Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1992, Page 18
18
LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1992.
Veiðivon
DV
Ekkert er skemmtilegra:
Göngutúr upp
með veiðiánum
Þær eru margar veiöiámar sem
bjóða upp á skemmtilega og langa
göngutúra. Veiöimönnum fmnst líka
gaman aö renna á nýjum svæöum.
Eitt af þessum nýju svaéðum, sem
veiðimenn hafa verið að kanna síð-
ustu daga, er fyrir ofan Kambsfoss í
Austurá í Miðfirði. Frá Kambsfossi
upp að Valsfossi eru 11 km.
„Þetta eru margir góðir veiöistaöir
og ég held að það eigi eftir að veiðast
vel þama í sumar," sagði Böðvar Sig-
valdason er hann sýndi okkur svæð-
ið kringum Valsfossinn fyrir fáum
dögum.
Gönguferð frá Valsfossi er þama
hverjum veiðimanni nauðsynleg,
veiðistaðimir em margir og nú hafa
veiðst þama um 60 laxar.
Víkurá í Hrútafirði
geymir marga laxa
Ein af þeim veiðiám sem rennur í
Hrútafjörðinn er Víkurá. Sú á hefur
að geyma marga laxa og töluvert af
góðum veiðistöðum. Ég held að veiði-
menn geti gengið af sér homin þarna -
við ána en þegar veiðimaöurinn fær
lax er allt í lagi, fiska sem taka agn
veiðimanna strax vegna þess að eng-
inn hefur rennt á þá lengj. Það er
munurinn á stóm og litlu veiðiánum.
Það var hreinasta hörmung að sjá
veiöiámar í Hrútafirði, vegna vatns-
leysis, þegar við vorum þama á ferð.
Hvaisá og Laxá vom mjög vatnslitlar
en Víkuráin hélt sínu. En núna hefur
sem betur fer rignt vel og það hefur
allt að segja, laxinn kemur í ámar.
-G.Bender
Á stærri myndinni er flugu kastað fyrir lax í Víkurá í Hrútafirði en á þeirri
minnl hefur Leifur Benediktsson landað laxi. OV-myndir G. Bender
Valsfossinn i Austurá í Miðfiröi hefur að geyma marga laxa þessa dagana.
Hann lætur sig ekki muna um að
ganga ennþá með árbökkunum
hann Kristján Sigurmundsson. Hér
er hann við Miðfjaröará fyrir
skömmu.
Finnur þú fimm breytingar? 167
Slappaðu af, maður. Samkvæmt siglingareglunum á hann að vfkja. Nafn:
Heimilisfang:
.............................*............................................................................................................
Þjoðar-
spaug DV
Sagt var að karl nokkur, sem
átti konu er hét Þórdís, hjákonu
að nafhi Valgerður og hryssu sem
bar heitið Rauöka, hefði beðist
þannig fyrir:
„Drotönn minn góður, heyr
mína bæn. Dreptu hana Dísu en
láttu Völu lifa. En drepiröu hana
Rauðku mlna þá eram við skildir
að öllurn skiptum.“
„Hugul-
semin"
Heyrt í matsal Hótel Loftieiða.
„Hún: „Þetta er í fimmta sinn
sem þú ferð að veisluborðinu,
Sighvatur. Finnst þér það ekki
einum of mikið?"
Hann: „Nei, alls ekki. í síðustu
þrjú skiptín sagðist ég bara vera
að sækja meira fyrir þig."
Messuleiði
Fimm ára gamall snáði á Siglu-
firði fór í fyrsta skipti í messu
fyrir stuttu og það í fylgd ömmu
sinnar, sannkristiimar konu.
Undir predikuninrú leiddist piiti
óguriega, svo hann hnippti í
ömrnu sína og sagði:
„Amma, nú skulum viö fara
heim.“
„Nei. Aldeilis ekki,“ hvíslaði sú
gamla og sussaði á barnabamið.
í skamma stund sat strákur
rólegur, en um leið og presturinn
laut höfði í hljóðri bæn, hnippti
hann aftur í ömmu sína og sagði
hátt:
„Jæja, amma. Nú getum viö þó
farið. Presturinn er steinsofhað-
ur.“
Úr skólanum
Kennslukonan: „Og á siötta
degi skapaði guð manninn."
Leifur: „En pabbi minn segir
að við séum komin af öpum.“
Kennslukonan: „Þaö má vel
vera, en héma í skólanum skipt-
um við okkur ekki af ættfólki
ykkar."
Myndimar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum hðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1. verðlaun: TENSAI ferðaút-
varpstæki með kassettu frá
Sjónvarpsmiöstöðinni, Síðu-
múla 2, Reykjavík, að verð-
mæti 5.220 krónur.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur, að verðmæti kr.
3.950.
Bækumar, sem eru í verðlaun,
heita: Falin markmið, 58 mínútur,
Október 1994, Rauði drekinn og Víg-
höfði. Bækumar em gefnar út af
Frjálsri fjölmiðlun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 167
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fýrir 165. get-
raun reyndust vera:
1. Sigmar Ólafsson
Heiðarvegi 7,
800 Selfoss.
2. Vigdís Friöríksdóttir
Jörandarholti 45,
300 Akranes.
Vinningamir verða sendir
heim.