Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1993, Síða 41
MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 1993
49
I
I
!
Merming
Góður gítarleikur
Pétur Jónasson, gítarleikari, hélt tónleika í Smíða-
verkstæði Þjóðleikhússins á laugardag. Á efnisskránni
voru spænsk einleiksverk fyrir gítar eftir Francisco
Tárrega, Federico Moreno Torroba, Manuel de FaUa,
Federico Garcia Lorca, Enrique Granados og Isaac
Albeniz.
TónJist
Finnur Torfi Stefánsson
Engin þjóð hefur tekið sliku ástfóstri við gítarinn sem
Spánveijar. Þar er að finna glæsilegustu leikhefðina
og þar hafa þau tónskáld lifað sem fundið hafa sér
eðlilegastan farveg í hljóðlátum enlitríkum hljóðheimi
þessa eldfoma strengjahljóðfæris. Gítartónlist á Spáni
hefur átt hljómgrunn með öllum stéttum samfélagsins
og alls ekki siður meðal alþýðufólks. Verkin á þessum
tónleikum höfðu því flest á sér alþýðlegt yfirbragð.
Mörg eru í dansformi og skýr og grípandi hrynjandi
sem víða bregður fyrir, ásamt með einföldu greinilega
afmörkuðu formi, eru einkenni þess. Laglínur era
margar faUegar og hitta vel í mark. Öll era verkin
sérlega vel úttsett fyrir gítarinn og er það einn helsti
styrkur þeirra. Þar fer ekki fram hjá neinum að byggt
er á ríkri hefð og þróuðum smekk. Tónamál verkanna
að öðra leyti var hefðbundið tónamál síðrómantísku
stefnunnar enda era verkin flest frá þeim tíma. Undan-
tekning vora lögin eftir Torroba. Þar era gerðar var-
færnislegar en vel heppnaöar tilraunir með efniviðinn
og koma einkar skemmtilega út. Meðal þeirra verka
sem hvað best hljómuðu á þessum tónleikum má nefna
verk de Fallas sem höfðu yfir sér sterkan mjög faUeg-
an fomlegan brag. Þá má nefna síðustu verkin á tón-
leikunum eftir Granados og Albéniz sem eru mjög vel
gerð.
Þessi tónhst fékk góða meðferð í höndum Péturs
Jónassonar. Leikur hans var mjög öruggur og sýndi
gott vald bæði á hljóðfæri og efnivið. Blæbrigði Uta
og hljómstyrks nutu sín sérstaklega vel og voru notuð
af smekkvísi og yfirvegun sem gáfu túlkuninni í heild
auðugan og vandaðan svip. Smíðaverkstæði Þjóðleik-
hússins hefur ekki fram til þessa verið í hávegum
haft tU tónleika. Ef til viU breytist það nú. Hljómburð-
ur virðist vera býsna góður þarna. Salurinn var fullset-
inn og sat undirritaður aftast en heyrði samt greini-
lega hvert smáatriði hins hljóðláta gítarleiks.
Kammertónlist í úrvalsflokki
Tónleikar voru í Bústaðakirkju í gærdag. Þar lék
tríó skipað þeim Monu Sandström, píanó, Auöi Haf-
steinsdóttur, fiðlu, og Bryndísi HöUu Gylfadóttur,
seUó. Á efnisskránni voru verk eftir Max Brach, Ludw-
ig van Beethoven og Felix Mendelsohn.
SennUega er Max Bruch best þekktur hér á landi
fyrir Skoska fantasíu fyrir fiðlu og hljómsveit. Eftir
hann Uggur töluvert af öðram tónsmiðum.m.a. aU-
mörg ágæt kórverk. Af tríói hans í es moU má heyra
að hann hefur einnig haft gott vald á kammertónUst.
Tríóið er í safaríkum rómantískum stíl og lætur eink-
ar vel í eyrum. Tríó Beethovens í Es dúr er klassíkst
í anda og yfirbragði þótt séreinkenni höfundarins leyni
sér ekki. Eitt þeirra er sérlega skemmtilegt krómatískt
stef sem er eins og það vUji brjóta sig út úr viðjum
tónamálsins án þess þó að takast það. Svipuðu stefi
bregður fyrir hjá gamla Bach í einum af fugunum í
Das Wohltempierte. Hvort það er fyrirmynd Beethovns
skal hins vegar ósagt látið.
