Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1993, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1993, Qupperneq 9
MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 1993 9 Sá stóri Hvernig liði þér ef þú værir 13 ára þegar þú færir að sofa en þrftugur þegar þú vaknaðir? Hláturinn lengir lífið en við viljum vara við því að mikill hlátur í of stórum skömmtum getur valdið einkennilegum brosgrettum I andliti. Það er því rétt að hita vel upp fyrir þessa mynd með Fyndnum fjölskyldumyndum og Dame Ednul það veit enginnl Sveitasæla! Chevy Chase hefur leikið í mörgum óborganlegum grínmyndum og Sveitasæla! er með þeim fyndnari. Hafir þú ekki séð myndina skaltu ekki fyrir nokkra muni missa af henni. Ef þú hefurséð hana þá mælum við með því að þú sjáir hana aftur vegna þess að þú hlóst svo mikið síðast að þú misstir af nokkrum drepfyndnum atriðum! Buckfrændi Hann er neyðarúrræði með gott hjartalag og hann á að gæta fimmtán ára stelpu og tveggja grislinga vegna veikinda í fjölskyldunni! John Candy er Buckfrændi og hann miðlar óspart af broslegu innsæi sínu í þessari skemmtilegu gamanmynd. Krakkarnir eru ekkert yfir sig hrifnir en Buck frændi kann á þeim lagið! Prakkarinn 2 Lilli er martröð en Trixie gefur honum ekkert eftir þegar prakkastrik eru annars vegar. Þessi sakleysislegi, Ijóshærði og bláeygi keppinautur Lilla heldur honum vel við efnið. En Lilli verður að passa sig vilji hann ekki sitja uppi með fósturmóður númer 32 í röðinni! Fyndnar f jölskyldumyndir Þessir þættir eru án efa einhverjir þeir vinsælustu fyrr og síðar enda fátt skemmtilegra en að hlæja sig máttlausan að meinfyndnum myndglefsum af náunganum! Elskan, ég minnkaði börnin Frábærlega vel gerð gamanmynd fyrir alla fjölskylduna frá Walt Disney. Þegar krakkarnir lenda í nýjustu uppfinningu pabba síns, minnkunarvélinni, upphefst ævintýraleg og fyndin leit að þeim því þau eru aðeins nokkrir millímetrar á hæð! Sólstingur Þegar pabbi gamli hrekkur upp af bíða erfingjarnir spenntir eftir að erfðaskráin verði lesin upp. En sá gamli vissi sínu viti og auðæfum hans fylgja skilmálar. Það barna hans sem fyrst eignast afkomanda detturílukkupottinn. Það verður heldur betur hamagangur í öskjunni og nú er bara að sjá hvert þeirra verðurfyrst! Beint á ská 21/2 Þessi mynd er svo fyndin að fólk tekur loftköst, svo ekki sé minnst á hlátursköst, í stólunum heima í stofu. Það er góð hugmynd að færa stofuborðið frá sófanum eða sitja bara á gólfinu þegar lögregluforingi allra tíma, Frank Dreþin, birtist á skjánum. Það er ekki vitað hvort hann hefur mælanlega greind og enginn veit hvaða öfl reka hann áfram í baráttunni gegn glæpum! ## STOÐ-2 Addams-fjölskyldan Á þaki fjölskyldusetursins er stór pottur. [ honum bíður eitthvað óvænt, sjóðandi heittog hættulega fyndið. Þannig hefst sagan um Morticiu Addams, eiginmann hennar og eldheitan elskhuga, Gomez, Hönd, Festerfrænda og fleiri kynlega kvisti sem halda þessari vönduðu gamanmynd á furðuflugi! Rowan Atkinson Þessi þreski grínisti þykir með þeim bestu í heimi og við ábyrgjumst að þetta er einhver fyndnasti þáttur sem sýndur hefur verið á Stöð 2I Dame Edna Það eru ekki margir sem komast upp með að henda stórstirninu Jane Fonda á dyr, tuska Chubby Checker til eins og smástrák á meðan verið er að kenna honum að tvista og fá sinn mesta aðdáanda, Douglas Fairbanks yngri, I heimsókn. Engin nema Dame Edna Everage og ef þú hefur ekki þegar haft þá ánægju að kynnast henni ættirðu ekki að láta þetta stórgóða tækifæri þár úr greipum gangal Hver er Harry Crumb? Hann hefur taugar úr stáli, vöðva úr járni og heila úrtré! Þessi skrítna lýsing hér að framan á að sjálfsögðu við einkaspæjarann Harry Crumb en með hlutverk hans fer hinn viðkunnanlega íturvaxni John Candy. Freddie Starr Búðu þig undir hárbeitta breska brandara með alþjóðlegu fvafi. Búðu þig líka undir að sjá nýjar hliðar á hnefaleikamanninum Frank Bruno og kaupsýslumanninum, poppstjörnunni og leikaranum Adam Faith. Reyndu ekki að velta því fyrir þér hvað Freddie Starr tekur sér fyrir hendur næst -

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.