Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1993, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ1993
Fréttir
25 ára afrnæli hægri umferðar:
Aðalatriðið að breyta
hugsunarhættinum
Það var klukkan sjö að morgni fyr-
ir réttum aldarfjórðungi sem Valgarð
Briem hæstaréttarlögmaður lýsti því
yfir í útvarpi að nú væri hægri um-
ferð í gildi á íslandi. „Þetta var enda-
punkturinn á starfi sem staðið hafði
Valgarð Briem: Mikilvægt var að
fræða almenning eins vel og kostur
var. DV-mynd ÞÖK
frá því um haustið 1966,“ segir Val-
garð, sem þá var formaður hægri-
nefndarinnar, en hún sá um fram
kvæmd þessara víðtæku breytinga.
„Við komumst fljótt að því að undir
þúningurinn var mun umfangsmeiri
en ætlað var. í upphafi var ekki gert
ráð fyrir miklum fiárútlátum vegna
breytinganna en undirbúnings-
nefndin gerði sér fljótt grein fyrir því
að meira þurfti til en breytingar á
samgöngutækjum og umferðar-
merkjum. Aðalatriðið var nefnilega
aö breyta hugsunarhætti fólks því
allir þurftu að breyta gömlum vana
og taka upp nýjan, bæði ökumenn
og gangandi vegfarendur."
Sænska fyrirmyndin
„Svíar höfðu skipt yfir í hægri
- segir Valgarð Briem sem lýsti formlega yfir hægri umferð
umferð haustið 1967 og þegar við
höfðum samband við hægri nefndina
þar voru þeir boðnir og búnir til að
aðstoða okkur. Við sem störfuðum
að þessu hér vorum boönir til Stokk-
hólms til að fylgjast með hægri deg-
inum þar og þá gerðum við okkur
grein fyrir mikilvægi þess að fræða
almenning eins vel og kostur var.
Mótmælabylgja
Þegar líða tók að H-deginum kom
upp mikil andstaða gegn breyting-
unni. Menn töldu að í kjölfarið myndi
fylgja aukning umferðarslysa og
sumir gengu svo langt að spá helm-
ingsfjölgun dauðaslysa í umferðinni.
Mótmælin og umræðumar voru
hvað'heitastar um sumarið og haust-
ið 1967 og í desember var borin upp
á Alþingi tillaga um þjóðaratkvæða-
greiöslu. Sú tillaga var felld og eftir
það var undir búningsstarfið sett í
fullan gang enda ekki mikill tími til
stefnu. En höfðu þessi mótmæli ekki
neikvæð áhrif?
„Nei,“ segir Valgarð, „því fólk gerði
sér grein fyrir hættunum sem óhjá-
kvæmilega fylgdu þessu og ég held
að almennt hafi fólk kynnt sér þetta
mjög vel. Við lögðum líka áherslu á
að allir væm jákvæðir og tækju hlut-
unum með ró og það hafði þau áhrif
að þegar aö breytingunni kom settu
allir upp hægra brosið!“
Stundin stóra
Klukkan sex að morgni sunnu-
dagsins 26. maí var boðað umferðar-
bann og klukkutíma síöar, eftir að
skipt hafði verið um umferðarmerki,
var því formlega lýst yfir að hér gilti
hægri umferð. Fólk hafði verið hvatt
til að fara út að keyra og vera með
frá byrjun, til þess að allir vendust
breytingunni. „Ég minnist þess að
hafa ekið eftir Hringbrautinni og séð
Akstur á vinstrl vegarhelmingi Laugavegar rétt fyrir breytingu 26. maí 1968.
raðir af bílum sem mjökuðust áfram.
En allir bflsfjóramir vom skælbros-
andi!“
Óhapp í Lækjargötu
Þó að margir hafi spáð slysaöldu
eftir breytingarnar kom þó annað á
daginn. Ohöppum fækkaði verulega
í umferðinni og sem dæmi má nefna
að árið 1968 vom aðeins 6 dauðaslys
í umferðinni, miðaö við 24 árið áður.
Fyrstu dagana á eftir kom fyrir að
menn gleymdu sér en smáóhöppum
var tekið með bros á vör. „Tveimur
dögum eftir breytinguna henti það
mig að keyra inn á vitlausa akgrein
á Lækjargötunni," segir Valgarð. „Sá
sem var svo óheppinn að keyra fram-
an á mig var auðvitað brosandi í
umferðinni eins og allir aðrir en
hann hefrn- sennilega aldrei brosað
breiðar en þegar hann sá að þaö var
formaður hægrinefndarinnar sem
hafðigertþessimistök!" -bm
I dag mælir Dagfari
DV segjr um síðustu helgi að Jó-
hannes í Bónusi hafi keypt inn tvö
tonn af smjörlíki frá útlöndum og
hafi þurft að henda smjörlíkinu á
haugana af því að hann fékk ekki
að selja það. Sagt er að Jóhannes
sé ævareiður út af þessu máli. Við-
skiptaráðherrann, Jón Sigurðsson
úr Alþýðuflokknum, hafi lofað
honum aö þetta mætti selja.
