Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1993, Blaðsíða 12
12
MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL1993
Spumingin
Áttu von á góðu sumri?
Eydís Mikaelsdóttir: Já, það verður
gott veður í allt sumar.
Reynir Einarsson: Já, að sjálfsögðu.
Brynja Birgisdóttir: Já, þetta verður
gott sumar.
Samúel West: Það verður aUavega
gott í Svíþjóð þar sem ég aetla að vera.
Baldvin örn Ólafsson: Já, ég er alveg
viss um það.
Helga Haraldsdóttir: Sumarið verður
gott, fyrst veturinn var slæmur.
Lesendur
Bikarmeistari
iskotfimi
Carl J. Eiriksson skrifar:
Stjóm Skotsambands íslands, STÍ,
hefur nú tilkynnt hver sé bikarmeist-
ari íslands 1993 í riffilskotkeppni
(enskri keppni).
Þetta val á bikarmeistara 1993
stenst ekki samkvæmt reglum STÍ
en reglurnar voru sendar til félaga
með bréfi STÍ19. janúar 1993 og eru
þannig orðréttar: - „Stjóm STÍ hefur
ákveðið á síðasta stjómarfundi aö
öU mót sem auglýst eru á keppnis-
tímabUinu 1993 í nafni Stí gUda tíl
bikarmeistara íslands með eftirtöld-
um skilyrðum: EinstakUngur getur
mætt í öU mótin á árinu, en aðeins
þrjú efstu mótin gUda í lokamótið
sem er Bikarmót STÍ og leggst það
mót við hin fyrri þijú mótin og verð-
ur sá aðili sem hlýtur flest stig í þess-
um fjórum mótum bikarmeistari STÍ
1993.“
Skotþing 1991 samþykkti reglur um
punktamót og val í landslið. í 3. grein
segir: „í byijun hvers keppnistíma-
bUs eru allir keppendur með 0
punkta. Að loknum puntkamótum
hvers keppnistímabUs skal stiga-
hæsti maður hvers flokks hljóta titil-
inn Bikarmeistari STÍ....“
Keppnistímabilið 1993 hófst 1. sept-
ember 1992 og lýkur 1. maí 1993, sam-
kvæmt ákvörðun Skotþings. Á þessu
tímabUi hafa verið haldin fimm
Á æfingu í skotfimi.
rifflamót sem auglýst voru í nafni
STÍ: 7. nóv., 22. jan., 20. febr., 20.
mars og 22. apríl. Síðastnefnda mótið
var sjálft Bikarmót STÍ.
Ég hef tekið þátt í mótunum 7. nóv.,
20. febr., 20. mars og 22. april og hef
unnið á þeim öUum nema mótinu 7.
nóv. Þetta gefur 58 punkta samtals,
þ.e. 13+15+15+15. Sá sem STÍ hefur
tílkynnt að sé bikarmeistari STÍ1993
fékk einum punkti minna eða sam-
tals 57 punkta, þ.e. 14+15+14 + 14. -
Hvemig getur keppandi, sem fær
einum punkti minna en sá sem hér
skrifar, orðið bikarmeistari 1993?
Yfirlýsingar útvarpsstjóra:
Er vinátta glæpur?
Magnús Ólafsson skrifar:
Nú hefur Heimir útvarpsstjóri end-
urtekið árásir sínar á Hrafn Gunn-
laugsson meö því að finna nýjar
ástæður fyrir brottrekstri hans. Nú
er ástæðan óvinsældir Hrafns.
Starfsfólk útvarpsins hafi komið tU
hans og óttast um sinn hag er Hrafn
kæmi aftur. Það er ekki nýtt fyrir-
bæri því gamlir starfsmenn óttast
aUtaf aUar breytingar. - Auk þess er
vitað að við Ríkisútvarpiö, líkt og
margar ríkisstofnanir, eru líklega
helmingi of margir starfsmenn.
