Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1993, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1993, Blaðsíða 16
16 MÁNUDAGUR 3. MAÍ 1993 Varnarliðið - Slökkviliðsmenn Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli óskar að ráða fólk til sumarafleysinga Umsækjendur séu á aldrinum 20-28 ára og hafi iðn- menntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilega menntun og reynslu. Meirapróf bif- reiðastjóra skilyrði. Umsækjendur skulu vera heilsu- hraustir og reglusamir. Mjög góðrar enskukunnáttu er krafist. Umsóknum fylgi sveinsbréf eða staðfesting á annarri menntun eða reynslu. Umsóknir skulu berast til ráðningardeildar varnar- málaskrifstofu, Brekkustíg 39, Njarðvík, í síðasta lagi 10. maí nk. Nánari upplýsingar veittar í síma 92-11973. Umsóknareyðublöð fást á sama stað. FAGOR FAGOR UC2380 • Tvöfalt HITACHI kælikerfi • Rúmmál 300 Itr • Kælir 200 Itr • Frystir 100 Itr • Hraðfrysting Htaaai • Sjálfvirk afþíðing á kæli • Hljóðlátur 37 dB • Umhverfisvænn •MálHxBxD 170x60x60 GERC UC2380 - STAÐGREITT KR. 53900 KR. 5 89 00 -MEÐAFBORGUNUM RÖNNING SUNDABORG 15 SÍMI 68 58 68 -fyrir norðlœgar slóðir Verð frá: 687.000 kr. á götuna. ITALSKIR BILAR HF. Skeifunni 17 • 108 Reykjavík • sími (91)677620 Neytendur Verö á kartöflum hækkar til muna ef kvóti verður settur á innflutninginn, samkvæmt því sem kartöflusalar segja. Erlendar kartöflur á markaðinn: Verður kvóti settur á innflutnmginn? - þýðir hærra verð fyrir neytendur íslenskar kartöflur eru að klárast á markaðnum og því á að hefja inn- flutning á erlendum kartöflum innan tíðar. Ymsir kartöflusalar hafa haft af því spurnir að kvóti verði settur á hvem söluaðila og að þeir stærstu, eins og Ágæti hf., fái stærri kvóta en aðrir. Kartöflusalarnir em mjög ósáttir við þetta og segja að með þessu sé verið að koma í veg fyrir alla samkeppni á markaðnum sem þýðir síðan hærra verð fyrir neyt- endur. „Þetta er siðleysi því þetta er frjáls markaður með frjálsa vöm,“ sagði Heimir Hafsteinsson, kartöflubóndi í Þykkvabæ. „Það er neytendum í hag að við kartöflusalar getum verið að keppa til þess að tryggja neytend- um sem hagstæðast verð. En þegar verið er að gefa einhveijum ákveðn- um stærri aðilum sinn hluta af kök- unni, bardagalaust, þá selja þeir bara kartöflumar með 200-300% álagn- ingu.“ Ollum kartöflusölum var sent bréf í síðustu viku frá landbúnaðarráðu- neytinu þar sem þeir eru beðnir um að tiltaka það magn sem þeir óska eftir að flytja inn. Samkvæmt upplýs- ingum Heimis var svona bréf einnig sent út þegar kvóti var settur á inn- fluttar kartöflur árið 1990. Af bréflnu að dæma telur Heimir víst að kvótinn verði settur á. „Það hefur ekkert verið ákveðið í sambandi við það magn sem hver söluaöili á að fá en það verður líklega ákveðið á næstunni," sagði Ragn- heiður Ámadóttir, deildarstjóri í landbúnaðarráöuneytinu, aðspurð um þetta mál. Ragnheiður sagði að samkvæmt lögum yrði að sjá til þess aö ekki yrði hér allt fullt af erlendum kartöfl- um þegar íslensku kartöflurnar komaafturámarkaðinn. -KMH Verð á sumum tegundum grænmetis fer nú að lækka í verslunum ettir því sem framboðið eykst. - tómatar lækka einnig bráðlega Mesta framboðið á grænmeti í dag er á íslenskum gúrkum en verðið á þeim hefur lækkað úr 300 krónum í um 90 krónur fyrir hvert kíló. Neytendur geta einnig átt von á að verð á tómötum lækki á næstu vik- um þar sem íslenskir tómatar eru að koma í auknum mæh á markað- inn, samkvæmt upplýsingum frá Sölufélagi garðyrkjumanna. „íslenska grænmetið er svona viku seinna en í meðalári vegna þess að febrúar var einn dimmasti mánuður í manna minnum" sagöi Kolbeinn Ágústsson, sölustjóri hjá Sölufélagi garðyrkjumanna. „Þetta hefur auð- vitað allt áhrif á plönturnar og fram- leiðslu þeirra." Aðspurður um gæði þess grænmet- is sem er á markaðnum í dag sagði Kolbeinn það mjög misjafnt. „Sumar búðir eru alltaf með I. flokks græn- meti en aðrar eru bara í því að kaupa ódýrt burtséð frá gæðum.“ -KMH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.