Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1993, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1993, Síða 19
MÁNUDAGUR 3. MAÍ 1993 19 Meiming Hækur Öskars Hækur er japanskt ljóðform, ákaf- lega knappt, sem ýmsir Vestur- landabúar hafa lagt stund á, allt frá því Ezra Pound fór að kynna þeim þær í upphafi aldarirmar. Undanfar- in ár hafa æ fleiri íslendingar ort undir þessum hætti. Þær yfirgnæfa í þessari fiórðu ljóðabók Óskars Árna, en eru með ýmsu móti. Upp- haflega japanska formiö er þrjár lín- ur, fyrsta og þriðja fimm atkvæði hvor, en miðlínan sjö. Ekki voru Jap- anir þó mjög stífir á þessari talningu og því síður er það hægt í svo ólíku tungumáli sem íslensku. Eftir sem áður er þetta þó mjög knappt form þar sem gefið er í skyn og dregin upp ópersónuleg mynd, í stað þess t.d. að Ijóðmælandi komi með persónulegar likingar. Helmingur þessarar bókar er þýð- ingar, einkum á hækum, 25 eftir jap- önsku stórmeistarana og 100 eftir Bandaríkjamenn. Og þar finn ég mést sláandi dæmin, t.d. þetta eftir Jack Cain (bls. 52): autt herbergi dinglandi heröatré vegur kyrröina Þama næst sérkennileg mynd í mjög stuttu máli, tómt herðatréð minnir á vog að uppbyggingu og hreyfingu, en hvað ætti það að vega? Á svipaðan hátt er önnur hæka byggð eftir Nic Avis (bls. 51): nýfallinn snjór - opna nýjan pakka af vélritunarpappír Hér er það hvíti liturinn sem teng- ir alóskylda hluti, svo ímyndunarafl lesenda fer að glíma við að finna tengsl. En þetta er mikil nákvæmn- islist, þegar naumhyggjan sker ljóðin niður f sem allra minnst, og stundum sýnist mér að tilefni til slíkra pælinga gefist ekki í textanum, hann sé nokk- um veginn flatur, t.d. þetta eftir Gustave Keyser (bls. 54): regnvott sumarkvöld ... skuggi af fiðrildi innan á lampaskerminum Fmmort ljóð Óskars fara bil beggja þegar best tekst til. Þá á ég við að einstakar hækur rúmi ekki veruleg- ar andstæður en saman í bálki myndi þær seiðandi skáldskap. Þar verða minnisstæðir Tindátar háloftanna, sem Óskar sendi frá sér 1990, og hér finnst mér þetta takast vel í fyrsta bálki þessarar bókar, en hann er samnefndur henni. Við reynum að koma honum fyrir hér í lokin. Þarna raðast saman einstakar ferðamynd- ir. Athugið að á’sviðinu er sjaldnast fólk, heldur yfirgefið drasl, og mikið um orð með neikvæðum blæ. Fjar- vera er það stef sem í ýmsum blæ- brigðum tengir myndirnar. Þessi eining sundurleitra hluta heillar: hvítasunna - brotinn regnbogi yfir Umferöarmiöstööinni Hvalíjaröarþokan - sálmasöngl aftast í rútunni eyðibýlið - tuskudúkka starir út um kvistglugga höndin skelfur þegar hann bendir á leiði systkina sinna tólf harmonikuhurðin dregin fyrir matsalinn í Hreðavatnsskála ryðgað bílhræ á heiðinni - hugsa um rigninguna á Þingvöllum ’44 afleggjarinn upp að Sveðjustöðum en engir Sveðjustaðir ekki séð sólarglætu í heila viku fyrr en nú í Hrútafirðinum Svartárdalur - einhver gleymt vasaljósi á brúsapallinum kirkjugarðshliðið hnýtt aftur með svörtu hálsbindi snjófól... lóur á túnum, Tröllaskagi í ijarska rofar til yfir Heljardalsheiði - nýkveikt tnngl Bókmenntir örn Ólafsson lít upp úr Issa í Haganesvík - hrossafluga á rúðunni rigning í Strákagöngum - spáir sólskini Nýja Bíó á Siglufirði - bláar teiknibólur í tómum útstillingarkassa Hótel Hvanneyri - fægir siifrið meðan ég skoða matseðilinn marrið í járnrúminu - Siglufjarðarmáninn Þetta er þriðja bókin í ljóðaklúbbi Máls og menningar, og hefur hann farið vel af stað. Vonandi verður út- breiðslan eftir því, þar gerði fólk góð kaup. Óskar Árni Óskarsson: Norðurleið. Mál og menning 1993, 77 bls. Oskar Arni Oskarsson. I fyrstasánn tvöfaldur l.viimingur Spilaðu með fyrir kl. í 16 á miðvikudaginn. Veröurhaim 4 kr.?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.