Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1993, Side 28
28
MIÐVIKUDAGUR 28. APRIL 1993
Hrafn í fríðum hópi.
Óskabam
Flokksins
„Því verra sem ástandið er á
Sjónvarpinu og því hrikalegri
sem samstarfsörðugleikamir eru
og því dýrari sem hápólitískar
mannaráðningar Flokksins reyn-
Ummæli dagsins
ast í peningum þeim mun auð-
veldari verður eftirleikurinn fyr-
ir einkavæðingarfíklana. Hrafíi
Gunnlaugsson er þeirra eina
sanna óskabam," segir Ámi
Bergmann rithöfundur.
Fageðjót!
„Það er mikið umhugsunarefni
að þessi kona (Sigrún Stefáns-
dóttir), sem þverbrýtur öll lögmál
fréttaflutnings og eðlilegrar
framkomu, skuh veita forstöðu
námsbraut í hagnýtri fjölmiðlun
í félagsvísindadeild; það er síður
en svo til þess fallið að afla náms-
brautinni trausts,“ segir Hannes
Hólmsteinn Gissurarson.
Einarfeiti!
„Einar Þorvarðarson segir
ástæðuna fyrir þrálátum meiðsl-
um mínum vera að ég sé allt of
þungur. Hann hefur aldrei meiðst
og því er þetta ekki góð skýr-
ing,“ segir Gísli Felix Bjamason,
markmaður Selfoss, sem meidd-
ist í leik gegn Haukmn á dögun-
um.
Hörmungar-Heimir!
„Við höfum orðið okkur út um
versta sjónvarpsstjóra sem sögur
fara af á heimsbyggðinni," segir
Oddur Ólafsson, aðstoðarritstjóri
Tímans.
Sannfræði ís-
lenskra fomleifa
Félag íslenskra fræða heldur
fund í Skólabæ kl. 20.30. Adolf
Friðriksson fomleifafræðingur
segir frá rannsóknum sínum.
Fundiríkvöld
Vinafélag Blindrabókasafnsins
Stofnfundur kl. 20.30 í Gyllta
salnum á Hótel Borg.
Siysavarnadeild kvenna
Afmælisfundur í Komhlöðunni
kl. 20.
ITC-deiidin Gerður
100. fundur deildarinnar kl. 20.30.
Smáauglýsingar
..........SBIjjU:
Amik.................19
Atvlmwiboöi.........23
Atvinmiófikast......23
Atvinnuhúfineaði .....23
Bwnagæsla...........23
Bótar...............21
Bllaleiga...........22
Bílaroskast................22
Bílartilsólu.....22,23
Bilabjónusta........22
Bókhald.............33
BóL-trun . 19
Baskui.................19
Dýrahalð............20
Eínkamál............23
faaiaiðftir......21,23
Feröalixj ......:...23
Fjórhjól............20
Framtalsaðstoð......23
Fyráungbörn.........18
Fynt veiðimann . 21
Fyrirtæki...........21
Garðytkja...........33
Hestamonn.ska.......20
Hjól................20
Hjðlbnðar...........22
Hljððfæn.... .......19
Hljðmtaakl..........1»
HreíngarninBar......23
Huaavtðgerðir.......23
Hbsgbgn............19
Húsnæöi i boðí.....22
Húsnæði óskast.....22
Jeppat............ 22
Kennfila-námskeið.23
tjóamyndun.........19
Lyftarar...........22
Nudd 23
Óskast keypt.......19
Sertdibllar........22
Sjónvörp...........19
Skcmrmamr 23
Spákbmir....... ...23
Sumarbústaðir......20
Sveit .23
Tapað lundið.......23
Teppaþjónusta......19
Til byggínga.......23
Tilkynmngar 3A
Tolvjr 19
Vagnar- kerrur.....20
Voratilutir........22
Veislubjönusta.....23
Verelun............23
Vetrarvörur........20
Vinnuvélar.........22
Vöfubilar..........22
Vmifilegt 23
Þjónusta...........23
Okukennsla.........23
Hvassviðri og él
Á höfuðborgarsvæðinu gengur í all-
Veðriðídag
hvassa eða hvassa suðvestanátt með
éljum síðdegis. Hiti um 7 stig í fyrstu
en 0 til 3 stig með kvöldinu.