Verst þótti útvarpsstjóranum að
hann hafði að beiðni Hrafns látið
segja upp fjórum starfsmönnum áð-
ur en Hrafn kom til starfa. Þvi má
ekki gleyma að meðal lausna á
rekstrarvanda fyrirtækja og stofn-
ana er sú aðgerð að fækka starfsfólki
og endurskipuleggja reksturinn. -
Hafa menn gleymt látunum þegar
nokkrum leikurum, sem höfðu verið
lengi við störf hjá Þjóðleikhúsinu,
var sagt upp af nýjum þjóðleikhús-
stjóra áður en hann hafði tekið við
starfi?
Svona afsökun útvarpsstjórans eft-
ir á er hlægUeg og ekki loku fyrir það
skotið að hún sé beinlínis gerð fyrir
þá Svavar Gestsson og Pál Pétursson
tíl stuðnings við ofsóknarherferð
þeirra á hendur Hrafni Gunnlaugs-
syni.
Það er greinilegt að þeir menn sem
standa að imdangengnum ofsóknum
á hendur Hrafni Gunnlaussyni hafa
engan skilning á vináttu og í þeirra
augum gengur vinátta glæpi næst.
Auðvitað er ætlunin með þessum
persónulegu árásum á Hrafn Gunn-
laugsson að gera forsætisráðherra,
Davíð Oddsson, óhæfan og koma
höggi á Sjálfstæðisflokkinn.
Skattur á vexti - hrun sparnaðar
B.G. skrifar:
í viðræðum aðila vinnumarkaðar-
ins og ríkisstjómarinnar, sem nú
hefur slitnað upp úr, kom fram krafa
ASÍ um að skattleggja vexti og lækka
þá líka, þó að allir viti bornir menn
geri sér grein fyrir því að skattur á
fjármagnstekjur hækkar vexti.
Það ótrúlega gerðist í þessum
samningaviðræðum að forsætisráð-
herra léði máls á að leggja 10% nafn-
vaxtaskatt á alla vexti, nema vexti
lífeyrissjóða, sem verkalýðshreyf-
ingin vildi ekki láta skattleggja, en
lífeyrissjóðir eru sem kunnugt er
stærstu sparifjáreigendur landsins.
Verkalýðsforystan er sem sé að
heimta nýjan skatt á launafólk. -
Sama fólkið og þeir þykjast vera aö
vinna fyrir.
Nýleg yfirlýsing forsætisráðherra,
að 10% nafnvaxtaskattur sé lítill,
sætir furðu. Sem dæmi má taka al-
Hringið í síma
63 27 00
millikl. 14ogl6-eðaskrífið
Nafn og símanr. vcrrtur aó fylgja bréfum
gengt sparnaðarform sem ber 2%
raunvexti. í 10% verðbólgu myndi
10% nafnvaxtaskattur jafngilda
55,5% skatti á raunvexti spamaðar-
formsins, sem varla getur tahst lítið.
Því hefur verið lofað árum saman
í auglýsingum að spariskírteini ríkis-
sjóðs verði ekki skattlögð. Hvað gera
eigendur þeirra ef þetta verður svik-
ið? Líklega leysa þeir þau út á gjald-
daga og kaupa ekki ný. Og hvað ger-
ir fólk þegar almennar spari-
sjóðsbækur (sem oftast bera nei-
kvæða vexti) verða skattlagðar?
Kyssa á vöndinn? Er þá ekki eðli-
legra að eyða peningunum í eitthvað
þarft - eða óþarft?
Kannski trúa forystumenn Sjálf-
stæðisflokksins því að sparifjáreig-
endur (þessir „ógnvekjandi kapítal-
istar“) séu mestanpart gamalt fólk
sem geri sér allt að góðu og haldi
áfram að kjósa þá af sauðtryggum
sljóleika?
Og hvað gera sparifjáreigendur; kyssa á vöndinn?
