Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1992, Síða 14
14
LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1992.
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JONAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00
SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aörar deildir: (91)63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613.
SlMBRÉF: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ARVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1200 kr.
Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr.
Ódýr röksemdafærsla
Ef marka má framsöguræðu utanríkisráðherra í
máli Evrópska efnahagssvæðisins, ætlar ríkisstjórnin
að fara ódýrar og hálfkaraðar leiðir til að fá samninginn
staðfestan. Hún ætlar að beita rökum, sem ekki sann-
færa aðra landsmenn en handauppréttingamenn eina.
Sorglegt er, að eitt mikilvægasta þingmál síðustu ára-
tuga skuli ekki fá betri meðferð á Alþingi en hefðbund-
inn skæting milli manna, sem hafa orðið svo heillaðir
af hæfni sinni í pólitískum burtreiðum, að þeir hafa
misst sjónar á varanlegri stjórnvizku og orðstír.
Utanríkisráðherra lagði áherzlu á, að samráðherrar
sínir í fyrri ríkisstjórn, sem nú sitja í stjórnarandstöðu,
hafi þá ekki mótmælt ýmsum atriðum, sem þeir kvarti
nú um. Þetta er afbrigði af gömlu lummunni um, að þið
í stjórnarandstöðunni eruð ekki hótinu betri en við.
Þetta kann að renna ljúft um kverkar handaupprétt-
ingaliðs ríkisstjómarinnar á Alþingi. Hinir hiksta, sem
hvorki hafa mikið áht á forustumönnum ríkisstjórnar-
innar né forustumönnum stjórnarandstöðunnar og vilja
fremur, að rætt sé efnislega um málið á Alþingi.
í tíð fyrri ríkisstjómar var málið óljósara en það er
nú. Ekki em efnisleg rök fyrir því að hallmæla fyrrver-
andi ráðherrum fyrir tvískinnung; að hafa þá ekki ver-
ið á móti óljósum drögum að niðurstöðu, sem núna er
ljósari og sem þeir em núna fremur andvígir.
Svo virðist sem utanríkisráðherra vilji ekki stjórnar-
skrárbreytingu vegna þessa máls á þeirri undarlegu
forsendu, að breytingar á stjórnarskrám valdi óstöðug-
leika og ringulreið í stjómarháttum. Hann vísaði í fram-
söguræðunni til þess, að svo hafi verið í útlöndum.
Utanríkisráðherra raglar saman orsök og afleiðingu.
Það era ekki breytingar á stjómarskrá, sem valda óstöð-
ugleika og ringulreið, heldur eru það óstöðugleiki og
ringulreið, sem valda því, að menn telja þurfa að breyta
stjómarskrá til að fækka ágreiningsefnum sínum.
Ennfremur virðist utanríkisráðherra halda uppi
þeirri undarlegu kenningu viðskiptaráðherra, að fjög-
urra lögmanna nefnd, sem utanríkisráðherra skipaði
að eigin geðþótta, sé eins konar stjómarskrárdómstóll,
sem hafi í eitt skipti fyrir öll afgreitt það mál.
Fjórmenningar utanríkisráðherra skipta ekki hætis-
hót meira máli en aðrir lögmenn, sem hafa látið í ljósi
andstæð sjónarmið. Enda vora rök fjórmenninganna
ekki harðari en, að samningurinn fæh í sér lítið valdaaf-
sal og ekki meira en hefðbundið væri orðið.
Það er hart aðgöngu, að léleg frammistaða stjóm-
málamanna í fyrri málum skuh vera notuð til að
rökstyðja, að þingmenn megi áfram framselja vald í
samningi um Evrópskt efnahagssvæði. Samkvæmt því
má aldrei spyma við fótum á óheihabrautinni.
Utanríkisráðherra vísaði til Sigurðar Líndal prófess-
ors, sem heldur því fram, að búvörulög og fiskveiði-
stjórnunarlög og raunar mörg fleiri lög feh í sér valdaaf-
sal Alþingis, sem sé stjómarskrárbrot. En hann dregur
einkennilega ályktun af skoðun Sigurðar Líndal.
Ef rökstuddar skoðanir era meðal fræðimanna um,
að stjómarskráin sé kerfisbundið brotin í hverju stór-
málinu á fætur öðra, eiga stjómmálamenn að taka efnis-
lega á málinu í eitt skipti fyrir öh og fá niðurstöðu um,
hvort eigi að stöðva þá þróun og snúa henni við.
