Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1992, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1992.
-------------------------------
Utboð
Svarthamrar 1992
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í endurlögn
1,4 km kafla á Ketildalavegi frá Auðahrísdal að
Hvestu í Arnarfirði, sunnanverðum (utan Bíldu-
dals). Helstu magntölur: Fyllingar 9.000 m3, rof-
vörn 7.000 m3. Verkinu skal lokið 15. nóvember
1992.
Úboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
á ísafirði og Borgartúni 5, Reykjavík (aðalgjald-
kera) frá og með 29 þ.m. Skila skal tilboðum á
sömu stöðum fyrirkl. 14.00 þann 13. júlí 1992.
Vegamálastjóri
fTilkynning frá Hitaveitu Reykjavíkur
til þeirra sem skoða vilja Nesjavallavirkjun
Virkjunin verður til sýnis sem hér segir:
1) 15. maí til 1. september
kl. 9-18 frá mánudegi til laugardags.
2) 1. september til 15. maí
kl. 9-17 frá mánudegi til fimmtudags.
é
Ekki er hægt að taka á móti gestum á öðrum tíma
dags, né á lögboðnum helgidögum.
Matgæöingur vikunnar
Möndlukjúkling -
ur í kínapönnu
Þórunn Birgisdóttir, matgæðing-
ur þessarar viku, býður lesendum
upp á kjúklingarétt með möndlum
(chicken almond ding) sem eldaður
er í kínapönnu eða „wok“. Upp-
skrift Þórunnar miðast við fjóra.
Þórunn starfar að Hótel Eddu á
Laugarvatni en býr annars í for-
eldrahúsum í Reykjavík. Hún seg-
ist hafa lært heilmikið af kokkun-
um í eldhúsinu á Laugarvatni, ekki
síst hjá Jóni Sigfússyni, sem var
matgæðingur vikunnar fyrir hálf-
um mánuði.
Þórunn segist oft elda mat heima
hjá sér og verði þá allt mögulegt
fyrir valinu, fiskréttir, ítalskir rétt-
ir og allur almennur heimihsmat-
ur. En hefjumst þá handa við að
matreiða kjúkling með möndlum.
Uppskriftin er heldur flókin og því
best að hafa allt við höndina áður
en byrjað er að elda.
Kjúklingabringur
Það sem þarf í réttinn er:
2 kjúklingabringur (úrbeinaðar)
1 eggjahvíta
1 tsk. salt
1 tsk. maísenamjöl
1 tsk. sojasósa
örlítið af hvítum pipar
'A bolli kjúkhngasoö
2 gulrætur
Maísenablanda
2 msk. ostrusósa
1 'A msk. maisenamjöl
% tsk. vatn
Krydd og grænmeti
2 msk. matarolía
Þórunn Birgisdóttir.
1 tsk. engiferrót (söxuð smátt)
1 bolli sellerí (saxað smátt)
1 tsk. salt
200-300 g sveppir
'A bolli ristaðar heilar möndlur
'A bolh laukur
1 tsk. hvítlaukur (saxaður smátt)
'A bolli „water chestnuts"
/i „bamboo shoots“ (skorin í htla
teninga)
'A bolli frosnar baunir
2 msk. blaðlaukur (saxaður smátt)
Aðferðin
Skerið kjúkhngabringumar í bita
(1 /i cm). Blandið saman eggja-
hvítu, salti, maísenamjöh, sojasósu
og hvitum pipar í skál. Setjið kjötiö
í blönduna. Setjið plast yfir skáhna
og geymið í ísskáp í um hálftíma.
Skerið gulrætumar í 1'/ cm bita,
látið í sjóðandi vatn og sjóðið í 1
mínútu. Kæhð þær strax í köldu
rennandi vatni og látið renna af
þeim.
Maisenablandan: Blandið ostm-
sósuna með 1 'A tsk af maísena-
nyöh og '/, tsk. vatni. Geymið þar
til við steikinguna.
Steiking hefst: Hitið 3-4 msk. af
ohu í kínapönnu, setjið kjúkhnga-
bitana út í og snúið þeim oft. Þegar
þeir fara að fá hvítan ht em þeir
teknir upp úr.
Þvoið og þurrkið pönnuna. Hitið
síöan 2 msk. af ohu í henni. Setjiö
lauk, hvítlauk og engiferrót út í og
steikið smástund. Bætið svo seherí,
„water chestnuts" og salti í pönn-
una og steikið áfram í eina minútu.
Athugið að hræra stöðugt í á með-
an. Þá er „bamboo-shoots" og
sveppum bætt í og allt steikt áfram
í eina mínútu. Þá er kjúklingasoð-
ið, gulrætumar og kjúkhngabit-
arnir settir út í og aht látið sjóða í
2 mínútur.
Nú er mynd farin að komast á
réttinn. Maísenablöndunni er bætt
út í og rétturinn látinn þykkna með
því að sjóða hann í um hálfa mín-
útu. Loks er baununum og möndl-
unum bætt út í og blaölauk stráð
yfir.
MöndluKjúklingurinn er borinn
fram með soðnum hrísgrjónum.
Með honum er gott að drekka kælt
þurrt hvítvín.
