Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1993, Blaðsíða 14
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JONSSON
Fréttastjóri: JÚNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGÖLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00
FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613.
FAX: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr.
Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr.
Sigur Jeltsíns
Úrslitin í þjóðaratkvæðagreiðslunni í Rússlandi teljast
meiriháttar tíðindi. Fyrir það fyrsta er þau mikill sigur
fyrir Jeltsín persónulega, en hann hafði í rauninni lagt
sitt póhtíska líf að veði með kröfunni um þjóðaratkvæða-
greiðsluna. í öðru lagi kemur það nokkuð á óvart að
Rússar skuh styðja svo afdráttarlaust áframhaldandi við-
leitni th umbóta og uppstokkunar sem raun ber vitni,
miðað við það neyðarástand sem ríkir í landinu. í þriðja
lagi er þátttakan framar öhum vonum, einkum þar sem
Rússar eru ekki vanir slíkum kosningum, landið víð-
feðmt og deilur um stjómskipun og flókið valdatafl engan
veginn ær og kýr hins almenna borgara. Þvert á móti
má ætla að hinn sauðsvarti almúgi hafi öðrum hnöppum
að hneppa en taka afstöðu til margflókinnar og útþvældr-
ar þrætu um stjómarfar, þingræði eða stjómskipulega
stöðu forsetans. Slíkar spumingar mega einu ghda fyrir
fólk sem hefur varla th hnífs og skeiðar.
í Rússlandi hefur fólk verið frelsinu fegið. Afnám
kommúnismans var líkn og sundurlimun Sovétríkjanna
í samræmi við vhja þjóðarbrota og einstakra sjálfstæðra
ríkja. En hinu má ekki gleyma að frelsið hefur ekki ver-
ið tekið út með sældinni. í Rússlandi hefur ríkt skálm-
öld. Þar hefur ástandið verið stjómlaust og agalaust.
Glæpastarfsemi hefur grafið um sig, verðbólga er hæðum
ofar og allur atvinnurekstur í algjörum lamasessi. Fólk
hefur haft einhverja peninga handa á milli, en þeir hafa
verið verðlausir auk þess sem vörur em af skomum
skammti. Efnahagsástandið er vægast sagt geigvænlegt
og ahar þessar hörmungar hafa auðvitað að einhverju
leyti skrifast á reikning Jeltsíns.
Síðast en ekki síst hafa þjóðarbrotin innan fyrrum
Sovétríkja og í Rússlandi látið æ meir að sér kveða og
veruleg hætta er á að þjóðarstríð og gamlar erjur blossi
upp.
Samt hefur Jeltsín tekist að sigra í krafti kosninga og
lýðræðis. í því felst gífurlegur styrkur og vekur vonir
um að breytingamar í Rússlandi og fyrrum Sovétríkjun-
um kunni að heppnast án blóðsúthellinga og án afiur-
hvarfs th einræðis.
Þessar kosningar em að því leyti mikhvægar fyrir
fleiri en Rússa að þær skapa skhyrði th stöðugleika og
í bih að minnsta kosti koma þær í veg fyrir að Rússland
tvístrist í sams konar öngþveiti og átt hefur sér stað í
fyrrum Júgóslavíu. Þær gefa Jeltsín og fylgismönnum
hans umboð th að halda stefnu sinni th streitu og úrsht-
unum þarf að fylgja eftir með þingkosningum þar sem
kjósendur fá tækifæri th að kjósa sína eigin þingmenn.
Núverandi þing Rússlands er enn að megmstofhi th kos-
ið í tíð kommúnista og er Jeltsín úötur um fót.
Meginvandi Rússa um þessar mundir er sá að forseti
og þingið hafa ekki verið samstiga. Nógu er erfitt að
bylta þjóðfélaginu þótt ekki komi th stöðugur ágreining-
ur helstu valdaðha um nýja umbótastefnu og framkvæmd
hennar. Andstæðingar Jeltsíns eru kerfiskarlamir,
flokkskommissaramir og gamla yfirstéttin sem skhur
ekki í hverju lýðræðið er fólgið. Þess vegna neita þeir
að viðurkenna sigur Jeltsíns í kosningunum og virðast
ætla að vera við sama heygarðshomið.
