Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1993, Blaðsíða 26
26
FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1993
Stúlkurnar átján sem keppa um titilinn fegurðardrottning íslands í kvöld. Myndin var tekin á æfingu í vikunni.
Fegurðarsamkeppni fslands í kvöld:
í slensk fegurð í
grísku umhverfi
- fegurðardrottningar undanfarinna tíu ára sýna fatnað
„Það er kominn mikill spenningur í
hópinn enda hafa stúlkumar verið
við æfingar af fullum krafti síðan í
byrjun apríl. Þær stúlkur, sem búa
úti á landi, hafa þurft aö dvelja í
borginni síðan. Stúlkumar þurfa aö
leggja mikið á sig þennan tíma en
þær læra líka margt í staðinn," segir
Esther Finnbogadóttir, 23ja ára,
framkvæmdastjóri Fegurðarsam-
keppni íslands, en í kvöld keppa átj-
án stúlkur um titilinn fegurðar-
drottning íslands á Hótel íslandi.
Stúlkumar koma hvaðanæva af
landinu og hafa verið valdar í undan-
keppnum sem farið hafa fram víöa
um land í vetur. Síðustu vikumar
fyrir keppnina em nánast fullskipað-
ar hjá þessum imgu stúlkum. „Þær
era þjálfaðar í líkamsrækt, göngu og
sviðsframkomu. Þetta tekur allt sinn
tíma. Einnig er mikil áhersla lögö á
aðra hluti, svo sem viðmót þeirra
hver við aðra og þeim er kennt aö
vinna saman í hóp. Þær hafa til dæm-
is verið á námskeiði hjá Módelsam-
tökunum þar sem þær læra framkomu.
Einnig hafa þær verið á snyrtinám-
skeiði. Tíminn hefur farið í að byggja
þessar stúlkur upp, draga það besta
ffam i hverri og einni og efla félagsand-
ann, sjálfstraustið og sjáifsöryggið. Það
skiptir miklu máli hvemig fegurðar-
drottning íslands hagar sér innan um
fólk,“ segir Esther.
Esther Finnbogadóttir, framkvæmdastjóri fegurðarsamkeppninnar, hefur haft í nógu aö snúast aö undanförnu.
DV-myndir Gunnar V. Andrésson
Stúikurnar hafa þó ekki einungis
verið við stífar æfmgar. Þær hafa
heimsótt Bláa lóniö, fariö í reiðtúra
og komið fram á tískusýningum.
Sumar bugast
- Það er sagt að þær stúlkur sem
taka þátt í keppninni gjörbreytist á
einum mánuði bæði andlega og lík-
amlega, er það rétt?
„Já, það verður mikil breyting á
þeim. Þó breytum við ekki þeirra
karakter. Stúikumar eru þær sömu
eftir sem áður en óneitanlega styrkj-
ast þær líkamlega og verða glæsi-
legri eftir alla þjálfunina. Þær þurfa
að breyta mataræði sínu fyrir keppni
og léttast ef þess þarf.“
- Kemur fyrir að stúlkur bugast fyr-
ir keppni?
„Jú, þaö kemur oft fyrir en þá er
venjulega of seint að hætta við þann-
ig aö við reynum að stappa í þær stál-
inu, hjálpum þeim og hvetjum. Þegar
stressið er hvað mest síðustu vikuna
eiga þær oft til að brotna niður, enda
era síðustu dagamir mjög erfiðir.
Þaö hefur þó komið fyrir í upphafi
æfingatímabilsins að stúlkur hætta
við.“
Esther starfar sem framkvæmda-
stjóri við keppnina í fyrsta skipti nú
en hún sá um sviðsframkomu