Eftir hlé var Uutt tríó í d moU eftir Mendelsohn sem
að mörgu leyti er athyglisvert verk. Yfirleitt er tónUst
þessa þýska meistara slétt og feUd. Hún hrífur með
þokka sínum og léttum glæsUeik frekar en þar sé að
finna krefjandi átök. Þetta tríó er hins vegar að þessu
leyti undantekning. Þar er að vísu að finna hina af-
slöppuðu snUld hins hæfileikaríka aðalsmanns sem
fékk í vöggugjöf Restar þær gjafir sem menn láta sig
dreyma um. Hér er eins og honum Uggi meira á hjarta
en venjulega. Verkið er rómantískara en mörg önnur
verk hans og mun átakameira.
Þær ungu konur sem þarna stóðu fyrir hljóðfæraleik
eiga mikiö hrós skiUð fyrir frammistöðu sína. Öryggi
og nákvæmni fór þarna saman með tilfinningaríkri
og fjölbreyttri túlkun. Þær höfðu aUar fullkomið vald
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
á viðfangsefnunum og sýndu sem einstaklingar óað-
Rnnanlegan leik. Mest af kammertónUst hér er flutt
af hópum sem myndaðir eru fyrir eina tónleika eða
tvenna. Þótt einstaklingar seu góðir viU oft skorta á
að sú fuUkomnum samleiks náist sem reglubundið
langvarandi samstarf býður upp á. Þær stöUur kom-
ust hins vegar býsna langt að þessu leyti. Gaman
væri ef þeim tækist að halda hópinn áfram og þróa
samstarfið frekar. Þá væri góðs að vænta.
ÞJÓDLEIKHÚSID
Sími 11200
SKILABOÐASKJÓÐAN
eftir Þorvald Þorsteinsson
Ævintýri með söngvum
Mlð. 29. des. kl. 17.00.
Mlðasala Þ|óðlelkhússins er opin alla
daga nema mánudaga frá kl. 13-18 og
fram að sýningu sýnlngardaga. Teklð á
mótl pöntunum í síma 11200 frá kl. 10
virka daga.
Grœna linan 996160
Gjafakort á sýningu í Þjóðleikhúsinu er
handhæg og skemmtiieg jóiagjöf.
Tilkyriningar
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágr.
Opið hús í Risinu í dag kl. 13-17. Frjáls
spilamennska, kaffi og spjall. Margret
Thoroddsen er til viðtals á þriðjudag.
Panta þarf tíma í síma 28812.
Taflfélagið Hellir
heldur mánaðamót í Menningarmiðstöð-
inni Gerðubergi í kvöld kl. 20.
Veitingahúsið Prag
Margrét R. Einarsson hefur tekið við
rekstri veitingahússins Prag við Hlemm.
Lögð verður áhersla á alþjóðlegan mat-
seðil og lipra þjónustu. Fram í miðjan
desember verður opið daglega frá kl. 18.
En frá og með 15. desember og fram til
jóla verður veitingahúsið opið frá kl. 12
á hádegi alla virka daga.
Fréttir
Viðbrögð við skoðanakönnun DV um landið sem eitt kjördæmi:
Hugmyndin á
langt í land
Akureyri:
Tónleikar
Kristjáns í stað
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Aflýsa hefur orðið flutningi á Sálu-
messu Verdis sem flytja átti á Akur-
eyri næsta sumar með Kristjáni Jó-
hannssyni í aðalhlutverki. Stafar það
af ýmsum erfiðleikum, s.s. við að fá
stóra hljómsveit til flutningsins.
Akureyringar fá þó væntanlega að
hlýða á söngvarann í íþróttahöflinni
nyrðra því verið er að athuga með
möguleika á aö halda minni tónleika
í íþróttahöllinni á Akureyri næsta
sumar. Ef marka má áhuga Akur-
eyringa á nýútkomnum geisladiski
Kristjáns, sem hann áritaði nyrðra
fyrir helgi, er víst að Akureyringar
bíða þess spenntir að heyra og sjá
hann syngja í heimabæ sínum.
Elliðaámar:
Óbreytt verð
áveiðileigu
Borgarráö hefur samþykkt að
halda óbreyttu vérði á veiðileigu fyr-
ir laxveiði í Elliðaánum næsta sum-
ar. Veiðileyfi í Elliðaánum kemur þá
tfl með aö kosta 14.700 krónur stöng-
in en það er sama verð og var í sum-
ar. -GHS
„Þetta kemur mér ekki á óvart.
Hugmyndin á töluvert langt í land
með að njóta meirihlutafylgis í
landinu og er aðeins einn kostur
af mörgum sem til greina koma.
Nú er ákveðin hreyfing í þá átt að
ná fram breytingum á - kosninga-
skipaninni og ég tel brýnt að eitt-
hvaö liggi fyrir í þeim efnum fyrir
næstu kosningar," segir Geir H.
Haarde, Sjálfstæðisflokki.
„Ég held að það sé óskynsamlegt
að gera landið að einu kjördæmi.
