Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1992, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1992, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1992. Fréttir Nýtt frumvarp aö samkeppnislögum: Nær vart yf ir fyrirtæki sem þegar haf a verið stof nuð í frumvarpi að samkeppnislögum er ekki tekið fram hversu hátt markaðs- hlutfall fyrirtækja má vera án þess að það brjóti í bága við ákvæði frum- varpsins. Sú ákvörðun Hagkaups og Bónuss að rugla saman reytum sínum hefur valdið talsverðum taugatitringi. Al- mennir dagvörukaupmenn, t.d. á höfuðborgarsvæðinu, vita sem er að í krafti stærðar getur „Hagbón", eins og einn viðmælanda DV kallaði fyrir- tækin eftir að Hagkaup keypti helm- inginn í Bónusi, gert mun hagstæð- ari innkaup en áður. Annan rak minni til þess að það væri ekki ýkja langt síðan Jóhannes í Bónusi hefði látið hafa eftir sér í viötali að það væri hverju fyrirtæki óhollt aö véra með meira en 10% markaðshlutdeild. En hver er markaðshlutdeild Hag- kaups og Bónuss? Talað er um 35% markaðshlutdeild á höfuðborgar- svæðinu og 30% ef miðað er við land- ið allt. Hins vegar eru tölur af þessu tagi hreinar getgátur þar sem gögn varðandi verslun á íslandi eru tæp- lega nógu haldgóð. M.ö.o. eru vöru- flokkar ekki nægjanlega vel greindir í sundur svo að illt er aö sjá hvaö er matvara og hvað ekki. „Svona samruni dregur úr sam- keppni. Sú hætta er fyrir hendi að þetta leiði til hækkaðs vöruverðs þegar frá líður,“ sagði Georg Ólafs- son verðlagsstjóri. Frumvarp til samkeppnislaga Síðastliðinn vetur var lagt fyrir al- þingi frumvarp til samkeppnislaga. í fyrstu grein segir að lögin hafi þaö markmið að vinna aö hagkvæmri nýtingu framleiðsluþátta þjóðfélags- ins og efla virka samkeppni í við- skiptum með því að vinna gegn óhæfilegum hindrunum og takmörk- unum á frelsi í atvinnurekstri og vinna gegn óréttmætum viðskipta- háttum. í annarri grein segir að lögin taki til hvers konar atvinnustarf- semi, svo sem framleiðslu, verslunar og þjónustu, án tillits til þess hvort hún er rekin af einstaklingum, félög- um, opinberum aðilum eða öðrum. Líklega verður frumvarpið aö lög- um næsta vetur. Það vekur athygh að í 18. grein er hvergi minnst á nein- ar prósentm- hvað varðar markaðs- hlutdeild. Ástæðan mun vera hin sí- gilda smæð landins. Aðeins er sagt: „Telji Samkeppnisráð að samruni fyrirtækja eða yfirtaka fyrirtækis á öðru fyrirtæki dragi verulega úr samkeppni og sé andstæð markmiði laga þessara getur ráðiö lagt á bann við fyrirhuguðum samruna eða yfir- töku fyrirtækja og mælt fyrir um ógildingu á samruna eða yfirtöku sem þegar hefur átt sér stað...“ Einn viðmælanda DV sagði að Samkeppnisráð hlyti að hafa nóg að gera þegar það yrði að veruleika þar sem lögin virtust vera afturvirk. Hann benti m.a. á Flugleiðir og Eim- skip í því sambandi en markaðshlut- deild Eimskipafélags íslands í milli- landaflutningum er um 70%. Þaö væri því fleira en samruni Bónuss og Hagkaups sem yrði umfjöllunar- efni á fundum Samkeppnisráðs. Misbeiting bönnuð Þó að stærð markaöshlutdeildar skipti miklu máli þarf hún ekki alltaf aö vera ipjög há til þess að um mark- aðsyfirráð sé að ræða. T.d. getur hóf- leg markaðshlutdeild í tengslum við tæknilega sérþekkingu, yfirráð yfir hráefnum og yfirráö yfir íjármagni gefið fyrirtæki möguleika á að ákvarða verð eða stýra framleiðslu eða dreifingu á verulegum hluta þeirra vara sem um ræðir. EB telur 80% markaðshlutdeild ótvírætt leiða til markaðsyfirráða. í