Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1993, Síða 9
MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 1993
9
Sá stóri
Hvernig liði þér ef þú værir 13 ára
þegar þú færir að sofa en þrftugur
þegar þú vaknaðir? Hláturinn lengir
lífið en við viljum vara við því að mikill
hlátur í of stórum skömmtum getur
valdið einkennilegum brosgrettum I
andliti. Það er því rétt að hita vel upp
fyrir þessa mynd með Fyndnum
fjölskyldumyndum og Dame Ednul
það veit enginnl
Sveitasæla!
Chevy Chase hefur leikið
í mörgum óborganlegum
grínmyndum og
Sveitasæla! er með þeim
fyndnari. Hafir þú ekki
séð myndina skaltu ekki
fyrir nokkra muni missa
af henni. Ef þú hefurséð
hana þá mælum við með
því að þú sjáir hana aftur
vegna þess að þú hlóst
svo mikið síðast að þú
misstir af nokkrum
drepfyndnum atriðum!
Buckfrændi
Hann er neyðarúrræði með gott hjartalag og hann á að
gæta fimmtán ára stelpu og tveggja grislinga vegna
veikinda í fjölskyldunni! John Candy er Buckfrændi og
hann miðlar óspart af broslegu innsæi sínu í þessari
skemmtilegu gamanmynd. Krakkarnir eru ekkert yfir sig
hrifnir en Buck frændi kann á þeim lagið!
Prakkarinn 2
Lilli er martröð en Trixie gefur
honum ekkert eftir þegar
prakkastrik eru annars vegar.
Þessi sakleysislegi, Ijóshærði
og bláeygi keppinautur Lilla
heldur honum vel við efnið. En
Lilli verður að passa sig vilji
hann ekki sitja uppi með
fósturmóður númer 32 í röðinni!
Fyndnar f jölskyldumyndir
Þessir þættir eru án efa
einhverjir þeir vinsælustu
fyrr og síðar enda fátt
skemmtilegra en að hlæja
sig máttlausan
að meinfyndnum myndglefsum
af náunganum!
Elskan, ég minnkaði börnin
Frábærlega vel gerð gamanmynd fyrir alla fjölskylduna frá Walt
Disney. Þegar krakkarnir lenda í nýjustu uppfinningu pabba síns,
minnkunarvélinni, upphefst ævintýraleg og fyndin leit að þeim því
þau eru aðeins nokkrir millímetrar á hæð!
Sólstingur
Þegar pabbi gamli hrekkur upp af
bíða erfingjarnir spenntir
eftir að erfðaskráin verði lesin upp.
En sá gamli vissi sínu viti
og auðæfum hans fylgja skilmálar.
Það barna hans sem fyrst
eignast afkomanda
detturílukkupottinn.
Það verður heldur betur
hamagangur í öskjunni
og nú er bara að sjá
hvert þeirra verðurfyrst!
Beint á ská 21/2
Þessi mynd er svo fyndin að
fólk tekur loftköst, svo ekki sé
minnst á hlátursköst, í
stólunum heima í stofu. Það
er góð hugmynd að færa
stofuborðið frá sófanum eða
sitja bara á gólfinu þegar
lögregluforingi allra tíma,
Frank Dreþin, birtist á
skjánum. Það er ekki vitað
hvort hann hefur mælanlega
greind og enginn veit hvaða
öfl reka hann áfram í
baráttunni gegn glæpum!
##
STOÐ-2
Addams-fjölskyldan
Á þaki fjölskyldusetursins
er stór pottur. [ honum
bíður eitthvað óvænt,
sjóðandi heittog
hættulega fyndið. Þannig
hefst sagan um Morticiu
Addams, eiginmann
hennar og eldheitan
elskhuga, Gomez, Hönd,
Festerfrænda og fleiri
kynlega kvisti sem halda
þessari vönduðu
gamanmynd á furðuflugi!
Rowan
Atkinson
Þessi þreski
grínisti þykir með
þeim bestu í
heimi og við
ábyrgjumst að
þetta er einhver
fyndnasti þáttur
sem sýndur hefur
verið á Stöð 2I
Dame Edna
Það eru ekki margir sem komast upp með að henda
stórstirninu Jane Fonda á dyr, tuska Chubby Checker til eins
og smástrák á meðan verið er að kenna honum að tvista og
fá sinn mesta aðdáanda, Douglas Fairbanks yngri, I
heimsókn. Engin nema Dame Edna Everage og ef þú hefur
ekki þegar haft þá ánægju að kynnast henni ættirðu ekki að
láta þetta stórgóða tækifæri þár úr greipum gangal
Hver er Harry Crumb?
Hann hefur taugar úr stáli, vöðva úr járni og
heila úrtré! Þessi skrítna lýsing hér að
framan á að sjálfsögðu við einkaspæjarann
Harry Crumb en með hlutverk hans fer hinn
viðkunnanlega íturvaxni John Candy.
Freddie Starr
Búðu þig undir hárbeitta breska brandara
með alþjóðlegu fvafi. Búðu þig líka undir
að sjá nýjar hliðar á hnefaleikamanninum
Frank Bruno og kaupsýslumanninum,
poppstjörnunni og leikaranum Adam Faith.
Reyndu ekki að velta því fyrir þér hvað
Freddie Starr tekur sér fyrir hendur næst -