Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1993, Side 28
40
MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 1993
Smáauglýsingar
■ Verslun
Útsala - sumar - útsala. Fullt af
spennandi garni. Nýju prjónabækurn-
ar komnar! Garnhúsið, Faxafeni 5.
Glæsilegir sumarjakkar og -kápur i
ferðalagið, vinnuna o.fl., o.fl.
Fjölbreytt úrval. Gott verð. Póst-
sendum. Opið á laugardögum til 16.
Topphúsið, Laugavegi 21, s. 25580.
Dugguvogi 23, simi 91-681037.
Fiarstýrð flugmódel, þyrlur og bátar,
einnig mikið af aukahlutum. Allt efni
til módelsmíða. Sendum í póstkröfu.
Opiðl3 18 virkadaga, lokað iaugard.
Gott tilboð. Útvíðar barnabuxur 950.
Mikið úrval af göllum frá 1.250, jogg-
ingbuxur á börn og fullorðna, vesti á
fullorðna 1.680, úrval af bolum. Sólar-
farar: léttir sloppar 990. Sendum í
póstkröfu, fríar sendingar miðað við
5.000. Ceres, Nýbýlavegi 12, s. 44433.
Komdu þægilega á óvart. Fullt af
glænýjum vörum: stökum titrúrum,
settum, kremum, olíum, nuddolíum,
bragðolíum o.m.fl. f. dömur og herra.
Sjón er sögu ríkari. Allar póstkröfur
dulnefndar. R&J, Grundarstíg 2, s.
14448. Opið 10 18 v.d., laugard. 10 14.
■ Vagnar - kerrur
Á flestar gerðir bíla. Ásetning á
staðnum. Allar gerðir af kerrum. Allir
hlutir í kerrur. Veljum fslenskt. Verið
velkomin í sýningarsal okkar.
Víkurvagnar, Síðumúla 19, s. 684911.
Þ.rátt fyrir gengisfellinguna hefur
verðið á Dandy ferðavögnunum lækk-
að verulega. Pantanir til afgreiðslu í
júlí þarf að staðfesta án tafar.
Kaupsýsla sf., Sundaborg 9, s. 677636.
Sími 632700
Sumartilboð.
Fólksbílakerrur, galvhúðaðar, burð-
argeta 250 kg. Verð aðeins 42.600 stgr.
Meðan birgðir endast. Einnig allar
gerðir af kerrum, vögnum og dráttar-
beislum.
Víkurvagnar, Síðumúla 19,
sími 91-684911.
■ Sumarbústaöir
Glæsilegir arinofnar (kaminur).
Þrjár gerðir, kynningarverð, 20% afsl.
Verð 97.650, 98.900, 99.800.
Íslensk-slóvakíska, Borgartúni la,
húsi Bílakaupa. Sími 91-626500.
Heilsárshús.
Sumarhúsin okkar eru úr völdu, brot-
þolsflokkuðu efni og þau eru auðveld
í uppsetningu. Stærðir frá 11 m2 upp
í 120 m'-’. Verðdæmi: 60 m- hús (sýning-
arhús á staðnum) með 25 m- verönd
og eldhúsinnréttingu kr. 3,6 milljónir.
Góð greiðslukjör. Teikningar og öll
þjónusta við uppsetningu húsanna.
Trésmiðja Hjörleifs Jónssonar,
Kalmansvöllum 4, 300 Akranesi,
s. 93-12277 & 93-12299, fax 93-12269.
Veljum íslenskt. Arinofnar í þremur
gerðum. Smíðum einnig eldhólf, hlið
og leiktæki. Vélsmiðjan Gneisti hf.,
Smiðjuvegi 4E, Kópav., s. 677144, fax
677146. Opið 7.30-17, föstud. 7.30-16.
I Skorradal - frábært útsýnl.
95 km frá Rvík er fallegur sumar-
bústaður, 58,6 m2, til sölu. Fullklárað-
ur að utan m/vatnsklæðningu, þak
m/svörtu stallajárni, einangrað gólf,
55 m- verönd, rotþró. Raflögn inni-
falin án heimtaugar. Möguleiki að
skila fullbúnum. Stendur í Vi ha leigu-
landi í Vatnsendahlíð nr. 43. Mark-
aðsv. 3,5 m., okkar v. 2,5 m. Til sýnis
um helgina. Verið velkomin. S. 40628.
