru- reikningum. Innkaupastjórinn sagði þá starfi sínu strax lausu. Við yfirheyrslur viöurkenndi maðurinn strax fjárdrátt. Kvaðst hann hafa dregið sér samtals 'rúma eina milljón króna í fjögur skipti árið 1988. Hann fékk í öllum tilvik- um óútfyllta tékka hjá gjaldkera Orkubúsins undir þvi yfirskini aö ætla að greiða fyrir vörur til bús- ins. í tvö skipti var alls ekki um nein innkaup að ræða. Maðurinn viðurkenndi aö hafa einfaldlega skrifað út 176 og 271 þúsund króna ávísanir og dregið sér báðar upp- hæðirnar. í hin tvö skiptin var hluta af andvirði tékka varið til gjaldeyriskaupa en mismuninn, tæplega 600 þúsund krónur, hag- nýtti maðurinn sér sjálfur. Innkaupastjórinn gaf gjaldkeran- um ávallt upp tékkafiárhæðirnar og greindi honum munnlega frá því í hvað peningarnir heíðu farið. Hann dró hins vegar aö skila gjald- eyris- og vörureikningunum þang- að til farið var að reka á eftir hon- um. f>á tók hann það til bragðs að ljósrita eldri reikninga úr bókhaldi Orkubúsins, vélritaði þær fiárhæð- ir sem þurfti á þá til aö stemma af bókhaldið og skilaðí síðan „skjöl- unum“ inn. Við yfirheyrslur kvaðst maður- inn hafa gripið til framangreindra örþrifaráða þegar sýnt þótti að húseign hans yrði seld á nauðung-. aruppboði. Við ákvörðun refsingar var litið til hreinskilnislegrar játn- ingar mannsins - hann hafði þegar endurgreitt þaö fé sem hann dró sér - og „vammlausrar" hegðunar hans á þeim fiórum árum sem liðin eru frá brotunum. Ríkissaksóknari kraföist þess að maöurinn yrði einnig dæmdur fyr- ir brot í opinberu starfi en dómur- inn sýknaði hann af þeim sakar- giftum, meðal annars vegna þess að skilgreining iðnaðarráðuneytis- ins á orkubúinu væri ekki á þá leið að eðli starfs innkaupastjórans væri frábrugðið hliðstæðum stöð- um í öðrum atvinnufyrirtækjum á landinu. Jónas Jóhannsson hér- aðsdómari kvað upp dóminn. -ÓTT Akureyri: Atvinnuleysi fer minnkandi Hæstiréttur í nauögunarmáli: Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: 4 4 Atvinnuleysi fór minnkandi á Ak- ureyri í síðasta mánuði og virðist vera að rætast talsvert úr í þeim efn- um, að sögn Sigurbjargar Héðins- dóttur hjá Atvinnumiðlun Akur- eyrar. í lok febrúar voru 333 á atvinnu- leysisskrá en nú um mánaðamótin síðustu voru skráðir án atvinnu 305. Að vísu er fækkunin ekki mjög mik- 0 en Sigurbjörg sagðist hafa það á tilfinningunni að talsvert væri að rætast úr þessa dagana, hvort sem það ástand myndi vara eða ekki. Verkafólk er langfiölmennast á at- vinnuleysisskrá á Akureyri. 2 ára fangelsi varð að sýknu 4 4 »BÍL ASTrt ÞRÖSTIIR 68-50-60 VANIR MENN Hæstiréttur hefur sýknað tæplega fimmtugan karlmann af ákæru um nauðgun. Sakadómur Kópavogs haföi hins vegar dæmt hann í tveggja ára fangelsi og til greiðslu 350 þúsund króna í skaðabætur til konunnar sem kærði hann. Atburðurinn átti sér stað í íbúð í Breiðholti. Maðurinn og konan voru ölvuð og bæði gestkomandi í íbúð- inni. Fyrir héraðsdómi viðurkenndi maðurinn að konan hefði mótmælt samförum þeirra í fyrstu. Hann við- urkenndi jafnframt að hafa haldiö fyrir munn hennar. Læknisrann-. sókn staðfesti roða á munni konunn- ar, eins og eftir grip, og eymsl á legg og fæti konunnar. Sakadómur Kópa- vogs sakfelldi manninn með hliðsjón af framburði. konunnar, að hluta til á framburði mannsins, svo og lækn- isskýrslu. Hæstiréttur taldi varhugavert að telja sannað aö um nauðung hefði verið að ræða með hliðsjón af því að vafa beri að meta sakborningi í hag. -ÓTT Yf irvinnubann mjólkurf ræðinga Fuglarnir á tjörninni kunna að vel að meta brauðin. Að minnsta kosti tóku þeir vel við þegar bæjarstarfsmenn voru að fóðra þá i gær. DV-mynd GVA Mjólkurfræðingar hafa boðað ótímabundið yfirvinnubann frá og með 10. apríl næstkomandi. Tilgang- urinn er að knýja á um samninga sem hafa verið lausir frá því í sept- ember síðastliðnum. Yfirvinnubann- ið kann að hafa áhrif á framboð á mjólkurvörum yfir páskana þannig að það verði minna en ella. Að sögn Geirs Jónssonar, for- manns samninganefndar mjólkur- fræðinga, var siðasti samningafund- ur í fyrradag. Eftir miðnætti slitnaði upp úr og hefur nýr fundur ekki ver- iö boðaður. -JSS LOKI Þeireru hálfsúrir, þessir mjólkurfræðingar! Veður á sunnudag og mánudag: Slydda og hiti yf ir f rostmarki Á sunnudag verður fremur hæg austlæg átt. Það verður slydda á Vestfiörðum og við norðurströndina en annars rigning, einkum þó á Suður- og Suðausturlandi. Hiti verður á bilinu 1-5 stig. Á mánudag verður norðaustanátt, sums staðar nokkuð hvöss. Slydda eða snjókoma verður um landið norðanvert og hiti um frostmark en að mestu þurrt og tveggja til fimm stiga hiti syðra. 4 4 4 4 4 4 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.