Á landinu gengur í allhvassa eða
hvassa suðvestanátt með éljum vest-
anlands síðdegis. Hiti 4 tíl 12 stig í
fyrstu en kólnar niður í 0 til 5 stíg
þegar líður á daginn.
Gert er ráð fyrir stormi á vestur-
djúpi, suðurdjúpi og suðvesturdjúpi.
r
Veðrið kl. 6 í morgun
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri skýjað 12
Egilsstaðir skýjað 5
Gaitarviti rigning 5
Kefla víkurílugvöllur rign/súld 7
Kirkjubæjarklaustur rigning 5
Raufarhöfn alskýjað 7
Reykjavík súld 7
Vestmarmaeyjar súld 7
Bergen skýjað 7
Helsinki skýjað 8
Kaupmannahöfn þokumóða 14
Ósló léttskýjað 12
Stokkhóimur skýjað 12
Þórshöfn léttskýjað 6
Amsterdam þokumóða 13
Barcelona þokumóða 11
Berlín léttskýjað 15
Chicago rigning 14
Feneyjar skýjað 17
Frankfurt léttskýjað 15
Glasgow alskýjað 7
Hamborg léttskýjað 13
London mistur 8
Lúxemborg heiöskirt 15
Malaga alskýjað 11
Mallorca þokumóða 7
Montreal heiðskírt 4
New York heiðskírt 7
Nuuk snjókoma -6
Orlando skýjað 15
París þokumóða 15
Róm þokumóða 15
Valencia léttskýjað 10
Vín léttskýjað 12
Winnipeg alskýjað 5
„Eg er fullur tilhlökkunar aö
takast á við þetta nýjastarfog veit
aö það fara í hönd spennandi tímar,
ekki bara fyrir mig, heldur vonandi
einnig fyrir starfsfólk og listamenn
hússins og þá ekki síst þá sem
sækja leikhúsið," segir Viðar Eg-
gertsson, nýráðinn ieikhússtjóri
Leikféiags Akureyrar.
„Ég vona að þess muni sjást
merki aö ég haldi um stjómar-
taumana og nærvera mín komi til
með að setja svip á starfsemina.
Ég er nú á ieiðinni norður og mun
fara ofan í saumana á starfseminni
ásamt fráfarandi leikshússtjóra, og
að því búnu mun ég ieggja mínar
tillögur fyrlr leikhúsráðið."
Viðar er ekki alveg ókunnugur
leikhúsinu á Akureyri. „Ég held aö
það séu 24 ár síðan ég gekk þarna
inn sem tmglingur. Fjórum árum
síðar labbaði ég þar út í heiminn
Viðar Eggertsson.
til að aíla mér reynslu og menntun-
ar. Eftir að ég útskrifaðist úr Leik-
listarskóla íslands árið 1976 var það
Leikfélag Akureyrar sem opnaði
fyrir mér dyrnar og ég fór þar á
samning í tvö ár sem varö tíl þess
að koma_ undir mig fótunum sem
leikari. Ég lít svo á að það sé oröiö
tímabært fyrir mig að koma til
baka til Akureyrar og launa fóstrið
eftir að hafa ávaxtað mitt pund."
Viðar, sem m.a. er kunnur fyrir
rekstur EGG-leikhússins, hefur
einnig fengist mikið við leikstjórn
og leikstýrt á þriðja tug leikrita.
Þá hefur hann mikið gert að því
að ferðast eriendis og kynna sér
leiklist og tekið þátt í alþjóðlegum
verkefnum. „Mér hefur aldreí dott-
ið í hug að fást viö neitt annað en
leiklist, annað hefur ekki komist
að. Ég vona bara að í hönd fari
spennandi tímar hjá Leikfélagi
Akureyrar fyrir alla þá sem þar
koma nærri, bæði starfsmenn og
ekki síður áhorfendur."
