Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1993, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1993, Side 24
24 MIÐVÍKÚDAGUR 28. ÁPRÍL 1993 Smáauglýsingar - Sími 632700 Þverholti 11 Mjög vel með farinn Suzuki Swift, GL, 4x4, árg. ’91, ekinn 68 þús. km, sumar- og vetrardekk, útvarp/segulband, ásett verð 800.000, fæst á 700.000 stað- greitt. Upplýsingar í síma 96-26690, milli kl. 10 og 16 og eftir kl. 18 í síma 96-27267. Hlynur. Skráning i Borgardekk-torfæruna laugardaginn 8. maí ’93 fer fram í sím- um 91-674811 og 91-674590 eða fax 91-674596 dagana 27. apríl til 4. maí milli kl. 10 og 15 alla daga. Jeppaklúbbur Reykjavíkur. ■ Tilkynningar @1 Stillmg SKEIFUNNI 11 • SÍMI 67 97 97 Bilamiölun, Borgartúni 1, s. 91-11090. Ford F 350, 4x4, dísil, turíio ’89, 4 dyra, m/öllu, Ford Econoline 150, 4x4 ’87, 44" dekk, allur læstur, innréttaður, 8 cyl. og Ford Econoline 250 ’91, 4x4, innréttaður, ek. 6 þús., loftlæsingar, loran, breyttur fyrir 2 millj., nýr bíll. STÖÐVUM BÍLINN eff viö þurffum aö tala í ffarsímann! nlx™ Porche 944, árg. ’88, til sölu, ekinn 63 þús. km, vínrauður, toppeintak. Til sýnis og sölu á Bílasölu Reykjavíkur, sími 91-678888. Tfmarlt fyrlr alla á nœsta sölustað • Askriftarsimi 63-27-00 1. Hringdu í síma 99 1993. 2. Þar velurðu 1 til að heyra upplýsingar um DV, 2 til að heyra upplýsingar um Danska og 3 til að taka þátt í leiknum. 3. Þú heyrir þrjár spurningar, sem tengjast Danmörku, og við hverri þeirra eru gefnir þrír svarmöguleikar. Spurningunum svarar þú með því að ýta á 1, 2 eða 3 á símanum. 4. Svarir þú þremur spurningunum rétt lest þú inn nafn, heimilisfang og símanúmer. Nöfn þeirra sem svara spurningunum rétt fara í sérstakan pott og í hverri viku er dregið út nafn eins gáfumanns sem hlýtur Danmerkurreisu fyrir tvo í verðlaun. Nafn vinningshafa hverrar viku er birt í Ferðablaði DV á mánudögum.. Verð aðeins 39,90 kr. mínútan. Góða skemmtun! DV efnir til skemmtilegs símaleiks sem hefst kl. 12 á hádegi 21. apríl og lýkur kl. 12 á hádegi 7. maí. Þar átt þú möguleika á að vinna fjögurra daga ferð fyrir tvo í danska vorið. •Tii d Fréttir Framkvæmdir í fjölskyldugarðinum í Laugardal eru i fullum gangi. Myndin er tekin úr 11 metra útsýnisturni á svæðinu. Turninn er uppi á hól og sést úr honum yffir allan Laugardalinn. DV-mynd GVA Fjólskyldugarðurinn opnaður í júní Nú styttist óðum í að Reykvíkingar geti notið útiveru og skemmtunar í fjölskyldugarðinum í Laugardal. Framkvæmdir eru í fullum gangi og er stefnt að því að garðurinn verði opnaður almenningi seinni hluta júnímánaðar. Fjölskyldugarðurinn er hannaður af Þórólíi Jónssyni landslagsarkitekt sem kveðst hafa reynt að tengja hann við þjóðlega arfmn. „Þarna verða víkingavellir, þingstaður og naust. Það verður líka hægt að bregða sér í ýmsa leiki að fornmannasið," segir Þórólfur. Á stórri tjörn í garðinum verður víkingaskip við festar. Eftir tjörninni er um 100 metra löng bryggja. Oðrum megin við hana verður höfn fyrir fjarstýrða báta en hinum megin verða hafðir litlir bátar sem hægt verður að sigla á. Ungir og aldnir gestir fjölskyldu- garðsins geta einnig leikið sér með fjarstýrða bíla, ekið um í rafmagns- bílum og torfærubílum og hjólum og auk þess notið umferðarfræðslu. Yfirbyggð grillaðstaða verður fyrir almenning og í lítilli verslun á svæð- inu verður til sölu grillmatur. Aðgangseyrir að fjölskyldugaröin- um hefur ekki verið ákveðinn en miðað er við að aðgöngumiðinn gildi íölltækinásvæðinu. -IBS Kratafundur á Akranesi: Niðurfelling krókaleyf a féll í grýttan jarðveg Sigurgeir Sveinsson, DV, Akranesi: „Sjávarútvegurinn stendur frammi fyrir miklum vandamálum á þessum samdráttartímum og skulda- staða sjávarútvegs á íslandi er hrika- leg. Um næstsíðustu áramót var hún um 93 milljarðar króna - núna er hún 110 milljarðar," sagði Þröstur Ólafs- son, annar formaður tvíhöfðanefnd- arinnar, þegar hann gerði grein fyrir niðurstöðum nefndarinnar á fundi flokksstjómar Alþýðuflokksins sem haldinn var á Akranesi 24. apríl. „Það er nauðsynlegt að stjórna fiskveiðum vegna þess að frjálsar veiðar leiða til óhagkvæmni og of- veiði. Það verður að takmarka sókn- ina í auðlindina á einn eða annan hátt og niðurstaða nefndarinnar var sú að af þeim aöferðum sem menn hafa verið að nota er aflamarkskerfið best. Aflamarkskerfið sjálft kemst næst þeim markmiöum sem menn hafa sett sér sem er að stjóma ágangi í auðlindirnar og ná fram hag- kvæmni í útgerð og vinnslu. Afla- markskerfið er hagkvæmast hvað það snertir og vegna þess að það veit- ir sæmilega stöðuga vinnslu í landi. Þá komum við að því að menn segja að þetta kerfi flytji til svo miklar eignir og það er jú hætta á því að öflug fynrtæki eins og til dæmis Grandi, ÚA, Fiskiöjan, Síldarvinnsl- an og Haraldur Böðvarson safni að sér veiðiheimildum. Við aiþýðu- flokksmennimir í nefndinni vildum taka inn í þetta eitthvert aflahlut- deildarhámark en okkur tókst það ekki. Ég sjálfur hef taliö að eitt fyrir- Þröstur Ólafsson á fundinum á Akra- nesi. DV-mynd Sigurgeir tæki eigi ekki að eignast meiri afla- hlutdeild en sem nemur 7-8%,“ sagði Þröstur Ein af niðurstöðum nefndarinnar er að leggja niður krókaleyfi og er óhætt að segja aö sú niðurstaða nefndarinnar hafi fallið í grýttan jarðveg á þessum fundi sem og marg- ar aðrar niðurstöður nefndarinnar. í viðtali sagði Össur Skarphéðins- son, þingflokksformaður Alþýðu- flokksins, að hann efaðist um að þingmeirihluti væri fyrir tiilögum tvíhöfðanefndarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.