Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1993, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1993, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1993 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÖNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Vextir geta lækkað Sitt sýnist hverjum um breytingar á vöxtum í kjölfar kjarasamninganna. Þó eru meginatriði, sem menn ættu að geta orðið ásáttir um. Ríkisstjómin gaf yfirlýsingu um vaxtamálin í tengslum við gerð kjarasamninganna. Þar segir, að ríkisstjómin muni stuðla að áframhaldandi lækkun vaxta. Vextir af ríkisverðbréfum höfðu farið lækkandi að undanfómu. Nafnvextir í bönkum höfðu einnig lækkað í seinni tíð, en óverulega. Ríkisstjómin segir í yfirlýsingu sinni, að mikilvægt sé, að þessi þróun haldi áfram og aðgerðum í peningamálum verði hagað þannig, að forsenda verði fyrir lækkun vaxta. Þetta eigi einnig við um aðgerðir, sem lúta að viðskiptum Seðlabankans og innlánsstofn- ana, þar á meðal bindiskyldu. Sala á ríkisverðbréfum hefur í auknum mæh farið fram með fijálsu útboði á markaði. Þessu verði haldið áfram og fjölbreytni í fi-amboði bréfa aukin, meðal ann- ars með útgáfu ríkisverðbréfa í erlendri mynt á innlend- um markaði. Lánsfjárþörf opinberra aðila „verður tak- mörkuð eins og kostur er til að forðast neikvæð áhrif á þróun raunvaxta," segir í yfirlýsingunni. Þessi yfirlýsing má ekki viha fólki sýn. Samtímis hef- ur ríkissjóður tekið á sig mjög auknar skuldbindingar, sem að öhum líkindum munu verða tU að auka umsvif ríkisins á lánsfiármarkaði. Nú stefnir í 13 mUljarða haUa á flárlögum í ár - hið minnsta. Fyrir kjarasamningana voru horfur á, að lántökuáform opinberra aðUa á innlend- um markaði yrðu ríflega helmingur af öUum nýjum spamaði ársins. Ríkið keyrir upp raunvexti með svo miklum umsvifum á lánsfjármarkaði. Það yrðu afleiðing- ar kjarasamninganna á raunvextina, ef ríkisstjómin kemur ekki á óvart með stórfeUdum niðurskurði ríkisút- gjalda. Það yrðu skref í rétta átt, ef dregið yrði úr bindi- skyldu. Óhæft er, að Seðlabankinn hafi hagnað upp á 2,3 mUljarða króna eins og var á síðasta ári. En skiljanlegt er, að sumir bankamenn dragi í efa, að áhrif kjarasamninganna verði vaxtalækkun að því er tekur tU umsvifa rUdsins og aðgerða þess. Á hinn bóginn má færa rök að því, að lækkun vaxta hafi „verið í pípun- um“ frá því fyrir gerð kjarasamninganna. Margir munu minnast þess, að Seðlabankinn taldi í marz, að vextir gætu lækkað um 1-2 prósentustig vegna aðgerða Seðlabankans. Þá hafði Seðlabankinn lækkað útlánsvexti, sem viðstóptabankamir greiða fyrir fyrir- greiðslu í Seðlabanka, og hækkað innlánsvexti, sem inn- lánsstofnanir fá í Seðlabankanum bæði af lausum inn- stæðum og bundnu fé. Seðlabankinn lækkaði þá einnig vexti af tilboðum sínum í ríkisvíxla á markaði. Þessar gerðir Seðlabankans hefðu vissulega átt að leiða til vaxtalækkunar en gerðu það í raun ektó nema að hluta. Því má halda fram, að bankamir eigi enn efdr að standa við sitt með einhverri lækkun vaxta. Hitt ætti þó að vega enn þyngra, að bankamir hafa miðað nafnvexti við meiri verðbólgu en í stefhir. Viðmið- unin hefur hingaö til verið aUt að 3ja prósenta verð- bólga. Horfur hafa lengi verið á því, að verðbólgan yrði mitóu minni. Því hafa nafnvextir verið óeðhlega háir. Nú, efdr kjarasamningana, ættu bankamenn að opna augun fyrir þessari staðreynd og lækka nafhvextina. Áhrif kjarasamninganna á vaxtastigið em misvisandi. En að öUu samanlögðu verður að telja, að vextir gætu lækkað, vegna þess, að „lækkun sé í pípunum". Haukur Helgason NORO0 Af hverju sækja Norðmenn um aðild að EB? Norska ríkisstjómin sótti um aðild að Evrópubandalaginu til þess aö taka þátt í hinni auknu samvinnu Evrópuríkja og taka jafnframt á sig sinn hluta af ábyrgðinni á friði, framþróun og stöðugleika í álfunni. Aðildarum- sóknin var lögð fram eftir miklar umræður. Norðmenn sækjast eftir fullri þátttöku í sameiginlegri ut- anríkis- og vamarstefnu EB og gera sér grein fyrir síaukinni þýðingu Evrópubandalagsins í