■ Bátar
Quicksilver gúmmibátar, 4 stærðir.
Mercury utanborðsmótorar. Fjöldi
stærða á lager. Vélorka hf., Granda-
garði 3, Reykjavík, sími 91-621222.
Þessi bátur er til sölu.
Skel 80, smíðaður 1988, ný vél, króka-
leyfi, 3 DNG rúllur. Vel búinn tækjum.
Upplýsingar í síma 94-2036.
Merming
Haukur Tómasson
Tónleikar voru í gærkvöldi á Kjarvalsstöðum. Þar
flutti Caput-hópurinn verk eftir Hauk Tómasson.
Tónleikamir voru haldnir á vegum Kjarvalsstaða og
eru liður í röð tónleika undir fyrirsögninni Nútíma-
tónlist á Kjarvalsstöðum. Þrjú verk voru flutt, Eco del
Passato, Tríó og Spírall. Tríó var frumflutt þarna en
Eco del Passato og Spírall hafa heyrst áður.
Haukur Tómasson er vel kunnur orðinn þeim sem
áhuga hafa á nýrri tónlist hér á landi fyrir hugmynda-
auðug verk sem eru unnin af vandvirkni og meiri
fæmi en almennt gerist um tónskáld nú til dags. Mik-
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
il rök eru fyrir þeirri gagnrýni sem oft er haldið fram
um list nútímans að einkenni hennar sé hroðvirkni
og atgervisskortur. Mönnum nægir það eitt að lýsa
því yfir að þeir séu rithöfundar, listmálarar og jafnvel
tónskáld til þess að vera viðurkenndir sem slíkir og
njóta frægðar og vinsælda. Enginn spyr um sköpunar-
mátt, þekkingu eða þjálfun. Margar frægustu liststefn-
ur nútímans hafa það einmitt að markmiði að gera
allar kröfur um atgervi listamannsins óþarfar. Okkar
tímar eru blómaskeið meðalmennsku og getuleysis í
Ustum og bókmenntum.
Það er því mjög hressandi og gleðilegt að heyra til
tónskálds af yngri kynslóðinni sem alltaf hefur sýnt
hinn heilbrigða metnað manns sem finnur sig hafa
neista af náðargáfu og tekur ótrauður á sig þá skyldu
að rækta hana og þroska. Sum verk Hauks kunna að
láta betur í eyrum en önnur en öll eru þau unnin af
alvöru þess manns sem ber virðingu fyrir bæði sjálfum
sér og listinni. Tónleikarnir í gærkvöldi voru engin
undantekning að þessu leyti. Verkin voru ólík, en
höföu þó einhvern sameiginlegan tón. Fyrsta verkið
„Eco“ er dúett fyrir flautu og sembal sem Kolbeinn
Haukur Tómasson.
Bjarnason flautuleikari og Anna Magnúsdóttir sem-
balleikari léku mjög fallega. „Tríó“ var flutt af Guðna
Franzsyni klarinettleikara, Sigurði Halldórssyni selló-
leikara og Val Pálssyni bassaleikara. Var það sömu-
leiðis mjög vel gert. Bæði verkin notuðu stutt stef sem
mynduðu fíngert tilbreyttan vef á ferð sinni um
hljómaheim verksins. Þetta á einnig við um Spíral sem
er viðamesta verkið bæði að efni, lengd og fjölda hljóð-
færa. Það er fyrir 13 hljóðfæraleikara auk stjórnanda,
sem að þessu sinni var Guðmundur Óli Gunnarsson.
Mjög aðlaðandi einkenni verkanna var mikill skýr-
leiki sem hélst þrátt fyrir að töluvert gengi á í senn.
Notkun hljóðfæra var einnig litrík og skemmtileg og
kom það auðvitað bes_t fram í Spíral.
