Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1992, Síða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1992, Síða 43
LAUGARDAGUR 27. JÚNl 1992. 55 Fréttir Sýslumannsembætti frá i. júlí Stjórnsýsluumdæmin v • q Bolungarvik $ (safjt Patreksfjöt Siglufjörður , Akureyri Stykkishólmur © o ) 0:1 Húsavík Seyöisfjöröi^r. Neskaupstaðui Eskifjörður Borgarnes^ 0 Akranes Hafnarfjörður Q Reykjavik KeflavíkQ QQKopavogur Keflavikurflugvöllúr Selfoss ' O Hvolsvöllíi Vestmannaeyjar -'i-.. O C Höfn © O Vík Hlutverk sýslumanna • Lögreglustjprn, nema í Reykjavík. - Ákæruvald í sakamálum sem aðeins varða sektum eða varðhaldi og í öll- um áfengis- og umferðarlagabrotum. • Tollstjórn, nema í Reykjavík. • Fjárnám. . Ágreiningsmálum • Nauðungarsölur. V má skjóta til hér- • Dánarbússkipti. I aðsdómara. • Þinglýsingar. • Úrskurðir um um-. Ákvarðanir sýslu- gengnisrétt for- L manna ma kæra /// e draogbarna í dómsmáiaráðun. • Meðlagsgreiðslur • Staðfesting á samningum um forsjá barna. • Hjónavígslur og skilnaðarleyfi. • Innheimta opinberra gjalda þar sem hún er ekki hjá sérstökum gjaldheimtum. • Umboð fyrirTryggingastofnun ríkisins utan Reykjavíkur. • Skráning firma og félaga annarra en hlutafélaga. • Ýmsar leyfisveitingar. • Atkvæðagreiðsiur utan kjörfundar. • Sáttaumleitanir í einkamálum fyrir dómstólum. • Staðfesting opinberra skjala. !o I1 c a «o '£5 15 -ra E 0) E 'O Q ;g 1 5 Umdæmi héraðsdóma • Sakamál - Einkamál. • Úrskurðir vegna ágreiningsmála sem upp koma við gerðir sýslumanna vegna: - dánarbússkipta, - nauðungarsölu, - kyrrsetninga, - lögbanns, - þinglýsinga og fleira. • Úrskurðir um greiðslustöðvanir, gjaldþrotaskipti og opinber skipti á dánarbúum (skipun skiptastjóra). • Úrskurður um ágreiningsmál um forsjá barna. • Úrskurðir um ágreining sem rís við skipti. ísafjörduf-0j YÉSTJFJRÐIR VESiURLANÐ Borgarnes (1) m Reykjavík (21^ REYKJANE^- Hafnarfjörður (71. NORÐURLANB! VESTRA ?ú-' norðurlandT EYSTRA ) Akureyri (3) \ Egilsstaðir (1) \ AUSTURLAND SUÐURLAND Selfoss (V Framkvæmdavald og dómsvald telst aðskilið frá og með 1. júlí: Aðskilnaðurinn á að tryggja óhlutdrægni - stuðlað að aukinni þjónustu sem ekki þarfað sækja um langan veg „Ef Guðni hefði komið með þennan samning til okkar á föstu- deginum og heðið okkur um að afgreiða þetta þá hefðum við sagt já,“ sagði Helgi Jóhannsson, for- stjóri Samvinnuferða-Landsýnar þegar hann var spurður hvort hans fyrirtæki heföi á einhverj- um tíma getið tekið við skuld- bindingum Flugferða-Sólarilugs. „Viö heföum þurft aö taka sér- staklega á einhverjum málum, það er ef fólk hefiir verið búið að greiða verulega mikið ínn á. Við heföum getað leyst vanda 80 til 90 prósent farþeganna." Samningur Guðna viö Flugleiö- ir þykir óvenjugóður og með þvi besta sem sést hefur. En eins og áður hefur komið fram var gert ráð fyrír aö gjald af hvetjum far- þega tii Lundúna og Kaupmanna- hafnar og tll baka væri 11 þúsund krónur og 5,500 fyrir þá sem ætl- uðu aðra ieiðina. Aðrir sem standa í feröaskrifstofurekstri segja aö það sé hreint ótrúlegt að Guöni Þórðarson hafi verið það illa staddur prhagslega að hann hafi ekki getað’ uppfyllt skilyrði samningsins og eins hitt að hann hafi ekki leitað til annarra um að taka samninginn yfir áður en hann neyddist til að hætta, Með því hefði verið hægt að leysa vandá flestra farþeganna, sér- staklega þar sem samningur Guðna við Flugleiöir þykir óvenjuhagstæður. -sme Borgarráðfjár- magnarstörf fyrirskðlafélk „Ég á ekki von á aö við þurfum að fjölga sumarstörfum frekar. Ákvörðun borgarráðs ætö að ieysa aö fullu úr atvinnuþörf skólafólks í Reykjavík," segir Markús Örn Antonsson, borgar- stjóri í Reykjavík. Borgarráð hefur ákveðið að verja 94 milljónum til að tryggja reykvísku skólafólki atvinnu í sumar. Fyrir þessa fjármuni verður hægt að ráða um 330 sum- arstarfsmenn til viöbótar þeim 1530 sem áður var ráðgert að ráða. Hjá Reykjavíkurborg telst mönnum til að á fimmta hundrað skólanemar hafi verið án atvinnu í lok síöasta mánaðar. í fyrra sumar voru 1307 skólanemar i vinnu hjá Reykjavíkurborg. Af þessarí fjárhæð renna um 28 milljónir til Skógræktarfélags Reykjavíkur og garðyrkjustjóra sem þýðir að sumarstörfum fjölg- ar um hundraö hiá