Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1993, Blaðsíða 18
18
MÁNUDAGUR 3. MAÍ 1993
Memúng
Listamiöstöð á Korpúlfsstöðum kynnt:
Ekki eingöngu Erró-saf n
heldur alhliða listamiðstöð
Teikningar hafa veriö lagðar fram
að listamiðstöð að Korpúlfsstöðum.
Um er að ræða frumteikningar sem
eiga eftir að fara fyrir skipulags-
nefnd. Á þessum teikningum má sjá
að gert er ráð fyrir glæsilegri lista-
miðstöð sem mun hýsa hið mikla
Errósafn, Listbókasafn, Myndbanda-
safn, Listasafn Reykjavíkur, Minja-
safn Thors Jensen og Korpúlfsstaða
og Fjölnotasal.
Hugmyndir að menningarmiðstöð
á Korpúlfsstöðum eru ekki nýjar af
nálinni. í mörg ár hefur verið reikn-
að með að nýtt hlutverk Korpúlfs-
staða yrði á einhvern hátt bundið
menningarstarfsemi. Það var hins
vegar hin veglega listaverkagjöf
Errós á árinu 1989 er hann gaf
Reykjavíkurborg rúmlega 2000 hsta-
verk sem varð til þess að borgar-
stjóm Reykjavíkur ákvað að Korp-
úífsstaðir skuli í framtíðinni verða
hstamiðstöð þar sem hstasafn Errós
skipaöi heiðurssess.
Markmiðið með hstasafni að Korp-
úlfsstöðum er að þar verði starfrækt
Hróbjartur Hróbjartsson arkitekt skýrir út fyrir blaöamönnum hvernig veröa
mun innandyra i hinni nýju listamiðstöð á Korpúlfsstöðum. DV-mynd ÞÖK
alhiiða hstamiðstöð þar sem Reyk-
víkingar og aðrir gestir fá notið
myndhstar, tónhstar, leiklistar og
annarra hstgreina, auk þess að fá
aðgang að ýmiss konar fræðsluefni
um hstir og menningu. Jafnframt
þjónar hstamiöstöðin hinum ört vax-
andi borgarhluta í Gufunesi. Auk
þess verður lögð rík áhersla á tengsl
Korpúlfsstaða við umhverfi og nátt-
úru svo og varðveislu hússins að ut-
an í réttu umhverfi.
Gerð hefur verið fmmkostnaðará-
ætlun vegna framkvæmda við hsta-
miðstöðina, samkvæmt þeirri áætl-
un verður kostnaðurinn 1.400 millj-
ónir á verðlagi í mars 1993 og er þá
ótalinn kostnaður vegna búnaðar og
lóðar. Á þessu ári er fyrirhugað að
leggja 150 milijónir í verkið. Margir
hafa látið í ljós efasemdir um þessa
kostnaðaráætlun og það kom fram á
blaðamannafundi, sem haldinn var
til kynningar á Listamiðstöðinni, að
tölur ættu sjálfsagt eftir að breytast
eitthvað.
Norrænu hljómsveitinni hleypt af stokkunum:
Átta íslendingar valdir í hljómsveitina
- 415 umsóknir bárust alls frá Norðurlöndunum, 66 valdir
í sumar verður hleypt af stokkun-
um norrænu verkefni á sviði æsku-
lýösmála undir heitinu Orkester
Norden. Markmiðið með norrænu
hljómsveitinni er aö treysta sam-
heldni norræns æskufólks.
Ungu tónhstarfólki á aldrinum
15-25 ára var í vetur boðið að sækja
um þátttöku og ahs bárust 415 um-
sóknir frá sex löndum. 66 aðilar frá
öllum löndunum hafa verið valdir til
þess að taka þátt í tíu daga nám-
skeiði í Ingesunds tónhstarháskólan-
um í Arvika í Svíþjóö og lýkur því
með 4 daga tónleikaferð um Svíþjóð
og Noreg. Á næsta ári er gert ráð
fyrir aö hópurinn verði stækkaður í
hundrað manna sinfóníuhljómsveit
og verður námskeiðið endurtekið
sumarið 1994 og lýkur það ár með
tónleikaferð um Finnland og Dan-
mörku.