Utanríkisráðherra telur hins vegar, að ekki beri að
taka mark á endurteknu þrasi og að beita megi hunda-
lógík til að troða Evrópusamningnum upp á þjóðina.
Jónas Kristjánsson
Rétttrúaðir
Serbarheyja
trúarbragðastríð
Heimspekilega sinnaöir menn en
fomir í skapi hafa orðið til að draga
þá ályktun af hruni valdakerfis
lenínismans í Evrópu að þar sem
rekja megi rætur þeirrar verald-
legu trúarkenningar til áhrifa upp-
lýsingarstefnunnar á evrópskan
hugsunarhátt sé einsýnt aö hafna
beri áherslu upplýsingarinnar á
hlut hyggjuvitsins og rökhugsunar
í að ráða fram úr viðfangsefnum
mannlegs félags. Þess í stað beri
að hverfa aftur til eldri og traustari
gilda, eins og þau hafa fengið mót-
un og tjáningu í opinberuðum trú-
arbrögðum og hefð tengdri þeim.
Prófsteinn á þessa kenningu er
atburðarásin í löndunum sem
mynduðu fyrrverandi sambands-
ríkið Júgóslavíu. Á rústum kerfis-
ins sem Tító kom á eftir leníniskri
hefð er komin skipting í frumparta,
fyrst og fremst eftir þjóðemi skil-
greindu samkvæmt trúarhrögðum
og kirkjudeildum. Afleiðingin er
blóðugasta barátta sem háð hefur
verið á evrópskri grund síðan
heimsstyrjöldinni síðari lauk þar
sem Serbar herja af fáheyrðri
grimmd á Króata og múslíma í
Bosníu. Yfirburðir Serba í ófriðn-
um byggjast á greiðum aðgangi
þeirra að þungavopnabirgðum
fyrrum Júgóslavíuhers.
Aðfarir Serba hafa ranglega verið
kailaðar „kynþáttahreinsun" í
fréttum ljósvakafjölmiðla og er það
enn eitt dæmið um hversu þeir þar
á bæjum sem vita eiga betur éta
eftir umhugsunarlaust vitleysur
sem einhver í hópnum hefur álpast
til að koma á loft. Serbar sjálfir
tala um „þjóðernishreinsun". Evr-
ópuþjóðir eru allar með tölu af
sama kynþætti, þeim kákasíska.
Einn þjóðflokkurinn er Suður-
Slafar og tii hans teljast allir þeir
sem nú berast á banaspjótum í
Bosníu og tala meira að segja sömu
tungu, serbó-króatísku. Greinar-
munurinn sem þama skiptir fólki
í þjóðir er trúarbrögðin ein, Serbar
tilheyra rétttrúnaðarkirkjunni,
Króatar þeirri rómversk-kaþólsku
og múslímar aðhyllast íslam.
Veiðleitni Serba til að hrekja frá
heimilum sínum í tveim þriöju
hlutum Bosníu bæði múslíma og
Króata, tvo þriðju hluta lands-
manna, er gerð í nafni stofnunar
Stór-Serbíu. Áhrifamiklir mennta-
menn meðal Serba hafa boðað þá
stefnu lengi í nafni rétttrúnaöar og
sögulegrar tilvísunar, til að
hnekkja megi úrslitum orrustunn-
ar við Kossovo árið 1389, þegar
herir Tyrkjasoldáns sigruðu Serba.
Þrír helstu foringjar serbneska
liðsins, sem situr um Sarajevo, höf-
uðborg Bosniu, og margar borgir
aðrar um noröanvert og austanvert
landið eru háskólaprófessorar.
Talsmenn Serba draga ekki
minnstu dul á að í sínum augum
heyja þeir trúarbragðastríð. „Þetta
er trúarbragðastríð sem engum
reglum lýtur," hefur fréttamaöur
eftir einum þeirra. Annar kvartaði
yfir aö Evrópuþjóðir skyldu ekki
Erlend tíðindi
Magnús Torfi Ólafsson
kunna aö meta það hlutverk Serba
að eyöa brúarsporði íslams í álf-
unni meö aðgerðum sínum í Bos-
níu.
