Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1993, Síða 19
MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 1993
19
Meiming
Kynning á ritum
Nýja testamentisins
Mikil aðsókn í Leikmannaskóla þjóðkirkjunnar síö-
astliðin þrjú haust sýnir svo ekki verður um villst að
mikO þörf er fyrir aðgengileg kennslurit um kristna
trú og þá ekki síst leiðbeiningar við lestur Biblíunnar.
Svo dæmi sé tekið hefur engin bók um inngangsfræði
Nýja testamentisins komið út síðan Magnús Jónsson
dósent sendi frá sér ritið „Saga Nýja testamentisins.
Saga ritsafnsins og textans" árið 1932. Áður hafði Jón
Helgason Prestaskólakennari gefið út „Inngangsfræði
Nýja testamentisins" árið 1904. Hvorugt þessara rita
var þó sérstaklega við hæfi leikmanna. Nú hefur hins
vegar verið bætt úr þeirri brýnu þörf. Út er komið í
íslenskri þýðingu ritið „Leiðsögn um Nýja testament-
ið“ eftir íúnn kunna skoska nýjatestamentisfræðing
William Barclay (1907-1978) sem einkum er þekktur
fyrir hæfileika sinn til að búa biblíufræðin í búning
við hæfi hins almenna lesanda. Bókin „Leiðsögn um
Nýja testamentið" skiptist í 22 kafla þar sem fjallað
er um einstök rit Nýja testamentisins og leitast við
að vekja athygli á sérkennum hvers rits. Hér er ein-
ungis unnt að nefna örfáa fróðleiksmola úr ritinu. Um
Mattheusarguðspjall segir Barclay aö þaö sé sönnun
þess að við getum aldrei hafnaö Gamla testamentinu.
Lúkas er sagður menntamaðurinn meðal höfunda
Nýja testamentisins og guðspjall hans í mestu uppá-
haldi hjá bókarhöfundi. Ef Postulasagan væri ekki til
staðar væri frumsaga kirkjunnar hulin í myrkri. Ræt-
ur siðhótarinnar liggja í Galatabréfinu því það lagði
homsteininn að trúarskilningi Lúthers. Ekkert rita
Nýja testamentisins greinir eins glögglega frá hlut-
verki kirkjunnar og Efesusbréfið. Það hefur sennilega
verið dreifibréf sem Páll sendi til margra safnaða.
Bréfið til Fílemons er á hinn bóginn eina einkabréf
Páls sem varðveist hefur. Barclay er óneitanlega í
íhaldssamari kantinu meðal hiblíufræðinga. Það birt-
ist meðal annars í því þegar hann ræðir um Jóhannes-
arguðspjall sem almennt er talið yngst guðspjallanna.
„Menn höíöu haft tíma til að leggja orð og atburði á
minnið," segir hann og vill með því móti undirstrika
trúverðugleika þess. Hætt er við að slík röksemda-
færsla höfði ekki til margra en yfirleitt er rit hans
mjög læsilegt og veitir góða leiðsögn um þann frum-
skóg sem nýjatestamentisfræðin era óneitanlega orð-
in. Sr. Hreinn Skagfjörð reynist vera lipur þýðandi.
Bókmenntir
Gunnlaugur A. Jónsson
Hann á sérstakt hrós skilið fyrir að hafa tekið saman
lista með skýringum á nokkrum mannanöfnum, heit-
um og hugtökum, og er sá viðauki til þess fallinn að
auka enn á notagildi bókarinnar. Nokkra athygli vek-
ur að hann notar þýðinguna „grautartrú" yfir hugtak-
ið „syncretismus" sem felur í sér trúarbragðablöndun.
Ef mig misminnir ekki mun það vera sr. Heimir Steins-
son sem fyrstur stakk upp á þeirri þýðingu í ritdeilu.
Sú þýðing á ágætlega við í þeim tilfellum þar sem
„syncretismus" er greinilega notað í neikvæðri merk-
ingu en svo er alls ekki ætíð og þá er þessi þýðing
óneitanlega óheppileg. Það er ástæða til að fagna þessu
riti. Sá mikli áhugi sem hefur komið í ljós meðal leik-
manna í kirkjulegu starfi á að auka við þekkingu sína
í guðfræði kallar heinlínis á rit sem þetta.
William Barclay,
Leiðsögn um Nýja testamentið
Hreinn S. Skagfjörð þýddi
Skálholtsútgáfan 1993 (143 bls.)
ÓDÝRI SKÓMARKAÐURINN
Opið mánud.-föstud. 12-18
Frábært verð - Góðir skór
SKÓMARKAÐUR
RR skór JL
EURO SKO
Skemmuvegi 32 - s. 75777
Uppboð Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Langholtsvegur 17, hluti, þingl. eig. Edvarð Karl Sigurðsson, gerðarbeið- andi Gjaldheimtan í Reykjavík, 10. desember 1993 kl. 15.30.
Leifsgata 28, hluti, þingl. eig. Þor- steinn H. Einarsson, gerðarbeiðendur Gjaldheimtan í Reykjavík, Ásborg sf. og íslandsbanki hf., 10. desember 1993 kl. 14.30.
Hverfisgata 85, þingl. eig. Höíðaleigan hf., gerðarbeiðendur Gjaldheimtan í Reykjavík, Grímur Valdimarsson, Hallfreður Emilsson og Lánasjóður ísl. námsmanna, 10. desember 1993 kl. 15.00.
Mávahlíð 7, risMð, þingl. eig. Ás- mundur J. Hrólfsson, gerðarbeiðandi íslandsbanki hf., 10. desember 1993 kl. 16.00.
Höfðabakki 1,0001,0002,0003, OOD4, þingl. eig. Snævar ívarsson, gerðar- beiðandi Gjaldheimtan í Reykjavík, 10. desember 1993 kl. 16.30. Iðufell 12, 2. h. t.h., merkt 2-3, þingl. eig. Kristín S. Markúsdóttir, gerðar- beiðendur Byggingarsjóður verka- manna og Gjaldheimtan í Reykjavík, 10. desember 1993 kl. 14.00. Krummahólar 5, 0101, þingl. eig. Ás- dís Magnúsdóttir, gerðarbeiðandi Is- landsbanki hf., 10. desember 1993 kl. 13.30. Skeljagrandi 3,024)3, þingl. eig. Alma J. Guðmundsdóttir, gerðarbeiðandi Nóatún hf„ 10. desember 1993 kl. 11.00. Sörlaskjól 76, hluti, þingl. eig. Birgir Gunnarsson, gerðarbeiðendur Frjálsi lífeyrissjóðurinn, Gjaldheimtan í Reykjavík, Lífeyrissj. starfsmanna rílusins, Sameinaði lífeyrissj óðunnn og Sparisjóður Hafnarfjarðar, 10. des- ember 1993 kl. 10.30.
SÝSLUMAÐUMN í REYKJAVÍK
Kr.
21.900
stgr.
Ferðatæki með
geislaspilara, tvöföldu
segulbandi og útvarpi.
HUómmikið og fallegt tæki.
Verö kr. 21.900 stgr.
AIWA CSD-EXIO
Ferðatæki með geislaspilara,
segulbandi og útvarpi.
Frábært tæki á einstöku
jólatilboði.
Verð kr.
17.980 stgr
IWriO-HIT
RR-6480
Allt tll hljómflutnlngs fyrir:
HEIMILIÐ - BÍLINN
OG
DISKÓTEKIÐ
NdQlO
ÁRMÚLA 38 (Selmúlamegin), 105 Reykjavík
SÍMAR: 31133 813177 PÓSTHÓLF 1366
wsaniii