Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1992, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1992, Síða 25
LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1992. 25 Börnin á Blönduósi voru alveg ófeimin viö að taka lagiö með Helga: Geta pabbar ekki grátiö ... ? DV með hljómsveitinni Síðan skein sól á Norðurlandi: Rokk og ról í Sólartúr Hljómsveitarmenn og rótarar söfnuðust í rútuna við Umferðarmiðstöðina að morgni föstudags. Gengið frá gistingu á Hótel Eddu á Stóru-Tjörnum, Ljósavatnsskarði. Þar nutu Sóiarmenn einstakrar gestrisni. Það var kátt í móttökunni. Ragnar Sigurjónsson, ljósmynd- ari DV, slóst í för með hljómsveit- inni Síðan skein sól um síðustu helgi. Haldið var að Ýdölum skammt frá Húsavík þar sem hljómsveitin reif þakið næstum því af með rokki og róh. Um 700 manns komu á baliið sem haldið var á föstudagskvöld og voru allir í miklu stuði. Daginn eftir var haldið á Blönduós þar sem Sólarmenn tróðu upp á bamaballi fyrr um Helgi Björnsson söngvari var í miklum ham í Ýdölum og fékk salinn hreinlega til að bulla og sjóða undir kröftugu Sólarrokki. DV-myndir Rasi kvöldið - trylltu síðan stóru bömin þegar líða tók aö miðnætti. Hér má sjá myndir sem Ragnar tók í þessum túr meö Sóhnni. -hlh Til að líta nógu villimannlega út setti Helgi söngvari egg i hárið. Sólarmenn fylgjast með aðförun- um á fyrstu myndinni, hjálpa til við að þurrka á annarri en á þriðju er Helgi tilbúinn i slaginn. Sviðsljós Fyrsti írski setterinn á íslandi: Var hann í eigu Gríms Thomsen? Ljóðskáldið Grímur Thomsen (1820-1896), seni sat á Alþingi, var lengi í utanríkisþjónustu Dana og er yfirleitt talinn eitt helsta skáld róm- antísku stefnunnar á íslandi, var hændur að dýmm. Grímur mun hafa átt írskan setter sem má meðal ann- ars sjá á myndinni af Grími hér á síðunni. Að eiga írskan setter er í sjálfu sér ekki merkilegra en að eiga aöra hunda. Öllu merkilegri þykja hins vegar vangaveltur sem ganga út á það að Grímur Thomsen hafi átt fyrsta írska setterinn sem kom hing- að th lands, hafi reyndar komið með hann með sér frá Danmörku. Hundaáhugamaður sem DV ræddi við var á ferðinni í Kolaportinu á dögunum og rakst þá á póstkort af Grími með setterinn. Hann rýndi í myndina og sölumaðurinn spurði hvort hann hefði mikinn áhuga á Grími. „Nei,“ sagði hundaáhuga- maðurinn, „mér er alveg sama um Grím en mér hst mjög vel á hundinn hans.“ Eftir viðtöl við áhugamenn um hunda og áhugamenn um Grím Thomsen er spurningunni um hvort Grímur hafi átt fyrsta írska setterinn á íslandi enn ósvarað. í bókinni Merkir íslendingar má hins vegar sjá klausur er lýsa dýravininum Grími: „Við skepnur var hann góður og mátti ekki sjá þeim misþyrmt. Hafði hann hið mesta dálæti á hundum og hestum." Við birtum hér mynd af Grími og írska setternum. Þeim er vita hið sanna í málinu er velkomið að hafa samband við helgarblað DV. -hlh Grfmur Thomsen með írskan setter við fætur sér. Var þetta fyrsti írski sett- erinn á íslandi? Stjórnendur fyrirtækja, ath. Sendibílstjórar, sem aka daglega frá Reykjavík um Suðurnesin og Selfosssvæðið, óska eftir föstum flutningum með þrifalegar vörur, stórt sem smátt. Samnýtt flutningatæki - sparnaður í rekstri. Hafið samband við auglþj. DV í síma 91-632700. H-5480. ÚTBOÐ GATNAGERÐ Sandgerðisbær óskar eftir tilboðum í gatnagerð í Norðurgötu og Miðtúni. Helstu magntölur eru: uppúrtekt 13003 fylling 25003 lagnir 220 m 10 niðurföll 503 sprengingar. Útboðsgögn verða afhent á Bæjarskrifstofunni Sand- gerði, Tjarnargötu 4, og Verkfræðistofu Halldórs Hannessonar, Bæjarhrauni 20, Hf. Tilboðin verða opnuð á Bæjarskrifstofu Sangerðis föstudaginn 3. júlí kl. 11.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.