þurrðina
Halldór Halldórsson hringdi:
Mér er farið að blöskra fjasið
um fiskþurrðina. Sífelldum
barlómi og svartnætti er ýtt að
þjóðinni í flestum fjölmiðJum og
ekki síst ríkisfjölmiölunum í
þessu efni. Muna menn eftir har-
matölunum fyrir svo sem ári um
að allur fiskur væri uppurinn í
Barehtsháílhu? Það átti aö vera
vegna skofts áætifyrirþorskinn,
þ.e. loðnan væri ekki til staðar.
Nú eru þeir að veiða þetta 7-8 ára
garalan þorsk í Barentshafi. Að
ætla að meta þorskstærðina með
togararalii er auðvitað út í hött
Fiskurinn þarf frið til að éta og
það aflast oft ágætlega á línu og
dragnót þótt ekkert fáist í troll.
Aö flestu leyti erum viö sannar-
lega að fara aftur í tímann með
núverandi aögerðum.
Græðum viðá
verkefnunum?
Gunnar Ólafsson hringdi:
Ég vildi að einhver útskýröi
hvortíslenska þjóðarbúið græddi
eitthvað á hinni svokölluðu verk-
takastarfsemi sem verið er að
finna vítt og breitt um heiminn.
Ég meina hvort þetta skih gjald-
eyri í þjóðarbúið.
Ég veitti þvi athygli þegar
kjaraviðræður stóöu sem hæst
aö í hhm sérkennilegaþátt „Þjóð-
arsál“ hringdi Ðagsbrúnarmaður
einn og taldi ákaflega mikhvægt
að allt yrði gert til þess að lækka
verð á matvælum. Þá riíjaöist
upp fyrir mér aö á síðasta aðal-
fundi Dagsbrúnar lagði þessi
sami maöur til, og fékk samþykkt
með harmkvælum, að Dagsbrún
mótmælti harðlega öhum hug-
myndum um svokallað GATl'-
samkomulag sem þó yrði th þess
að stórlækka verð á öhum nauö-
synjum. - Ekki er þó aö efa að
þá hefur þessi Dagsbrúnarmaður
látið stjómast af umhyggju fyrir
hagsmunum félaga sinna en ekki
þeirri staðreynd að hann sjálfur
hefur atvinnu af þvi að keyra út
fóður til bænda.
Sannleikann
áborðlð
Hermann skrifar:
Er nú ekki tími til kominn að
fá á borðið sannleikann um það
hver þeirra þriggja, menntamála-
ráðherra, ráðuneytisstjóri hans
fyrrverandi eða núverandi fram-
kvæmdastjóri Sjónvarps fer með
rétt mál?
Erþettðsamneysla?
H.J. hringdi:
Nýlega las ég um að könnun
hefði verið gerð um hvort vilji
væri meðal almennings að skatt-
ur yrði lagður á sparifé. Það þóttu
tíðindi að meiriíhuti aöspurðra
var því fylgjandi. Er það ekki aht-
af svo að þeir sem ekki vhja spara
vifja ólmir ná í peninga hinna? Á
þetta hlusta stjómmálamenn og
fallast á að gera þeim eyðslu-
sömu, sem eflaust eru í meiri-;
hluta, til geðs eins og dæmin um
eyðsluna sýna. Nú er komiö að
því að við sem teljum spamað
vera dyggö sýnum að okkur er
alvara þegar við segjum að pen-
ingunum okkar sé best variö af
okkur sjálfum. Hjahð um meiri
og meiri peninga th samneyslu
og því þurfi endalaust aö hækka
skatta er orðið marklaust. Og
hvað sýnir fíni ráðherrabíhinn
eða fínu marmaravínbúöirnar
okkur? Er þetta nauðsynleg sam-
neysla? Og hverjir leggja fyrir?
Ekki þeir hálaunuðu sem ern vel
tryggðir th elháranna. Fjármála-
ráöherra ætti að lesa betur boð-
oröin 10. Þar stendur: Þú skalt
ekki gimast.... o.s.frv.