Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1993, Qupperneq 23
MÁNUDAGUR 3. MAÍ 1993
35
dv Fréttir
Bæjarstjóri Selfoss:
Skilagjöld
mikilvæg við
f lokkun sorps
„Aðalverkefni okkar er að koma
sorpmálunum í lag. Við höfum ekki
skoðað þetta til hlítar en við fylgj-
umst með flokkun sorps hjá þeim í
Hveragerði og ef þetta gengur vel
munum við að sjálfsögðu gera eitt-
hvað í máhnu hjá okkur. Það geta
ekki alhr farið í þaö sama,“ segir
Karl Björnsson, bæjarstjóri á Sel-
fossi, en Hvergerðingar sækja nú um
styrk úr Atvinnuleysistrygginga-
sjóði til að flokka pappír úr sorpi og
nýta hann við jarðrækt.
„Þetta er ókeypis flokkun hjá þeim
í Hveragerði þar sem íbúamir verða
látnir flokka sorpið þegar innan
veggja heimilisins. Framhaldið
ræðst svo af því hvernig Hvergerð-
ingar geta nýtt sér það sem til fehur
og hvort þeir nýta sér það á skynsam-
legan hátt. Ég held að skilagjöld
skipti geysilegu máh í þessu sam-
bandi og held að ef þau væru tekin
upp yrðu viðbrögðin góö,“ segir Karl.
Selfossbær er eitt þeirra níu sveit-
arfélaga sem hlutu staðfestingu
tryggingamálaráðherra um styrk úr
Atvinnuleysistryggingasjóði nýlega.
Selfyssingar höfðu sótt um styrk
vegna skógræktar- og umhverfis-
verkefna. Ætlunin er að ráða átta
menn í þrjá mánuði til að vinna í
Hellisskógi, innan bæjarins, og við
uppgræðslu við flugvölhnn. Þá er á
dagskránni að ráða sex menn í fjóra
mánuði til að vinna við grisjun skóga
í Þjórsárdal í samvinnu við Skógrækt
ríkisins. -GHS
Útigengið fé:
Júgrinfullaf mjólk
Guðfinnur Finnbogason, DV, Hólmavilc
Enn flnnst fé útigengið í Nauteyr-
arhreppi í N-ísafjarðarsýslu. Nokkr-
um dögum eftir að Jón bóndi Guð-
jónsson á Laugabóh fann fjórar úti-
gengnar kindur á Laugabólsdal - þar
af eina borna tveimur lömbum - fann
hann við leit eina kind útigengna
nýboma. Hefur hún verið í hópi
hinna í vetur en vikið frá þeim ný-
verið.
Nú sáust engin lömb, hvorki hfandi
né dauð, en júgur hennar voru fuh
af mjólk svo ekki hefðu þau átt að
deyja úr næringarskorti hefðu þau
komist á legg. Jón heyrði tvær tófur
gagga þar í dalnum svo hugsanlega
er þar komin skýringin á hvarfi
lambsins eöa lambanna að áhti hans.
Jón Guðjónsson telur líklegt að ekki
sé langt um hðið síðan þetta fé kom
norður yfir fjöllin úr Austur-Barða-
strandarsýslu.
Tjamargata:
Tilboðitekið
Borgarráð hefur samþykkt að taka
tilboði verktakafyrirtækisins Gunn-
ars og Guðmundar sf. í Tjarnargötu
og Tjamarbakkann, jarðvinnu og
lagnir, en fyrirtækið bauð rúmar 23
milljónir króna í verkið eða 84,5 pró-
sent af kostnaðaráætlun. -GHS
Akureyri
Egilsstaðir
Hornafjörður
Húsavík
ísafjörður
Patreksfjörður
Sauðárkrókur
Þingeyri
Vestmannaeyjar
6.230
8.200
7.270
7.010
5.830
5.660
5.630
5.600
4.160
Miðað er við að greitt sé fyrir báðar leiðir, fram
Fokker 50 flyturþig og til baka, með a.m.k. tveggja daga fyrirvara og að
á ftjúgandi ferð milli Reykjavtkur dvalið sé lengur en þrjár nætur. Bókunum er ekki hægt
og níu áfangastaða að breyta. Flugvallarskattur, 330 krónur, er. inni-
á íslandi á ótrúleguAPEX verði falinn og sætaframboð er takmarkað.
Það hefur aldrei verið jafnhagstætt að fljúga innanlands.
FLUGLEIDIR
þjóðbraut innanlands ‘
I ofninn, grillið
pottinn eða
pönnuna, aðeins
484^ í næstu verslun
BESTU KAUPIN í LAMBAKJÖTI