Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1992, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1992, Page 16
16 LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1992. Skák f slenska sveitin í sjötta sæti á ólympíuskákmótimi í Manila: Ennþá betra en í Dubai Jón L. Ámasan, DV, Manila: Efdr fimmta sæti í Dubai, áttunda í Novi Sad og nú sjötta sæti í Man- ila hljóta íslendingar aö hafa tryggt sér sess meðal sterkustu skákþjóða heims. Árangurinn í Manila er sér- lega eftirtektarverður. íslenska skáksveitin varö fremst Vestm-- Evrópuþjóða og einungis fyrrum Sovétlýðveldi og skáksveit Banda- ríkjamanna hrepptu hærri sæti. Samkvæmt „gömlu heimsmynd- inni“ væru Islendingar í verð- launasæti. Óhætt er að segja að íslensku skákmennirnir hér í Manila séu þreyttir eftir átök síðustu vikna en samdóma álit allra er að þetta hafi verið erfiðasta ólympíumótið til þessa. Fyrirfram var íslenska sveitin í 14. sæti í styrkleiöaröðinni og ávallt var teflt gegn sterkum andstæðingum. Við mættum átta þjóðum sem voru hærra skrifaðar en við: í staö einnar sovéskrar sveitar eins og var hér „í þá gömlu góðu daga“ var nú tylft sveita frá fyrrum Sovétríkjum og þijár frá Júgóslavíu - allt mjög sterkar skáksveitir. Engum blöðum er um þaö aö fletta að sjötta sætið nú, meðal 110 keppnisþjóða, er ennþá betri árangur en fimmta sæti í Dubai 1986. í íjórtán umferðum vann íslenska skáksveitin níu töfl en tapaði fimm. Sveitin slapp stóráfallalaust frá mótinu - tapaði aldrei stærra en með minnsta mun, 1,5 gegn 2,5 vinningum. Aldrei var jafntefli 2-2. Við unnum íra, Dani, Perúmenn, Svisslendinga, Kirgistani, Eng- lendinga, Hollendinga, Rúmena og Tékka. Margar þessara þjóða hafa oft reynst íslendingum erfiðar, t.d. Danir og Rúmenar, svo ekki sé minnst á Englendinga og Hollend- inga og líklega höfum við aldrei unnið Tékka fyrr en nú. Töpin voru gegn Bosníu-Herzegóvínu, Banda- ríkjamönnum, Ungveijum, Rúss- um og Þjóðverjum. Allir íslensku skákmennimir stóðu vel fyrir sínu. Jóhann Hjart- arson fékk 6,5 vinninga af 12 á 1. borði (54,2%) og tefldi gegn mjög sterkum stórmeisturum - mótheij- ar hans höfðu aö meðaltali yfir 2600 Elo-stig. Margeir Pétursson fékk 5,5 v. af 10 (55,0%), Helgi Ólafsson fékk 5 v. af 9 (55,6%), Jón L. Ámason 7 v. af 11 (63,6%), Hannes Hlífar Stef- ánsson 7 v. af 9 (77,8%) og Þröstur Þórhallsson 2,5 v. af 5 (50%). Liðs- stjórinn, dr. Kristján Guömunds- son, átti oft úr vöndu aö ráöa, því að allir vora frískir og allir vildu tefla. Þröstur tefldi fæstar skákir en frammistaða annarra liðs- manna bitnaði á honum. Hann var sá eini sem ekki var með yfir 50% vinningshlutfall en hann tapaði sinni síðustu skák og gafst ekki kostur á að bæta úr því. Aldrei fyrr hefur íslensk skáksveit á ólympíu- móti veriö jafnsterk. Þessi var staöa efstu þjóða: 1. Rússland 39 vinningar 2. Uzbekistan 35 v. 3. Armenía 34,5 v. 4. Bandaríkin 34 v. 5. Lettland 33,5 v. 6. ísland 33,5 v. 7. Króatía 33,5 v. 8. -10. England, Úkraína og Georgía 33 v. 11.