Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1993, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1993
Fréttir
Sighvatur Björgvinsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra:
Við metum mannskepuna
meira en sauðskepnuna
- þjóðin verður þá að svara því ef ekki má hreyfa við búvörusamningnum
Friðrik Sophússon fiármálaráð-
herra boðaði í blaðaviðtali í gær
niðurskurð á velferðarkerfinu.
Hann segir að velferðarkerfið verði
að laga að verri efnahag lands-
manna.
Sighvatur Björgvinsson heil-
brigðis- og trygginganiálaráöherra
hefur lýst því yfir að ekki komi til
greina að skera niður þjónustu í
heilbrigðiskerfinu. Hann var
spurður hvort ekki væri búið að
skera inn að beini í heilbrigðismál-
unum þannig aö þangaö væri ekki
meira að sækja.
„Það er rétt, ég ljæ ekki máls á
því að skerða þjónustu í heilbrigöi-
skerfinu. En þótt mikið sé búið að
skera niður í heilbrigðiskerfinu er
alltaf hægt að gera einhveijar ha-
græðingar og tilfærslur en það er
ekki mikiö svigrúm til þess,“ sagöi
Sighvatm-.
Hann var þá spuröur um búvöru-
samninginn, upp á 20 milljarða. Er
hægt að skera þar?
„Því ekki það. Það er pólitísk
spuming sem menn verða að
svara.“
- Hvað segið þið alþýðuflokks-
menn um það?
„Við metum meira heilsufar
landsmanna en heilsufar búpen-
ings.“
- Mætið þiö þá ekki andstöðu
„framsóknarmanna" allra flokka?
„Sjálfsagt. Verður þá ekki bara
þjóðin aö búa sig undir að svara
þeirri spumingu hvort hún virði
meira velferð sauðskepnunnar eða
velferð mannskepnunnar," sagði
Sighvatur Björgvinsson.
-S.dór
Elías Snæland Jónsson hlaut íslensku bamabókaverölaunin:
Lifandi og raun-
sönn lýsing
Borgarkringlan var slegin iðnlánasjóði, Iðnþróunarsjóði, Landsbankanum
og íslandsbanka á nauðungaruppboði í gær. DV-mynd ÞÖK
Borgarkringlan
slegin á 210
milljónir króna
Islensku bamabókaverðlaunin
1993 vora í gær afhent Elíasi Snæ-
land Jónssyni fyrir bók sína Brak og
bresti sem einnig kom á markaðinn
á vegum Vöku-Helgafells í gær. Þetta
er í áttunda skiptið sem verðlaun
þessi era afhent af Verðlaunasjóði
íslenskra bamabóka sem hinn vin-
sæli bamabókarithöfundur Armann
Kr. Einarsson stofnaði til. Þijátíu
handrit vora send í samkeppnina að
þessu sinni og var dómnefndin sam-
mála um að Brak og brestir væri það
handrit sem verðlauna bæri.
Ólafur Ragnarsson, formaður
stjómar Verðlaunasjóðsins, afhenti
F.líasi skrautritað viðurkenningar-
skjal sjóðsins en þar segir dómnefnd
um bókina: „Skáldsagan Brak og
brestir er lifandi og raunsönn lýsing
Ármann Kr. Einarsson rithöfundur
afhendir Elíasi Snæland Jónssyni
verðlaunin, 200 þúsund krónur. Á
mllli þeirra stendur Ólafur Ragnars-
son, bókaútgefandi og formaður
Verðlaunasjóðs íslenskra barna-
bóka. DV-mynd ÞÖK
á lífi og tilfinningum unghnga í sam-
tímanum. Höfundi tekst snilldarvel
að flétta spennu inn í áhugaverðan
söguþráö og leiða lesandann með
trúverðugri frásögn inn á sjaldgæft
svið unglingabóka, íslenskar jökul-
breiður. Hér birtist íslenskt mannlíf
og íslenskt náttúra í heillandi sögu
fyrir íslenska æsku.
„Ég byijaði að semja sögima þegar
ég lauk við unglingasöguna Davíð og
Krókódílamir sem kom út fyrir jólin
1991,“ sagðj Elías Snæland Jónsson.