Sigur Jeltsíns ræður hins vegar úrshtum um það að
þeir geta ekki látið kné fylgja kviði. Úrshtin em vamar-
sigur og áfangasigur. Þau era jafiiframt léttir fyrir Vest-
urlönd, sem hafa veðjað á Jeltsín. Það er ekki öh nótt úti
í Rússlandi ennþá. Rússneskum almenningi er ekki ahs
vamað. EhertB.Schram
MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 1993
„Ríkisstjómin gerir allt til að brjóta niður kjark og bjartsýni," segir Guðni m.a. í greininni.
Rlkisstjómin:
Vandamálið
sem öllu klúðrar
Ríkisstjóm Davíðs Oddssonar
stefnir íslensku þjóðfélagi í strand
með bæði aðgerðum sínum og ekki
síður aðgerðaleysi. Á tveimur
árum hefur þessi óheilla ríkisstjóm
fengið erlendu verkafólki í hendur
atvinnu sem var lífsbrauð ís-
lenskra manna. Nú mæhst at-
vinnuleysi hér rnn 6% og er að fest-
ast í sessi sem viðvarandi vanda-
mál. Hin nýja forysta Sjálfstæðis-
flokksins lítur á atvinnuleysi sem
hentuga svipu til að hirta verkafólk
landsins með.
Ríkisstjómin var stoinuð af
harðsvíruðu frjálshyggjuliði úr
bæði Sjálfstæðis- og Alþýðuflokki
til að keyra samfélagið í þann far-
veg sem nú blasir við. Innflutnings-
öflin skyldu æðri framleiðsluat-
vinnuvegunum, fjármagnið skyldi
drottna yfir vinnunni. Eignimar
skyldu faUa gæðingunum í skaut
og Alþýðuflokkurinn fengi að auki
bitlinga og góðar stöður bæði hér
og í Brússel fyrir sína þjónkun.
Enda talaði Halldór Blöndal beint
frá hjartanu þegar hann kaUaði orð
Össurar Skarphéðinssonar ómaga-
orð í Hrafnsmálinu.
í huga sjálfstæðismanna er Al-
þýðuflokkurinn ómagi og atkvæði
á Alþingi og fær greitt fyrir þjónk-
tm síná við Ihaldið með embættum
í kerfinu. Ömurlegt er hlutskipti
Alþýðuflokksins og þeirra manna
í flokknum sem era jafnaðarmenn
í raun að láta Jónana reyra flokk-
inn fastan við siglutré Sjálfstæðis-
flokksins þegar stefnan er þjónkun
við örfáa útvalda.
Hvar er réttlætið?
Ríkisstjórnin gerir allt til að
bijóta niður kjark og bjartsýni.
Niðurskurður og samdráttur á sér
stað á öllum sviðum og beinist ekki
síst að þeim sem höllum fæti
standa. Hvemig á atvinnulaus
maður að sjá fjölskyldu farborða,
Kjállariim
Guðni Ágústsson
alþingismaður
hvemig á hann eða hún að standa
við skuldbindingar sínar? Eign-
atapiö fylgir í kjölfarið og upplausn
fjölskyldunnar.
Vaxtastefnan stöðvar
atvinnulífið
Sjávarútvegurinn er rekinn með
haúa og ríkisstjómin gerir ekkert
en flestir vita þó að aðgerðaleysið
leiðir til stærstu kjaraskerðingar í
áratugi. Þá rekur þennan undir-
stöðuatvinnuveg í strand og
stærsta gengisfelling í 30 ár verður
hvort sem menn vilja eða vilja ekki.
Ríkisstjómin streitist við að
halda uppi vaxtastiginu og ber við
halla ríkissjóðs. Öllum ber saman
um að vaxtalækkun bæti mest kjör
heimila og grandvöll atvinnulífs.
