Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1993, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ1993
13
Neytendur
A meðal þess sem finna má á tilboðsverði hjá stórmörkuðunum yfir hvítasunnuna eru ýmsar tegundir af kjöti,
gosdrykkir, brauð, grillkol, súkkulaði og bleiur svo eitthvað sé nefnt.
Sértilboð og afsláttur:
Fjölbreytt úrval af
vörum á tilboði
Um hvítasunnuhelgina, sem nú er
framundan, bjóða stórverslanimar
upp á mikið og fjölbreytt úrval af
vörum á tilboðsverði.
Bónus
Sértilboðin í Bónusi gilda frá
fimmtudegi til laugardags. Á tilboðs-
verði eru S.Ö. framhryggjarsneiðar
á 679 krónur kílóið, Búrfellsborgarar
(4 stk.) með brauði á 199 krónur,
Royal Oak grillkol (4,5 kg) á 199 krón-
ur, uppkveikilögur, 1 lítri, á 97 krón-
ur og servíettur (300 stk.) á 99 krón-
ur. Ef keyptar eru 20 Goðapylsur fást
10 pylsubrauð, sinnep og tómatsósa
frítt með. Þá er SS tilboðsbakki með
10 pylsum, 8 hamborgurum og hrá-
salati og sinnepi á 899 krónur. Þá eru
15 dósir af kóki eða diet kóki á 690
krónur, (46 krónur fyrir dósina), Sír-
íus ijómasúkkulaöi (100 g), á 89 krón-
ur, MS sumarpakki, 15 íspinnar, á
349 krónur og Bónus diet kók, 2 lítr-
ar, á 79 krónur.
í Bónusi er veittur 10% afsláttur
af öllum kjötvömm, t.d. grillkjöti,
pylsum, áleggi og fersku kjöti.
Kjöt og fiskur
Tilboðin í Kjöti og fiski í Mjódd
gilda frá fóstudegi til laugardags. Á
tilboðsveröi er hamborgari með
brauði á 59 krónur stk., kryddaður
eða ókryddaður svínahnakki á 735
krónur kílóið, Sól appelsín, 2 lítrar,
á 119 krónur, svínarif á grillið á 490
krónur kílóið og Libero bleiur á 898
krónur pakkinn. Þá er Sun appels-
ínusafi, 1 lítri, á 79 krónur, Viktoríu
vanillu- og súkkulaðikex (300 g) á 89
krónur pakkinn, Boland sítrónukex
(150 g) á 56 krónur pakkinn og Ritz
kex (200 g) á 67 krónur pakkinn.
Fiskur er ávallt á tilboðsverði á
mánudögum hjá Kjöti og fiski. Á
þriðjudögum er kjötfars á tilboðs-
verði og saltkjöt á miðvikudögum. Á
fimmtudögum em svo 10-15 tegundir
af grænmeti á lækkuðu verði.
Fjarðarkaup
Tilboðin í Fjarðarkaupum í Hafn-
arfirði taka gildi í dag, miðvikudag,
og standa yfir helgina. Á tilboðsverði
eru bökunarkartöflur á 69 krónur
kílóið, perur á 89 krónur kílóið, gular
melónur á 115 krónur kílóið og hvít-
ur, skorinn aspas á 59 krónur. Þá em
nauta T-bein á 998 krónur kílóið og
einnig nautakótelettur á 998 krónur.
Hálfúrbeinað og marinerað læri er á
848 krónur kílóið, ískóla, 2 lítrar, á
99 krónur og fin og gróf samloku-
brauð á 98 krónur stykkið.
Nautaveisla kúabænda:
„Gæðaátakið" veldur deilum
- kaupmenn ekki ánægðir með verðið
Nautaveisla nefnist ný pakkning
með nautakjöti sem nautgripabænd-
ur hafa komið á markaðinn en hún
inniheldur 6 kíló af sérvöldu nauta-
kjöti í kössum.
