Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1992, Qupperneq 9
LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1992.
9
Kolfinmir og Brá standa
efst kynbótahrossa
Nú er flestum stórsýningum
kynbótahrossa lokið ef undan er
skilið fjórðungsmót hestamanna á
Vesturlandi. Ekki er úr vegi að líta
yfir farinn veg og kikja á afburða-
gripi ársins til þessa.
Hrannar frá Kýrholti hefur kom-
ið fram á sjónarsviðið svo um mun-
ar með hæstu aðaleinkunn fjög-
urra vetra stóðhests. Hann fékk
8,18 í aðaleinkunn á sýningu á
Heflu. Hrannar er með einkunnir
yfir 8,00 jafnt fyrir byggingu sem
hæfileika. Byggingareinkunnin er
8,05 en hæfileikaeinkunnin 8,31,
sem er hæsta hæfileikaeinkunn
fjögurra vetra stóðhests á þessu
ári. Viðar Jónsson í Keflavík er eig-
andi Hrannars sem er undan Ófeigi
frá Flugumýri og Stjömu frá Kýr-
holti.
Svartur frá Unalæk kemur næst
Hrannari en töluvert er í næstu
hesta. Svartur fékk 8,16 í aðaleink-
unn á sýningu Stóðhestastöðvar-
innar í Gunnarsholti. Svartur fékk
8,28 fyrir byggingu, sem er jafn-
framt hæsta byggingareinkunn
fjögurra vetra stóðhests í sumar,
og 8,14 fyrir hæfileika. Svartur er
undan Kjarval frá Sauðárkróki og
Fiðlu frá Snartarstöðum og er í
eigu Odds Björnssonar á Unalæk.
Tveir aðrir fjögurra vetra stóð-
hestar hafa fengið yfir 8,00 í aðal-
einkunn: Höldur frá Brún 8,06 og
Gumi frá Laugarvatni 8,02. Sextán
fjögurra vetra stóðhestar hafa
fengið 7,75 eða meir í aðaleinkunn.
Fimm vetra
flokkurinn bestur
Þrjátíu og tveir fimm vetra stóð-
hestar hafa fengið einkunnina 7,75
eða meir, þar af níu yfir 8,00. Kjam-
ar frá Kjarnholtum, undan Kol-
grími frá Kjamholtum og Hrefnu
frá Holtsmúla, er hæstur með 8,14
í aðaleinkunn. Þá einkunn fékk
hann í dómi á Stóðhestastöðinni í
Gunnarsholti. Kjamar fékk 8,15
fyrir byggingu og 8,13 fyrir hæfi-
leika og er í eigu Jens Petersen á
Stokkseyri.
Brennir frá Kirkjubæ, Farsæll
frá Ási og Seimur frá Víðivöllum
fremri fengu alflr 8,10 í aðalein-
kunn á sýningum í vor. Vörður frá
Enni hefur fengið hæstu bygging-
areinkunn fimm vetra stóðhests í
sumar 8,35, en Seimur frá Víðivöfl-
um fremri hæstu hæfileikaein-
kunnina 8,57.
Kolfinnur frá Kjam-
holtum efstur allra
Hæst dæmdi stóðhesturinn á
þessu ári er Kolfinnur frá Kjam-
holtum. Vignir Siggeirsson tamn-
ingamaður hefur verið með Kolf-
inn í tamningu í Skagafirðinum í
vetur og sýndi hann á héraðssýn-
ingu Skagfirðinga fyrir viku. Kol-
finnur fékk geysiháar einkunnir:
8,00 fyrir byggingu, 8,61 fyrir hæfi-
leika, sem jafnframt er hæsta hæfi-
leikaeinkunn sex vetra stóðhests
og 8,30 í aðaleinkunn. Kolfinnur er
undan Þætti frá Kirkjubæ og Kolf-
innu frá Kröggólfsstöðum og er í
eigu Gunnars Baldurssonar á
Kvíarhóli. Kveikur frá Miðsitju
kemur næstur með 8,25, Segufl frá
Stóra-Hofí, Sokki frá Sólheimum
og Þengifl frá Hólum með 8,18 en
aðrir minna. Sokki frá Sólheimum
hefur fengið hæstu byggingarein-
kunn allra kynbótahrossa á land-
inu það sem af er sumri 8,58. Þijá-
tíu og þrír stóðhestar hafa fengið
einkunnina 7,75 eða meir, þar af
tólf yfir 8,00.
Brá og Kolskör lang-
efstar eldri hryssna
Brá frá Sigmundarstöðum 8,32 og
Kolskör frá Gunnarsholti 8,31 hafa
fengið langhæstu dóma sex vetra
hryssnanna og er langt í þá þriðju.
Brá fékk 7,85 fyrir byggingu og 8,79
fyrir hæfileika, sem er jafnframt
hæsta hæfileikaeinkunn kynbóta-
grips á þessu ári, á forsýningu fyr-
ir fjórðungsmótið á Vesturlandi.
Kolskör fékk 8,05 fyrir byggingu
og 8,57 fyrir hæfileika á héraðssýn-
ingu í Skagafirði. Brá er undan
Viðari frá Viðvík og Brynju frá Sig-
mundarstöðum og er í eigu Reynis
Aðalsteinssonar en Kolskör er
undan Kolfinni frá Kjarnholtum og
Glóð frá Gunnarsholti og er í eigu
Eyrúnar Ýrar Pálsdóttur. Tuttugu
og tvær sex vetra hryssur hafa
fengið 8,00 eða meir í aðaleinkunn
í sumar. Einungis þijár af þessum
sautján hryssum hafa fengið yfir
8,00 fyrir byggingu.
Engin fjögurra
vetra hryssa yfir 8,00
Fáar ungar hryssur hafa komist
yfir 8,00 i aðaleinkunn í sumar.
Fimm vetra hryssumar eru fjórar
en enginn fjögurra vetra hryssa
hefur náð því takmarki.
Morgunstjama frá Stóra-Hofi er
hæst dæmda fimm vetra hryssan.
Hún fékk 8,13 fyrir byggingu, 8,20
fyrir hæfileika og 8,16 í aðalein-
kunn á héraðssýningu á Gadd-
staðaflötum fyrir viku. Morgun-
stjama er undan Stíg frá Kjartans-
stöðum og Gæfu frá Stóra-Hofi og
er í eigu Sigurbjörns Eiríkssonar.
Engin íjögurra vetra hryssa hef-
ur fengið yfir 8,00 í aðaleinkunn.
-E.J.
Brá frá Sigmundarstöðum er hæst dæmda hryssa ársins. Knapi er
Reynir Aðalsteinsson.
Kolfinnur frá Kviarhóli er hæst dæmdi stóðhestur ársíns. Knapi er Vignir Siggeirsson. DV-myndir E.J.
IMotar þú vettlinga þegar þú lest bækur?
Bók þarf ekki
að kosta 2000 krónuf
til aö vera góó.
Urvalsbækur kosta 790
krónur
og ennþá minna í áskrift!
Á næsta sölustaó
eða í áskrift í síma
(91)63 27 00
Það er vissara
meðan þú lest þessa:
- annars nagar þú
neglurnar
upp til agna!
Æsileg
spennusaga
úr New York
ímans
K
K
Bifreið þessari var stolið frá Skeifunni 9 31. maí si. Þeir sem geta
gefið upplýsingar um hvar hún er niðurkomin vinsamlegast hafi sam-
band í síma 686915. Fundariáun 25.000 kr. Bifreiðin er MMC Galant,
hvít að lit, árg. 1990, nr. LL 398