Loksins hafa fiestir áttað sig á
þeirri staðreynd að það er ríkis-
valdið og lífeyrissjóðimir sem ráða
vaxtastiginu. Aðilar vinnumarkað-
arins ráða vaxtakröfu lífeyrissjóð-
anna og ríkisstjómin heldur uppi
glæfralegri samkeppni við bank-
ana um sparifé landsmanna í þjón-
ustumiðstöð Friðriks Sophusson-
ar. Þar er verið að bjóða sterkrík-
um einstaklingum vaxtakjör á
sparifé með vaxtaprósentu sem
slagar upp í kjör á útlánum bank-
anna. Enda er svo komið á innlend-
um lánamarkaði að bankar og
sparisjóðir hafa í sinni vörslu 170
milljarða króna en ríkissjóður 105
milljarða og hefur á tveimur árum
aukið hlutdeild sína úr 52 milljörð-
um í þessa tölu. Aftur á móti era
lífeyrissjóðimir orðnir stærstir
með 171 milljarð og margir þeirra
lúta engum lögmn.
Með vaxtastefnu sinni er ríkis-
stjómin að rífa marga athafna-
menn upp með rótum; þeir selja sín
fyrirtæki og lifa á að renta fjár-
magn sitt í skjóli ríkisins og gjalda
enga skatta fdl samfélagsins. Vinn-
an og verðmætasköpun er þó og
verður það sem ræður því hvort
hér lifir þjóð eða ekki. - Ríkis-
sfjómin er vandamálið sem öllu
klúðrar, hún verður að fara frá.
Guðni Ágústsson
„í huga sjálfstæðismanna er Alþýðu-
flokkurinn ómagi og atkvæði á Alþingi
og fær greitt fyrir þjónkun sína við
Ihaldið með embættum í kerfinu.“
Skoðanir aimarra
Ofsalaun á niðurleið?
„Hvergi í heiminum tíðkast jafn háar launa-
greiðslur og í Bandaríkjunum og hafa laun æðstu
sfjómenda því til skamms tíma einungis verið tak-
markað í sviðsljósinu annars staðar. Kemur þar líka
til að upplýsingaskylda bandarískra almennings-
hlutafélaga til hluthafa er mun víðtækari en í öðrum
ríkjum. Langvarandi efnahagssamdráttur og versn-
andi afkoma fyrirtækja hefúr þó leitt til þess að í
Evrópu era hluthafar einnig famir að gera athuga-
semdir við greiðslur til stjómenda."
Úr forystugrein Mbl. 25. apríl
Versnandi fréttir Sjónvarps
„Mér finnst athyghsverðast hvað fréttir Ríkis-
sjónvarpsins hafa versnað á undanfómum tveimur
m þremur árum. Það er ekki nóg fyrir sjónvarpsstöð
að hafa fréttastofu sem fyllir út í hálftíma fréttatíma
á hverjukvöldi. Fréttastofa þarf að bjóða upp á frétta-
skýringaþætti og grípa auk þess reglulega inn í dag-
skráma þegar mikið liggur við. Alveg á sáma hátt
og fréttastofa Ríkisútvarpsins... Ef til vill ætti
fréttastofa Ríkissjónvarpsins aö veröa sér úti um
faglegan yfirmann við hlið hins ráðdeildarsama
Boga.“ Gunnar Smári Egilsson; Pressan 21. april
Gjaldþrot sjávarútvegsins
„Ein af meginforsendum þess, að takast megi að
ná samstöðu um endurskipulagningu sjávarútvegs
er að hagsmunasamtök sjávarútvegsins geri sér
grein fyrir breyttri stöðu sinni. Þessi samtök hafa
lengi verið svo öflug, að þau hafa nánast getað sagt
ríkisstjómum fyrir verkum... Þaö hefur stundum
verið rætt um það, hvort fara ætti gjaldþrotaleiðina
í sjávarútvegi. Spumingin er ekki lengur sú vegna
þess aö gjaldþrotaleiðin er í fullum gangi.“
Úr Reykjavíkurbréfi Mbl. 24. april