Nautgripabændur segja vöruna
vera allt að því 30% ódýrari en sam-
bærilegt nautakjöt á markaðnum en
skiptar skoðanir em um þá fullyrð-
ingu. „Ef kjötið væri keypt í lausu
hjá okkur myndi verðið vera 3.620 í
staö 4.194 krónur eins og kúabændur
bjóða upp á. Þannig að það er enginn
akkur í þessu fyrir okkur,“ sagði Jón
Ásgeir Jóhannesson, sölustjóri í
Bónusi. Hagkaup hefur heldur ekki
sýnt tilboði nautgripabænda áhuga.
Á blaðamannafundi, sem naut-
gripabændur héldu fyrir skömmu,
kom fram að töluverð vonbrigði
hefðu orðið vegna þess að fleiri versl-
anir hefðu ekki sýnt nautaveislunni
áhuga. Guðmundur Lámsson, for-
maður Landssambands kúabænda,
telur að hér sé um samráðsaðgerðir
ýmissa kaupmanna að ræða.
Alls em um 30 (200 g) máltíðir í
hverjum kassa sem kostar 139,80
krónur hver.
Nautgripabændur nefna einkum
fiögur atriði sem gert hafi þeim kleift
að bjóða neytendum þetta verð. Þ.e.
tiltekin sláturhús lækkuðu slátur-
kostnað sinn umtalsvert á því kjöti
sem fer í nautaveisluna, hagstæðir
samningar hafi náðst við kjöt-
vinnsluaðila um kostnað við úrbein-
ingu, pökkun og dreifingu á vör-
unni, smálsöluálagningu verslana sé
stillt í hóf og í síðasta lagi að naut-
gripabændur hafi lagt fram tiltekna
fiármuni í sérstakan kynningaraf-
slátt.
-KMH
DV-mynd Óli Jóhann, Hveragerði
Risagúrka í
Hveragerði
Þeir urðu steinhissa í verslun
Kaupfélags Ámesinga í Hveragerði á
dögimum þegar þeim barst gúrku-
sending frá Óttari Baldurssyni,
Gróðurmörk 4 í Hveragerði. Þar var
risagúrka, sú stærsta sem sést hefur
í þeim bæ. Halldór Halldórsson
kaupfélagssfióri setti gúrkuna strax
á vigtina og reyndist hún 2 kg - eða
helmingi þyngri en venjulegar gúrk-
ur. Gúrkan er jafnvel lengri en fram-
handleggur kaupfélagssfiórans.
í Neskaupstað var nýlega eftrt til átaks gegn slysum bama á reiðhjól-
um. Að átakinu stóðu ýmsir aðilar í bænum en þátttakendum, nemend-
um Nesskóla, var skipt í (Jóra hópa þar sem horft var á myndband um
hjólreiðar og hjólreiðahjálma. Einnlg var tarið f hjólreiðatúr um bælnn
þar sem skoðaðir voru þeir slaðír sem öðrum fremur eru hættulegir í
umterðínni. DV-mynd Hjörvar Sigurjónsson, Neskaupstað
Leirlist á Kjarvalsstöðum
Sigmar Knútsson og Svandis Grétarsdóttir voru við opnun sýningar Rögnu
Ingimundardóttur á Kjarvalsstöðum en leirlistakonan sýnir þar vasa, skálar
og lampa sem hún hefur verið að móta og mála undanfarin ár. DV-mynd JAK
íslenskt skart
Laugavegi 92 - s. 91-626355
Félagsfundur
Félags hárgreiðslu- og hárskerasveina
Félagsfundur um nýgerða kjarasamninga verður
haldinn miðvikudaginn 26. maí 1993 kl. 20.00 í Ing-
ólfsbæ, Ingólfsstræti 5
Fundarefni:
Nýgerðir kjarasamningar lagðir fram til afgreiðslu.
Sýnum samstöðu, mætum á fundinn.
Félag hárgreiðslu- og hárskerasveina