„Ég var síðan að skrifa hana fram á
síðastliðið haust og var hún tilbúin
þegar auglýst var eftir bókum í sam-
keppnina um íslensku bamabóka-
verðlaunin."
Aðspurður sagði Elías aö saga þessi
væri mjög ólík Davíð og Krókódílun-
um. „Umhverfið er aUt annað. Brak
og brestir gerist úti á landi og á há-
lendi íslands en Davíð og krókódíl-
amir er meiri borgarsaga."
Aðalpersónumar í Brak og brest-
um era tvær, Hákon sem er fimmtán
ára reykvískur strákur. fíann flyst
út á land með foður sínum sem hefur
misst atvinnuna. Þar kynnist hann
Hönnu Stínu. Hákon eignast ýmsa
fleiri skemmtilega vini og kunningja
sem lífga upp á tilverana en skuggar
og atvik úr fortíðinni fylgja honum
í óvæntum ævintýrum á fjöllum
uppi.
Elías Snæland Jónsson, sem starf-
ar sem aðstoðarritstjóri á DV, hefur
sent frá sér nokkrar bækur, auk þess
sem hann hlaut fyrstu verðlaun í
samkeppni Stöðvar 2 1989 um besta
frumsamda sjónvarpsleikritið fyrir
handritiðBlóðnætur. -HK
Fjórir stærstu lánardrottnar Borg-
arkringlunnar, Iðnlánasjóður, Iðn-
þróimarsjóður, Landsbanki íslands
og íslandsbanki, leystu til sín fast-
eignir Borgarkringlunnar hf. fyrir
200 milljónir króna á framhaldsupp-
boði sem fram fór í Borgarkringlunni
í gær. Nýju eigendumir hafa ráðið
Jón Sigurðsson framkvæmdastjóra
til að kynna sér aðstæður í Borgar-
kringlunni og marka stefnu varðandi
framhaldið.
Eignir Borgarkringlunnar hf. voru
boðnar upp í fimm hlutum. Kringlan
4 að undanskilinni þriðju og fjórðu
hæð var slegin stóra veðhöfunum
flóram fyrir 150 milljónir. Kringlan
6 að undanskildum þremur verslun-
arrýmum á fyrstu hæð var einnig
slegin Landsbankanum, íslands-
banka, Iðnlánasjóði og Iðnþróunar-
sjóði fyrir 50 milljónir króna. Þá
leysti Birgir hf. til sín eitt verslunar-
rými á fyrstu hæð í Kringlunni 6.
Engin boð bárast í áttundu og níundu
hæð Kringlunnar 6 og taldist uppboð
á þeim eignum því árangurslaust.
Búist er við aö nýju eigendumir
fjórir stofni einhvers konar rekstrar-
félag um rekstur Borgarkringlunnar
en taliö er að þeir muni bíða eftir að
iönaðarráðuneytiö fjalli um stofnun
rekstrarfélagsins Hrauns hf. sem tók
við rekstri steypustöðvar Óss hús-
eininga nýlega.
Heildarskuldir Borgarkringlunnar
hf. námu um einum milljarði króna
en brunabótamat Borgarkringlunn-
ar var 1600-1700 milljónir króna.
Veðskuldir hlutafélagsins voru um
960 milljónir króna.
Verslanirnar halda áfram
„Borgarkringlan hf. fékk ekki þá
fyrirgreiðslu sem til stóð að hún
fengi og því fór sem fór. Þetta breyt-
ir engu fyrir verslunareigendur í
húsinu. Leigusalarnir eru bara aðrir.
Það er mjög líklegt að bankarnir
bjóði fyrr eða síðar verslunareigend-
um húsnæðið til kaups því að þeir
hafa ekkert með þaö að gera,“ segir
Margrét Rögnvaldsdóttir, formaður
markaðsnefndar Borgarkringlunn-
ar.