reynd hefur markaðshlutdeild 57% og þar yfir verið talin nægileg til þess að um markaðsyfirráö sé að ræða. 40 til 45% markaðshlutdeild er í sjálfu sér ekki nægileg til þess að hægt sé að fullyrða án frekari upplýsinga að markaðsyfirráð séu fýrir hendi en þó eru ekki gerðar kröfur um miklar viðbótarupplýs- ingar til þess að sýna fram á að sú markaðshlutdeild sé nægilega há. Fréttaljós Áskell Þórisson En ýmis atriöi geta gert það aö verkum aö lág markaðshlutdeild leiöi til markaðsyfirráða. Undir 11% eru markaðsyfirráð þó talin útilokuð en 20 til 40% geta hins vegar skapað markaösyfirráð ef fyrirtæki eru óháð fjármagni, hráefnum, samkeppnis- aðilum o.s.frv. í frmnvarpinu er ítrekað að mark- aðsyfiráð sem slík eru ekki bönnuð heldur misbeiting þeirra. Eftirlit með samruna Það er náiö samband á milli mis- beitingar á markaðsráðandi stöðu og eftirhts með samruna fyrirtækja, segir í frumvarpinu. En það eru ekki nema rúmlega tvö ár frá því að EB setti reglur um eftirlit með samruna fyrirtækja. Þær höfðu þó verið í und- irbúningi í 15 ár en samstaða um þær náðist ekki fyrr en 1989. Samkvæmt 57. gr. EES-samningsins eru reglur EB á þessu sviði teknar upp. Fram- kvæmd reglnanna verður þó nær alfarið í höndum EB en í náinni sam- vinnu við eftirlitsstofnun EFTA. Samrunareglumar taka aðeins til samruna sem fer yfir ákveðna veltu- tölu. Þannig þarf velta þeirra fyrir- tækja sem hyggjast renna saman að vera yfir 5 milljarðar ECU í öllum heiminum og a.m.k. tvö fyrirtækj- anna þurfa að selja fyrir 250 milljón- ir ECU hvort innan Evrópubanda- lagsins til þess að samruninn falli undir reglu þess. Þessi mörk eru mjög há og er því ólíklegt að þessi grein muni hafa áhrif á íslensk fyrir- tæki. Norðmenn settu markið við 20% Neytendasamtökin hafa látið í ljós áhyggjur vegna kaupa Hagkaups á 50% hlut í Bónus. Jóhannes Gunn- arsson, formaður samtakanna, sagði aö þetta þýddi óhagkvæmara vöru- verð þegar fram Uðu stundir. Þessu hefur Jóhannes Jónsson í Bónus mótmælt. Magnús Finnsson, framkvæmda- stjóri Kaupmannasamtakanna, sagði að í nýlegu, sambærilegu frumvarpi í Noregi hefði verið gert ráð fyrir að fyrirtæki mætti ekki öðlast nema 20% markaöshlutdeild. íslenska frumvarpið gerir ráð fyrir mati Sam- keppnisráðs. „Mörgum þykir þessi samruni leiða til þess að þama myndist stór blokk sem muni ráða miklu. Það er alltaf matsatriði hvort blokk sé svo stór að hún sé hættuleg. Sú er skoðun margra aö svo sé.“ Hvað varðar frumvarpið sagði Magnús að það hlyti að vera aftur- virkt - ef ekki hefðu lögin ekkert gildi. Og þar stendur hnífurinn í kúnni. Meginreglan er sú aö lög eru ekki afturvirk. Hins vegar stendur í 18. greininni að Samkeppnisráð geti mælt fyrir um ógildingu á samruna eða yfirtöku sem þegar hefur átt sér stað. Ætii Samkeppnisráð muni fetta fingur út í kaup Hagkaups á Bónusi, sterkri stöðu Flugleiða eða yfirburð- um Eimskips? Þær fréttir berast úr utanríkis- ráðuneytinu að fjöldinn aUur af vanþróuðum ríkjum í öðrum heim- sálfum sækist nú eftir ráðgjöf ís- lendinga og leiösögn í sjávarút- vegsmálum. Binda menn miklar vonir við að íslenskt atgervi og at- orka geti þannig nýst erlendum þjóðum á sviði veiða og vinnslu. Til stendur að senda bæði menn og skip á fjarlægar veiðislóðir og útiendingamir bíða í biðröðum eft- ir ráögjöf okkar. Þessi tíðindi eru því athyglisverð- ari sem íslendingar sökkva dýpra í fen skuldasúpunnar og kreppunn- ar, sem stafar af látlausri ofveiði og ágangi á fiskistofna hér við