-14. Bosnía-Herzegóvína, Þýska- land, ísrael og Tékkóslóvakía 32,5 v. o.s.frv. Hannes Hlifar Stefánsson náði siöasta áfanga að stórmeistaratitli. Sá hængur er þó á að til þess að veröa stórmeistari þarf hann að hafa a.m.k. 2500 Elo-stig. Á skákstigalistanum, sem tekur gildi 1. júlf nk., hefur Hannes 2455 stig. Honum verður eflaust ekki skotaskuld úr þvi að ná tilskild- um stigum og þá verður hann sjálfkrafa stórmeistari - sjöundi stórmeisari íslendinga. Rússar sigraðu með miklum yfir- buröum og munaöi mest um tvo menn, sem svo sannarlega reynd- ust betri en engir. Heimsmeistar- inn, Garrí Kasparov, hélt skáksýn- ingu á fyrsta boröi - fékk 8,5 v. af 10, og oftar en ekki gekk hann gjör- samlega frá mótherjanum. Þá vakti frammistaöa ungs pilts, Vladimirs Kramniks, mikla athygli. Kramnik, sem hélt upp á 17. afmælisdag sinn með því aö taka á móti gullverð- launum, fékk 8,5 v. af 9 - leyfði aðeins eitt jafntefli, við Helga Ól- afsson. Khalifman, Dolmatov og Vizvanavin stóðu einnig fyrir sínu í sveitinni en Alexei Dreev var sá eini þeirra sem ekki var taplaus - tapaði fjóram skákum. Úrslit á ólympíumótum ráðast í lokaumferðunum og sveiflumar geta veriö miklar. Þannig hefði ís- lenska sveitin hæglega getað lent mun neðar í röðinni, því aö útlitiö í skákunum viö Tékka var hreint ekki fagurt um tíma. Jóhann fóm- aði peði gegn Ftacnik á 1. borði en náði ekki nægilegum færum og fékk tapaða stöðu. En honum tókst að klóra í bakk- ann og halda jafntefli. Þá komst Margeir ekkert áleiðis með hvítu gegn Stohl á 2. boröi og Hannes komst heldur ekkert með Hracek á fjórða borði. Staöan í skák minni gegn Mokry á 2. boröi leit heldur ekki gæfulega út og sannast sagna átti ég allt eins von á því að verða mát í 20 leikjum. En Mokry lenti í tímahraki og glutraöi stöðunni nið- ur. Þannig breyttist 3-1 ósigur í 2,5-1,5 vinninga sigur og sjötta sæti í höfn. Stórmeistara- áfangi Hannesar Með frammistöðu sinni náði Hannes Hlífar Stefánsson þriöja og síðasta áfanga sínum að stórmeist- aratitli. Sá hængur er þó á að til þess aö verða stórmeistari þarf hann að hafa a.m.k. 2500 Elo-stig. Á skákstigalistanum, sem tekur gildi 1. júlí nk„ hefur Hannes 2455 stig - fékk „nokkrar gamlar syndir í höfuðiö" frá fyrri mótum, þar sem Jiann stóö sig miður. Honum verð- ur eflaust ekki skotaskuld úr því að ná tilskildum stigum og þá verð- ur hann sjálfkrafa stórmeistari - sjöundi stórmeistari íslendinga. Hannes tefldi yfirvegaö og vel í Manila og er hann var kominn með 6,5 v. af 8 hafði hann náð stórmeist- araáfanga, þótt hann hefði tapað síðustu skákinni, en níu skákir varð hann að tefla. Þetta setti liös- stjórann, dr. Kristján, 1 mikinn vanda við að stilla upp liöinu fyrir