Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1993, Page 26
34
MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 1993
Fréttir
Stefnumarkandi
- segir Þórarinn V. Þórarinsson framkvæmdastjóri
Arsfondur Ríkisspítala:
470 milljóna
krónaút-
gjaldalækkun
Um 470 milljóna króna raunlækk-
un náðist á útgjöldum Ríkisspítala
milli 1991 og 1992 þrátt fyrir umtals-
verða aukningu á starfseminni síð-
astliðin ár. Þetta kom fram á árs-
fundi Ríkisspítala sem haldinn var á
fostudag.
Innlögnum á deildir fjölgaði um 7,5
prósent milli ára, fæðingum fjölgaði
úr 2.558 í 2.913 og tekið var á móti
232 fleiri skjólstæðingum á bráða-
móttöku Landspítalans.
Á ársfundinum var kynnt tölvu-
kerfi til símsendingar á röntgen-
myndum. Verkefnið er að komast á
framkvæmdastig bæði innan
Landspítalans og milb staða. Talið
er að samskipti af þessu tagi geti
sparaö marga legudaga og óþægileg-
an flutning sjúklinga milb staða.
„Þetta er stefnumarkandi dóm-
ur. Við skiljum dóminn þannig að
stéttarfélag megi ekki fara fram
með kröfur sem miða að öðru en
gera kjarasamning. Kröfur verða
að vera þannig lagaðar að viðsemj-
andi geti efnt þær með ásættanleg-
um hætti. Það voru vissulega fleiri
kröfur settar fram en vegna þess
að krafan um íslenska áhöfn var
þar á meðal, og var í raun aöalá-
stæða fyrir verkfalhnu, taldi dóm-
urinn verkfaUið ólögmætt," sagði
Þórarinn V. Þórarinsson fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bands íslands, er hann var spurður
um niðurstöðu Félagsdóms um
verkfaU Sjómannafélagsins í gær.
„Við kærðum Sjómannafélagið
út af þremur atriðum. í fyrsta lagi
erum við sammála verkalýðshreyf-
ingunni sem segir á hátíðis- og tyUi-
dögum að verkfallsréttur sé neyð-
arréttur. Þess vegna má ekki beita
honum nema fuUreynt sé með
samninga. Sjómannafélag Reykja-
víkur hefur ekki leitað eftir samn-
ingum. í annaö stað teljum við að
verkfaU megi eingöngu gera á þeim
grundveUi að koma á kjarasamn-
ingi. Það var ekki í þessu tilfeUi þar
sem komið var fram með eina ein-
staka kröfu um eitt einstakt skip
sem er ekki í eigu eða rekstri Eim-
skipafélagsins og er þaðan af síður
í Vinnuveitendasambandinu. í
þriðja lagi Utum við svo á að það
sé óheinúlt að gera kröfur á hendur
farmflytjanda í kjarasamningi - að
hann annist farmflutninga sjálfur
eða með eigin starfsmönnum. Það
er í rauninni það síðastnefnda sem
dómurinn byggist á,“ sagði Þórar-
inn.
Hótanirnar eru áhyggjuefni
Hann sagði að Vinnuveitenda-
sambandið myndi bregðast við á
nýjan leik ef Sjómannafélagið boð-
aöi nýtt verkfaU. „Þessar síendur-
teknu hótanir þessa Utla hóps
gagnvart Eimskipafélaginu og
starfsmönnum þar eru mikið
áhyggjuefni. Ég býst við að forysta
Sjómannafélags Reykjavíkur muni
þá boða verkfaU gagnvart allri
kaupskipaútgerðinni. Ef það verð-
ur aftur dulbúið yfirvarp á þessum
sömu kröfum munum viö láta á það
reyna hvort þeir komast upp með
það.“
-ELA
Jólastemning íkóngsins Köben
Jólastemningin í Köben er engu lík. Veitingahúsin
kappkosta að bjóða ekta „DANSKAN
JULEFROKOST“ sem er engu öðru líkur. Ilm
af greni, glögg og piparkökum leggur um Strikið
og stemningin er engu lík.
Einstök ferð til Köben 16.-19. desember. Gist
er á hinu glæsilega HOTEL SHERATON
sem er 5 stjörnu hótel í hjarta Kaupmannahafn-
ar.
Innifalið er: flug, gisting, morgunverður og öll flugvalla-
gjöld. Staðgreiðsluverð miðað við mann í tveggja manna
herbergi.
VERÐ 35.400
Ferðaskrifstofa, sími 652266
Fyrirtæki - verslanir ■ heildsalar
er kjörin leið til að koma afsláttartilboðum
á framfæri við hagsýna neytendur.
