Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1992, Page 13
LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1992.
13
Skylmingar eru ein þeirra iþrótta sem félagsmenn spreyta sig á.
Áhugamenn um lifandi sögu:
Miðalda-
menní
fullum
herklæðum
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Það væri gaman að hafa ein-
hverja íslendinga með í þessum
félagsskap. Við viljum fá alla með
sem hafa áhuga á miðöldum. Ég er
búinn að vera hér síðan í mai í
fyrra,“ segir Frederick G. Hansen
en hann er ásamt þrettán félögum
sínum á KeflavíkuflugveUi í alþjóð-
legum félagsskap áhugamanna um
lifnaðarhætti á fom- og miðöldum.
„Við komiun saman tvisvar í
viku, spjöllum og reynum einnig
að fara eitthvað saman. Við gerrnn
okkar búnað að mestu leyti sjálflr
en það fer mikill tími í þá vinnu.
En þetta er okkar áhugamál og við
höfum gaman af þessu. Það geta
allir veriö með en viðkomandi þarf
að vera orðinn 18 ára til að bera
vopn.
Áhugamennimir miða við tíma-
bilið 500 f. Krist og til 1600 e. Krist.
Hver félagsmaður velur sér per-
sónu og kynnir sér líf hennar og
tíðarandann út í hörgul. Reglulega
em haidnir fundir þar sem félags-
menn bera saman bækur sínar og
kynna sér allt varðandi klæðnað,
vopnaburð, hstir og vísindi hvers
tímaskeiðs.
Heimimun er skipt í tvo hluta og
þar er starfsemi félagsins svæðis-
bundin og má neftia Bandaríkin,
Kanada, Ástralíu, Svíþjóð auk
bandarískra herstöðva í Evrópu og
Austurlöndum fjær. Svæðunum er
skipt niðui' í konimgsríki þar sem
konungur og drottning hans ráða
ríkjum.
Síðan kemur að undirbúningi á
hinum eiginlega tilgangi sem er að
endurskapa liðna tíð þar sem félag-
amir koma saman og sinna störf-
um þeirra sem þeir hafa kosið að
líkjast.
Félagamir kynna sér tækni og
lifnaðarhætti ákveðins tímabhs og
nýta sér það sem þeir hafa lært, til
dæmis smíða þeir áhöld, syngja
söngva, sauma, elda og borða þann
mat sem á við þetta tímabU, Ukt og
forfeður okkar gerðu. Þeir smíða
eftirlíkingaí af vopnum og verjum
og æfa sig 1 meðferð þeirra. Einnig
er hið daglega líf skoðað, svo sem
gestrisni, kurteisi og heiðarleiki.
TUgangurinn er að vekja upp já-
kvæða og góða menningarþætti án
þess að sneiða hjá hinum nei-
kvæðu.
Á hveiju móti em þeir gjaman
slegnir tU riddara sem standa sig
best. Einnig er keppt í dönsum, tón-
Ustarflutningi, matreiðslu, út-
saumi og mörgum öðrum iðn- og
Ustgreinum. Þeir sem skara fram
úr á þessum sviðum em heiðraðir
með sérstökum lárviðarsveig.
Auk stórmóta stendur þessi fé-
lagsskapur fyrir fundum, fyrir-
lestmm og kennslu í dansi og vopn-
fimi sem er opið þeim sem hafa
áhuga lifandi sögu.
Riddari Arthúrs konungs á Kefla-
víkurflugvelli eöa hvað? Herklæö-
in eru aö minnsta kosti nógu eðli-
leg.
HII Ni DA K^HkHsrA, Wtoi
RYKSUGUR
ORBYLGJUOFNAR
ÞÚ FINNUR GOTT ÚRVAL ÖRBYLGJUOFNA OG
RYKSUGA Á HUNDADÖGUNUM í JAPIS OG Á
VERÐI SEM KEMUR SVO SANNARLEGA Á ÓVART
ÖRBYLGJUOFNAR
HUNDADAGA
VERÐ VERÐ
Panasonic NN-5100 37.500 29.500
Panasonic NN-5250 23.900 18.900
Panasonic NN-5450 25.900 19.900
RYKSUGUR F U L LT VERÐ HUNDADACA VERÐ
Panasonic MCE-652 11.850 9.480
Panasonic MCE-655 13.650 10.900
Panasonic MCE-852 17.800 13.900
Panasonic MCE-54 19.300 14.900
Vorðin hér afl ofan
miflaat við ataðgraiflslu
BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI S.