lokaslaginn, því að í raun og vera var ekki ástæða til aö hvíla neinn. Kristján tók þá ákvörðun að láta sama lið tefla og haföi unnið Eng- lendinga og Rúmena en því verður sennilega seint svarað hvort það hafi verið rétt ákvörðun. En aftur að Hannesi. Áttundu Umsjón Jón L. Árnason skákina tefldi hann gegn Rúmen- anum Istratescu í þrettándu um- ferð. Tvö jafntefli í tveimur skák- um hefðu nægt Hannesi til áfanga en hann var þó ekki á því aö gefa mótheijanum fyrirhafnarlítið jafn- tefli. Hins vegar var augljóst af tafl- mennsku Rúmenans aö hann hafði ekkert á móti því aö skipta vinn- ingnum með Hannesi. Hann sldpti upp öllum mönnum sem hann sá og elti drottningu Hannesar um allt borð. En í endataflinu tókst Hannesi að snúa á hann og gerði það býsna skemmtilega. Hvitt: A. Istratescu (Rúmeníu) Svart: Hannes Hlífar Stefónsson Fjögurra riddara tafl. 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3 Rc6 4. Bb5 Bb4 5. 0-0 0-0 6. Bxc6 dxc6 7. Rxe5 Bxc3 8. dxc3 Rxe4 9. Bf4 X X A h & A A A A A A 4 m A S A A A s A A ABCDEFGH Andstæðingur Hannesar hefur teflt frámunalega leiðiniega og nú bauð liann jafntefli. Hannesi datt ekki í hug að þekkjast boðið, þótt staöan bjóði ekki upp á mikið. E.t.v. klingdu orð liðsstjórans í eyrum Hannesar: „Tefla með flórhjóla- drifinu í dag!“ sagði hann fyrir við- ureignina. 9. - Df6 10. Df3 Rd6 11. Hfel Be6 12. Rd3 Hfe8 13. Dg3 Rf5 14. Dg5 Dxg5 15. Bxg5 Hvítur hefur loks náö drottninga- kaupum og taflið er hnífjafnt. En Hannes teflir áfram. 15. - b6 16. Bf4 Hac8 17. a4 fiB 18. h3 c5 19. a5 g5 20. Bh2 c4 21. Rb4 c5 22. Ra6 Bf7 23. Hxe8 Hxe8 24. Kfl Hd8 25. Bc7 Hd2 26. axb6 Hér er 26. Bxb6!? axb6 27. axb6 athyglisverður möguleiki - virðist leiöa til jafnteflis. 26. - axb6 27. Bxb6 Hxc2 28. Rxc5 Bd5! Sterkara en 28. - Hxb2 og ekki spillir að hvítur gæti fallið í gildr- una 29. Hdl? Bxg2+! 30. Kxg2 Re3 + og hrókurinn fellur. 29. Rd7 Kf7 30. Hdl Be4! 31. Bc5 Rh4 32. g3 Bd3+ 33. Kgl Rf3+ 34. Kg2 Be4 35. Rb6 Hxb2 36. g4 Hc2! 37. Kg3 Ef 37. Bb4 þá 37. - Rd4 +! og síðan 38. - Re2+ og c-peðið hlýtur að falla. Hannes hefur smám saman náð aö snúa taflinu sér í vil en ætla mætti þó aö vinningurinn gæti orðið torsóttur. 37. - Hxc3 38. Hd7+ Kg6 39. Be3 Re5 40. He7 h5 41. gxh5 Kxh5 42. He8? Bc6 43. He6? Gætir sín ekki á lævísri brellu svarts. 8 7 6 5 4 3 2 1 ABCDEFGH m & s * 4 á + A A X ÉL A W: 43. - Hxe3+!! 44. fxe3 c3 Svarta peðið verður ekki stöðvaö! Ef 45. HxfB c2 46. Hfl Rd3, vinnur síðan hrókinn og skákina þar á eft- ir. 45. Rc4 c2 46. Rxe5 cl=D 47. Rxc6 f5 Einfaldara hefði verið 47. - Dgl + 48. Kf3 g4+ og vinnur í nokkrum leikjum. 48. Kf2 Dd2+ 49. Kfl Kh4 50. Rd4 Kxh3 51. Re2 Dd5 52. Hh6+ Kg4 53. Kel De4 54. Kd2 f4 55. exf4 gxf4 56. Hh8 Dd5+ 57. Kc2 f3 58. Rc3 Df5+ 59. Kd2 Df4 + Og nú loks gafst Rúmeninn upp.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.