Kjarasedill DV er öflug nýjung
fyrir auglýsendur sem birtast mun í blaðinu
þriðjudaga til föstudaga.
Hafið samband við Sigríði Sigurðardóttur,
auglýsingadeild DV.
Sími: 63 27 00 Bréfasími: 63 27 27
5 manaða fangelsi
Tæplega þrítugur karlmaður
hefur í Hæstarétti verið dæmdur í
5 mánaða fangelsi fyrir að hafa sem
starfsmaður svæðisskrifstofu fyrir
fatlaða haft samræði viö konu sem
hefur þroskastig á við 6 til 9 ára
barn í október 1992. 3 mánuðir af
refsingunni er skilorðsbundinn
þannig að sakborningurinn þarf
aðeins að sitja af sér tvo mánuöi í
fangelsi. Tveir af fimm dómurum
Hæstaréttar vildu dæma manninn
i 8 mánaða óskilorðsbmidið fang-
elsi.
Samkvæmt upplýsingum DV er
þetta í fyrsta skiptí sem Hæstirétt-
ur dæmir umsjónarmann eða
starfsmann vistheimilis fyrir sam-
ræði eða önnur kynferðismök við
vistmann. Hámarksrefsing fyrir
brot á ákvæðum þeirrar lagagrein-
ar sem Hæstiréttur dæmdi eftir er
4 ára fangelsi.
í dóminura kemur fram aö sak-
bomingurinn heföi haft trúnaðar-
skyldum að gegna gagnvart um-
ræddri konu sem var á sambýli
fyrir fatlaða. Maðurinn er augljós-
lega talinn hafa brugðist þessum
skyldum.
Eins og fyrr segir klofnaði 5
manna dómur Hæstaréttar í al'-
stöðu til rcfsingar mannsins. Þeir
Þór Vilhjálmsson, Hjörtur Torfa-
son og Hrafn Bragason voru i
meirihluta og dæmdu 5 mánuði en
3 mánuði skilorðsbundið eins og
héraðsdómur hafði dæmt. Þau
Guðrún Erlendsdóttir og Pétur Kr.
Hafstein voru ósammála þessu og
skiluðu sératkvæði - þau vildu
dæma manninn í 8 mánaða fang-
elsi óskilorösbundið.
-Ótt
Meiming____________
Hundakex gerir
stráka sterka
Það er fátt skemmtilegra en að gera eitthvað sem
má ekki. Það finnst þeim félögum Magga og Bjössa
að minnsta kosti. Þeir eru aðalsöguhetjurnar í sögu
Einars Más Guðmundssonar um hundakexið. Strák-
arnir eru andstæður, annar er hugrakkm- og sterkur
en hinn er lítil sál og hálfgerð veimiltíta. Sagan segir
frá dagparti í lífi þeirra félaga og því sem þeir taka
sér fyrir hendur. Þeir félagar hafa að engu bann mæðra
sinna og fara út að leika sér í hálfbyggðu húsi en á
Bókmenntir
Jóhanna Margrét Einarsdóttir
slíkum stöðum geta víða leynst hættur. Strákamir eru
frekar skýrar persónur en aðrir sem koma við sögu
eru ekki málaðir sterkum litum, nema þá mamma
hans Magga.
Sagan um hundakexið - sem gerir stráka sterka er
þokkalega samin saga fyrir böm. Hún byggir á fáum
en skondnum atburöum. Þaö er ekki fyrr en í lok sög-
unnar aö höfundi fatast flugið, þá leysist sagan upp
og verður að engu. Líkt og höfundur hafi einfaldlega
ekki nennt aö skrifa meira og ákveðið að ljúka sög-
unni meö hraði.
Aðal sögunnar er mál og stíll en hvort tveggja er
með miklum ágætum. „Það rigndi. Pollamir á götunni
störðu til himins eins og ótal augu. AUt í einu birtust
tveir strákar. Maggi og Bjössi. Þeir vom báðir með
húfur á höfðinu."
Það em litmyndir Erlu Sigurðardóttur sem skreyta
Ein af teikningunum í bókinni.
bókina. Erla er góður teiknari og nær oft á tíðum fram
mjög sterkum svipbrigðum á mannamyndir. Til dæm-
is eru myndimar af móður Magga mjög vel unnar og
góðar og bæta miklu við texta sögunnar. Erla gætir
þess líka að myndirnar verði ekki það mikið unnar
að þær drukkni í smáatriöum.
Hundakexið
Texti: Einar Már Guðmundsson
Myndir: Erla Sigurðardóttir
Almenna bókafélagið 1993