hvorum aðila. Gatnamálasijóri fær tæpar 37 milljónir og eiga þær að duga fyr- ir vel á annað hundrað sumar- störfum. -kaa ÞeirtekjuhðMri drógutilsín 2,2 milljarða Þjóðhagsstofhun hefur nýlega birt tölur um dreifingu atvinnu- tekna á undanfömum árum, eða fiá 1986 til 1990. Heistu niöurstöður eru þær aö tekjumunur hefur aukist á þessu tímabili. Ef öllum framtefjendum er skipt í tvo hópa, tekjulægri og tekjuhærri, má sjá að hlutur tekjulægri helmingsins minnkaði úr 22,2% árið árið 1986 í 20,6% áriö 1990. Þessi tilfærsla svarar til 2JZ milljaröa króna. Þróun tekjudreifingar er svipuð ef at- hugunin er miðuð við alla framt- eijendur á aldrinum 25 til 65 ára. Tekjumunurinn eykst Öli árin frá 1986 til 1990 en þó mest milli ár- anna 1989 og 1990. -Ari Með aöskilnaði dómsvalds og um- boðsvalds þann 1. júlí munu ýmis embættisstörf ekki lengur verða í höndum sömu manna, til dæmis sýslumanna og bæjarfógeta sem til þessa hafa 1 senn verið dómarar og lögreglustjórar í ýmsum málum, sér- staklega í sakamálum. Með aðskilnaðarlögunum verða bæjarfógetar og borgarfógeti úr sög- unni. í staðinn koma sýslumenn. Sýslumenn verða handhafar fram- kvæmdavalds en héraðsdómarar handhafar dómsvalds. Með þessu á að tryggja að óhlutdrægir aðilar ann- ist úrlausnir máia á tveimur mis- munandi stigum. Dómsvald í einka- málum og sakamálum verður flutt frá sýslumönnum og bæjarfógetum til héraösdómstóla. Verkaskipting stokkuð upp Með aðskilnaðarlögunum verður jafnframt stuðlaö að því að embætti sýslumanna í landinu veiti aukna þjónustu með því að ekki þurfi að sækja hana um langan veg. Með aðskilnaðarlögunum verður verkaskipting framkvæmdavalds og dómsvalds stokkuð upp. Breyting- ar verða á ýmsum sviðum. Áður var framkvæmd fjámáms, nauðungar- uppboða, dánarbússkipta og gjald- þrotaskipta í höndum sýslumanna þar sem þeir voru dómarar fyrir fó- geta-, uppboðs- eða skiptarétti. Eftir 1. júlí verður breyting þama á. Sýslumenn munu áfram annast fjámám, nauöungarappboð og dán- arbússkipti en þar verður ekki um dómsúrskurði aö ræöa heldur hrein- ar og klárar framkvæmdavaldsað- geröir. Komi hins vegar upp ágrein- ingur við gerðir sýslumanna í þess- um málum er hægt að skjóta þeim til héraðsdómstóls að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Úrskurðir um gjaldþrotaskipti, skipun skiptastjóra og greiðslustöðvanir fara hins vegar um hendur héraðsdómara. 27 sýslumenn en 8 héraðsdómstólar í 26 sýslumannsumdæmum á land- inu munu sýslumenn fara með lög- reglu- og tollstjóm. I Reykjavík mun lögreglustjóri hins vegar fara áfram með það Mutverk, svo og tollstjórinn í Reykjavík með sitt. í höfuðborginni fellur embætti borgarfógeta niður en í staðinn kem- ur sýslumannsembættið í Reykjavík - dómsvald hans flyst til Héraðsdóms Reykjavíkur. Borgardómur, Saka- dómur Reykjavíkur og Sakadómur í ávana- og fíkniefnamálum falla niður en héraösdómstóll með 21 héraðs- dómara kemur í staö þeirra emb- ætta. Héraðsdómur Reykjavíkur verður með aðsetur í Dómhúsinu við Lækjartorg, í gamla Útvegsbanka- húsinu. Sýslumaðurinn í Reykjavík mun hins vegar hafa aðsetur þar sem Borgarfógetaembættið var til húsa í Skógarhlíð 6. Til sýslumanns í Reykjavík og Héraðsdóms Reykja- víkur munu Seltimingar, íbúar í Kjalamess- og Kjósarhreppum og Mosfellsbæ nú sækja þjónustu sína. Lögreglustjóri og sýslumenn fá ákæruvald í sumum afbrotamálum mun með- ferðarferh vægari mála styttast - sakamálum sem aðeins varða sekt- um eða varðhaldi. Mörg þeirra þurfa nú ekki lengur að fara frá lögreglu- embættum til ríkissaksóknara. Nú fá lögreglustjóri í Reykjavík og sýslu- menn (sem lögreglustjórar) ákæra- vald sem þýðir að málum getur lokiö með sáttum hjá viðkomandi embætt- um eða ákærur gefnar út og þær sendar beint til dómstóls ef svo ber undir. Ákæravald í öllum áfengis- og innferöarlagabrotamálum verða í höndum lögreglustjóra og sýslu- manna. Ríkissaksóknari mun áfram gefa út ákærar í sakamálum að undan- skildum framangreindum málum sem sýslumenn og lögreglustjórinn í Reykjavík fá umboð til að annast. Ríkissaksóknari mun áfram verða æðsti ákæravaldsaðili og mun hafa yfirumsjón með ákærumálum lög- reglustjóraembættanna. -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.