Undanúrslit
í handbolta
í kvöld gæti ráðist hvaða tvö lið
leika til úrslita í íslandsmeistara-
mótínu í handknattleik. FH sigr-
aði ÍR í hörkuspennandi leik á
mánudagskvöldið og liðin mæt-
ast öðru sinni í kvöld i Austur-
bergi. Valur vann Selfoss hins
íþróttir í kvöld
vegar afar sannfærandi en þarf
að mæta liðinu á Selfossi í kvöld.
Liðin þurfa að vinna í tvigang til
þess að komast í úrslit.
f Reykjavíkurmótinu mætast
Fram ogKR og í Evrópumóti leik-
manna undir 16 ára aldri mæta
okkar menn Pólverjum.
Reykjavíkurmótið:
Fram-KR kl. 20
Handbolti:
ÍR-FH kL 20
Selfoss - Valur kl. 20
Skák
Þessi staða er frá atskákmótinu í Món-
akó á dögunum. Ivantsjúk hafði hvítt og
átti leik gegn Karpov. Síðasti leikur
Karpovs var 30. - De8-e5 sem ógnar
hróknum á f4:
31. Bxg6! Dxf4 32. Dd5+ Kh8 33. Dxa8
Kg8 34. Dd5+ Kh8 35. h4! Dxh4 36. Bcl
Riddarinn á g5 er lykilmaður í stöðunni.
Ef hann hverfur kemst drottning hvíts
inn til f7 og öllu er lokið. Karpov reyndi
36. - Rh3+ 37. gxh3 Dxh3 en eftir 38.
Bf5 Dc3 39. Bg5 De5 40. DÍ7 gafst hann
upp.
Jón L. Árnason
Bridge
Hinir ungu spilarar Guðjón Bragason og
Jón Hersir Elíasson komu á óvart með
því að vera í toppbaráttunni í íslands-
bankamótinu í tvímenningi lengst af. í
lok mótsins seig aðeins á ógæfuhhðina
hjá þeim félögum og þeir enduðu í sjö-
unda sæti eftir að hafa verið í sætum 2-5
lengst af. í þriðju umferð keppninnar
fengu þeir félagamir góða skor fyrir spil
12, nánast toppskor fyrir að segja og
standa þrjú grönd. Sagnir gengu þannig,
vestur gjafari og NS á hættu:
* 5
V Á1074
♦ ÁKDG8
+ 962
* K107
V KD98652
♦ 62
+ 8
N
V A
S
* G643
V G3
♦ 104
+ ÁDG73
Dregur auga í pung
eyÞoiK-
Myndgátan hér að ofan lýsir athöfn.
♦ ÁD982
V --
♦ 9753
+ K1054
Vestur Norður Austur Suður
Guðjón — JónH.
3V pass pass dobl
pass 3 g p/h
Austur spilaði út hjartagosa í upphafi
sem Guðjón í norður gaf og henti spaða
í blindum. Austur spilaði áfram hjarta,
vestur fékk að eiga næsta slag á hjarta-
drottningu og spaða var enn hent í blind-
um. í þriðja slag skipti austur yfir í tíg-
ulsexu og Guðjón tók tvo hæstu í tígli.
Næst spilaði hann laufatvisti og austur
hefði gert best í þvi að drepa á ásinn og
spila spaða. En hann setti gosann og
kóngurinn í blindum átti slaginn. Guðjón
spilaði nú laufi á niuna og austur átti
slaginn. Ef hann tekur á laufás er sagn-
hafi kominn með níu slagi- Þess vegna
var spaða spilað en Guðjón setti einfald-
lega níuna og lagöi upp. Vestur varð ann-
aðhvort að spfia upp í spaða- eða hjarta-
litinn og gefa níunda slaginn.
isak örn Sigurðsson