Það myndi stuðla að auknu flokks-
ræði og íjölga smáflokkum. Núver-
andi kjördæmaskipan miðar að því
að ná fullu jafnvægi milli flokka
en persónukjörið er of lítið,“ segir
Páll Pétursson, Framsóknarflokki.
„Kjördæmaskipan í landinu hef-
ur verið bundin við héraðavitund
og búsetuhagsmuni. Lítfl umræða
hefur farið fram um en það er
merkilegt hve margir á höfuðborg-
arsvæðinu styðja hugmyndina
miðað við hve fltið hún hefur verið
rædd. Mismunur á afstöðu lands-
byggðar og höfuöborgarsvæðis er í
senn eðlilegur og kemur ekki á
óvart vegna þess að hin hefð-
bundnu skipti í kjördæmamálinu
alla þessa öld hafa legið milli lands-
byggðar og höfuðborgarsvæðis,"
segir Ólafur Ragnar Grimsson, Al-
þýðubandalagi.
„Umræða um breytingu á kjör-
dæmaskipaninni á eftir að fara
fram í þjóðfélaginu. Það er ljóst að
núverandi vægi atkvæða er ekki
réttlátt og íbúar á landsbyggðinni
óttast um sinn hag. Breyting hlýtur
að eiga sér stað en spumingin er
hversu langt eigi að ganga," segir
Kristín Ástgeirsdóttir, Kvenna-
lista.
„Ég er ekki hissa á þessari niður-
stöðu. Þetta er umræöa sem á eftir
að taka nokkur ár og ég held að sé
talsvert í land með að landið verði
eitt kjördæmi. Menn munu ef til
vill breyta kosningalöggjöfinni áð-
ur en ég hefði getað sagt til um
þessa niðurstöðu fyrirfram," segir
Sigbjöm Gunnarsson, Alþýðu-
flokki.
-GHS
- sjá könnunina á bls. 4
Leikhús
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Stórasviðkl. 20.00.
SPANSKFLUGAN
eftir Arnold og Bach
Flm. 30. des.
Litlasviðkl. 20.00.
ELÍN HELENA
eftir Árna Ibsen
Fös. 10/12, laugard. 11/12, flm. 30. des.
Ath.l Ekkl er hœgt að hleypta gestum Inn
i salinn eftir að sýning er hafln.
Stórasvlðiðkl. 14.00.
ÍSLENSKT - JÁ, TAKK!
Miðasalan er opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 13-20. Tekið á
móti miðapöntunum í sima 680680
kl. 10-12 alla virka daga.
Bréfasími 680383.
Greiöslukortaþjónusta.
Munið gjafakortin okkar,
tilvalin tækifærfsgjöf.
Leikfélag Reykjavíkur -
Borgarleikhús.
FRÆÐSLULEIKHÚSIÐ:
GÚMMÍENDUR SYNDA VÍST, 25 min. leik-
þáttur um áfengismál.
Pöntunarsiml 688000. Ragnhelður.
Leikfélag Akureyrar
Viltu gefa jólagjöf sem
gleður?
Einstaklingar og fyrirtæki
JÓLAGJAFAKORT
LA
ertilvalin jólagjöf.
Jólagjafakortið veitir aðgang að
spunkunýja hláturvæna gaman-
leiknum
GÓÐVERKIN KALLA!
sem frumsýndur verður á jólunum.
Höfum einnig til sölu nokkur eintök
af bókinni
SAGA LEIKLISTARÁ AKUR-
ÉYRI
1860-1992.
Haraldur Sigurðsson skráði.
Falleg, fróðleg og skemmtileg bók
prýdd hundruðum mynda.
Miöasalan er opin alla virka daga kl.
10-12 og 14.-18.
Simi (96J-24073.
Greiðslukortaþjónusta.
II ÍSLENSKA ÓPERAN
É VGENl ÓNEGÍ
eftir Pjotr I. Tsjajkovský
Texti effir Púshkin í þýðingu
Þorsteins Gylfasonar.
Frumsýnlng flmmtudaglnn 30.
desember kl. 20.
Hátiöarsýning sunnudaglnn 2. janúar
kl. 20.
3. sýnlng föstudaglnn 7. janúar kl. 20.
Verð á frumsýnlngu kr. 4.000.
Verð á hátfðarsýnlngu kr. 3.400.
Boðlð verður upp á léttar veltingar á
báðum sýnlngum.
Miðasalan er opin frá kl.
15.00-19.00 daglega.
Sýningardaga til kl. 20.
SÍM111475-
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA.
LEtKFÉLAG
MOSFELLSSVEtTAR
„ÞETTA REDDAST!"
f Bæjarleikhúslnu Mosfellsbæ
8. janúar 1994.