ís- landsstrendur. Hafrannsókna- stofnun og erlendir sérfræðingar hafa lagt til að þorskveiðar verði skomar niður um 40 til 50% og flestöU sjávarútvegsfyrirtæki landsins em á heljarþröm fyrir og ekki á bætandi. Enda stendur ríkis- stjómin í ströngu við að útskýra það fyrir mönnum aö hún muni sjá til þess að enginn fari yfir 5% skerðingu sem þýðir náttúrlega ennþá meira tap en veriö hefur. Er svo ætlast til að sjávarútvegur- inn plummi sig í tapinu og helsta ráöið við því er að forstjóramir og sægreifamir selji lúxusbílana sína til aö láta minna bera á því hvað þeir séu ríkir í tapinu. Það er ennfremur athygUsvert í þessari stöðu að sjávarútvegsráð- herra hefur lagt fram tfilögur um skerðingu á þorskkvóta og aðgerðir til bjargar sjávarútveginum sem ekki er tekið mark á. Sjávarútvegs- ráðherra lagði til að tekið væri mark á fiskifræðingum og hann lagði ennfremur til að Hagræðing- arsjóði skyldi beitt til að úthluta til þeirra sjávarplássa sem verst fara út úr skeröingunni. En forsætisráðherra gaf skít í þessar tillögur sjávarútvegsráð- herra og fiskifræðinganna. Forsæt- isráðherra og aörir þeir sem hafa meira vit en sjávarútvegsráðherra hafa sem sagt tekið fram fyrir hendur sjávarútvegsráðherra og sá síðamefndi situr enn í ríkisstjóm- inni með þaö eitt í huga að koma í veg fyrir frekari skaöa af hálfu þeirra sem hafa meira vit á sjávar- útvegsmálum heldur en hann sjálf- ur. Þetta hefur leitt til þess að forsæt- isráðherra talar ekki lengur við sjávarútvegsráðherra mn sjávar- útvegsmál til að hann skaði ekki þann skaða sem hlýst af þeim skaða sem felst í niðurskurðinum. Þess í stað ferðast hann um með vara- formanni sínum og fjármálaráð- herra til helstu útgerðarplássa landsins til að útskýra tillögur sín- ar um aðgerðir í sjávarútvegsmál- um sem sjávarútvegsráðherra hef- ur enn ekki séð. Og fær ekki að sjá, því hann hefur ekki vit á sjáv- arútvegsmálum. Reyndar er því haldið fram að tillögur forsætisráöherra og Byggöastofnunar séu þær sömu og sjávarútvegsráðherra lagði fram í upphafi, en það er ekki sama hver leggur fram tillögur og ekki sama hvemig þær eru matreiddar og þess vegna er sjávarútvegsráð- herra ekki hafður meö í ráðum þegar sjávarútvegsmál eru annars vegar. Forsætisráðherra var alveg á móti því að Hagræðingarsjóður skyldi notaður til hagræðingar fyr- ir sjávarútveginn. Ríkissjóður hafði ekki efni á aö gefa kvóta úr Hagræðingarsjóði. Hann vill þess í stað að bágstödd sjávarútvegsfyrir- tæki kaupi kvóta af Hagræðingar- sjóði en fái síðan styrk úr ríkissjóði til að standa undir kaupunum! Út- koman verður að vísu sú sama, en aðferðin er önnur af því að sjávar- útvegsráðherra hefur ekki vit á sjávarútvegsmálum og skilur ekki aö ríkið getur ekki tapaö Hagræð- ingarsjóði nema með því að borga mönnum fyrir að fá kvóta úr Ha- græðingarsjóði. Meðan þetta fer fram halda sjáv- arútvegsfyrirtækin áfram að tapa og sægreifamir aka enn um á lúx- uskerrum sínum til að undirstrika tapið. Og þeir í utanríkisráðuneyt- inu halda áfram að taka á móti hjálparbeiðnum frá vanþróuðum ríkjum þar sem farið er fram á að íslendingar veiti ráðgjöf um veiðar og vinnslu í sjávarútvegsmálum. Útlendingar hafa án efa fylgst með ofveiöinni og veiðimennskunni hér heima og þeir hafa áreiðanlega haft spurnir af viti forsætisráð- herra á því hvemig leysa megi þau mál án þess að nokkur tapi að ráði. Þessa þekkingu veröur að flytja úr landi. Það er ekki spurning. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.