Caput-hópurinn hefur skipað sér mjög mikilvægan
sess í tónlistarlífi hér fyrir þá áherslu sem hann legg-
ur á flutning nýrrar tónlistar og þann metnað og vand-
virkni sem hann leggur í starf sitt. Flutningurinn tókst
með miklum ágætum á þessum tónleikum og varð þar
að engu fundið.
Smáauglýsingar
■ Vinnuvélar
Garðyrkjum.-bæjarfélög-verktakar. Til
sölu nýinnfl. T.C.M turbo, 4x4 ’87, lið-
stýrð smágrafa ca 3 t, á breiðum hjól-
um (flýtur vel, sporar Htið), m/stórri
framskóflu, lyftaragöfflum og fjar-
stýrðu bakkói m rafm. servói (Mara
1000), hægt að setja á hvaða vél sem
er. Gott verð og greiðslukjör. íslands-
bílar hf., s. 91-682190 og 985-30265.
■ Sendibílar
Ford Econoline 250 Xt, árgerð ’91,
ekinn 40.000. 5 lítra vél, sjálfskiptur,
upphækkaður, 33" dekk. Ferðainn-
rétting fylgir. Vsk-bíll.
Til sýnis og sölu í Bílahöllinni,
Bíldshöfða 5, sími 91-674949.
■ Bílar til sölu
Til sölu 34 sæta Benz hópferðabill, gott
ástand, gott verð. Einnig ti! sölu Lada
Sport, árg. ’89, skoðaður ’94, verð 300
þús. Uppl. í s. 985-34246 eða 91-666175.
Toyota Corolla 16 GSi, árg. ’90, vel með
farinn, ekinn 54.000 km, verð 800.000,
athuga skipti á ódýrari. Uppl. í síma
91-689591 eftir kl. 18.
Toyota double cab V6 3.0 EFi, árg. ’91,
ekinn 37 þús. km, ramagnslæsing að
aftan, 5:29 hlutföll, 35" dekk o.m.fl.
Og Toyota double cab, árg. ’90, 2,4
dísil, 38" dekk, loftlæsingar o.fl. Uppl.
í síma 91-40319 eða 985-37099.
Reyklaus MMC Colt GLXi, árg. ’91, til
sölu, beinskiptur, rafmagn í rúðum,
útvarp/segulband, sumar/vetrardekk,
ekinn 33 þús. km, skipti á ódýrari bíl
koma til greina. Upplýsingar í síma
91-13841 eða 91-16584.
Toyota Corolla Touring XL 4x4, árg. ’89,
til sölu, ekinn 72.000 km, tvílitur
grænsans. Góður bíll, verð 910.000 kr.
staðgreitt, aðeins bein sala kemur til
greina. Uppl. í síma 91-619031.
Mazda B-2600 ex-cab, 4x4, árg. ’87 til
sölu, ekinn 117 þús. km, verð 850 þús.
Ath. skipti/skuldabréf. Uppl. í síma
54716 eða 50508.
Athafnamenn, athafnamenn. Nissan
cabstar ’84, dísil, m/mæli. mikið
endrnýjaður, aukadekk á felgum
fylgja, skoðaður ’94, verð 480.000.
Uppl. í síma 985-21919 og 91-21808.
■ Garðyrkja
Gosbrunnar. Nýkomið styttur, dælur,
ljós, garðdvergar o.fl. Nýjar gerðir af
styttum og skráutvörum í garða.
Vörufell hf., Heiðvangi 4, Hellu, sími
98-75870 og fax 98-75878.
■ Ferðalög
ÍSLENSKT HOTEL I LUXEMBORG
Við erum i Móseldalnum, mitt á milli
Findelflugvallar í Lúx og Trier í
Þýskalandi. Gestum ekið til og frá
fiugvelli endurgjaldslaust ef óskað er.
Verð: 2 m. herb. m/morgunv. 2.600 bfr.
(ath. verðið er f. 2). 15% afsl. ef dvalið
er 3 nætur eða lengur, 20% afsl. ef
dvalið er 7 nætur eða lengur. Hotel
Le Roi Dagobert, 32Rue De Tréves,
6793 Grevenmacher, Luxembourg,
sími: (352)75717, fax: (352)758792.