Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1993, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1993, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 3. MAÍ 1993 9 FRAMHJÓLADRIFINN VOLVO 460 GL '93 GÓÐAR FRÉTTIR OG SLÆMAR Gott gengi á Volvo 460 GL hefur gert það að verkum að við eigum ekki einn einasta bíl eftir. Það eru auðvitað slæmar fréttir fyrir alla þá sem bíða eftir nýjum Volvo. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að hann er á leiðinni og verður til afgreiðslu hjá okkur í næstu viku. Vinsældir Volvo 460 GL byggjast fyrst og fremst á því að hann er Volvo. Það er trygging fyrir gæðum, öryggi og endingu. En þar að auki er hann lipur og þægilegur, framhjóladrifinn fjölskyldubíll, fær r flestan snjó og ríkulega búinn s.s. með vökva- og veltistýri, samlæstum hurðum, plussáklæði á sætum og kraftmikilli 2000 cc 110 ha vél með beinni innspýtingu. Hann er fáanlegur 5 gíra eða með sjálfskiptingu. Volvo 460 GL hefur hlotið einróma lof fyrir hönnun, snerpu og einstaka sparneytni, eyðir ekki nema 8,8 lítrum á hundraðið í blönduðum akstri. Samt er Volvo 460 GL á mun hagstæðara verði en japanskur bíll í sama stærðarflokki. VERÐ FRÁ: 1.368.000 kr. STGR. KOMINN Á GÖTUNA .) - ; ' VOLVO BRIMB^RG HF • FAXAFENI 8 • SÍMI (91) 68 58 70

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.