alþjóða- stjómmálum. Norðmenn eiga mikil viðskipti við EB og vom á árinu 1991 í 7. sæti sem innflytjendur til EB og 8. mesta útflutningsland EB. Norð- menn segja aö efnahagslegar að- stæður í Evrópu kalii á sameigin- legar aðgerðir til þess að minnka atvinnuleysi og koma á varanleg- um hagvexti. Þeir vilja taka þátt í slíkum sameiginlegum aðgerðum og segja það sérstaklega mikilvægt fyrir opið hagkerfi og efnahagslíf sem er nátengt öllum hræringum hjá helstu viöskiptaþjóðum. Séraðstæður Norðmanna Norömenn benda á olíuauðlindir sínar og að Evrópubandalagið við- urkenni forræði aðildarríkja yfir náttúruauðlindum sínum. Þeir segja að ríkiseign á olíulindum verði áfram undirstöðuatriði 1 norskri stjómarstefnu. Norðmenn ætla sér stóran hlut í mótun orku- stefnu Evrópubandalagsins. Sjávarafurðir em 11% af vömút- flutningi Norðmanna en sjávarút- vegur þeirra gegnir stóm hlutverki Kjallaiiim Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Verslunar- ráös íslands í byggðastefnunni. Fyrir Norð- menn er þýðingarmikið að tryggja góða stjóm á fiskveiöum í sam- ræmi við veiöiþol fiskistofnanna. Norðmenn telja sig geta lagt mikið af mörkmn til mótunar sameigin- legrar fiskveiðistefnu EB. Þeir telja að í aðildarviðræðunum verði að taka tillit til sérstakra aðstæðna 1 norskum sjávarútvegi og gagn- kvæman aögang að fiskimiðunum eigi að miða við núverandi samn- inga. Norskur landbúnaður er stund- aður við erfiðar veðurfarslegar að- stæður sem hin sameiginlega land- búnaðarstefna Evrópubandalags- ins er ekki sniðin til að fást viö. Norömenn telja að tillit verði að taka til þessara sérstöku aöstæðna og benda sérstaklega á byggðarlega þýðingu landbúnaðarins. Norð- menn leggja áherslu á að þeir hygg- ist reka öfluga byggðastefnu innan þess ramma sem EB leyfir og varð- veita í meginatriöum núverandi byggðamynstur og tryggja sem jafnasta afkomumöguleika íbú- anna. Norskan verði EB-mál Norðmenn vilja aö sérstakt tillit verði tekið til samvinnu á norður- slóðum, umhverfismála og áfengis- stefnu sinnar. Að öðru leyti telja Norðmenn sig vel geta búið við hina sameiginlegu viðskipta- og tollastefnu bandalagsins. Norð- menn sækjast eftir öllum þeim áhrifum sem þeim ber innan EB, þ. á m. að norskan verði eitt af EB-tungumálunum. Vilhjálmur Egilsson „Norömenn ætia sér stóran hlut í mót- un orkustefnu Evrópubandalagsins.“ Skodanir annarra Sjálfstæð borgarmenning „Til að koma upp sjálfstæðri borgarmenningu í landinu verður að læra allt sem nýtanlegt er af bændamenningunni gömlu og bæta henni upp þá annmarka sem hún hafði. Ekki 'J1 viðhalds henni, eins og lengi hefur verið gert neidur til þess að mannlíf og hugvit fái dafnað í iandinu með öðrum hætti en á þeim vandamálakjörum sem fylgt hafa borgarastéttinni íslensku undanfarna áratugi." Þorsteinn Antonsson í Tímanum 25. maí Elli kerling „Vitað er að elli felst í grófum dráttum í því að líkaminn slitnar, dagleg „notkun" veldur smám sam- an skemmdum á vefjum líkamans. Þetta sht tengist hins vegar ekki endilega hrömun, hún getiir ekki síst átt sér stað í líffærum sem htið reynir á. Á sama tíma dregur úr hæfni líkamans til aö veijast sjúk- dómum og bæta þann skaða sem þeir valda. Þrátt fyrir að sjúkdómar leggist tilviljanakennt á fólk, hgg- ur hæfnin til að veijast þeim í genunum. Það er skýringin á því hvers vegna sumir geta ástundað óheilbrigða lifhaðarhætti alla ævi án þess að kenna sér meins, en aðrir lúta í lægra haldi fyrir sjúkdóm- um þrátt fyrir að hafa lagt áherslu á heilbrigt lífemi.“ Guðmundur Þorgeirsson í Mbl. 23. maí Fjárlagagerð „Það er ekki lengur þannig að fiármálaráöherr- ann geri tihögur um hvað eigi að standa í fjárlaga- frumvarpinu, og síðan leiðrétti hinir ráðherramir það, sem þeir telja að hafi farið úr skorðum, í sam- vinnu viö þingiö. Við höfum tekiö upp' ný vinnu- brögð, sem hafa reynzt mjög vel; að fjárlagaundir- ■búningurinn á sér stað úti í ráðuneytunum og öh ríkisstjómin ber síðan ábyrgð á niðurstöðunni.“ Friðrik Sophusson i Mbl. 25. mai

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.