Víglundur Þorsteinsson, sfjómar-
formaður Borgarkringlunnar hf.,
segir að nú sé rekstur hússins kom-
inn úr þeirra höndum. Stjóm hluta-
félagsins snúi sér nú aö því að vinna
úr eftirstandandi eignum og Ijúka
skuldum án þess að til gjaldþrots
komi. -GHS
Stuttar fréttir
Forysta Sambands íslenskra
bankamanna segir uppsagnir 76
starfsmanna Landsbankans sið-
lausar og bijóta gegn kjarasamn-
ingi og lögum um hópuppsagnir.
Href na skotin
Hrefna hefúr verið skotin hér
við land, segir kaupmaður á Ak-
ureyri sem selur kjötið. Veiðieft-
irlitið ætlar að rannsaka.
Ríkisstjómin ætlar aö bjóöa út
í auknum mæli innkaup, þjón-
ustu og framkvæmdir ríkisins.
ræmdum prófum í stærðfræði í
vor en strákum. Árangur grunn-
skólanemanna var svipaður og
undanfarin ár.
Glitiagtniður
Ákveðið hefur verið að leggja
niður starfsemi Glits hf. vegna
mikils taps. 14 manns hafa starf-
að hjá fyrirtækinu.
Brúíhættu
Bruin yfir Jökulsárlón er i
hættu. Farvegur árinnar hefur
dýpkað verulega undanfarið.
Hringvegurinn gæti rofnað í
haust.
Hlutabréf lækka
Hlutabréf hafa hríðlækkað í
verði að undanförau. Nú er til
dæmis verið að selja bréf í ís-
landsbanka undir nafnvirði.
Útboð sparar
Með útboði á ræstingu stofnana
dómsmálaráðuneytis getur ríkiö
sparaö 66 miUjónir á fimm áram.
Tilboð hafa veriö opnuð. Tilboði
Sævars Ciesielski var hafnaö.
150 hvalaferðamenn
150 feröamenn munu fara í
hvalaskoöunarferðir í haust á
vegum Jöklaferða á Höfh.
35%minniatv8nna
Hátt í 1200 manns era nú á skrá
hjá Atvinnumiðlun námsmanna
en það er svipaður fjöldi og í
fyrra. Atvinnutilboðum hefur
hins vegar fækkað um 35%.
-Ari
Breiðholtslöggan enn a ferð:
Lokaði bruggverksmiðju
- hellti niöur næstum eitt þúsund lítrum af gambra
Lögreglan í Breiðholti hellti niður
nm 900 lítrum af gambra og lagði
hald á 30 lítra af landa í mikilvirkri
braggverksmiðju á 2. hæð í verk-
smiðjuhúsnæði við Súöarvog í gær.
Þá var einnig lagt hald á mjög fuU-
komið 200 lítra eimingartæki og
safnkút sem í vora gambri í suðu og
landi.
Tveir aðilar era taldir eiga tækin
og höfðu þeir verið með húsnæðið,
sem er um 200 fermetrar, á leigu í
hálfan mánuð. Braggaramir vora
ekki á staönum þegar ráðist var til
inngöngu í húsnæðið en á vettvangi
fundust munir sem taldir era í eigu
þeirra. Má þar nefna skólatösku með
stimdatöflu annars aðilans, sem er
nemandi í framhaldsskóla í Reykja-
vík, boxhanska og fleira. Báðir hinna
granuðu hafa komið við sögu bragg-
mála áður og var annar þeirra viðrið-
inn stórt braggmál sem kom upp í
febrúar og DV greindi-frá.
í lofti leiguhúsnæðisins hékk svo
kallaöur hlaupaköttur sem notaður
var til að flylja tunnur til innandyra
og framleiðsluna út úr húsnæðinu.
Lögreglan notaöi köttinn til að flytja
tækin úr húsinu og slakaði hún niður
7 brettum hlöðnum tunnum, eiming-
artækjum, pottum, rafmagns- og gas-
hellum sem lögreglan lagði hald á
og vart rúmuöust í tveimur lögreglu-
bílum sem fluttu tækin í geymslu.
Búið var að kvarta yfir starfsemi
bruggaranna í hverfinu undanfarið
og þegar lögreglan kom á vettvang
flutu á 2. hundrað lítra af gambra
um gólf húsnæðisins. -pp