Þórunn skorar á Pál Kolka Har-
aldsson að vera matgæðingur
næstu viku. Þórnnn segir Pál hafa
mikinn áhuga á matseld og eldi
hann oft heima hjá sér.
-hlh
Hinhliöin
Skemmtilegast á vellinum
- segir Jónas Kristinsson hjá ÍTR
Nauðsynlegt er að þeir sem óska eftir að skoða virkj-
unina hafi samband með nokkurra daga fyrirvara og
hafi samráð við gæslumenn um nánari tímasetningar
og fyrirkomulag ef um stærri hópa er að ræða.
Tekið er á móti beiðnum í síma 98-22604, boðsími
984-54644
Hitaveita Reykjavíkur
íþróttadagurinn í Reykjavík er í
dag. Gangast íþrótta- og tóm-
stundaráð, íþróttabandalag
Reykjavíkur og stóru íþróttafélögin
í Reykjavík fyrir kynningu á starf-
semi sinni auk þess sem efnt er til
uppákoma af ýmsu tagi. íþrótta-
dagurinn er nú haldinn í 4. sinn.
Hitann og þungann af undirbún-
ingnum ber Jónas Krtistinsson,
TIL SÖLU
Ford Econoline 150 '87 4x4, 8 cyl., bein innsp., starcraft
innr. og margt. fl. Litur hvítur. Toyota x-cab '90, V-6 38"
dekk, álfelgur, leer hús, 4" trail master upph. sett, 4" hækk-
un á boddíi og margt fl. Litur rauður. Chevrolet Blazer,
árg. '85, 4 gíra, sjálfsk. ný dekk, álfelgur, upph. og m. fl.,
litur hvítur. Verð tilboð.
Uppl. í símum á skrifstofutíma 91-24440 91-677900
utan skrifstofutíma 91-682541
fuhtrúi hjá ITR.
„Við vhjum kynna alla íþrótta-
og tómstundastarfsemi borgarinn-
ar og umfram allt fá fólk th að koma
sjálft og skoða þá fjölbreyttu mögu-
leika th útvistar og hreyfingar sem
í boði eru,“ segir Jónas.
Jónas hefur starfaö nær óshtið
fyrir ÍTR frá 1979. Hann hefur ann-
ast ýmis störf á vegum ráðsins, sá
meðal annars um rekstur Þrótt-
heima, Ársels og Glyms um tíma.
Þess utan þjálfar Jónas nokkra
yngri flokka í KR og situr í stjóm
Knattspymudeildar KR. „Vinnan
og áhugamáliö fara saman hjá mér
og ég er mjög sáttur við það.“
Fuht nafn: Jónas Kristinsson.
Fæðingardagurogár: 1. mars 1960.
Maki: Ásdís Eva Hannesdóttir.
Böm Jónas ÓU, 6 ára, og Andrea
Dröfn, 4 mánaða.
Bifreið: Renault Charmade, árgerð
1991.
Starf: Fuhtrúi hjá íþrótta- og tóm-
stundaráði.
Laun: Þokkaleg.
Áhugamál: Knattspyma og ferða-
lög. Ég nota hvert tækifæri th að
komast th útlanda.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Eg hef einu sinni
fengið fjórar réttar.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
Jónas Kristinsson.
gera? Horfa á knattspymuleiki.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Að hanga í boðum þar sem
fuht er af leiðinlegu fólki, ég þekki
engan né skil thganginn með vem
minni þar.
Uppáhaldsmatur: Gamla, góða
hangikjötið, með uppstúi og öhu
klabbinu.
Uppáhaldsdrykkur: Mjólk, það er
alltaf gott aö fá mjólk og köku.
Hvaða iþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Rúnar, Utli
bróðir.
Uppáhaldstimarit: íþróttablaöið.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan maka? Linda
Pétursdóttir.
Ertu hlynntur eða andvigur ríkis-
stjórninni? Já.
Hvaða persónu langar þig mest th
að hitta? Alexander mikla.
Uppáhaldsleikari: Robin Whliams.
Uppáhaldsleikkona: Michehe Pfeif-
fer.
Uppáhaldssöngvari: Bono í U2.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Dav-
íð Oddsson, enginn annar kemur
th greina.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Kanínan Bugs Bunny.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Ég horfi
varla á annað en íþróttir og fréttir.
Ertu hlynntur eða andvígur veru
varnarliðsins hér á landi? Ég sé
ekki alveg thganginn með vem
þess hér, eins og staðan í heims-
málum er í dag.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Rás 2. Svo hlusta ég mikiö á
Bylgjuna.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Sigurður
G. Tómasson.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Jafht, þar sem ég horfi
bara á íþróttir og fréttir.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Bjarni
Fel., þaö er næsta víst. Þó Bjarni
sé orðinn gamall í hettunni ber
hann enn höfuð og heröar yfir aðra.
Uppáhaldsskemmtistaður: Heima
hjá mér, ég fer aldrei á skemmti-
staði.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: KR.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Að gera ahtaf betur.
Hvað ætlar þú að gera i sumarfri-
inu? Ég er búinn að vera í smásum-
arfríi hér heima en fer á næstunni
th Hohands vegna knattspymunn-
ar og Finnlands vegna starfsins.
Annars hef ég hug á að eyða fyrstu
vikunni í fríinu heima hjá mér og
feröast síöan.
-hlh