Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1993, Page 7
MÁNUDAGUR 3. MAÍ 1993
7
Sandkom
Margirhafa
lýatóáiiægju
sinnimeöþaö
aöiciauglýs-
' ineatímaiirett-
irSjónvarpsins
ogsíðanveöur-
fréttir.Hitter
öliualvarlegra
aöcnguerlik-
araenaöbless-
aðir veðurfræðingamir séu meö
blindrastaf i hendi er þeir benda á
veðurkortið sem þeir sjá greiniiega
ekki. Þeir virðast þurfa að horfa á
sjónvarpsskjá viö hlið sérog benda á
kortið með „blindrastafnuni“. Ekki
leit þetta gæfulega út eitt kvöidið í
síðustuviku þegar rfðkomandi veö-
urfræðingur hóf að benda með stafn-
um sínum en veðurkortið var ekki
komið upp á skjáinn. Síðan snerist
hann eins og skopparakringla með
staíinn sinn fram og tilbaka og uppá-
koman var öll hálfvandræðaleg. Það
er ekki hægt annað en vorkenna veð-
urfrasðingunura að þurfa að standa í
þessubasli.
Ekki þeir...
Einfltrðuleg-
. asta uppákom- ;
anííþróttun-
umhéráiandi
ilangantima
varertvödóm-
arapör i hand-
boltanum, sem
raðaðersem
þeim tveim::
bestu, hættu
störfum í síðustu viku ogætfa ekki
að dæma mcira á yflrstandandi
keppnistímabili. Astæðan er sú að
þeirra sögn að þeir hafa ekki vinnu-
frið í ieikjum ogmega þolaenda-
lausar svívirðingar leikmanna, þjálf-
ara og aðstandenda liðanna. Mörgun
ftnnst sem þeir Stefán Amaldsson og
Rögnvald Erlingsson, sem eru okkar
langbestu dómarar, hefðu átt að leiða
þetta hjá sér og vera yfir það hafliir
að láta þetta trufla sig, enda heyrir
það til undantekninga að menn séu
mjög óhressir með störf þeirra.
Finnst mörgum að aörir dómarar,
sem rétölega hafa veriö nær stans-
laust gagnrýndir í vetur, hefðu frekar
átt aö sjá sóma sinn í þ ví að hætta
við verkefni sem þeir ráða ekki viö.
Ný dómarapör
ViggóSigurðs-
son.iyrrum
leikmaðurog :
þjálfaii. hefttr
veriðmanna
liaröasturvið;; s
aögagnrýna
dómaraogofi
lentíkröppum
dansívegna
þess.Hann
brást þannig við fréttunum um að.
dómarapörin tvö væru hætt að HSf
ætti bara að tilkynna það tilalþjóöa-
handknattleikssambandsíns að þess-
ir menn væru hættir að dæma og fá
aðra i þeirra staö. Daginn eftir sagði
Jóhann Ingi Gunnarsson þjálfari að
hann hefði veit því fyrír sér að fara
að dæma. Hvemig væri nú að Jóhann
Ingifengi Viggóíhðmeösér. Væri
þar ekki komið gott dómarapar? Þeir
Þorbjöm Jensson og Einar Þorvarö-
arson myndu sennilega einníg sóma
sér vel sem annað par í dómgæslurmi.
Þrælið þeim
út..
Smaauglýsmg-
arídagbiööum
eigajKiðtílað
takaásighinar
ýmsumyndir
ogstunduin
skilurlesand-
innlitiðhvað
veriðeraðaug-
lýsa.ÍDegiá
Akureyrivar
t.d. eftírfarandi auglýsing sl. föstudag
með yfirskriftinni „Hestafólk":
„Þettaeiga hestamenn að taka til sín.
Þið þrælið út þessum blessuðum
hestum án þess aö hafa smekk til að
snyrta þá, þið eigið að klippa fax og
tagl og ennistopp við mitt enni. Þetta
fnnst mér ömurleg sjón og ill meðforð
á þarfasta þjóninum". „Auglýsingin"
var undirrituö: „Sveitakona".
Umsjón: Gytt) Krlstjánsson
Fréttir
Smygluðu 13,5 kg af hassi til Þýskalands:
Islendingarnir komnir heim
voru dæmdir í 2ja ára skilorðsbundið fangelsi
„Þeir hlutu um 2ja ára skilorðs-
bundinn dóm. Það var ekki talin
ástæða til að áfrýja málinu þar sem
þetta var mjög réttlát málsmeðferð
sem þeir fengu og þeir voru heppnir
með dómara að mati veijanda þeirra.
Hann tók tillit til þess að þetta var
„léttara" efni sem þeir voru með og
að það var mjög lélegt að gæðum,"
sagði Magnús Björgvinsson sem var
túlkur íslendinganna sem hafa setið
í gæsluvarðhaldi í Þýskalandi frá því
1. febrúar fyrir að gera tilraun til að
smygla 13,5 kg af hassi inn í landiö.
Dómur gekk í máli Islendinganna
tveggja, sem eru 32ja ára og 27 ára,
á mánudag og flugu þeir heim daginn
eftir. Yngri maöurinn var dæmdur í
skilorðsbundið fangelsi í 1 ár og 9
mánuði en eldri maðurinn hlaut 2ja
ára dóm þar sem hann er talinn eiga
hugmyndina að smyglinu. Hann
sagði fyrir rétti að hugmyndin með
smyglinu hefði verið að rétta við fjár-
hag sinn sem var bágborinn.
-PP
Hagkvæmt bílalánl
O5
Staógreióslulán er heildarlausn vió kaup á nýjum bíl
Púfœró staðgreiðsluajsláttinn
Þegar þú kaupir þér nýjan bíl, greiðir Glitnir það sem á vantar. Þannig er hægt að
nýta staðgreiðsluafsláttinn og fá bíl á bestu fáanlegu kjörum.
Lánstími allt að 3 ár
Nú býðst verðtryggt Staðgreiðslulán til 3ja ára sem gefur þér kost á léttari
greiðslubyrði. Ef þú vilt greiða lánið hraðar niður er í boði óverðtryggt lán til allt
að 30 mánaða.
Þú velur tryggingarjélagið
Tryggja þarf bílinn með kaskótryggingu á lánstímanum og að sjálfsögðu
ræður þú hvar hann er tryggður.
r
Oskertir lánamöguleikar
Þú rýrir ekki lánamöguleika í bankanum þínum sem er afar heppilegt ef þú þarft
að mæta óvæntum útgjöldum á lánstímanum.
Állt að 100%Jjármögnun kaupverðs
Lánshlutfall getur orðið 100% af staðgreiðsluverði bíls fyrir allt að 24 mánaða
lánstíma.
Kynntu þér hagstœð kjör Staðgreiðslulána og gerðu jajnjramt
samanburð á þeim lánsjormum sem bjóðast. Sölujulltrúar bijreiða-
umboðanna veita þér nánari upplýsingar og útbúa tilheyrandi
skjöl á skjótan og einjaldan hátt.
Glítnirhf
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA
Ármúla 7 108 Reykjavík
Sími 608800 Myndsendir 608810