Mikill voðalegur kjáni er Jó-
hannes í Bónusi ef þetta er rétt eft-
ir haft. Veit ekki kaupmaöurinn að
það er bannað að flytja inn land-
búnaðarvörur eða hliðstæðar vör-
ur, sem keppa við landbúnaöinn?
Veit hann ekki aö viðskiptaráð-
herra hefur ekkert með viðskipti
frá útlöndum að gera, hvað þá ef
landbúnaðurinn í landinu hefur
um það minnstu grunsemd að inn-
flutningur geti dregið úr sölu á is-
lenskri landbúnaðarframleiðslu?
Og það er jafnvel ennþá verra ef
verð á þessari innfluttu vöru er
lægra en verð á sambærilegri vöru
sem framleidd er hér á landi. Þá
er verið að ögra hagsmunum land-
búnaðarins og þá er landbúnaðar-
ráðherra að mæta.
Landbúnaðarráðherra ræður því
sem ráða þarf í þessum málum. Og
landbúnaðarráðherra er enginn
Smjörlíki á haugana
smákall. Eftir því sem Moggi segir
er Halldór Blöndal orðinn foringi
landsbyggðarmanna í Sjálfstæðis-
flokknum enda frændi Bjama heit-
ins Benediktssonar og líkist að
mörgu leyti Ingólfi Jónssyni og
öðrum fomum köppum í Sjálfstæð-
isflokknum sem stjómuöu lands-
byggðinni.
Sjálfstæðisflokkurinn er tveir
flokkar samkvæmt þessari skil-
greiningu. Annar er á höfuðborg-
arsvæðinu og Moggi hefur ekki
beinlínis kveðið upp úr með það
hver sé foringi þess flokks. En svo
er Sjálfstæðisflokkur landsbyggð-
arinnar og Halldór Blöndal er orð-
inn ókrýndur foringi þess flokks
eftir að hann stóð í rimmunni um
það hver ráði, hvort innflutningur
sé leyfður á vamingi, sem ógnar
landsbyggðinni og landbúnaðin-
um. Þá orrastu vann Halldór
Blöndal gegn skrípinu honum Jóni
Baldvin og Jón Sigurðsson á ekki
að vera gefa kaupmönnum undir
fótinn með einhvem innflutning
þegar ljóst er að þeir kratamir og
skrípin í ríkisstjóminni með Sjálf-
stæðisflokki landsbyggðaiinnar
ráða engu, alls engu.
Ef menn era svo vitlausir að taka
mark á ráðherrum, sem ekki era í
landsbyggöarflokki Sjálfstæðis-
flokksins, þá geta þeir hér eftir
ekið sínum innfluttu vörum bein-
ustu leið á haugana án þess að
ómaka sig á frekari viðtölum við
ráðherra eða ráðuneytisstjóra sem
ekkert hafa með mál landsbyggðar-
flokks Sjálfsætðisflokksins að gera.
Smjörlíkið hans Jóhannesar í
Bónusi var hættulegt landbúnaðin-
um. Það var bæði ódýrara heldur
en smjörlíkið sem landsbyggðar-
flokkurinn framleiðir og það var
að sumu leyti betra og svoleiðis
innflutningur kemur ekki til greina
á þeim tímum, þegar landbúnaður-
inn berst fyrir því með kjafti og
klóm að þjóðin kaupi innlenda
framleiðslu á því verði sem lands-
byggðarflokkurinn hefur ákveðið.
Smjörlíki frá útlöndum er best
geymt á haugunum. Það hefur það
óhagræði í fór með sér að neytend-
ur og launafólk fái ódýrara smjör-
líki og það stríðir gegn þeirri opin-
bem stefnu landsbyggðarflokksins
í Sjálfstæðisflokknum að halda
vömverði sem hæstu í þágu lands-
byggðarinnar sem tryggir þannig
völd Halldórs Blöndals og annarra
foringja úr Sjálfstæðisflokknum,
sem halda völdum sínum út á
stuðning frá landsbyggðinni. Án
þessara manna væri enginn Sjálf-
stæðisflokkur og án Sjálfstæðis-
flokksins væri hér enginn stjóm-
málaflokkur sem berðist fyrir frelsi
í innflutningi og lögmálum mark-
aðarins og hagsmunum neytendá.
Hvaöa gagn er að slíkum stjóm-
málaflokki ef hann berst ekki gegn
stefnumálum sínum til að geta bar-
ist fyrir stefnumálum sínum?
Flokkurinn væri þá óþarfur og til
slíks má ekki koma. Þess vegna
eiga kaupmenn sem styðja Sjálf-
stæðisflokkinn að hætta innflutn-
ingi sem stefnir tilveru Sjálfstæðis-
flokksins í hættu. Sérstaklega
landsbyggðarfiokksins, en út á
hann fær Sjálfstæðisflokkurinn at-
kvæði til að viðhalda völdum sín-
um til að beijast fyrir stefnumálum
sínum.
Dagfari