Þeir íslensku tónhstarmenn sem
valdir hafa verið í hljómsveitina að
þesu sinni eru: Katarína Óladóttir,
fiðla, Haha Steinunn Stefánsdóttir,
fiðla, Eydís Sigríður Úlfarsdóttir, vi-
óla, Vigdís Másdóttir, víóla, Hrafn-
kell Orri Eghsson, sehó, Ólöf Sigur-
sveinsdóttir, sehó, Stefán Ragnar
Höskuldsson, þverílauta, Hahdór
Gylfason, fagott.
Hlutur íslands er stór í þessari
hljómsveit ef miðað er við íbúafjölda
hvers lands. Til dæmis má nefna þaö
aö ef hlutur Svía hefði átt að vera
jafn stór og hlutur íslendinga þá
hefðu þeir átt að eiga 150 manns í
hljómsveitinni en frá Svíþjóð koma
þrettán hljóðfæraleikarar. Flestir
koma frá Finnlandi, nitján.
Fagleg ábyrgð á efnisvah og tónhst-
arflutningi er í höndum Esa-Pekka
Salonen sem er einn af fremstu
hljómsveitarstjórum af yngri kyn-
slóðinni í heiminum í dag.
-HK
JÖdýrar
suwartðskur
Þú gleymir aldrei íslandi eftir að
hafa lesið Ólaf Jóhann Sigurðsson
- segir í gagnrýni um enska útgáfu af sagnaúrvali hans
Nýlega var gefið út í Bandaríkjun-
um úrval sagna eftir Ólaf Jóhann
Sigurðsson. I bókinni, sem nefhist
The Stars of Constantinople, er að
finna tíu smásögur og auk þess tvær
lengri sögur, Bréf séra Böðvars og
Litbrigði jarðarinnar.
Bókinni hefur verið vel tekið eins
og dómar bera vitni um. Þannig sagði
Alan Cheuse, prófessor viö George
Mason háskólann, í umfjöhun sinni
á útvarpsstöðinni WNYC í New York:
„Þú gleymir aldrei íslandi eftir aö
Nemendaleikhúsið frumsýndi á
laugardaginn Pelíkanann eftir
August Strindberg, leikrit sem
fjallar í grófum dráttum um sam-
band móður, sonar, dóttur og
tengdasonar fjölskyldunnar.
Leikstjóri er Kaisa Korhonen en
hún er í hópi virtustu leikstjóra
á Norðurlöndum. Myndin er úr
einu atriði leikritsins.
DV-mynd ÞÖK
hafa lesið Ólaf Jóhann Sigurðsson,
vegna þess að þú gleymir aldrei sum-
um hrífandi sögum hans... Úr skap-
festu ungra sögupersóna Ólafs Jó-
hanns og hrikalegri fegurð landsins,
sem þær setja mark sitt á, er ofinn
ljóðrænn og ákaflega vandaður
skáldskapur.“
í Library Joumal segir meðal ann-
ars: „Sigurðsson dregur upp mynd
af lífsins sorgum og harðri og óvæg-
inni náttúru sem réttlætir þýðinguna
fyllilega og verðskuldar athygli
enskra lesenda. Fleiri góðir dómar
um bók Ólafs Jóhanns hafa birst,
meðal annars í Publishers Weekly
og í Choice. Þess má geta að langt
er um hðið síðan jafn stór bók eftir
íslenskan höfund hefur veriö gefin
út vestanhafs.
