Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1993, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1993, Blaðsíða 24
24 MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 1993 HVER ÞARF á annarri hæð í húsi Kjöts og Fisks, áður Kaupstaður í Mjódd Þú gerir þaö með því að versla hjá okkur Allt á sama stað: fatnaður ■ bækur sælgæti - snyrtivörur gjafavörur ■ skór Einnig mikið úrval af öðrum vörum Merming OPIÐ: MÁNUDAGA - FÖSTUDAGA13 -18.30 LAUGARDAGA 10-16 Góð aðkoma • liiæg iastæði - Kaílitería Sakargift vegna sýningar 1 gallerí Greip, Hverfisgötu 82 Ljóst er aö margar listsýningar sem boðið er til standa ekki undir nafni. Og þeim fer íjölgandi. Skýr- ingarnar á þessu eru sjálfsagt margar. Ein gæti verið sú að hvem þann með móköggla í listaæðinni sem horfir á fuliunnið verk og hrífst fer að langa til að ganga inn í rómantík frægðarljóma skaparans og baða sig í geislum aðdáunarinnar. Önnur skýring þessu tengd gæti síðan verið að þeir sem búa til rómantíska ljómann utan um listina, gagnrýnendurnir sem svo eru kallaðir, þekki ekki raunverutroðninga listarinnar þar sem kvalræðið býr í trúiofunarstandi með efa- semdinni, vegna þess að þeir hafa aldrei komist þang- að fyrir móhlöðum æða sinna. Sé þetta rétt hafa þeir ekki það þrek sem þarf til að standa af sér þá sjói sem þeir gætu ýft með gagnrýni sinni, og hafa þvi kosið að hjala um listina eins og hún sé eitthvað það sem lært verði af bók og viðhafa almenna kaffihúsafrasa í þeirri umræöu. Þannig hafa þeir fest gró við mó- köggla sína sem þeir dreifa sem eldiviði til annarra; þau gró sem við eigum á hættu að verði að stórasann- leik í dómgreindarleysi endurtekningarinnar. Sé þetta svona eiga gagnrýnendur mesta sök á því hversu margar ófullburða sýningar eru haldnar hér- lendis. Þeim hefur ekki tekist að kalla fram þá gagn- rýnu dómgreind hjá listamönnum sem þeim ber að vekja með þeim og þar af leiðandi ekki heldur að halda dómgreindinni vakandi þegar værð hins feita þjóns sækir að. Eitt afkvæmi hinnar sofandi dómgreindar er sýning barnungrar og gæfulegrar stúlku á nokkrum ljós- Myndlist Ulfar Þormóðsson myndum. Sú sýning var opnuð sl. laugardag í gallerí Greip, Hverfisgöu 82, litlu, nýju og snotru galleríi sem með árvekni gæti orðið vagga einhvers annars en sof- andaháttarins. Hefðu gagnrýnendur vaidið verki sínu hefði sú sýn- ing, sem betur fer fyrir ungan listamann, trúlega aldr- ei verið haldin. Mín ósk er sú að sýning þessi megi verða bauta- steinn þeirra „gagnrýnenda“ sem sjáandi sjá ekki og mælandi mæla ekki. Sviðsljós I hringiðu helgarinnar Hið árlega jólakaffi Kvenfélags Hringsins var haldið á Hótel Is- landi á sunnudag. Þær Hringskon- ur hafa safnað fé til styrktar barna- spítalasjóði Hringsins síðan 1942 og er jólakaffið orðið fastur hður í jólaundirbúningi margra. Lára Björg Björnsdóttir var þar ásamt frænkum sínum, þeim Kristínu önnu og Vigdísi Maríu Hermanns- dætrum. Stella Guðmundsdóttir aðstoðar eiginmann sinn, Róbert Arnfinns- son, leikara við að skera kökuna í útgáfuveislu sem haldin var á laug- ardag í tilefni útkomu ævisögunn- ar, Róbert - ævisaga listamanns, sem Eðvarð Ingólfsson skráöi. Hið nýja Ingólfstorg var formlega opnað á laugardag. Hér óska þeir Markús örn Antonsson borgar- stjóri og Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son, formaður framkvæmdanefnd- arinnar, hvor öðrum til hamingju með þetta glæsilega torg sem ætlað er að nýta undir margs konar skemmtidagskrá fram að jólum. Gott lesefni NYTTHEFTI Nóvember/Desember árið _____ I fes m -tiSiaru fJTT:—~— - •' Skop. £*!***C~......... 'íro«'«SrA"MsD°d* ... ....... .... -.... ••••••• 18 .... 26 ... 35 ... 4/ .... 47 - 48 •• 50 55 • 58 67 .... 77 ... 83 ... 88 .... 90 - 98 - 107 • 112 Á næsta sölustað eða í áskrift í síma (91)63-27-00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.