Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1992, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1992, Síða 4
4 MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1992. Fréttir 18 ára plltur í ísklifri: Nýrfrystitogari til Akureyrar Einn stærsti og allra glæsilegasti frystitogari íslendinga kom til heimahafnar á Akureyri á fóstudag. Togarinn, sem ber heitið Baldvin Þorsteinsson EA-10, er í eigu útgerð- arfyrirtækisins Samheija hf. og er um 1500 brúttólestir, um 66 metra langt og tæplega 13 metra breitt. Skipið var smíöað í Noregi og er búið öllum fullkomnustu tækjum sem völ er á, auk þess sem það er styrkt sérstaklega til siglinga í ís. Skipstjóri er aflamaðurinn kunni, Þorsteinn Vilhelmsson, og sagði hann við heimkomuna aö skipiö hefði reynst mjög vel á heimleiðinni. DV-simamynd gk, Akureyri Hrapaði 20 metra ofan í íssprungu - slapp meö minni háttar meiðsl Betur fór en á horfðist þegar 18 ára piltur hrapaði um 20 metra ofan í íssprungu í Gígjökli norðan til í Eyja- fjaílajökli á laugardaginn. Pilturinn, sem er meðlimur í Hjálp- arsveit skáta í Kópavogi, var að æfa ísklifur ásamt um 30 félögum sínum úr hjálparsveitinni. Hann var að byija að síga ofan í djúpa og þrönga íssprungu þegar festing gaf sig með þeim afleiðingum að hann hrapaði niður. Svo heppilega vildi til að hann lenti í aflíðandi slakka sem dró úr fallinu. Það vildi piltinum einnig til happs að djúpur snjór var á þeim stað sem hann lenti á og gerði það lendinguna mýkri en ella. Einn af reyndustu meðlimum hjálparsveitarinnar seig strax niöur í sprimguna til piltsins og hlúði að honum þar til hann var hifður upp úr sprungunni á börum. Þyrla Land- helgisgæslunnar kom á staðinn og fór með piltinn á sjúkrahús en Félagar i Hjálparsveit skáta f Kópavogi hlúa að slasaða piltinum eftir að meiðsh hans reyndust minni háttar. búið var að hífa hann á börum upp úr fssprungunni. DV-mynd fás -pj Guðrún Gunnarsdóttir og Pálml Gunnarsson sungu sigurlag Jóns og voru jafnframt útnefnd bestu fiytjendumir. DV-mynd gk Landslagið 1992: Gott að fá aura í budduna - segir Jón Kjell, höfundur sigurlagsins Gyifi Kristjánsson, DV, Akureryri: „Ég hef aldrei sent inn lag í svona keppni áður en komið nálægt mörg- um af þessum keppnum sem upp- tökustjóri og útsetjari fyrir ýmsa aöila," sagði Jón Kjell eftir að lag hans „Ég man hveija stund“ sigraði í keppninni um Landslagið 1992 sem haldin var í SjaUanum á Akureyri um helgina. „Auðvitað verð ég að þyKjast vera hissa á að hafa unniö en ég held að allir sem taka þátt í svona keppni stefni á að sigra,“ sagöi Jón. Hann fékk farandgrip fyrir sigurinn og eina milfjón króna. „Þessir peningar fara ekki allir í minn vasa, flytjendurnir fá sinn hlut, en minn hlutur fer í að koma mér upp betri vinnuaðstöðu varðandi tónlistina. Það er gott aö fá þessa aura í budduna." Guðrún Gunnarsdóttir og Pálmi Gunnarsson sungu lag Jóns og voru útnefnd bestu flytjendumir. í tengsl- um við keppnina var að venju tón- listarmaður heiðraður fyrir mikið og gott framlag til dægurtónlistarinnar, og kom það að þessu sinni í hlut Ingi- mars Eydal en hann var jafnframt formaður dómnefndar keppninnar. Eigandi Draumsms handtekinn í annaö sinn: Selur áfengi í sjoppunni Eigandi sölutumsins Draumsins á Rauðarárstíg var handtekinn viö ólöglega sölu á áfengi og bjór i sölu- tuminum á fostudagskvöldiö. Þetta er í annaö skipti á nokkrum vikum sem maðurinn er handtekinn fyrir sama verknað. Óeinkennisklæddur lögregluþjónn keypti áfengi af manninum og í kjöl- fariö var hann handtekinn. Maður- inn virðist stunda það að kaupa áfengi í áfengisverslun ríkisins og selja síðan aftur á hærra verði. Viö handtökuna var lagt hald á lítilræði af áfengi í sölutuminum en heima hjá manninum fannst líka eitthvað af áfengi og bjór. -ból I dag mæljr Dagfari Skattur ffyrir skatt Dagfari hefur reynt af