Hér á landi hafa rit Ólafs Jóhanns
Sigurðssonar einnig fengið nýjar
umbúðir, en fyrir stuttu gaf Mál og
menning úr Stórbók Ólafs Jóhanns
Sigurðssonar með úrvah sem er um
margt svipað því bandaríska. Þar er
að finna smásögumar Píus páfi yfir-
gefur Vatíkanið, Stjörnurnar í
Konstantínópel, Reistir pýramídar,
Hengilásinn, Kerið gyhta, Bruni,
Gömul frásaga og Myndin í speglin-
um og Níunda hljómkviðan, auk þess
lengri sögur tvær, Litbrigði jarðan-
innar og Bréf séra Böðvars líkt og í
ameríska úrvalinu, en umfram það
er skáldsagan Gangvirkið í heilu lagi
í stórbókinni. Gangvirkið er upp-
hafsbindi bálksins um Pál Jónsson
blaðamann og kom út fyrst 1955, það
var endurútgefið síðast 1979 en hefur
verið ófáanlegt um nokkurt skeið.
Sigurður, Herdís og Örn með
blóm eftir sýningu á Dýrunum i
Hálsaskógi.
Sigurður,Örn
ogHerdísfengu
viðurkenningu
Að lokinni 50. sýningu á Dýrun-
um í Hálsaskógi var leikumnum
Sigurði Sigurjónssyni, ■ Emi
Ámasyni og Herdísi Þorvalds-
dóttur veitt viöurkenning úr Egn-
ersjóðnum sem stofnaður var á
25 ára afmæh Þjóðleikliússins
með gjöf frá Thorbjörn Egner til
Þjóðleikhússins. Gaf hann leik-
húsinu sýningarrétt oghöfundar-
laun allra verka sinna á íslandi.
Stofnframlagið var höfundarlaun
vegna sýninga leikhússins á
Kardimommubænum leikárið
1974-1975. Síðan hefur verið veitt
sjö sinnum úr sjóðnum til þrettán
einstaklinga. Veitingin í ár er sú
áttunda í röðinni.
Handbókumís-
lenskanframburð
Nýlega kom út Handbók um
íslenskan framburð eftir prófess-
orana Höskuld Þráinsson og
índriða Gíslason. Er hér um að
ræða viðamesta yfirlit sem gert
hefur verið tun framburö ís-
lensks nútimamáls. Mestur hluti
bókarinnar er ítarleg lýsing á ís-
lenskum málhljóðum og er birtur
framburður einstakra hljóða og
mjög margra hljóðsambanda þar
sem lögð er áhersla á að skýra
samhengi milli stafsetningar og
framburöar. Þá er í bókinni gerð
stutt grein fyrir rannsóknum á
íslenskum framburði og fjallað
um þá málræktarstefhu sem mót-
uð hefur verið I framburöarmál-
um. Það er Rannsóknarstofnun
Kennaraháskóla íslands sem gef-
ur bókina út.
ÞjóðMkhúsið:
Tvöíslensk
leikritfrestast
til næsta leikárs
Tvö ný íslensk verk, sem átti
að taka til sýningar á þessu leik-
ári í Þjóðleikhúsinu, verða ekki
sýnd fyrr en á næsta leikári. Eru
það leikritin Feröalok eftir Stein-
unni Jóhannesdóttur, sem sýna
átti á Smíðaverkstæðinu, og
Þrettánda krossferðin sem sýna
átti á stóra sviðinu. Ástæðan fyr-
ir frestun leikritanna er góð að-
sókn en á Smíðaverkstæðinuhef-
ur Stræti gengið fyrir fullu húsi
í allan vetur og þaö sama má
segja um Hafiö sem er búið að
vera í gangi frá því leikárið byrj-
aði
25 þúsund hafa
séd Stuttan Frakka
Aðsókn á nýjustu íslensku
kvikmyndina Stuttan Frakka
hefur verið mjög góð. Að sögn
annars framleiðandans, Kristins
Þórðarsonar, voru 25.000 manns
búnir að sjá myndina fyrir helgi
en þá voru liðnar rúmar þrjár
vikur frá frumsýningu. Um miðj-
an maí fer myndin til sýningar
úti á landi. Verður byrjað á Akur-
eyri. Kristinn sagöi aö verið væri
að undii-búa sýningu á myndinni
í Cannes þar sem hún verður
sýnd á kvikmyndamarkaðinum.