Bersýnilegt er, að dómi frétta-
manna sem komist hafa til yfir-
ráðasvæðis Serba, aö „þjóðerna-
hreinsunin" fer fram eftir áætlun
einhverrar miðstöðvar. Þorp eru
hertekin, nógu margir drepnir á
heimilum sínum eða á fómum vegi
til að skelfa alla aðra múslíma og
Króata. Þeim er síðan hleypt á
flótta eftir að hafa undirritað afsal
á húsum sínum og öðrum eignum
eða reknir í fangabúðir, einkum
vopnfærir menn.
Serbar setjast um stærri borgir,
halda uppi skothríö á þær af fall-
byssum og sprengjuvörpum og út-
varpa til borgarbúa boðskap um
að múslímum og Króötum þar
standi til boða að flýja heimkynni
sín eða verða yfirbugaðir með sulti
og sprengjuregni. Þegar þurfa þyk-
ir er herflugvélum frá Serbíu sjálfri
beitt til stuðnings serbnesku her-
flokkunum í Bosníu.
Ekki fer á milli mála aö Serbar
svelta fanga sína, sjónvarpsmynd-
ir, sem farið hafa um allan heim,
eru til vitnis um það. Samhljóða
frásagnir fanga og flóttafólks frá
ýmsum stöðum um alla Bosníu
hafa sannfært fréttamenn og
starfsmenn líknarstofnana um aö
í fangabúöunum og við töku bæja
og borga hafa Serbar framið
óhæfuverk í stórum stíl, sannkall-
aða stríðsglæpi. Drukknir varð-
menn hafa sér til gamans að skjóta
fanga eða skera þá á háls og nauðga
konum. Hafa Oryggisráð SÞ og
Mannréttindanefnd SÞ þegar lagt
drög að gagnasöfnun um slíkar
aðfarir og að koma lögum yfir
stríðsglæpamenn.
Þeir sem hörmungamar dynja á
eru að vonum beiskir yfir aðgerða-
leysi alþjóðastofnana og Evrópu-
stofnana til að hafa hemil á Serb-
um. Matar- og lyfjasendingar til
einstakra staöa, og þá máske ekki
þeirra sem verst eru settir, mega
sín lítils. Öryggisráðið hefur heim-
ilað aðgerðir sem þörf kann að
krefja til að koma við neyðaraðstoð
um alla Bosníu en enginn hefur
gefið sig fram til að fylgja eftir.
Atlantshafsbandalagið og Vest-
ur-Evrópubandalagið hafa hvort í
sínu lagi komist aö þeirri niður-
stöðu að 100.000 manna herhð þurfi
til aö tryggja hjálparstofnunum för
um alla Bosníu. Óllum ákvörðun-
um um aðgerðir var síðan slegið á
frest fram að friðarráðstefnu sem
SÞ og EB gangast fyrir í samein-
ingu í London frá þriðjudegi í
næstu viku.
Haldist Serbum uppi það sem
þeir hafa verið að fremja í Bosníu
síðan í apríl í vor er margháttaður
voði á ferðum. Nóg er af trúar-
bragðastyrjöldum í ýmsum áttum.
Vígaferli kaþólskra og mótmæl-
enda á Norður-írlandi hafa staðið
á þriðja tug ára. Kristnir Armenar
og múslimar í Aserbadsjan beijast
um Nagorno-Karabakh. Hindúiskir
Tamílar og búddiskir Singhalesar
eigast við á Sri Lanka. Svona mætti
lengi telja. Verði grimmdin Serbum
til framdráttar getur það orðiö til
að þeir verði teknir til fyrirmyndar
og ýtt undir aö ófriðarbálunum
fiölgi, einkum í fyrrum sovétlýð-
veldum.
Loks er vert að gefa því gaum að
þjóðarmorð kristinna Serba á mú-
slimskum Bosníumönnum hefur
vakið sterkar tilfinningar í
íslömskum löndum. Tyrkland og
Pakistan hafa bæði boðist til að
senda herlið á vettvang til að
skakka leikinn. Þvoi Evrópuþjóðir
hendur sínar af skelfingunni sem
riðið hefur yfir Bosniu verða eftir-
köstin ófyrirsjáanleg í sambúðinni
við íslamska heiminn.
Magnús T. Ólafsson
Fangar úr hópi múslíma og Króata i matarbiðröð f fangabúðum Serba við Manjaca nærri borginni Banja Luka
i Norður-Bosnfu. Þeim er skipað að hafa hendur á baki. Simamynd Reuter