fremsta megni að fylgjast með umræðunni um þá þjóðarsátt sem menn vilja gera um þjóöarsátt. Það hefur hins vegar verið þrautin þyngri að átta sig á öllu þessu sáttatali, bæði vegna þess að margar tiUögur em á hraðbergi og eins af hinu aö menn em ekki fyrr búnir að gera tillögu um þjóðarsátt en hver höndin er upp á móti annarri og talsmenn hinna ýmsu hagsmuna em ósam- mála því sem þeir eiga aö vera sam- mála um. Dagfara finnst þetta miður því margar snjallar hugmyndir hafa verið settar fram. Mest finnst hon- pm um hugmynd forsætisráðherra sem gengur út á þaö aö leysa hnút- inn með aðstöðugjöldin með því að hækka tekjuskattinn. Þetta er í rauninni töfraformúla. Forsaga málsins er sú aö flestir virðast sammála því aö fyrirtækin þurfi aö fá niðurfelld gjöld og skatta. í því sambandi er bent á að skynsamlegast sé aö fella niður aðstööugjaldiö af því að það er ó- skynsamlegasti skatturinn. Að- stöðugjald rennur til sveitarfélaga og sveitarfélögin faRast út af fyrir sig á að aöstöðugjald verði lagt nið- ur ef eitthvaö annaö kemur í staö- inn. Þar hefur hnífurinn staðið í kúnni, vegna þess að menn em yf- irleitt sammála um að létta þurfi byröunum af fyrirtækjunum ef það bitnar ekki á öðrum. Þannig vom sveitarfélögin samþykk niðurfeU- ingu aðstöðugjalds ef það bitnaði ekki á þeim. Launþegahreyfingin var samþykk að fella niður aö- stöðugjöld ef það bitnaði ekki á launþegum. Og ríkisstjómin var eindregiö hvetjandi þess að að- stööugjöld legðust niöur ef menn fyndu eitthvað í staöinn. Þaö bara fannst ekkert í staðinn þangað tíl forsætisráðherra kom fram með þá snjöUu hugmynd að hækka skatta sem nemur niðurfeU- ingu aðstöðugjaldsins! Hugmyndin byggist á því að ríkið innheimti hærri skatta tíl móts við aöstöðu- gjaldið og afhendi síðan sveitarfé- lögunum skattheimtuna. Þetta er auðvitað afar lógískt og einfait og nákvæmlega samkvæmt þeirri kenningu forsætisráðherra að skattar hækka ekki ef aðrir skattar em lækkaðir á móti. Enda þótt tekjuskattur sé hækk- aður á einstaidinga sem þessu nemur er það ekki skattahækkun því aðstöðugjaldið er feUt niður í staöinn. Að vísu em það fyrirtækin sem borga aðstöðugjald en ein- staklingar tekjuskatt en samt er þetta ekki skattahækkun þegar búið er að leggja saman og draga frá vegna þess að það er innheimt nákvæmlega jafnmikiö og áður. Af einhveijum óskiljanlegum ástæðum hafa fuUtrúar verkalýðs- hreyfingarinnar veriö tregir að samþykkja þessa patentlausn. Sveitarfélögin sömuleiðis. Hug- mynd forsætisráðherra hefur engu að síöur orðið ofan á. Og henni þarf aUs ekki að kvíða. Launþegar þurfa ekkert að óttast. Bæði vegna þess aö launin lækka vegna minnk- andi vinnu, sem þýðir að skattam- ir lækka líka, og þótt prósentan verði hærri afhverri krónu verða krónumar færri þegar launin og skattamir lækka. Aftur sannast hér kenning forsætisráðherra að þaö er ekki skattahækkun þótt skattar hækki ef hækkunin leiðir ekki til þess að fleiri krónur em greiddar. Sú er nefnilega útkoman þegar búið er að leggja saman og draga frá. í raun og vem má Uka segja að skattahækkanir á launþega leiði til þess að launþegar fái launahækk- untUað bæta sér upp skattahækk- unina og græði á öUu saman. Þetta dæmi mim þess vegna ganga upp. TU að bæta upp tap fyr- irtækja að undanfórnu þarf að lækka skatta á fyrirtækjum með því að lækka eða feUa niður að- stöðugjald. Þannig verður tap fyr- irtækjanna fært yfir á sveitarfélög- in og tíl að bæta upp tap sveitarfé- laganna býðst ríkið tíl að hækka skatta tU ríkisins sem bætir síðan upp tapiö hjá sveitarfélögunum með því aö bæta við skatti á laun- þega og tíl að bæta upp tapiö hjá launþegum þarf á næstunni að hækka launin hjá launþegum og ýta vanda launþeganna yfir á fyrir- tækin. Af þessu sést að skattur fyrir skatt er ekki skattur nema síður sé. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.